Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1998, Blaðsíða 20
32
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998
r
Hlynur Stefánsson fagnar Islandsmeistaratitlinum á KR-vellinum á laugardaginn ásamt Jóhanni Ragnarssyni og fleiri stuðningsmönnum ÍBV.
DV-mynd Brynjar Gauti
- samkvæmt boltagjöf DV í úrvalsdeildinni í sumar
Fyrirliði Eyjamanna, Hlynur
Stefánsson, er leikmaður ársins að
mati blaðamanna DV. Hlynur fékk
19 bolta í sumar eða tveimur fleiri
en næstu menn. Hann var þó aðeins
kosinn einu sinni maður leiksins, í
síðasta leiknum við KR ásamt Zor-
an Miljkovic. Hlynur var mjög jafn
allt tímabilið og fékk bolta í 16 af 18
leikjum ÍBV. Hann fékk tvisvar
sinnum 2 bolta og fjórtán sinnum
einn bolta. Hlynur lék frábærlega í
allt sumar í vörn Eyjamanna og
verður að teljast afar líklegur til að
hljóta útnefningu sem leikmaður
ársins á lokahófi KSÍ um næstu
helgi.
Þessir fengu flesta bolta í sumar
hjá blaðamönnum DV:
Hlynur Stefánsson, tBV...........19
ívar Ingimarsson, ÍBV............17
Ólafur Þór Gunnarsson, ÍR........17
Steinar Adolfsson, ÍA ...........17
Steingrlmur Jóhannesson, ÍBV .... 17
Tómas Ingi Tómasson, Þrótti......17
Milan Stefán Jankovic, Grindavik . . 16
Scott Ramsey, Grindavík............16
Bjarni Þorsteinsson, KR ...........15
Jens Martin Knudsen, Leiftri ......15
Guðmundur Benediktsson, KR .... 14
Arnór Guðjohnsen, Val..............13
Baldur Bragason, Leiftri...........13
Izudin Daði Dervic, Þrótti ........13
Sævar Þór Gíslason, ÍR.............13
Albert Sævarsson, Grindavík .......12
Bjarki Stefánsson, Val.............12
David Winnie, KR...................12
Bjarki Guðmundsson, Keflavik .... 11
Einar Þór Daníelsson, KR...........11
Gunnar Oddsson, KR.................11
Zoran Miljkovic, ÍBV...............11
Jón Sveinsson og Baldur Bjama-
son eru efstir Framara með 10 bolta.
Eftirtaldir hafa verið efstir í
boltagjöf DV undanfarin ár:
1994 .....Sigmsteinn Gíslason, ÍA
1995 ...........Ólafur Þórðarson, ÍA
og Hermann Hreiðarsson, ÍBV
1996 . . Baldur Bjamason, Stjömunni
og Gunnar Oddsson, Leiftri
1997 . .. Milan Jankovic, Grindavík.
Tómas
Ingi var sex
sinnum
maður
leiksins Sex
sinnum
fengu flmm
leikmenn í
úrvalsdeild-
inni fulla
gjöf eða 3
bolta, þar af
4 sinnum í
Tómas Ingi Tómasson við
Þrótt.
Steingrímur fékk tvisvar fulla gjöf
er hann skoraði þrennu gegn Þrótti
í 10. umferð og Val í 5. umferð, Am-
ór Guðjohnsen, Val, fékk 3 bolta
gegn Þrótti í 11. umferð, David
Winnie, KR, fékk gegn Þrótti í 15.
umferð, Baldur Bragason fékk 3
bolta gegn Þrótti í 14. umferð og
Ólafur Þór Gunnarsson, ÍR, fékk 3
bolta gegn Leiftri i 12. umferð.
Tómas Ingi Tómasson úr Þrótti varö
oftast maður leiksins eða 6 sinnum.
Næstur honum kom Steingrímur Jó-
hannesson úr ÍBV sem var valinn
fimm sinnum maðm leiksins en
þessir voru oftast menn leiksins hjá
blaðamönnum DV í sumar.
Tómas Ingi Tómasson, Þrótti.......6
Steingrímur Jóhannesson, ÍBV .....5
Amór Guðjohnsen, Val..............4
Ólafur Þór Gunnarsson, lR ........4
Scott Ramsey, Grindavík...........3
Steinar Adolfsson, ÍA.............3
Eyjamenn fengu 29 fleiri bolta
samtals heldm en næstu lið sem
voru KR og Leiftur. ÍBV fékk 128
bolta en fæsta bolta fengu leikmenn
ÍR eða 73. Liðin fengu eftirtalda
boltagjöf hjá blaðamönnum DV í
sumar. Innan sviga er hve oft leik-
maður úr liðinu var valinn maðm
leiksins en Þróttarar, sem féllu í 1.
deild, áttu oftast menn leiksins
ásamt ÍA og ÍBV eða 11 sinnum.
