Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Qupperneq 16
+
16
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998
TTS7----------------
17
Iþróttir
Blcand í poka
Birkir Kristinsson, landsliösmark-
vörður í knattspymu, hefur gefið þaö
út að hann ætli að koma heim og
leika í úrvalsdeildinni næsta sumar.
Birkir hefur lítið sem ekkert fengið
að spreyta sig með Norrköping í Sví-
þjóö á þessu tímabili. Birkir hefur
ekki gefið út með hvaða liði hann
ætli aöleika meö. 1 það minnsta verð-
ur þaö liö i úrvalsdeild. Þetta kom
fram á Stöö 2 í gær.
Alain Giresse, þjáifari Paris St.
Germain, fékk að taka poka sinn í
gær. Þetta var gert í kjölfar lélegs ár-
angurs á yfirstandandi tímabili. Por-
túgalinn Arthur Jorge tekur við
stjóm liðsins en hann gerði félagiö að
meisturum 1994.
Kœru skoska liósins Hearts vegna
umgerðar leiksins gegn Real Mall-
orca i Evrópukeppninni á dögunum
var vísaö frá í gær. Hearts taldi aö
mörkin á vellinum á Mallorca heföu
ekki verið lögleg.
Andre Agassi komst áfram á sviss-
neska meistaramótinu þegar hann
lagði heimamanninn Ivo Heuberger,
6- 2, 6-2. Önnur helstu úrslit uröu að
Bretinn Tim Heneman sigraði
Hicham Arazi frá Marokkó, 6-4, 7-6,
7- 4.
Þjóöverjarnir Oliver Bierhoff og
Ulf Kirsten eru tæpir vegna meiðsla
og er óvíst hvort þeir verða leikhæfir
gegn Tyrkjum í riðlakeppni Evrópu-
móts landsliöa í Tyrklandi á laugar-
daginn kemur. Umræddir leikmenn
gátu ekki beitt sér aö fuilu á æfingu í
gær. Bierhoff er fyrirliði þýska
landsliösins.
Leikmenn rússneska landsliósins í
knattspymu kusu Viktor Onopko i
fyrirliðastööuna. Þetta gerðu leik-
menn í leynilegri atkvæöagreiðslu.
Marokkóbúinn Mustapha Hadji,
sem spænska liðið Deportivo keypti
eftir HM í Frakklandi í sumar, verð-
ur frá keppni i fjórar vikur vegna nef-
brots.
Vikingur sigraöi Þrótt úr Reykja-
vik, 8-1, í 1. deild kvenna í blaki í
gærkvöldi.
Peter Storrie, stjórnarformaöur
West Ham, sagði í gær að Eyal
Berkovic yrði áfram í herbúðum fé-
lagsins eftir samtal við leiknianninn.
West Ham sendi John Hartson
harða viðvörun þar sem fram kemur
aö framkoma sem hann sýndi
Berkovic á dögunum er litin mjög ai-
varlegum augum.
Uppskeruhátíö Knattspymudeildar
Fylkis verður haldin í kvöld í Fylkis-
höllinni. Húsið opnar kl. 19.
-JKS
Helgi Jónas Guðfinnsson, körfuboltamaður hjá Donar:
„Hollendingar
stundum of
afslappaðir
Helgi Jónas Guðfinns-
son hefur skorað að
jafnaði 15 stig í leik
með Donar þegar sex
umferðum er lokið í
áá
Iþróttir
L .
■jW.í
- Grindvíkingurinn byrjar vel hjá hollenska liðinu Donar
Helgi Jónas Guðfinnsson,
körfuknattleiksmaður úr Grindavík,
hefur verið að leika mjög vel með hol-
lenska liðinu Donar, en hann gekk til
liðs við félagið í sumar. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem íslendingur er á mála
hjá Donar en með liðinu lék Herbert
Arnarson fyrir tveimur árum síðan.
„Það eru búnar sex umferðir og ég
get ekki annað en verið ánægður með
mína frammistöðu. Ég er með um 15
stig að meðaltali í leik og þónokkuð af
stoðsendingum," sagði Helgi Jónas í
viðtali við DV í gær.
