Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 DV
útlönd
stuttar fréttir
Kaus sex sinnum
Kona nokkur sem kaus sex
sinnum í kosningunum í Québec
í Kanada á dögunum á yflr höfði
sér málshöfðun. Konan gerði
þetta fyrir skemmtiþátt I sjón-
varpinu.
Bush engu nær
George W. Bush yngri, ríkis-
stjóri i Texas, segist engu nær
um það hvort
hann ætli að
sækjast eftir að
verða forseta-
frambjóðandi
repúblikana ár-
ið 2000. Bush er
nýkominn úr
ferð til Mið-
Austurlanda en sagði ferðina
ekki hafa haft þann tilgang að
efla ímynd hans sem leiðtoga.
Alnæmisveira í þvagi
Ný gerð þvagprufu getur
greint cdnæmisveiruna í þvagi
fólks sem samkvæmt blóðprufum
á ekki að vera smitað.
Engar hrókeringar
Poul Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, vísaði
á bug í gær orðrómi um að fyrir
dyrum stæðu hrókeringar í ríkis-
stjórninni.
Minna atvinnuleysi
Atvinnuleysi minnkaði í
Bandaríkjunum í síðasta mánuði
úr 4,6 prósentum í 4,4 prósent.
Störfum fjölgaði um tæp 300 þús-
und.
í forsetahugleiðingum
Bill Bradley, fyrrum öldunga-
deildarþingmaður demókrata frá
New Jersey, hefur tekið fyrsta
skrefið í kapphlaupinu um Hvíta
húsið. Hann hefur stofnaö nefhd
til að kanna hvort fýsilegt sé fyr-
ir hann að bjóða sig fram til for-
seta árið 2000.
Nefndir skipaðar
Vinnunefndirnar sem eiga að
fjalla um fullveldi Færeyja hafa
nú verið skipaðar og eiga þær að
skila áliti sínu í júní á næsta ári.
Jeltsín aftur til vinnu
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
mætir aftur á skrifstofu sína í
Kreml á mánu-
dag. Hann hefur
haft hægt um
sig um nokkurt
skeið vegna
lungnabólgu.
Ilann gaf sér þó
tíma til að hitta
Jovgeni Príma-
kov forsætisráðherra í gær.
San Francisco skelfur
Jarðskjálfti sem mældist 4,1
stig á Richter varð snemma í
gærmorgun í nágrenni San
Francisco f Kalifomíu. Ekki urðu
meiðsl á fólki né alvarlegar
skemmdir en munir duttu úr hill-
um og íbúum var brugöið.
Egyptar finna olíu
Upplýsingamálaráðherra Egypta-
lands, Safwat el-Sherif, sagði á
fimmtudag frá þvi að þrjár nýjar
olíu- og gaslindir hefðu fundist í
lcmdinu í síðasta mánuði. Þar með
eru olíulindir sem fundist hafa í
landinu á þessu ári orðnar alls 36.
Framleiðsla á olíu er þegar hafin úr
þeim öllum. Hráolia er unnin úr 22
lindanna en gas úr 14.
Sherif sagði að fyrsta lindin af
þeim þremur sem fundust í nóvem-
bermánuði nefndist Nakhaw-lX.
Spænskt olíufélag vinnur um helm-
ing allrar þeirrar olíu sem þar er
unnin. Alls gefur lindin af sér 19
milljón rúmfet af jarðgasi á dag og
732 tunnur af olíu.
Önnur lindin er undir sjávarbotni
skammt undan borginni Port Said
við norðurenda Súezskurðarins. í til-
raunavinnslu gaf sú lind af sér 40
milljón rúmfet af gasi og 800 tunnur
af olíu á dag. Þriðja og sú stærsta er
í Quattara-dal. Hún gefur af sér 800
tunnur af hráolíu á dag. -SÁ
Hershöfðingi Bosníu-Serba fyrir rétt á mánudag:
Karadzic og Mladic
eru kannski næstir
Bosníu-Serbinn Radislav Krstic
hershöfðingi verður leiddur fyrir
stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna í Haag í Hollandi á mánu-
dag þar sem honum verður gefinn
kostur á að svara ákærunum um
þjóðarmorð sem á hann eru bomar.