ÍBV ...........................128 (11)
KR...................................99 (10)
Leiftur.......................a 99 (10)
ÍA...................................94 (11)
Grindavík........................93 (8)
Þróttur..........................85(11)
Valur ...........................85 (8)
Keflavík.........................83(8)
Fram.............................75 (5)
ÍR...............................73 (7)
Eyjamenn fengu 6 sinnum fleiri
en 10 bolta f leik og mest fengu þeir
13 bolta gegn Val í 5. umferð.
Grindavik, Þróttm og Leiftur náðu
öll einum leik þar sem liðið fékk 10
bolta, Grindavik í síðasta leiknum
gegn Fram þar sem liðið bjargaði
sér enn einu sinni frá falli. -ÓÓJ
ENGLAND
Ryan Giggs verður ekki með
Manchester United í leiknum gegn
Bayem Mtinchen í kvöld í Meistara-
deUdinni. Hann meiddist í leiknum á
móti Liverpool og sat eftir heima þeg-
ar liðið fór tU Mtinchen í gær. Gríð-
arlegur áhugi er fyrir leiknum og er
búist við að 60 þúsund áhorfendum.
Gerry Francis er efstur á óskalista
forráðamanna QPR í starf knatt-
spymustjóra liðsins eftir að Ray
Hartford hætti störfum þar í gær. Það
er stjómendum liösins í mun að snúa
bökum saman og koma liðinu í hóp
þeirra bestu á nýjan leik eftir mögur
ár. Francis starfaði hjá QPR áður en
hann fór tU Tottenham á sínum tíma.
-JKS
Hammarby lá
gegn botnliðinu
Pétur Marteinsson og félagar hans í Hammarby töp-
uðu dýrmætum stigum í toppbaráttu sænsku A-deild-
arinnar í knattspymu í gær.
Hammarby tapaði þá fyrir botnliði öster á heima-
velli, 0-1, og kom markið úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Pétur Marteinsson
lék aðeins fyrri hálfleikinn en hann fékk högg á lærið og gat ekki leik-
ið seinni hálfleikinn. Þorvaldur Makan Sigbjörnsson lék allan leikinn í
framlínu Öster og var frískur.
Þegar 5 umferðum er ólokið er mikil spenna á toppnum. Hammarby er
efsta sætinu, er með 37 stig eins og AIK, markamunur liðanna er jafn en
Hammarby hefur skorað fleiri mörk. Halmstad kemur svo í 3. sætinu
með 35 stig og Örebro í því 4. með 33 stig. Þrátt fyrir sigurinn er Öster
enn neðst með 17 stig, Hacken er meö 21 og Malmö 22. -EH/GH
Paolo Di Canio:
llla farið með
útlendinga
Paolo Di Canio, sem réðst á
dómarann í leik Sheffield Wed-
nesday og Arsenal um liðna
helgi, segir að Englendingar fari
illa með erlenda leikmenn og
þeir fái aðra meðhöndlun en inn-
fæddir.
Paolo Di Canio, sem á yfir
höfði sér langt bann, sagði í gær:
„Það er sparkað í mig látlaust
um hverja helgi en það er enginn
til að verja mig. Allt þetta mál
hefur verið ýkt stórlega." -SK
Zi ENGIAND
Forráðamenn Charlton tóku upp
budduna í gær og keyptu vamar-
manninn Carl Tiler frá Everton fyr-
ir 75 milljónir króna. Tiler, sem er 28
ára, lék 18 leiki með Everton á sið-
asta tímabili. Charlton var fyrir
tveimur vikum siöan með Hermann
Hreiðarsson undir smásjánni en
hann er farinn til Brentford eins og
kunnugt er.
Skoska liðió Hearts er á höttunum
eftir franska landsliðsmanninum
Vincent Guerin sem leikur með
Paris St. Germain. Guerin, sem er 32
ára og á að baki 18 landsleiki, ræddi
við forráðamenn Hearts í gær og er
búist við að hann gefi skoska liðinu
svar fyrir vikulokin hvort hann
gangi til liös við félagið. -JKS