Hefur skorað mest 28 stig
Donar leikur í efstu deildinni í
Hollandi og hefur unnið tvo leiki af
þeim sex sem búnir eru.
„Ég skoraði mest 28 stig í einum
leiknum en hef verið rólegur í stiga-
skoruninni í síðustu tveimur leikjum,
var þá með 9 og 6 stig. í síðasta leik
var ég hins vegar með 12 stoðsending-
ar og er mjög ánægðjir með það,“ sagði
Helgi Jónas.
Leikstjórnandi og skotbak-
vörður
Helgi Jónas leikur í stöðu leikstjórn-
anda eða skotbakvarðar. „í síðustu leikj-
um hef ég veriö leikstjórnandi og líkar
vel við þá stöðu. Ég er minnsti leikmað-
urinn í liðinu en samt er ég 1,87 metrar
á hæð. Sá næsti er 1,88 metrar en allir
aðrir eru tveir metrar eða meira.“
Aðeins tveir leikmenn sem
voru með í fyrra
Lið Donar kom mikið breytt til leiks
er keppnistímabiliö hófst: „Það eru að-
eins tveir leikmenn í liðinu núna sem
voru með í fyrra. Það tekur tíma að
slípa saman nýtt lið og ég get ekki
annað en verið bjartsýnn á framhald-
ið.
Helgi Jónas gerði eins árs samning
við Donar. Einn íslendingur hefur
áður leikið með liðinu en það er Her-
bert Amarson sem nú er í slagnum
hér á landi með Grindvíkingum.
Hollenski boltinn svipaður
þeim íslenska
Hollenskur körfuknattleikur er frá-
brugðinn þeim íslenska að einu leyti
að mati Helga Jónasar: „Hæðin er
mun meiri hér en í íslenska boltanum.
Leikmenn hér eru mun hærri en þrátt
fyrir það er boltinn alls ekki hægari
hér en heima. Að öðru leyti er körfu-
boltinn hér mjög áþekkur þeim bolta
sem hér er leikinn.“
Alltaf í byrjunarliðinu
Grindvíkingurinn er ánægður með
sína stöðu hjá Donar: „Ég hef verið í
byrjunarliðinu í öllum leikjunum til
þessa og verð það vonandi áfram.
Maður verður hins vegar að
æfa vel og leggja sig allan
fram til að halda sinni stöðu.
Það er hörö samkeppni um
stöður í liðinu þannig að
maður má ekkert gefa eft-
ir.“
Helgi Jónas er aðeins 22 ára gamall
og á mikla
framtíð
fyrir
sér
enda
einn
efni-
legasti
körfuknatt-
leiksmaður íslend-
inga í mörg ár.
En hvernig
sérhann
fram-
tíðina
fyrir sér?
Donar var skref
fram á við fyrir mig
„Ég leit á það sem skref fram á
við fyrir mig að fara hingað til
Hollands. Hér er ég einungis að
kspila körfubolta og geri ekkert
jannað. Er því atvinnumaður í
rgreininni. Ég geröi eins árs samn-
ing við Donar og lykillinn að því að
komast í sterkari deild hjá sterkara
liði og fá
meiri laun
er að standa
sig vel hér. Það
er lykilatriði. Ég
stefni að því að
standa mig sem allra
best hér og þá veit maður
aldrei hvað gerist í framhald-
inu. Það er til að mynda stutt
yfir í þýsku deildina og þá belgísku.
Þar eru mun meiri peningar í spil-
inu.“
Hollendingar eru
stundum of afslappaðir
Helgi Jónas kann afar vel við sig í
Hollandi: „Þetta er mjög afslappað hér
og stundum finnst mér Hollendingar
meira að segja of afslappaðir ef eitt-
hvað er. Ég dvel hér með kærustu
minni og okkur líður mjög vel. Launin
mættu auðvitað vera hærri en þau
duga vel fýrir salti í grautinn. Ég er
ekki kominn enn með fjölskyldu og
því duga þessi laun vel fyrir okkur
tvö.“ -SK
Undarlegt
Þegar laufin tóku aö falla af
trjánum í haust og fór að sjá fyrir
endann á knattspyrnuvertíðinni
hér á landi, hnaut maður illa um
ummæli ýmissa knattspymusér-
fræðinga um dómara og dóm-
gæslu.