Bandarískir hermenn úr gæslu-
liði NATO handtóku Krstic á mið-
vikudag að beiðni stríðsglæpadóm-
stólsins. Ákæruskjalinu var haldið
leyndu í heilan mánuð til að tryggja
að Krstic kæmi sér ekki hjá hand-
töku. Rússnesk stjórnvöld gagn-
rýndu einmitt þá málsmeðferð harð-
lega í gær.
Handtaka hershöfðingjans, sem
ber mesta ábyrgð á morðum á sex
þúsund múslímum i borginni Srebr-
enica, hefur vakið vonir í Sarajevo
um að NATO muni senn koma
Radovan Karadzic má nú vara sig.
böndum á aðra stríðsglæpamenn
Bosníu-Serba, sjálfa höfuðpaurana
Radovan Karadzic og Ratko Mladic.
„Forleikurinn að handtöku Kara-
dzics og Mladics," sagði í fyrirsögn
á forsíðu óháða dagblaðsins
Vecernje Novine i Sarajevo i gær.
Mirko Sagolj, stjórnmálaskýrandi
við blaðið Oslobodjenje sagði að
handtaka Krstics á miðvikudag
hefði hugsanlega verið „gener-
alprufa" fyrir handtöku þeirra
Karadzics og Mladics sem voru leið-
togar Borsníu-Serba á meðan styrj-
öldin geisaði í Bosníu á árunum
1992 til 1995.
Handtaka Krstics þykir til marks
um að enginn geti verið óhultur,
sama hvaða embætti hann gegnir.
Diplómatar vara þó sumir hverjir
við of mikilli bjartsýni á að stórfisk-
arnir verði gómaðir, þeir Karadzic
og Mladic verði ekki handteknir
nema því fylgi lítil hætta.
Mörgæsirnar í dýragarðinum í Munchen f Þýskalandi fara í gönguferð klukkan tvö síðdegis á hverjum einasta degi
yfir vetrarmánuðina. í gær heimsóttu þær ísbjörninn og fór vel á með þeim, eins og sést best á mynd þessari.
Flugvél tilbúin að flytja Lockerbie-tilræðismennina:
Beðið eftir ákvörðun Gaddafís
Ef stjórnvöld í Líbýu ákveða að
framselja jnennina tvo sem grunaö-
ir eru um að sprengja flugvél Pan
Am yfir Lockerbie á Skotlandi árið
1988, eru Sameinuðu þjóðirnar til-
búnar með flugvél til að flytja þá til
Hollands áður en sólarhringur er
liðinn.
Kofi Annan, aðalframkvæmda-
stjóri SÞ, fer til Líbýu í dag. Hann
mun þó ekki flytja hina grunuðu i
flugvél sinni, heldur er önnur vél til
reiðu á Ítalíu að fara til Trí'polí að
sækja mennina.
„Svo virðist sem flugvél bíði til-
búin til brottfarar," sagði embættis-
maður í bandaríska utanríkisráðu-
neytinu 1 gær.
Annan hittir Muammar Gaddafi
Líbýuleiðtoga og aðra embættis-
menn að máli í strandbænum Sirte
í dag. Hann gerir sér vonir um að
Gaddafí muni ákveða hvenær
mennimir verða framseldir.
Öryggisráðið veitti Annan heim-
ild í ágúst til að semja um flutning
mannanna svo færa mætti þá fyrir
dómara. Frekara samningsumboð
hefur hann ekki.
Sameinuðu þjóðirnar hafa beitt
Líbýumenn viðskiptaþvingunum
frá 1992 þar sem þeir neita að fram-
selja mennina tvo, sem báðir eru í
leyniþjónustu Líbýu.
