Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 TIV
sælkerínn
Viö höfum að þessu sinni fengið vanan
konfektgerðarmann til að gefa okkur
skemmtilegar uppskriftir fyrir jólin. Jón
Rúnar Arilíusson á og rekur Kökumeist-
arann í Hafnarfirði og er mikið að gera
hjá honum þessa dagana þegcir líða fer að
jólum.
Tryffle kúlur
1 dl rjómi
600 g dökkt hjúpsúkkulaði (fint saxað)
1/4 tsk. vanillusykur
Aðferð:
Suðan látin koma upp á rjómanum og
súkkulaðið látið út í. Vanillusykurinn er
settur síðastur.
Látið kólna og hrærið rólega þar til
stífnar. Sprautið deiginu út í lengjur og
látið stífna alveg.
Skorið í u.þ.b. tveggja cm stykki og
rúllað í kúlur í höndunum og síðan kælt.
Kúlunum er dýft í heitt súkkulaðið
með tannstöngli. Þegar súkkulaðið byrjar
að harðna er kúlunum velt í sigti til að fá
úfinn flöt á súkkulaðið.
Tíglar
100 g hrátt marsipan (raamarsipan)
100 g sykur
100 g smjör
3 stk. egg
45 g hveiti
krydd eftir eigin smekk
Aðferð:
Hrátt marsipan og sykur er hrært sam-
an. Smjöri bætt út í í þrennu lagi og egg-
in sett út í eitt og eitt 1 einu og hrært á
milli. Kryddi og hveiti er bætt í síðast.
Bakað í ofnskúffu á bökunarpappír vð
195"C í u.þ.b. 20 mínútur (u.þ.b. 1-1,5 cm
á hæð).
Kælt.
Hjúpað með ganach eða hjúpmarsipani
og kælt aftur.
Skorið í tígla sem eru u.þ.b. 2 cm á
hlið. Hjúpað til hálfs í súkkulaði.
Jón Arilíusson hjálpar til við jólaundirbúninginn:
Indælis jólakonfekt
Jón Arilíusson er fimur í fingrum og býr til indælis konfekt. DV-mynd GVA
matgæðingur vikunnar___________________________
Alma Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur er matgæðingur DV:
Forréttur og eftirráttur fyrir jólin
Nykaup
Þarsemferskieikinn hf r
Appelsínukökur
Smánatni þarf við
gerð deigsins. Kök-
urnar eru símjúkar
með miklu appel-
sínubragði
100 g smjör
165 g sykur
1 1/2 stk. egg
150 g hveiti
salt á hnífsoddi
1/2 tsk. lyftiduft
appelsínubörkur af einni
appelsínu
100 g saxaðar rúsínur
1/2 tsk. vanilludropar
Vinnið vel saman
sykur og smjör, hrærið eggin
saman og setjið út í í þremur
skömmtum og skafiö vel niður
á milli. Setjið svo þurrefnin
saman við ásamt vanillu og
berkinum og vinnið rólega sam-
an. Setjið á plötu með teskeið
og bakið við 190° C í 10-12 mín-
útur.
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem allt hráefni í
þær fæst.
Eg er mjög mikið fyrir fisk og sér-
staklega finnst mér hann góður ofn-
bakaður með miklum osti.
Fyrir nokkrum árum rakst ég á
uppskrift frá Nýjum eftirlætisréttum
sem í var krabbakjöt. Ég hef aðeins
breytt upphaflegu uppskriftinni eins
og ég geri yfirleitt við uppskriftir sem
ég nota mikið, nota t.d meiri ost. Með
þessum rétt er mjög gott að hafa heitt
hvítlauksbrauð.
Krabbakjöt í ostafrauði
250 g frosið krabbakjöt
öíós niðursoðinn aspas
4-6 heilhveitbrauðsneiðar
100 g majones
1 msk. chilisósa
salt
paprikuduft
2 msk sítrónusafi
ídl kaffirjómi
160 g mozzarellaostur
4 eggjahvítur
Uppskriftin er fyrir 4-6.
Brauðið rifið niður í vel smurt eld-
fast mót, ég nota skorpumar líka, ríf
þær bara mjög smátt.
Aspassoðinu helit yfir brauðið til
að bleyta vel í því. Krabbakjötið skor-
ið í litia bita.
Majones, chilisósa, kryddið og
sítrónusafinn hrærður saman, rjóm-
anum blandað í. Niðurskorið
krabbakjötið sett í. Aspasbitum raðað
ofan á brauðið og krabbablöndunni
smurt þar ofan á.
Eggjahvítumar em stífþeyttar og
mozzarellaostinum blandað saman
við, smurt yfir krabbablönduna.
Bakað í 200°C heitum ofni í 10 til 15
min.
Næsta uppskrift er upphaflega úr
matreiðslubók Helgu Sigurðardóttur,
bók sem flestar konur á mínum aldri
kannast við.
Ég bý jólafrómasinn alltaf til í tvær
skálar, í aðra skálina set ég sérrí en
hina vanilludropa sem er þá fyrir
böm og þá sem ekki neyta áfengis.
Þennan rétt er hægt að gera nokkrum
vikum fyrir jól, geymist vel í frysti.