Þessi ummæli litu dagsins ljós í
kjölfar umræðu um þátt mynd-
banda í því að réttlætið næði fram
að ganga. Með öðrum orðum að
mistök dómara væru hluti af
leiknum og svona ætti það að
vera. Mistök dómara væm með
öðrum orðum eðlileg og sjarmer-
andi oft á tíðum og það mætti ekki
eyðileggja leikina.
í framhaldi af þessum ummæl-
um hlýtur að mega vænta þess að
menn hætti aö gagnrýna dómara
og ákvarðanir þeirra. Allt detti í
dúnalogn og þeir fjölmörgu sem
virðast vera þeirrar skoðunar aö
dómarar eigi að gera mistök hafi
ekkert út á það að setja þegar í
hita leiksins er komið.
Auðvitað eiga mistök dómara og
kolrangar ákvarðanir þeirra ekki
að vera hluti af leiknum. Mig
undrar það að forráðamenn knatt-
spyrnunnar hér á landi líti á það
sem hluta af leiknum að óréttlætið
vaði uppi og lið hagnist á því að
dómarinn geri mistök. Það væri
illa komið fyrir okkar þjóð ef litið
yröi á það sem hluta af þjóðlífinu
að ekki væri farið eftir sett-
um reglum. Og ekki
væri allt gert til þess _
að reyna að halda
uppi lögum og
reglu í landinu.
Dómarar gera J
mistök og við því :
er ekkert að \
segja, það er eðli- 1
legur hlutur sem
aldrei verður kom-
ist fyrir. Það er hins
vegar hægt að leiðrétta
rangar ákvarðanir þeirra
með því að styðjast við mynd-
bandsupptökur. Þannig er hægt að
tryggja að nær alveg sé farið eftir
settum reglum og réttlætinu sé
fullnægt.
Ekki ómerkari knattspymuþjóð
en Englendingar nota myndbönd i
þeim tilgangi að rétt skuli vera
rétt. Þar er ekki litið á óréttlæti og
rangar ákvcirðanir dómara sem
hluta af leiknum enda standa
þróttaljós
■ rr tefan Kristjánsson —
Englendingar okkur mun framar á
öllum sviðum knattspymunnar.
Þvert á móti er það hluti af við-
fangsefnum forráðamanna enskrar
knattspyrnu að ranglæti og rangar
ákvarðanir séu ekki hluti af
leiknum. Þeim veröi
úfrýmt úr leiknum.
Á meðan forráða-
menn íslenskrar
\ knattspyrnu og
\ jafnvel hand-
I knattleiks líka,
era þeirrar skoð-
F unar að svindl og
svínarí skuli vera
hluti af leiknum,
mun það áfram ger-
jjjgP* ast hér á landi að sann-
ir meistarar tapi leikjum
og jafnvel titlum til félaga sem
hafa notið þess að dómarar hafi
gert mistök.
Og notið þess líka að forystu-
mennimir vilja að í kappleikjum
sé það aukaatriði að farið sé eftir
settum reglum. Það sé viss sjarmi
yfir því að dómaramistök og rang-
ar ákvarðanir svipti lið sigrum og
stigum. Sannarlega undarlegt viö-
horf. -SK
Knattspyrna:
Jafntefli gegn
Hvít-Rússsum
Riðlakeppni Evrópumóts 18 ára
landsliða í knattspyrnu hélt
áfram í Frakklandi í gær.
íslenska liðið mætti þá
Hvít-Rússum og lyktaði
leiknum með jafntefli,
1-1. Hvít-Rússar komust
yfir í leiknum og höfðu
yfirhöndina í leikhléi.
