Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1998, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998
Spurningin
Hvaöa vikudagur er í mestu
uppáhaldi hjá þér?
Margrét Sigurðardóttir einka-
þjálfari: Laugardagur, því hann er
til lukku.
Gígja Jóhannesdóttir afgreiðslu-
stúlka: Laugardagur, því þá koma
helgarblöðin og krossgáturnar.
Ingunn Eydal afgreiðslustúlka:
Mánudagur, því hann er upphafið
aö nýrri viku.
Gísli Guðmundsson tæknimaður:
Föstudagur, þvi þá er djammað á
kvöldin.
Sigríður Pálsdóttir, hjá farþega-
þjónustu SVR: Sunnudagur, því þá
fer ég á gömlu dansana.
Oddgeir Axelssón verkamaður:
Miðvikudagur, því þá gerist svo
margt.
Lesendur
Vandræðalegt vega-
kerfi á Vestfjörðum
Ragnar skrifar:
Sem leikmanni er ekur til Vest-
fjarða eingöngu að sumarlagi reynist
kannski auðvelt að dæma hið slæma
vegakerfi til ísafjarðar frá Barða-
ströndinni. Það hefur því orðið raun-
in á að nota Breiðafjarðarferjuna
Baldur milli Stykkishólms og Brjáns-
lækjar, fram og til baka, og aka það-
an um Dynjandisheiði og Hrafnseyr-
arheiði til Þingeyrar og ísafjarðar.
Ekki er hægt að segja að vegur
þessi yfir heiðarnar sé hlemmiveg-
ur, en fallegt er landslagið og hrika-
legt víða og þess virði að fara leið-
ina, séu menn í standi til að aka í
þessu hættulega umhverfi, sem það
getur reynst, t.d. fyrir lofthrædda.
Þama eru hvergi vegrið eða aðrar
ráðstafanir líkt og gerist um fjall-
vegi í löndum sem telja samgöngur
á landi brýnt hagsmunamál fyrir
alla landsmenn.
Ég get ekki séð annað en verði
það ofan á sem maður heyrir um
samgöngur á þessu svæði, að
Breiðafjarðarferjan Baldur hætti
siglingum og ekki verði gerðar úr-
bætur á veginum vestur til Þingeyr-
ar um heiðamar en byggð leggist
smám saman af á svæðinu öllu,
nema ísafirði. Það er til lítils að
kynna Vestfirði ferðaskrifstofufólki
vítt um lönd en láta valta yfir og
leggja niður nauðsynlegar sam-
gönguæðar.
Erlendir feröamenn skoða útsýniö á Hrafnseyrarheiöi.
Guðmundi Andra ber
hærri ritlaun
- opið bréf til ritstjóra DV
Steingrímur J. Sigfússon skrifar:
Kæri Össur. - Ég gríp enn til þess
ráðs að skrifa þér sökum þess að ég
hef áhyggjur af litlu atriði sem varð-
ar blað þitt. Reyndar verð ég að biðja
þig að hafa líka samband við vin okk-
ar, Stefán Jón Hafstein, og að þið
kollegamir sammælist um aðgerðir
til úrbóta í þessu máli.
Tilefnið er það, að ég hef sann-
færst um að kaupið sem hann Guð-
mundur Andri Thorsson fær fyrir að
skrifa pistlana í blöðin ykkar er allt
of lágt. Þegar svo er komið, að jafn
hugmyndaríkur og vel skrifandi
maður og Guðmundur Andri neyðist
til að endurbirta trekk í trekk sama
pistilinn í blöðunum ykkar er komið
í hreint óefni.
Ástæðan getur ekki verið nein önn-
ur en sú, að Guðmundur Andri fái svo
skammarlega borgað fyrir ritstörfin,
t.d. þegar hann skrifar í blaðið hjá þér
undir fyrirsögninni Heygarðshornið,
að hann nái ekki að vera matvinnung-
ur nema með því að fjölnýta pistlana
sína og birta þá einu sinni til tvisvar
í hvom blaði fyrir sig.