í blandað súkkulaðispónum, hökkuð-
um möndlum og muldmn makkar-
ónukökum. Blöndunni er skipt í tvær
skálar sem á að nota til að bera eftir-
réttinn á borð. í aðra blönduna er sett
sérrí en hina vanilludropar. Þá er
rjóminn stífþeyttur og settur til helm-
Jólafrómas
6 egg
3 msk. sykur
5 dl rjómi
200 g dökkir súkkulaðispæn-
ir
50 g hakkaðar möndlm-
100 g makkarónukökur
íl-1 dl sérrí eða 2-4 dropar
vani"a.
Nokkrir súkkulaðidropar til
skreytingar
Ath.: Þessi uppskrift
er frekar stór, fyrir
inga í hvora skálina og siðast þeyttar
eggjahvíturnar. Öllu
blandað vel saman.
Fryst. Tekinn úr
frysti ca klst. áður
-én hann er borin
á borð og skreytt-
ur með makkar-
ónukökum og
súkkulaðidropum.
Borið fram með
þeyttum rjóma.
Ég skora á „litla“
bróður minn, Marinó
Flóvent Birgisson,
ég veit að
Alma Birgisdóttir, hjúkrunarframkvæmda- og fræðslustjóri á Hrafnistu Hafn-
arfirði, gefur uppskrift að gómsætum fiskrétti og jólafrómas.
Nýkaup
Þar sem ferskieikinnbýr
Svínalundir
Fyrir 6
1,5 kg svínalundir eða filet
olía tO steikingar
salt og pipar
Sósa
1 peli rjómi
4 dl kjötsoð eða vatn og 1 1/2 ten-
ingur
100 g gráðaostur
1 dl rifsber, fersk eða frosin
kjötkraftur
Kartöflutoppar og spergilkál
250 g spergilkál
18-24 stk. kartöfl-
ur, soðnar 1 ____. ♦'l
smjör
sykur
mjólk
1 stk. eggjarauða
Hreinsið sinina af |
lundunum og skerið í
70 g bita eða u.þ.b. þrjá bita á mann.
Bankið létt með buffhamri tfl að afl-
ar steikumar verði jafn þykkar.
Steikið á pönnu við vægan hita. Bæt-
ið ijóma og soði á pönnuna, klípið
ostinn út í og látið krauma með
svínakjötinu uns osturinn er upp-
leystur. Bragðbætið með kjötkrafti.
Stráið rifsberjum yfir.
Meðlæti
Sjóðið spergilkálið í söltu vatni í
4-5 mínútur. Lagið þykka kart-
öflumús úr soðnum kartöflum,
smjöri, sykri og mjólk og sprautið í
toppa á bökunarplötu. Penslið með
hrærðri eggjarauðu og gljáið í o&ii
við 200' C uns fallega brúnt.
Bórgundar-ungnautahryggur
fyrir 6
1,2 kg ungnautafilet með fitu
Búrgimdarsósa
4 stk. skalottlaukar
6 sneiðar beikon
200 g litlir sveppir
2 dl Búrgundar-rauðvín
1 dós Campbefl’s kjötseyði
(consommé)
1 dl vatn
50 g smjör
30 g smjörlíki
30 g hveiti
Kartöflu- og fennikkuflauel
300 g kartöflur
200 g smátt skorin fennikka
100 g smjör
50 g rjómaostur
1 tsk. fennikkuduft
salt og pipar
ögn sykur
Skerið rendur í fituna og sinina
undir fitunni án þess að særa kjötið
sjálft. Brúnið vöðvann á öllum hlið-
um við snarpan hita á pönnu. Krydd-
ið með salti og pipar. Setjið i 80' C
heitan ofn á blæstri í 60-70 mínútur
(90° C án blásturs). Notið kjöthita-
mæli og þegar kjaminn hefúr
náð 58° C er
vöðvinn tflbúinn.
Takið steikina út úr
ofninum og hvflið
undir viskustykki í
15 mínútur. Berið
fram ásamt sósunni
og kartöflunum.
Búrgundarsósa
Lagið smjörbollu úr smjörlíki og
hveiti. Bakið upp kjötsoð og vatn,
látið sjóða i 3-4 mínútur. Afhýðið
laukinn, skerið beikonið í smátt og
steikið ásamt sveppunum í olíu í
þykkbotna potti. Bætiö rauðvíninu
út í og látið sjóða stutta stund. Sigtið
uppbökuðu sósuna út í og látið
krauma við vægan hita í 3(140 min-
útur. Bragðbætið með kjötkrafti,
salti og pipar. Bæta má 1 msk. af
rauðvinsediki og 1 msk. af sykri í
sósuna til þess að skerpa hana. Rétt
áöur en sósan er borin fram er köldu
smjöri í teningum þeytt saman við
hana. Sósan má ekki sjóða eftir það.
Meðlætið
Sjóðið kartöflumar og flysjið.
Sjóðið fennikkuna í 20 mínútur.
Merjið kartöflumar í gegnum sigti,
maukið fennikkuna í matvinnsluvél,
setjið hvort tveggja í pott ásamt
smjörinu og bragðbætið með salti og
pipar.
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.