Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1998, Síða 64
^ jfívikmyndir
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
ALVÖRU BÍQ! - Do'by
STAFRÆWT siærsw tjaldið mhj
HLJOBKERFI í I |_| V
ÖLLUM SÖLUM!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
1 c O L C A <
u A H Y £» 1 N 1 $
n } II • -
**■ < vt
SNAKE EYES
Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.10. B.i. 16 ára.
VESALINGARNIR
★ ★★ ★★★
H.L. M.bl. Éi tf 4* m Á.Þ.
★★★ W g. w£ ★ ★★
Ó.H.T. Rós 2 T 4 r , G.E. D.V.
Sýnd kl. 4.40, 6.55 og 9.15.
Sími 551 9000
Sýnd Id. kl. 3,5.7,9 og11.
B.i. 16 ara.
Cameron Diaz - Matt Diilon - Ben
TheReS
S MiFi)NG/ll> q'
M. KY
„Frá leikstjórum
Dumb&Dumber
og Kinpin kemur
gamanynd
ársins”
Forsýnd laugardagskvöld kl. 9.
Sýnd kl. 7 og 11.20.
Sýndkl. 3,5,7og11.
Éinnig sýnd Id. 9 sud.
Sýndkl. 3,5,7,
9 og 11.
Músík og myndir
Rokk í Reykjavík, 1982.
Tónlist hefur alltaf verið
mikilvægur þáttur kvik-
myndarinnar þrátt fyrir
að það mikilvægi sé
ekki alltaf metið að
verðleikum. Á tímum
fyrstu hljóðlausu mynd-
anna var lifandi tónlist
leikin undir og gat þá
tónlistin verið breytileg
milli sýninga því tónlist-
armaðurinn hafði oft
nokkuð frjálsræði hvað
varðaði valið á undir-
leik. Kvikmyndasýning-
in varð því líkari leik-
sýningu að því leyti sem
hún var einstök en ekki
endalaust endurfram-
_ Jeiðanleg eins og kvik-
Tnyndin er í dag. Tón-
leikar eru líkt og leik-
sýningar, aldrei eins, og
aldrei nákvæmlega end-
urtakanlegir. Það er
hins vegar þessi endur-
sýnanleiki kvikmyndar-
innar sem einkennir
tónleikamyndir að því
leyti sem þeim er ætlað
að hafa heimildagildi.
Tónlist og hljómsveitir
eru fest á filmu með það
að markmiði að vera
varanlegt minnismerki
um ákveðinn atburð.
Slíkar myndir hafa oft
nokkuð erfiða stöðu inn-
ari. kvikmyndageirans,
er'ú þetta kvikmyndir
eða heimildamyndir?
Músíkmyndbönd eða
heimavídeó? Kvik-
myndahandbækurnar mínar eru vitni um
þetta, en\þar eru ekki nema örfáar tónleika-
eða músíkinyndir upp taldar.
Talað er um að taka upp tónleika eins og
slík myndræn upptaka feli ekki i sér sömu
úrvinnslu og túlkun og öll önnur kvik-
myndataka. Þetta sást vel í Poppi í Reykja-
vík þar sem mikiU munur var á því hvemig
kvikmyndavélin nálgaðist hverja hljómsveit
fyrir sig, sumir fengu hefðbundna ferkant-
aða „upptöku" meðan stílbrögð og taktar
■féðu ríkjum annars staðar. Þetta gerði að
verkum að myndin virkaði á stundum eins
og safn tónlistarmyndbanda og varð fyrir
vikið óþarflega misjöfn að gæðum.
En músík og myndir fara saman að öðru
leyti en í tónleikamyndum því hefð er kom-
in á það að gera myndræna útfærslu á
hverju lagi í tónlistarmyndbandi. Tónlistar-
myndbönd þessi hafa þróast frá því að vera
íUtölulega einfaldar „upptökur" á tónleikum
eða öðrum flutningi lagsins yfir í það að
vera markvissar myndskreytingar með
áherslu á samspUi tóna, texta og myndar.
