Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998 Fréttir Niðurstöður lygamælingaprófsins á Sævari Ciesielski árið 1976: Gögnin sem hurfu - niðurstöðurnar Sævari í hag, segir Jón Oddsson, fyrrum réttargæslumaður hans „Þegar málið var tekið fyrir í Hæstarétti i fyrra leitaði ég að öll- um gögnum sem tengdust Sævari Ciesielski, skjólstæðingi mínum, og þessum málum. Ýmis gögn komu ekki fram í dagsljósið, þar á meðal niðurstöður úr lygamælingaprófi og fleiri sálffæðiprófum sem rannsókn- armenn létu Sævar gangast undir meðan hann var í varðhaldi. Þessi gögn virðast hreinlega hafa horfið. Af hverju þau hurfu veit ég ekki,“ segir Ragnar Aðalsteinsson, hæsta- Dr. Gísli Guðjónsson, yfirréttarsál- fræðingur í Englandi, tók lygamæl- ingaprófið á Sævari. Gfsli var þá rannsóknarlögreglumaður. réttarlögmaður og réttargæslumað- ur Sævars Ciesielskis í upptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála fyrir Hæstarétti. Samkvæmt heimildum DV óskaði Sævar ekki eftir niðurstöðum úr þessu lygamælingaprófi þegar málið var tekið upp í Hæstarétti. Sævari í hag Dr. Gísli Guðjónsson, sem er virtur yfirréttarsálfræðingur í Englandi, framkvæmdi lygamæl- ingaprófið á Sævari árið 1976. Samkvæmt heimildum DV hefur Gísli einn þessar niðurstöður und- ir höndum og hefur aldrei afhent þessi gögn. Gísli hefur ekkert vilj- að tjá sig um niðurstöður prófsins og segist ekki hafa leyfi til þess þar sem um trúnaðarskjöl sé að ræða. Gísli var rannsóknarlög- reglumaður í sakadómi á þeim tíma sem hann tók prófið á Sæv- ari. Jón Oddsson, sem var réttar- gæslumaður Sævars á þeim tíma, fékk að vita niðurstöðumar og segir í viðtali við DV að þær hafi verið hagstæðar fyrir Sævar. „Ég fékk ekki að sjá niðurstöðumar á prenti en mér var tjáð þetta af lög- reglumönnum. Ég bar fram fyrir- spurn á þeim tíma um hvort ætti ekki að leggja þessi gögn fram þá en það var ekki metið svo af dóm- stólum,“ segir Jón í samtali við DV. Málin í Strasbourg Guðmundar- og Geirfinnsmálin voru send til mannréttindadóm- stólsins í Strasbourg eftir að Hæstiréttur taldi ekki ástæðu til endurupptöku þeirra á síðasta ári. Málin em nú í eðlilegri meðferð ytra og hafa fengið kennitölu þar, að sögn Ragnars Aðalsteinssonar. Ragnar segist ekki geta tjáð sig nánar um gang málanna fyrir dómnum í Strasbourg á þessu stigi en segir að mál séu yfirleitt mjög seinfarin fyrir dómnum. -RR Sævar Ciesielski fyrir utan Hæstarétt. Sævar fór í lygamælingapróf árið 1976 en niðurstöður þess eru á huldu. Jón Oddsson, fyrrum réttargæslumaður Sævars, segir að niðurstöðurnar úr því hafi verið Sævari í vil. Stórtónleikarnir á Akureyri: í fínu formi og hlakka til - segir Kristján Jóhannssön DVAkuœyri: „Þessir tónleikar leggjast mjög vel í mig og ég vona að Akureyring- ar segi það sama,“ segir stórsöngv- arinn Kristján Jóhannsson, en hann er kominn til Akureyrar þar sem stórtónleikar hans og fleiri lista- manna verða í íþróttahöllinni á morgun. Tónleikamir era haldnir til minningar um Jóhann Konráðs- son, hinn landsþekkta söngvara og föður Kristjáns, en hann heföi orðið áttræður á siðasta ári. Uppselt er á tónleikana og verða um 2000 manns viðstaddir. Eins og á eftirminnilegum tón- leikum Kristjáns á Akureyri fyrir þremur áram syngur Sigrún Hjálmtýsdóttir með Kristjáni nú og einnig Jóna Fanney Svavarsdóttir, bróðurdóttir Kristjáns. Undirleik- inn annast Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sem verður styrkt með hljóðfæraleikuram úr Sinfóníu- hljómsveit íslands. Hljómsveitar- stjórinn er Giovanni Andreoli, þekktur ítalskur hljómsveitarstjóri. Kristján segir að tónleikamir á Akureyri fyrir þremur áram séu eftirminnilegir. „Það var létt yfir þeim tónleikum og svo verður von- andi einnig nú. Ég er í mjög fínu formi og hlakka mikið til tónleik- anna,“ sagði Kristján. -gk Kristján Jóhannsson og ítalski stjórnandinn Giovanni Andreoli á flugvellin- um í Reykjavík í gærkvöld, á leið norður til Akureyrar. DV-mynd Hilmar Þór Málefni miðhálendisins: Þingforseta af- hent áskorun í gær var forseta Alþingis af- hent áskorun til þingmanna um málefni miðhálendisins. Þeir sem skrifuðu undir áskoranina vora öll helstu náttúravemdar- samtök landsins ásamt útivistar- félögum og landskunnu lista- fólki. „Hér er ekki verið að mótmæla neinu, heldur erum við einungis að vekja fólk til umhugsunar og sýna samstöðu með landinu og náttúrunni. Við afhendum áskor- unina með það fyrir augum að lýsa hug listamanna til þess sem er á döfmni á þinginu í vetur í málefnum hálendisins." sagði Kolhrún Halldórsdóttir leik- stjóri, og talaði fyrir hönd þeirra 35 listamanna sem lásu ættjarð- arljóð í alíslenskri rigningu til þess að undirstrika skoðanir sín- ar. í þeim hópi vora meðal ann- arra Þorsteinn frá Hamri, Eiísa- bet Jökulsdóttir, Guðrún Gísla- dóttir, Sjón og Ámi Ibsen. Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, tók við áskoruninni á tröppum Alþingishússins, sagð- ist mundu koma henni til skila og bætti því við að sjálfur hefði hann sterkar taugar til hálends- ins. í fréttatilkynningu frá áskor- endum segir meðal annars: „Mál- efni miðhálendisins hafa verið mikið í sviðsljósinu að undan- fömu. Fram er komin skipulags- tillaga að margþættri landnýt- ingu á svæðinu til næstu sautján ára, umfangsmiklar virkjunar- Elísabet Jökulsdóttir beindi orð- um sínum að Aiþingishúsinu og hafði Stein Steinarr sér til halds og trausts við lesturinn. DV-myndiTeitur framkvæmdir eru þegar hafnar, eða á döfinni og hugmyndir era uppi um stóraukna vegagerð á öræfunum. Haldi fram sem horf- ir er ljóst að þjóðin glatar fyrr en varir einni helstu náttúraauð- lind sinni: Ósnortnum víðemum og öræfanáttúru." -þhs Stuttar fréttir i>v Ofveifti rjúpunnar Skotveiðifélagið hefúr lagt til við umhverfisráð- herra og þing- menn á SV-landi að þeir beiti sér fyrir að fiárveit- ingar til ijúpna- rannsókna verði auknar. Sigmar B. Hauksson, formaður félagsins, segir að stytt- ing veiðitímans nú yrði skot í myrkri. Hann dregur í efa aö of- veiði sé á öllu SV-landi. Náttúru- fræðistofnun hefur hins vegar sagt að ástand rjúpnastofnsins á SV- landi væri mun verra en í öörum landshlutum. Ástæðan er ofveiði. RÚV greindi frá. Fall um tæp 27% Viðskiptablaðið segir frá því að hlutabréf Básafells hf. hafa fallið um nær 27% frá miðjum júní eða frá því hlutabréf félagsins voru tek- in á skrá Aðallista Verðbréfaþings. Stærsta fyrirtækið Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er stærsta fyrirtæki landsmanna samkvæmt yfirliti Fijálsrar versl- unar. í fyrra nam velta fyrirtækis- ins 29,5 ma. kr. RÚV greindi frá. Kaupir tvö skip Sjónvarpið greindi frá því að skrifað hefur verið undir samninga um kaup Haraldar Böðvarssonar hf. á tveimur nýjum nóta- og flottrollsskipum. Lítil einkavæöing í Viðskiptablaðinu kemur fram að ríkisstjómin áformi litla einka- væðingu á næsta ári. Einungis er gert ráð fyrir aö selja afganginn af hlut ríkisins í FBA, Aðalverktök- um og Sementsverksmiðjunni. Samningur Sýn og Japis íslenska útvarpsfélagið og Japis hafa gert meö sér viðamikinn samning hvað varðar kostnað á útsendingum frá NBA-körfu- boltanum. Samningurinn gildir frá byrjun leiktímabilsins, sem er 6. nóvem- ber, og felur í sér að Japis kostar allar útsendingar frá NBA á Stöð 2 og Sýn. íslendingar þunglyndir Kostnaður tryggingakerfisins vegna tauga- og geðlyfja hér á landi hefur tvöfaldast undanfarin sex ár. í ljós hefur komið að íslendingar neyta helmingi meira af nýjum þunglyndislyfjum en nágrannar okkar Danir. RÚV greindi frá. Yrði þaö stærsta í Viöskiptablaðinu kemur fram aö ef hlutabréf Landssímans hf. yröi skráð á markaði yrði fyrirtæk- ið án efa stærsta fyrirtæki landsins miðað við markaðsverðmæti. Tekjur lækka um 16% í Viðskiptablaðinu kemur fram að tekjur Þjóðleikhússins lækka um 16% á komandi ári frá því sem fjárlög gera ráð fyrir á þessu ári en áætlaö er að þær nemi 115 milljón- um króna eða 22% af rekstrargjöld- um. Eigin tekjur Sinfóníuhljóm- sveitar íslands verða aðeins 11% af rekstrargjöldum á næsta ári sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi. Vill 4. sætið Jón Gunnarsson, framkvæmda- stjóri í Kópa- vogi, hefur til- kynnt um þátt- töku sina í próf- kjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjaneskjör- dæmi sem hald- ið verður 14. nóvember og sækist hann eftir 4. sæti. Síðastliðin ár hefúr Jón gegnt formennsku í Sjávarnytjum sem berst fyrir skynsamlegri nýtingu auðlinda hafsins. Að undanförnu hefur félagið lagt áherlsu á að ís- lendingar hefji hvalveiðar á ný. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.