Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Side 28
2« fréttaljós
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 DV
Nú blása naprir vindar um sálar-
tetur harðstjóranna, hvort sem þeir
eru núverandi eða fyrrverandi. Ekki
er víst aö þeir geti áfram sótt teboð
fína fólksins og látið eins og ekkert
sé, að fortíðin, eða nútíðin, muni
ekki elta þá uppi og krefjast þess að
þeir standi reikningsskil gerða sinna.
Nei, nú er um að gera að vera var um
sig. Handtaka Augustos Pinochets,
fyrrum einræðisherra í Chile, í Bret-
landi í október er til vitnis um það. Á
dauða sínum átti einræðisherrann
fyrrverandi von en ekki því að vinir
hans Bretar létu undan kröfu
spænskra dómara sem vilja hafa
hendur í hári hans.
Jón og sára Jón
Ef allt væri með feUdu ættu harð-
stjóramir nú að vera skjálfandi á
beinunum. Alþjóðlegir sáttmálar,
svo sem bann Sameinuðu þjóðanna
við pyntingum, leggja sérhverju ríki
þá skyldu á herðar að handtaka aUa
þá sem hafa gerst sekir um pynting-
ar og aðra alvarlega glæpi.
Raunveruleikinn er þó annar. Og
mál Pinochets sýnir að í heimi
harðstjóranna er ekki sama Jón og
séra Jón. Úr því menn vUja endUega
vera harðstjórar er eins gott að sitja
þar tU maðurinn með ljáinn kemur,
ef stætt er svo lengi, eUegar að
halda sig heima við eftir að harð-
stjóraferlinum lýkur. Þar feilaði
Pinochet sig. Teboðin hennar
Margretar Thatcher voru of freist-
andi og því fór sem fór.
Pinochet hefur átt marga sálufé-
laga í ríkjum Rómönsku Ameríku
þar sem harðstjórar og einræðis-
herrar hafa komið og farið. Einn
einræðisherranna fyrrverandi hef-
ur verið kjörinn forseti lands síns
og enn annar fann guð og boðar
fagnaðarerindið. Nokkrir sitja í
fangelsi fyrir ýmsir sakir og enn
aðrir lifa í vellystingum í Evrópu.
Flestir harðstjóranna úr þessum
heimshluta hafa hins vegar komiö
því svo við að þeir njóta friðhelgi
heima fyrir.
Þokkapiltar
í Suður-Ameríku
Hugo Banzer stjórnaði Bólivíu
meö harðri hendi í sjö ár eftir að
hann komst til valda í blóðugu
valdaráni árið 1971. Hann var hins
vegar kjörinn forseti landsins fyrr á
þessu ári. Stjómarandstöðuflokkar
hafa krafist þess að Banzer verði
dreginn fyrir rétt fyrir að slást í lið
með öðram harðstjórum álfunnar
Harðstjórar
Bretland
Frakkland
Bandaríkln
Kúba
Haitf
Gvatemala
Panama
• m
Júgóslavía
1 Radovan Karadglc,
. serbneska
J* i lýbveldjú f Bosniu
Irak___—
Saddam Hússein,
Sadi-Arabia jrak
Brasllla
Manuel Antonlo Norlega,
Panama. Bollvia
I fangelsl f Bandaríkjunum Pan
Úrúgvæ
Argentína
Eþíópía
Kongó Úg8ndi'- •
Indónesía
Simbabve
Idi Amin, Uganda.
í útlegó I Sádl-Arabíu
Pafagva
Lauren Kablla,
lýöveldiö Kongó
Suóur - Afríka
P.W. Botha,
Suöur-Afríka
Alfredo Stroessner, Paragvæ.
í útlegö í Brasilíu
[TlrZ]
gegn vinstrisinnuðum skæruliðum
á áttunda áratugnum.
Luis Garcia Meza heitir annar
bólivískur herstjóri sem nú situr í
fangelsi. Hann var dæmdur í 30 ára
fangavist árið 1995 fyrir þjóðar-
morð, pyntingar og morð á andstæð-
ingum sínum á meðan hann var við
völd 1980 tft 1981.
I Gvatemala var hæstráðandi til
lands og sjós í sautján mánuði mað-
ur að nafni Efrain Rios Montt. Hann
komst til valda, eins og svo margir
kollegar hans, i blóðugu valdaráni
árið 1981. Þótt valdatíminn væri
ekki langur tókst Rios Montt engu
að síður að drepa þúsundir bænda í
herför stjómvalda gegn skærulið-
um.
Rios Montt var veitt almenn sak-
aruppgjöf árið 1986 og í dag rekur
hann trúboðskirkjuna E1 Verbo, eða
Orðið. Hann hefur ekki leyfi til að
gegna opinberu embætti en eigin-
kona hans og dóttir sitjá báðar á
þingi fyrir helsta stjórnarandstöðu-
flokkinn í Gvatemala.