Þannig hefur tónlistarmyndbandið verið að
nálgast kvikmyndina frá annarri átt, ekki
sem mynd um tónleika, heldur sem eins
konar smámynd sjálft, eða stuttmynd, en
tónlistarmyndbönd eru í æ ríkari mæli með
söguþræði eða plotti sem oft vísar tU eða
tengist ákveðinni kvikmynd (sjá tU dæmis
X-FUes áhrif í Bang Gang vídeóinu). Þetta
samspil tónlistar og kvikmyndar er orðið
mjög víðtækt og fjölbreytt þar sem tónlist
við kvikmyndir hefur verið að ná auknum
vinsældum og er nú svo komið að hverri
mynd fylgir ekki aðeins hin hefðbundna
kvikmyndatónlist heldur þykir nú ekki síð-
ur mikilvægt að popptónlist sé að finna á
trakkinu, með tUheyrandi vídeói sem er eins
konar míníútgáfa af myndinni...
Einnig má benda á að tónleikar hafa verið
að gerbreytast með tilkomu aUs konar múlti
medíu þar sem ekki nægir lengur að hljóm-
sveitin komi fram og spUi heldur fylgir orð-
ið ekki aðeins ljósadýrð og reykstrókar held-
ur skjáleikir ýmiss konar og skermar þar
sem myndefni af ýmsu tagi er sýnt jafnframt
tónleikunum. Oft er um að ræða stækkaða
mynd af hljómsveitinni sjálfri, í þágu þeirra
áhorfenda sem sjá hana einungis sem flugu-
hóp úr fjarlægð en þarna getur líka verið
um annars konar sjónrænt áreiti að ræða.
Tónleikar sem þessir eru síðan teknir upp
sem kvikmynd, með öUu tilheyrandi, líkt og
í tilfeUum U2 og Madonnu, svo dæmi séu
The Rocky Horror Picture Show, 1975.
nefnd.
Síðan má nefna tónlistarmenn sem hafa
beinlínis látið kvikmynda heilu plöturn-
ar/diskana, eins og um sögu væri að ræða.
Man einhver eftir The WaU, Pink Floyd, þar
sem Bob Geldof var sem órakaðastur? Eða
Purple Rain og tUvistarkreppu Prince (the
artist formaUy known as)?
Og þetta líkamlega samband í vesturbæn-
um nær enn lengra. Sú rafræna tónlist sem
einkennist meðal annars af esömplunumí
ýmiss konar hefur tekið kvikmyndir mikið
upp á sína löngu stálarma og nýtir jafnt
hljóðeffekta kvikmyndatónlistarinnar sem
línur úr handriti, enda er varla hægt að
horfa á gamla mynd í dag án þess að
hrökkva inn 1 eitthvert danslag ... og öfugt.
Prófið Dark Star og Soup Dragons eða
Lhooq og Ed Wood, eða Portishead og James
Bond. -úd
—
Ein af jóla-
myndun-
um í
Bandaríkj-
unum
veröur
Mighty Joe
Young
sem gæti
efnislega
verið ein-
hvers
staðar á
milli
Congo og
Godzilla.
Jólamyndirnar í
Bandaríkjunum
í fyrra kaffærði Titanic allar aðrar jólamyndir en
þegar litið er á listann yfir þær myndir sem frum-
sýndar verða i Bandaríkjunum næstu tvo mánuði
virðist ekki mikil hætta á að slík mynd leynist þar
en á það verður að minna að enginn hafði spáð hin-
um gífurlegu vinsældum Titanic. Það var frekar að
spár gengju út á að stórtap yrði á myndinni. Þær
tvær myndir sem öruggt má segja að nái miklum
vinsældum eru Enemy of the State með Will Smith
og Gene Hackmann og You’ve Got Mail með Meg
Ryan og Tom Hanks. Forvitnilegasta myndin er tvi-
mælalaust The Thin Red Line, sem markar endur-
komu Terence Malicks í kvikmyndimar. Hér á eftir
fer listi yfir þær kvikmyndir sem frumsýndar verða
fram að áramótum í Bandaríkjunum:
6. nóvember Psycho
The Siege Shakespeare in
The Waterboy Love
Elizabeth Velvet Goldmine 11. desember
13. nóvember Star Trek: Insur- rection
Meet Joe Black Little Voice
ril Be Home for Christmas 18. desember
Celebrity The Prince
I Still Know What of Egypt
You Did Last Sum- Jack Frost
mer You've Got Mail
20. nóvember Dancing about Architecture
A Bug's Life Rugrats 25. desember
Dancing at Lug- Stepmom
hnasa A Civil Action
Enemy of State The Thin Red Line
25. nóvember Patch Adams Mighty Joe Young
Very Bad Things The Faculty
Babe: Pig in the Hurlyburly
City The Scalper
4. desember 30. desember
A Simple Plan Affliction