Það var síðan Ingi
Hrannar Heimisson sem
skoraði geysilega mikil-
vægt jöfnunarmark
undir lok leiksins.
Eftir þessi úrslit er
Ijóst að viðureign
Frakka og íslendinga á
morgun verður hreinn
úrslitaleikur um það
hvor þjóðin kemst áfram
upp úr riðlinum. Frakkar
sigruðu Letta, 4-0, í gær en þeir
höfðu áður unnið Hvít-Rússa í fyrsta
leiknum. Islenska liðið vann Letta,
5-1. -JKS
HM landsliða í golfi:
Bandaríkjamenn
léku á als oddi
Heimsmeistarakeppni landsliða í
golfi hófst á St. Andrews-vellinum á
Englandi í gær. Bandaríkjamenn
léku á als oddi gegn Englendingum í
1. umferð og unnu þá í þremur leikj-
um. Tiger Woods vann David Carter,
Mark O’Meara vann Peter Baker og
John Daly sigraði Lee Westwood.
Allir bandarísku spilararnir léku
undir pari en Englendingamir hins
vegar allir yfir pari. Önnur úrslit
uröu þau að Skotar lögðu Kínverja,
2-1, og Svíar lið Japana 3-0.
-JKS
Golf á Korpúlfsstöðum
Opið golfmót verður haldið á
Korpúlfsstöðum á sunnudaginn
kemur. Tveir og tveir leika saman
betri bolta. Gefiiir er 7/8 forgjöf,
hámark 18. Þátttökugjald er 1500 og
rennur ágóðinn í kaup á ýmsum
áhöldum fýrir klúbbhúsið.
-JKS
Áhorfendur sjónvarpsstöðvarinnar Sky Sport 2:
Arnar bestur
í september
Arnar Gunnlaugsson, leikmaður Bolton, var
kosinn leikmaður allra neðri deildanna af
áhorfendum sjónvarpstöðvarinnar Sky Sport 2 í
september. Gefrnn var kostur á að velja átta
leikmenn sem forráðamenn Sky Sport 2 töldu að
heföu skarað fram úr í september og var Arnar
efstur með 28% atkvæða.
Arnar með eitt besta markið
Sky Sport 2 valdi einnig 20 bestu mörkin af þeim
yfir 1000 mörkum sem hafa verið skoruð í öllum
neðri deildunum fjórum síðan að keppnin hófst í
ágúst.
Mark Arnars gegn Bamsley var eitt af þessum 20
og einnig mark Peter Frandsen, Danans hjá
Bolton, en það mark lagði Amar upp, Amar gaf
boltann á Danann sem skoraði með þrumuskoti af
40 metra færi. Einnig var mark Michael Johnson
hjá Bolton á meðal þessara tuttugu. -DVÓ
Arnar Gunnlaugsson hefur leikið geysilega vel
með Bolton í haust. Hefur framganga hans vakið
mikla athygli.
Körfuknattleikur:
David Bevis til
Skagamanna
- leikur sinn fyrsta leik á mánudag
DV, Akranesi:
David Bevis sem lék með Isa-
firði á síðastliðnu ári er geng-
in til liðs við Skaga-
menn að sögn Sigurðar
Sverrissonar, formanns
Körfuknattleiksfélags
Akraness. Hann kemur
til landsins á mánu-
dagsmorgun og leikur
sinn fyrsta leik gegn
Grindavík eftir viku.
Hann leikur því ekki með
Skagamönnum í Eggjabikarn-
um gegn Þór Þorlákshöfn.
Bevis var kosinn besti útlend-
ingurinn í deildinni í vor og
skoraði að meðaltali 28,5 stig í
leik í fyrra. Bevis átti í raun
og veru að vera á Spáni. Hann
var kominn með hálfgildings
samning þar. Það gekk ekki
eftir. „Ég held að félagið hafi
hætt við þátttöku
þannig að þetta er
lottóvinningur og
okkar lán í óláni að
við skyldum fá hann
hingað þvi við vitum
hvað við höfum.
