Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Page 18
18
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
Jón Aðalsteinn Jónsson segir öryggiskerfi einföld í notkun og veita öryggi:
Förum róleg
út úr húsi
Þaö er sáraeinfalt aö nota þetta ör-
yggiskerfi og það veitir okkur mikið
öryggi. Auðvitað kostar þetta pen-
inga en það er ekkert þegar hugsað
er út í fjárhagslegt og ekki síst til-
finningalegt tjón sem fólk verður fyr-
ir eftir innbrot þegar óvandað fólk
hefur rofið friðhelgi heimilisins,
stolið og eyðilagt," segir Jón Aðal-
steinn Jónsson orðabókarritstjóri,
viö DV.
Jón Aðalsteinn býr ásamt eigin-
konu sinni í einbýlishúsi í austur-
hluta borgarinnar. Sifelldar fréttir af
innbrotum og miklu tjóni sem fólk
varð fyrir, jafnvel um hábjartan dag,
urðu til þess að Jón Aðalsteinn fór
fyrir nokkrum árum að huga að ör-
yggismálum heimilisins. Reyndar
höfðu nágrannarnir fylgst með hús-
um hver annars og óeðlilegum
mannaferðum en nú hindrar gróður
útsýni i næstu garða og því erfitt að
vera á verði.
Jón Aðalsteinn ákvað að leigja ör-
yggiskerfi af Öryggismiðstöð íslands.
Hann greiðir fyrir hana mánaðarlegt
gjald, um 4 þúsund krónur. Fleiri aö-
ilar leigja stöðvar sem þessar, þ.á.m.
Securitas og Vari, og sjá starfsmenn
um að setja upp kerfin og stilla þau.
Einnig má kaupa svona kerfi. Þá er
ráðlegt að leita tilboða áður.
Vandalaust
Það sem i fyrstu virtist flókið og
erfitt að umgangast reyndist nær
vandalaust í allri umgengni.
Stjómstöð öryggiskerfisins er í
búrinu. Á vegg í forstofunni er
stjómbúnaður með hnöppum, talna-
borði og skjá. Hreyfiskynjarar eru
staðsettir víða í íbúðinni og kjailar-
anum. Þegar Jón fer að heiman þarf
hann ekki annað en ýta á hnapp
sem merktur er „Away“, sem hann
vill eðlilega kalla „fjarvera“. Þá píp-
ir kerfið örskamma stund og rautt
ljós kviknar á stjómtækinu. Kerfið
hefúr verið ræst.
Þegar Jón Aðalsteinn kemur
heim aftur slær hann leyninúmer
inn á talnaborðið frammi á gangi.
Þá slökknar á kerfinu. Einfaldara
getur þetta varla verið.
Skipulag húsa er misjafnt hjá
fólki en yfirleitt er hægt að gera
einn eða fleiri hreyfiskynjara
óvirka meðan fólk er heima. Þannig
kemst það á salerni án þess að kerf-
iö fari í gang en er engu að síður
varið gegn innbrotum.
Fari óboðinn gestur inn í húsið
meðan enginn er heima eða að
nóttu til fer öryggiskerfið í gang
með gríðarlegu sírenuvæli og við-
vörun berst stjómstöð Öryggismið-
stöðvarinnar. Þaðan er þá hringt
heim til Jóns Aðalsteins. Ef enginn
svarar er lögreglu gert viðvart og
farið á staðinn.
Óboðinn gestur getur ekki svarað
í símann og reynt að villa á sér
heimildir, þóst vera Jón Aðalsteinn
eða kona hans. Gefa þarf upp leyni-
númer þegar talað er við stjómstöð
Öryggismiðstöðvarinnar.
Ræst í hvert skipti
„Það hefur komið fyrir að við höf-
um hent innkaupapokum inn í skál-
ann áður en við slökktum á kerfinu.
Þá hefur allt farið í gang með grið-
arlátum og við þurft að hringja, gefa
upp leyninúmer og segja að allt sé í
lagi. Þetta gerist afar sjaldan en
maður getur þó gleymt sér. Þetta
sýnir manni þó að kerfið er í lagi,“
segir Jón Aðalsteinn.
Jón Aðalsteinn er með grunn-
kerfi, gegn innbrotum. Einnig má fá
kerfi með sem varar við eldsvoða og
vatnsflóði.
„Ég sé ekki eftir að hafa fengið ör-
yggiskerfi heim. Við venjum okkur á
að ræsa kerfið í hvert skipti sem við
fórum að heiman, jaínvel þótt við
skreppum smástund í búðir. Við
erum miklu öraggari og fórum róleg
út úr húsi,“ segir Jón Aðalsteinn
Jónsson. -hlh
Lán reiknuð út með reiknivélum á Netinu:
Hjálpar við gerð
raunhæfra áætlana
Með tilkomu Netsins og almennr-
ar tölvueignar hafa ýmsar upplýs-
ingar færst mun nær neytendum en
áður. Á augabragði getur neytand-
inn nálgast upplýsingar um vöru-
tegundir, verð, vexti, gengi á hluta-
bréfum og fleira. Netið býður einnig
upp á gagnvirkni sem gerir fólki
kleift að kaupa vörar með hjálp
heimilistölvunnar. Gagnvirkir
möguleikar Netsins koma einnig
fram í reiknivélum sem bankar og
fiármögnunarfyrirtæki hafa komið
sér upp á vefsíðum sínum. Með
hjálp þessara reiknivéla má á auga-
bragði fá útreikning á láni, t.d.
vegna bílakaupa. Neytandinn getur
því fengið nokkuð örugga mynd af
greiðslubyrði sinni og velt henni
fyrir sér í ró og næði áður en hann
fer á bílasöluna.