Tvö hundruð og sjötíu fórust með
vél Pan Am fyrir tíu árum.
Kauphallir og vöruverð erlendis
1
;
;
::
1
1
m
B
Þrýst á Pers-
son aö rann-
saka leyniskjöl
Hart er nú lagt að Göran Pers-
son, forsætisráðherra Svíþjóðar,
að láta fara fram umfangsmikla
rannsókn á
leynilegri
skráningu á
kommúnistum
á sjötta og sjö-
unda áratugn-
um. Skráning-
in sú var skil-
yrði fyrir því
að Svíar gætu keypt bandarísk
vamartól. Teknar vom saman
leyniskýrslur um fimm þúsund
Svía sem voru stimplaðir komm-
únistar.
Bæði vinstriílokkurinn og
græningjar sem em bandamenn
stjómarflokks jafnaðarmanna á
þingi segja að skýrsla sem lögð
var fram í vikunni sé ekki nóg.
Hneykslið snýst um sérstaka
leyniþjónustu sem jafnaöarmenn,
herinn og aðilar vinnumarkaðar-
ins settu á laggirnar til að safna
upplýsingum um vinstrisinna.
Það var gert að undirlagi banda-
rískra stjómvalda.
Leynilegar friö-
arviöræöur í
Stokkhólmi
Leynilegar friðarviðræður um
Mið-Austurlönd hafa verið haldn-
ar í Stokkhólmi frá árinu 1994.
Það mun meðal annars vera þess
vegna sem Yasser Arafat, forseti
Palestínumanna og leiðtogi Frels-
ishreyfingar Palestínu, kemm- í
heimsókn til Stokkhólms um
helgina. Sænska fréttastofan TT
skýrði frá þessu í gær.
Litið er á fundina í Stokk-
hólmi sem framhald viðræðn-
anna í Ósló sem leiddu til sam-
komulags ísraela og Palestínu-
manna árið 1993. Á Stokkhólms-
fundunum hafa verið rædd mál
sem ekki voru leyst í Ósló, svo
sem staða Jerúsalem, vatnsrétt-
indi og heimflutningur flótta-
manna.
Heima í héraði saka ísraelar
og Palestínumenn hvorir aðra
um að eyðileggja friðarsamning-
inn sem gerður var í Bandaríkj-
unum fyrir nokkrum vikum.
Olsengengiö
tekið í gíslingu
Dönsku bíóbófamir vinalegu í
Olsengenginu eru nú orðnir bit-
bein tveggja danskra sjónvarps-
stöðva. Ný kvikmynd um þá fé-
laga Egon, Benny og Keld, sem ís-
lenskir bíógestir þekkja vel, verð-
ur frumsýnd skömmu fyrir jól. Af
því tilefni bauö framleiðandinn
rikissjónvarpinu danska, DR,
þátt þar sem bófamir kæmu
fram. Síðar var svo tilkynnt að
ekkert yrði af gerð þáttarins.
Grunar menn að forráðamenn
TV2 hafi átt þar hlut að máli þótt
þeir neiti þvi. TV2 hafði áður
keypt heimildarmynd um gerð
Olsenbófamyndarinnar.
Ekkert samiö
um Pinochet
Breskir embættismenn höfn-
uðu í gær hugmyndum um að
hægt væri að semja um að Augu-
sto Pinochet,
fyrrum ein-
ræðisherra í
Chile, yrði yf-
irheyrður af
spænskum
dómara í
Englandi í stað i
þess að vera
framseldur til Spánar,
krafist er.
Breska blaðið Daily Telegraph
sagði í gær að hægrisinnaður
chileskur stjórnmálamaður væri
í London til að reyna að koma
slíkri málamiðlun í kring. Bresk
stjómvöld segja þetta tvennt
vera alveg óskylt.
ems