Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1998 19 DV Hross og menn í Laufskálarétt. DV-mynd Örn Einangrunarstoð fyrir alifugla stækkuð DV, Vesturlandi: Einangrunarstöðin á Mófellsstöð- um, Stofnungi hf., sem haft hefur einangrunarstöð fyrir Alifugla á Hvanneyri síðan 1989, er að stækka við sig og verður stækkunin á Mó- fellsstöðum í Skorradalshreppi, að sögn Jóns Péturs Líndal fram- kvæmdastjóra. „Við erum að stækka einangrun- arstöð sem við höfum haft á Hvann- eyri og munum byggja nýtt hús á Mófellsstöðum. Við höfum verið með starfsemi á Hvanneyri síðan 1989. Þetta er ein- angrunarstöð fyrir alifugla og hluti af starfseminni verður á Mófellstöð- um. Við þurftum að stækka við okk- ur til að auka afkastagetuna. Til þess að auka öryggi var ákveðið að hafa næsta hús í nokk- urra kílómetra fjarlægð. Það er öryggisventill ef einhverjir sjúkdómar koma upp á, þá þarf ekki að loka öllum stöðum á meðan. Þess vegna var ákveðið að hafa þetta hús á Mófellsstöðum. Við flytjum inn um 100.000 egg árlega og ungum þeim út, Með nýju stöðinni eykst framleiðslan á eggjum lítils háttar," sagði Jón Pétur við. -DVÓ Snæfellsbær: Vistvænt bæjarfélag DV, Vesturlandi: Framfarafélag Snæfellsbæjar og Atvinnu- og ferðamálanefnd Snæ- fellsbæjar héldu á dögunum fund í félagsheimilinu Klifi í Snæfells- bæ. Þar kom saman hópur manna sem ræddi um möguleika bæjar- ins I framtíðinni. Skipt var niður í fjóra málaflokka - ferðamál, fé- lags- og menningarmál, umhverf- is- og náttúruverndarmál og mat- væli, iðnað og viðskipti og hug- myndir gefnar út i bæklingi. Stofnuð verða regnhlífarsamtök sem hafa það hlutverk að sameina félagasamtök, fyrirtæki, einstak- linga og bæjarfélagið til stórátaks í umhverfismálum. Bæjarstjórn taki ákvörðun mn að Snæfellsbær verði vistvænt bæjarfélag - taki sér fimm ár í það verkefni. „Ég sé Snæfellsbæ fyrir mér sem vist- vænt bæjarfélag með sterkan sjávarútveg þar sem meira verður gert að því að fullvinna vöruna á heimaslóðum. Sterkan landbúnað sem einnig myndi fullvinna vöru byggða á lífrænum og vistvænum hráefnum. Mikinn ferðamanna- iðnað, byggðan á þeirri stór- brotnu náttúru sem er í Snæfells- bæ, ásamt mergjaðri sögu,“ sagði Guðlaugur Bergmann á Hellnum við DV. -DVÓ Guðlaugur Bergmann. DV-mynd JE Fréttir Laufskálarétt 1 Hjaltadal: Véx að frægð erlendis DV, Skagafirði: Laufskálarétt í Hjaltadal, sem vafalítið er fjölsóttasta stóðrétt landsins, var sl. laugardag, 3. október. Fjölmenni mætti á staðinn til að fylgjast með réttarstörfum enda veður ágætt. Það hefur færst í vöxt síðustu ár að fólk komi jafn- vel úr fjarlægum byggðarlögum til þess að taka þátt í hrossasmölun- inni og að þessu sinni fóru tals- vert á annað hundrað manns að sækja hrossin. Að sögn Steinþórs Tryggvasonar fjallskilastjóra voru um 570 hross rekin til réttar að þessu sinni og eru þá folöld ekki meðtalin. Stærst- ur hlutinn gengur í Kolbeinsdal yfir sumarið en 180 komu úr beit- arhólfi í sveitinni. Það er þó ekki eingöngu til að fylgjast með stóðréttinni sem fólk leggur leið sína í Hjaltadalinn við þetta tækifæri. Ýmsir eru að huga að kaupum á hrossum og oftast eru í réttinni lögð drög að viðskiptum, þó svo að endanleg sala fari fram eitthvað síðar. Líklegt má telja að frægð Lauf- skálaréttar vaxi enn frekar erlend- is hér eftir. Nú var þar fjölmiðla- fólk frá Noregi við upptökur fyrir sjónvarpsþátt sem það hyggst gera um smölunina og það mannlíf sem fylgir stóðréttinni og mun síðan ætlunin að selja þennan þátt til sjónvarpsstöðva í Evrópu. Dvöldu Norðmennirnir í fimm daga hér nyðra. Voru þeir sérlega heppnir með veður og aðstæður og voru afar ánægðir þegar þeir kvöddu. -ÖÞ 4 www.urvalulsyn.i8 (Afc ÚRVAL ÚTSÝN LASER TAG & HÁSKÓLABÍÓ KYNNA STEIN HASKA Í GHIF HA2ARD3 MAJOR MUNIÐ NETLEIKINN Glæsilegir vinningar. 75 miéar í Laser Tag, óOO mióar ó Small Soldiers, Small Soldiers leikföng.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.