Reiknivélamar eru allar með reit-
um þar sem hægt er að setja inn
lánsupphæð, lánstíma og jafnvel
verðbólguspá. Sumar þeirra gefa
kost á að gefa upp lántökudag og
fyrsta afborgunardag. Loks er
hnappur, „Reikna“, sem setur
Utreikningur láns á Netinu
Lánsupphæö: 500.000
Fjöldi greiðslna:| 36
Vextiráári: 11 1%
GREIDSLUBYRÐI LÁNA
Nafnvextir 11,00
Lántökugjald 8200
Stimpilgjald 6150
Kostnaður 1200
Fyrsti vaxtardagur: 24.11.1998
Fyrsti gjalddagi: 24.12.1998
Mán. milli gjaldd.: 1
Verðbólga: o j %
reiknivélina í gang. Til að fá
greiösluyfirlit þarf stundum að
smella í sérstakt box. Tryggingafé-
lögin gefa þeim sem keypt hafa
tryggingapakka, t.d F+ eða Stofn,
færi á að merkja við og breytast þá
forsendur útreikninganna.
Sem dæmi má nefna útreikning á
500.000 króna bílaláni hjá trygg-
ingafélagi. Lánstíminn er 36
mánuðir og verðbólguspáin
2%. Neytandinn fær þá uppgef-
ið að vextimir era 10,7% og ár-
legt hlutfall kostnaðar 15,06%.
Fyrsta afborgunin er 19.032 kr.,
meðalafborgun er á lánstíman-
um 17.015 kr., lokaafborgunin
14.751 kr. og heildargreiðslur
með öllum kostnaði 610.140. Að
auki er lántökugjald 2,5%.
Fyrir neðan þessar upplýsingar
koma síðan allar afborganim-
ar, 36 að tölu, og þær sundurlið-
aðar með gjalddaga, afborgun,
vöxtum, kostnaði, verðbótum
(ef það á við) og samtals
greiðslu.
Á þennan hátt má sjá nokkuð
nákvæmlega hver greiðslu-
byrðin mun vera hvern mánuð
allan lánstímann og auðveldara
að gera raunhæfar áætlanir.
Reiknivélar eins og þær sem hér
er lýst er m.a. að finna á vefsíðun-
um www.spar.is,www.vis.is og
www.sjal.is -hlh
Hreyfiskynjarar
Hreyfiskynjarar með
öryggiskerfum eins og lýst er
hér til hliðar eru innrauðir
hreyfiskynjarar, skynja
hitamassa á hreyfingu.
Mikilvægt er að þeir „sjái“
mikilvægustu staðina en ekki þá
sem minna máli skipta. því er
mikilvægt að þeir séu á réttum
stöðum.
Sérhæfðir
skynjarar
Vilji fólk að öryggiskerfið
vakti einig reyk og vatn þarf
ekki annað en bæta þar til
gerðum skynjurum við. Nái
öryggiskerfið yfir fleiri staði,
t.d. bílskúr, má ræsa skynjara
þar sérstaklega með talnaborði
eða stjórntöflu inni í íbúðinni.
Öryggishnappar
Öryggishnappar sem tengdir
eru stjómstöð öryggisfyrirtækja
og ætlaðir eru eldra fólki verða
æ algengari. í mörgum tilfellum
niðurgreiðir Tryggingastofnun
ríkisins þessa hnappa og
þjónustuna við þá þannig aö
notandinn greiðir í kringum
1300 krónur á mánuði fyrir.
Verðbréfaupplýs-
ingar með SMS
í verðbréfaviðskiptum skiptir
hratt og öruggt upplýsingaflæði
miklu.
Með nýjustu fiarskiptatækni í
formi SMS skilaboðasendinga
geta viðskiptavinir Símans feng-
ið nýjustu upplýsingar um
hækkun eöa lækkun verðbréfa
sendar umsvifalaust í GSM-sím-
ann sinn um leið og breytingar
eiga sér stað.
SMS viðskiptavaktin er í boði
Kauphallar Landsbréfa og er því
viðskiptavinum Símans að
kostnaðarlausu.
Haldið um hluta-
bréfaeign
Safnið heitir forrit sem aðstoð-
ar fólk að halda utan um hluta-
bréfaeign sína. Það sækir upplýs-
ingar um nýjasta gengi bréfa á
Fjármálatorgið á www.fiarmal.is
en þannig er unnt að fylgjast með
þróun hlutabréfaeignar. Safnið
má nálgast endurgjaldslaust á
vef Búnaðarbankans á slóðinni
www.bi.is þar sem leiðbeiningar
um uppsetningu fylgja.