Astæða þess að ég hef veitt þessu
athygli er sú, að ég hef orðið þess
heiðurs aðnjótandi, að Guðmundur
Andri hefur helgað mér einn af þess-
um pistlum sem hann hefur nú birt
nokkrum sinnum, bæði í DV og í
Degi. Út af fyrir sig gæti ég glaðst
yfir því að þessi smánarlegu ritlaun
valda því, að Guðmundur Andri
verður að endumýta pistilinn sinn,
sem aftur tryggir mér reglubundna
umfjöllun á síðum blaða ykkar. Mér
finnst hins vegar að í svona tilvikum
megi maður ekki láta stjómast af
sjálfselskunni einni, heldur beri okk-
ur öllum að leggja saman kraftana og
tryggja að gáfum og tíma ungs hæfi-
leikamanns sé ekki sóað með þessum
hætti.
Mér hefur auðvitað flogið í hug, að
Guðmundur Andri kunni að gera
þetta af greiðasemi við mig. Hvernig
sem ég fer samt yfir það í huganum
þá rekur mig ekki minni til þess að
ég hafi nokkurn tíma orðið svo gæfu-
samur aö geta gert honum umtals-
verðan greiða, eða lagt þannig inn
hjá honum að ég verðskuldi slika
umhyggju af hans hálfu. Ut af fyrir
sig ekki heldur gert neitt á hlut hans.
- Að öllu samanlögðu finnst mér
ósanngjamt annað en Guðmundur
Andri fái gott kaup fyrir að skrifa
pistlana sína. Hann geti lagt vinnnu
í hvem og einn, sótt aðeins dýpra í
gnægtabrunn visku sinnar og fleiri
málefni og viðfangsefni en vesalings
ég fái að njóta góðs af umfjöllun rit-
höfundarins.
Ég þykist vita, að þú, Össur minn
og þið báðir, þú og Stefán Jón, séuð
mér sammála í þessu efni. Það er jú
altalað í bænum, að pistlar Guð-
mundar Andra Thorssonar skeri sig
úr hvað varðar víðsýni og umburðar-
lyndi fyrir ólíkum skoðunum, svo
ekki sé nú minnst á gæskuna og
ríkulegan mannkærleika sem bein-
línis lýsa upp textann. Ónefndur
maður sem stoppaði mig á götu ný-
lega til að ræða við mig um pistla
Guðmundar sagði mér, að þeir væru
eini textinn af þessu tagi sem skrifað-
ur væri í blöð nú sem stendur, sem
lýstu svo af jákvæðu innihaldi, að þá
mætti lesa í brúnamyrkri.
Lögreglustjórar í Reykjavík
Helga Jóhannsdóttir hringdi:
Þaö hefur gengið á ýmsu hjá lög-
reglustjóraembættinu í Reykjavík á
liðnum misserum. Svo langt gekk
misbresturinn og óreiðan hjá emb-
ætti þessu að viðkomandi ráðherra
kaus að víkja lögreglustjóra úr starfi
á forsendum veikindaleyfis frá því í
vor og allt fram í nóvember nk. Ann-
ar maður var settur til bráðabirgða,
ötull og frambærilegur í alla staði og
hefur sett fram nýjar hugmyndir og
áherslur í löggæslunni í Reykjavík.
I bréfinu er mælt meö ráðningu nú-
verandi lögreglustjóra. - Georg Kr.
Lárusson lögreglustjóri.
Manni sýnist að hér hafi vel til tek-
ist í flestum greinum.
Nú hafa ekki verið gefnar upp
ástæður veikindaleyfis fyrir fráfar-
andi lögreglustjóra en hann var
sagður staddur á ráðstefnu í útlönd-
um nýlega. Varla er mikið veikur
embættismaður sendur á ráöstefnur
ytra fyrir íslands hönd. Eða hvern-
ig var hægt að ákveða veikindaleyfi
allt fram í nóvember? Hvað býr hér
að baki er ekki einkamál ráðherra
eða lögreglustjóra, hér er um að
ræða opinbera embættismenn sem
við skattborgarar greiðum laun af
gjöldum okkar.
Ég mæli með því að núverandi
settur lögreglustjóri verði ráðinn til
frambúðar sem lögreglustjóri í
Reykjavík. Annað leiddi til áfram-
haldandi óvissu í þeim málum sem
hann hefur barist fyrir og hafa feng-
ið góðan hljómgrunn hjá öllum al-
menningi.