Hann er geysilega öfl-
ugur leikmaður og
mjög drjúgur í fráköstum og
hann var mjög jafh og stapill
og það er gott að fá mann sem
hefur vérið hér á landi," sagði
Sigurður í samtali viö DV.
-DVÓ
Eggjabikarinn:
Snæfell skellti
Haukunum
Keppni í Eggjabikarnum í
körfuknattleik hófst í gærkvöld
með fjórum leikjum og var um
fyrri leik liðanna að ræða. Snæ-
fell vann góðan sigur á Haukum,
92-90, í jöfiium og spennandi
leik.
I Grindavík lögðu heimamenn
liö Þórs frá Akureyri, 81-78, en í
hálfleik leiddu Þórsarar með 12
stigum. Grindvíkingar mættu
ákveönir til leiks í síðari hálfleik
og knúðu fram sigur. Herbert
Arnarson skoraöi 18 stig fyrir
Grindavík og Warren Peebles 17
stig. Hjá Þór skoraði Lorenzo
Orr 19 stig.
Önnur úrslit urðu þau að
Njarðvík sigraði ÍS með miklum
yfirburðum, 69-118, og sama ein-
stefnan var í leik ÍR og Keflavík
sem lyktaði, 54-111, og gerði
Halldór Karlsson 23 stig fyrir
Keflavík. KR sigraði Stjömuna
72-61. -JKS/BB Grindavlk
Ofbeldi eykst stórlega í enska boltanum og menn leita úrræða:
Mun harðari refsingar
Pétur fór ekki með
landsliöinu til Armeníu
Að lokinni læknisrannsókn í gær var ljóst að Pétur Marteinsson
færi ekki með landsliðinu til Armeníu en þangað hélt liðið árla
morguns. Pétur hefur átt við meiðsli að stríða í nára og tók Sigurð-
ur Öm Jónsson úr KR sæti hans. Ekki var tekin nein áhætta með
Pétur en vonir standa til að hann verði orðinn góður fyrir leikinn
gegn Rússum í Reykjavík á miövikudaginn kemur. Liðið verður
níu tíma á leiðinni til Yerevan og verður liðið komiö þangað klukk-
an tíu að staðartíma í kvöld. Leikurinn við Armena í forkeppni
Evrópumóts landsliöa verður á morgun og hefst klukkan eitt að ís-
lenskum tíma. íslendingar gerðu frækilegt jafhtefli við Frakka í
fyrsta leiknum en á sama tíma unnu Armenar lið Andorra. Ljóst er
aö leikurinn verður okkar mönnum erflður en á góðum degi getur
allt gerst. -JKS
Ofbeldi innan vallar sem utan hefur
aukist stórlega frá því sem verið hefur á
nýhafinni leiktíð í ensku knattspyrnunni.
Nú síðast sparkaði John Hartson
fólskulega í höfuð Eyal Berkovic á æfmgu
hjá West Ham og ekki er enn séð fyrir
endann á þessu leiðindamáli.
Árás Hartsons var óvenju grimm.
Menn hafa eðlilega miklar áhyggjur af því
að slagsmál em nú farin að gera vart við
sig á æfingum hjá félögunum en hingaö
til hafa menn getað verið sæmilega
öryggir með sig á æfingasvæðum
félaganna.
Leikmenn West Ham setti
hljóða
Leikmenn West Ham setti hljóða eftir
atvikið og Berkovic lá í blóði sínu í 10
mínútur eftir sparkið frá Hcirtson.
Hartson hringdi síðan í Berkovic og baðst
afsökunari Berkovic er mjög óánægður
með hvernig forráðamenn West Ham hafa
tekið á rriálinu. Hartson hefur ekki enn
verið settur í bann af félaginu og í
enskum ■ fjölmiðlum er jafnvel talið að
hann sleppi með sekt. Slík verður þó
varla iraunin hjá enska knatt-
spyrnusambandinu sem mun taka
alvarlega á málinu enda þar menn í
forsvari sem skOja að ofbeldi á æfingum
og i knattspyrnu yfirleitt er nokkuð sem
ekki á að taka sem sjálfsögðum hlut.
