Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998 * Sviðsljós_________________________________________________________ Fergie fær milljónir fyrir að vera happdrættisvinningur: Lætur bömin lönd og leið um áramót Ýmislegt má nú gera fyrir milljón dollara. Að minnsta kosti telur her- togaynjan af Jórvík, hin rauðhærða og ástsæla Fergie, að fyrir þá upp- hæð sé það vel þess virði að láta bömin og elskhugann lönd og leið um áramótin. Fergie hefur gert samning við megmnarfyrirtækið Weight Watch- ers um að snæða kvöldverð þann 31. desember næstkomandi með vinn- ingshafa í happdrætti fyrirtækisins. Matarboðið verður eingöngu fyrir tvo, Fergie og vinningshafann. Þess vegna verða Andrés prins, fyrrum eiginmaður ærslabelgsins, dætum- ar Beatrice og Eunice og, síðast en ekki síst, ítalski kærastinn hennar, Gaddo della Gherardesca greifi, hvergi nærri. Mörgum þykir sem Fergie hafi lotið helst til lágt með því að selja áO M mK\ Jr» Cy wwmrb i. <4J Ut?** i 1 í m ÍBijte&fek.- .. Fergie ætlar að sleppa því að vera í örmum elskhuga síns um áramótin þar sem hún hefur selt sig sem happdrættisvinning í megrunarklúbbi. sjálfa sig sem happdrættisvinning. En stúlkan er skuldum vafin og því kannski ekki forsvaranlegt að fúlsa við sjötíu milljónum króna. Fergie hefúr áður auglýst ávaxtasafa vest- ur í Ameríku og hún hefur klætt sig upp sem frelsisstyttuna í auglýs- ingaskyni fyrir einhverjar mynda- vélar. Fergie mun tala inn á 30 sek- úndna sjónvarpsauglýsingu þar sem hún hvetur bandarískan almenning til að ganga í megrunarklúbb Weight Watchers. Heppinn félags- maður fái siðan að snæða með henni dýrindis kvöldverð á gamlárskvöld. Talsmaður WW vildi ekkert segja hvar Fergie og vinningshafinn mundu borða. „Við viljum ekki eyðileggja ánægjuna fyrir vinnings- hafanum," sagði talsmaðurinn. Brad Pitt hæstánægður með lífið og tilveruna Hjartaknúsarinn Brad Pitt er fremur fámáll um nýjustu kærust- una sína, leikkonuna Jennifer Aniston. Hann viðurkennir þó að lífið leiki við hann um þessar mundir. „Lífið er dásamlegt," segir kapp- inn í viðtali við amerískt skemmtirit. Jennifer hlýtur því að vera betri en engin. Brad segir aftur á móti enn minna um fyrrum kærustu, ljósk- una Gwyneth Paltrow sem nú svíf- ur um í örmum Bens Afflecks, ungs manns á hraðri uppleið 1 Hollywood og víðar. Annars er Brad önnum kafinn við að kynna nýjustu myndina sína, Meet Joe Black. Mtt IBÍÓ Frumsýning í Regnboganum 16. október. t r» i ■ ý\ Smelltu þer inn a www.visir.is og þú gætir unnið miða www.irisir.is FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR Italska tískuhúsið Moschino þykir viðhalda hnyttni sinni og skerpu f þessum fallega klæðnaði sem sýndur var í Mílanó í vikunni. Jakkinn og buxurnar eru aðalatriðið en ekki netadræsan sem stúlkan er f undir. Gat ekki búið með kærustunni Albert Mónakóprins gengur eitthvað erfiðlega að ftnna sér kvonfang, þótt eflaust eigi hann af kærustunum nóg. Nýleg til- raun hans og hinnar fögru Tös- hu Mota e Cunha til að búa í miklu nábýli mistókst. Öll áform um hjónaband eru því fyrir bí. Þegnar prinsins urðu að vonum vonsviknir þegar hirðin gaf út yfirlýsingu um að ekkert væri milli þeirra hjúanna. Melanie sýnir á sér kroppinn Viðstadda rak í rogastans á dögunum þegar bandaríska leik- konan Melanie Griffith sprang- aði um baðströndina í MarbeUa, ekki langt frá glæsiviUu eigin- mannsins Antonios Banderas, á svörtum bíkíníbaðfotum. Hún hafði sigrað í baráttunni við aukakUóin, og það svo um mun- aði. Melanie hló hins vegar að öUu tali vun að hún hefði verið í ströngum megrunarkúr. Alexandra er alltaf á þönum Alexandra prinsessa, eigin- kona Jóakims prins í Dan- mörku, er óþreytandi þegar kem- ur að því að leggja öðnnn lið. í heimsókn sinni tU Víetnams með danska Rauða krossinum sýndi Alexandra að hún býr yfir sömu hjartahlýjunni og sama áhuganum á öðru fólki og gerði Díönu heitna prinsessu jafhvin- sæla meðal alþýðu manna og rairn bar vitni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.