Kvíði ævi-
söguflóðinu
Ereindur skrifar:
Það er ekki ráð nema í tíma sé
tekið að vara við hinum hvim-
leiðu auglýsingum í jólabókaflóð-
inu. Ekki þar með sagt að aug-
lýsendur eða fjölmiðlarnir taki
mark á þessum varnaðarorðum.
En mikið ósköp eru þær væmnar
og vitlausar þessar ævsöguaug-
lýsingar. Og nú eigum við von á
ævisögum um menn sem enn eru
í fúllu fjöri og hafa auk þess ver-
ið og eru enn í sviðsljósinu. Ég
tek sem dæmi menn eins og
Steingrím Hermannsson og
Steingrim ' St. Th. Sigurðsson.
Líka þá sem eru gengnir, fræði-
menn og aðra þekkta. Þetta ævi-
sögustagl höfðar ekki lengur til
fólks. Þeir sem hafa frá einhverju
að segja, segi það sjálfir, eða gera
það með verkum sínum í lifanda
lífi. Meira þarf ekki við.
Alltaf blekkja
Serbarnir
Þór hringdi:
í hádegisfréttum ljósvakamiðl-
anna í dag (mánudag) var sagt
frá því að nú hefðu Serbar til-
kynnt að þeir hefðu nú unnið
fullnaðarsigur á svonefndum að-
skilnaðarsinnum í Kosovo og þvi
væri ekki þörf fyrir meiri vopna-
viðskipti. Hvað skyldu Serbar og
forystumenn þeirra oft hafa gefið
svipaðar yfirlýsingar? Þeir gera
það alltaf þegar von er á hernað-
araðgerðum Sameinuðu þjóð-
anna eða NATO. Og jafnharðan
draga hinir síðarnefndu allt til
baka og þá geta Serbar hafið
árásir á ný. Serbar blekkja um-
heiminn. Margir spyrja; hvar eru
þeir kónarnir Mlavek og Kara-
dzick, mestu hryðjuverkamenn
Evrópu í dag? Þeir skyldu þó
aldrei stjórna aðgerðum Serba
enn þá?
íslensk
lágmenning
í Sjónvarpi
H.P.Ó. skrifar:
Dagskrá Sjónvarpsins síðustu
viku eða svo samanstóð af ís-
lensku efni. Tíndar voru til ís-
lenskar kvikmyndir og leikrit,
svo og samtíningur af íslenskri
fyndni til að sýna okkur skylduá-
skrifendum Ríkisútvarpsins. Ég
horfði á mikið af þessu til að geta
dæmt um af eigin reynslu. Niður-
staðan varð sú að mér fannst hér
vera sýndur dæmigerður kafli af
lágmenningu þeirri sem kostuð
hefur verið af almannfé. Ég skal
hins vegar játa að myndin Sigla
himinfley og leikritiö Grandaveg-
ur 7 báru af því sem ég hef séð af
innlendu leiknu efhi um margra
ára skeið. - Mörg innlend leikrit,
eldri sem yngri, hafa líka verið
mjög frambærileg og minnisstæð.
Kvikmyndimar hins vegar flest-
ar á verri veginn.
Flagari til
islands?
Elsa hringdi:
Það er tínt til sem höfuðfrétt í
fjölmiðlum hér að breskur flagari
sé á leið til íslands! Ég spyr; hver
er flagari, og hver er ekki flagari?
Á kannski að kyrrsetja ferða-
mann á Keflavíkurflugvelli þótt
einhverjar konur í hans heima-
landi eða annars staðar hafi látið
manninn plata sig í peningamál-
um? Hvað voru þær að abbast
upp á manninn, við hverju bjugg-
ust þær? Það er talað við yfir-
mann útlendingaeftirlits i út-
varpsfrétt til að spyrja frétta um
komu mannsins. Maðurinn hlýt-
ur að hafa ferðafrelsi, sé hann
ekki eftirlýstur glæpamaður. Nú
reynir bara á íslenskar konur
hversu staðfastar þær reynast
gegn fagurgala „flagarans".