Ofbeldi og slagsmál eru ekki hluti af
leiknum eins og hérlendir spark-
sérfræðingar segja um hvaða vitleysu sem
dómarar hér gera í leikjum. Kannski er
þetta best sem vitlausast.
Göngin - nýr vettvangur átaka
Nú virðist vera í tísku hjá
knattspymumönnum að slá frá sér og
lemja andstæðinga jafnt sem
lögreglumenn í göngum sem liggja frá
vallarhúsum og inn að vellinum.
Upphaflega vom þessi göng sett upp á
knattspyrnuvöllum til að verja
knattspymumennina sjálfa fyrir áreiti frá
áhorfendum. Hugulsemina hafa þeir
launað með því að koma sem mestu óorði
á knattspymuna í þessum umræddu
göngum.
Nú síðast var Patrick Vieira í
Arsenal ákærður fyrir að slá til
lögreglumanns í göngum eftir leikinn
fræga gegn Shefíield Wednesday á
dögunum. Þar var dómarinn laminn af
Italanum Paolo Di Canio. Vieira nægðu
ekki slagsmálin inni á vellinum heldur
þurfti að bæta um bétur og koma laganna
verði í skilning um það hver væri bestur
og mestur. Ákaflega heimskulegt af
Vieiera.
Oft em það sömu leikmennirnir sem
eiga í hlut þegar misgóðir atburðir
eiga sér stað innan
knattspyrnuvallarins eða utan
hans. Þessir ólátabelgir gera sig
að fíflum hvað
eftir
annað. Nú
velta
fjölmiðlar á
Englandi því
fyrir sér
hvernig á
þessu
lan Wright, sem nú leikur með
West Ham, hefur stundum verið
laus höndin. Hér er hann í leik
með Arsenal á sl. tímabili.
standi. Hvernig standi á því að hegðun
leikmanna fer versnandi og sömu
leikmenn eigi í hlut hvað eftir annað.
Hvað sé til ráða.
Harðari refsingar
Flestir era sammála um að ástæðan
fyrir auknu ofbeldi í enska boltanum sé
sú hvað refsingarnar eru hlægilega
máttlausar.
Knattspyrnumennirnir,
sem flestir eru á svimandi
háum launum, eru sektaðir
um nokkur pund sem þeir gripa
upp úr öðrum buxnavasanum.
Það sem þarf að gera er að taka
upp mun harðari refsingar.
Svipta menn launum svo
mánuðum skiptir og dæma
þessa óeirðaseggi í langt
keppnisbann.
Einstaka félög á
Englandi hafa
tekið mjög
hart á
sínum
málum
og í
kjölfarið
hefur allt dottið í dúnalogn hjá
umræddum félögum.
Stóru liðin virðast hins vegar halda að
sér höndum, sérstaklega ef stóru nöfnin
eiga í hlut. John Hartson er vitanlega
einn skæðasti sóknarmaður West Ham.
Er það ástæðan fyrir þögninni og
aðgerðarleysinu á Upton Park?
Patrick Vieira er einn af lykilmönnum
Arsenal, Ian Wright var það líka á sínum
tíma. Hann hefur ekki aflagt fíflalætin
enn þótt fluttur sé frá Arsenal til West
Ham enda hefur hann aldrei fengið
duglega ráðningu.
Sheffleld Wednesday rumskaði er Di
Canio lamdi dómarann. Svipti hann
launum í tvær vikur en bann hefur ekki
enn verið gert opinbert. Di Canio munar
að sjálfsögðu ekkert um það að vera
launalaus í tvær vikur.
Ólætin slagsmálin og allur djöful-
gangurinn í enska boltanum er mjög
alvarlegt mál. Heiður enska boltans er í
húfi og því verður að treysta að for-
ráðamenn félaga og enska knattspymu-
sambandið séu í stakk búnir til að grípa
til viðeigandi aðgerða. Að öðram kosti
verður enski boltinn skrípaleikur sem
enginn mun nenna að fylgjast með. -SK