Annars er Rios Montt bara einn
fjölmargra hershöfðingja sem
stjómuðu Gvatemala í meira en
þrjátiu ár. Á þeim tíma týndu tug-
þúsundir pólitískra andstæðinga,
meintir eða raunverulegir, lífið.
Margir böðlanna eru enn á lífi en
öllum gleymdir, jafnvel mannrétt-
indasamtökum.
Aðdáandi nasista
Þá er komið aö þokkapiltinum Al-
fredo Stroessner sem rikti yfír því
landlukta Paragvæ í 35 ár, frá 1954
til 1989. Stroessner var aðdáandi
nasista og stóð fyrir ofsóknum á
hendur andstæðingum sínum.
Mannréttindahópar segja að hund-
ruð manna hafí ýmist týnt lifi eða
horfíð í þeim ofsóknum.
Stroessner hefur búið í höfuðborg
nágrannaríkisins Brasilíu siðan
honum var steypt af stóii fyrir níu
árum. Brasilísk stjórnvöld hafa
tvisvar hafnað framsalsbeiðni frá
Paragvæ, vegna formgalla, eins og
það heitir.
í Úrúgvæ ríkti Gregorio Alvarez
á árunum 1981 til 1985 og stundaði
manréttindabrot af miklum móð.
Honum var veitt sakaruppgjöf árið
eftir að hann fór frá völdum og lifir
nú í vellystingum í fínu hverfi í höf-
uðborginni Montevideo. Þá á hann
sjö búgarða. Franskur lögfræðingur
hefur reynt að fá hinn-73. ára Al-
varez handtekinn fyrir að standa
fyrir ráni á frönskum ríkisborgara í
Argentínu 1976. Alvarez segir til-
burði lögmannsins lið í aðgerðum
„hryðjuverkasamtaka sósíalista".
Ekki er hægt að skilja við fyrr-
verandi harðstjóra úr vesturheimi
án þess að nefna þá Manuel Anton-
io Noriega, hershöfðingja í Panama,
Frábært ver» ....
Höfðatúni 12 *105 Reykjavík • Sími 552-6200 & 552-5757 • Fax: 552-6208
‘og Jean-Claude Duvalier á Haítí.
Noriega var sakaður um spillingu
og aðild að eiturlyfjasölu á meðan
hann veir við völd á níunda áratugn-
um. Þegar bandarískir hermenn
gerðu innrás í Panama í janúar 1990
gaf Noriega sig fram og var fluttur í
járnum til Bandaríkjanna. Hann
var svo dæmdur í fjörutíu ára fang-
elsi fyrir eiturlyfjasmygl og aðra
glæpi fyrir rétti í Flórída árið 1992.
Hann dúsir enn í steininum.
Jean-Claude Duvalier var ekki al-
veg jafn óheppinn. Baby Doc, eins
og hann var kallaður til aðgreining-
ar frá foður sínum og harðstjóran-
um Papa Doc, flúði land í kjölfar
uppþota árið 1986, eftir fímmtán ára
valdasetu. Hann settist að í glæsi-
villu á Miðjarðarhafsströnd Frakk-
lands en neyddist til að yfirgefa
hana þegar eiginkonan skildi við
hann, tók af honum börnin og hirti
svo til alla peningana. Duvalier býr
nú hjá vinum sínum í París.
Áður en haldið er austur yfir Atl-
antshafið verður að geta þess að
Argentínumenn eru hinir einu í
Rómönsku Ameríku sem hafa sótt
böðlana úr herforingjastjórnum
landsins frá 1976 til 1983 til saka fyr-
ir að heyja svokallað „skítugt stríð“
gegn andstæðingum sínum. í stríð-
inu því týndu þrjú þúsund manns
lífi.
Engir eftirbátar í Afríku
En harðstjórar og einræðisherrar
hafa verið og eru víðar en í
Rómönsku Ameríku. Afríkuríki
hafa fengið sinn skerf. Frægastur
allra er sennilega Idi Amin sem réð
ríkjum í Úganda. Talið er að ógnar-
stjóm hans, sem stóð í átta ár, hafi
kostað hálfa milljón manna lífið. Idi
Amin flýði til Sádi-Arabíu eftir að
hann hrökklaðist frá völdum þar
sem hann lætur lítið fyrir sér fara.
Hann býr þar með fjölmörgum
barna sinna.
Annar frægur harðstjóri var
Haile Mengistu Mariam sem ríkti í
Eþíópíu á árunum 1977 til 1991 og
hefur verið sakaður um að bera
ábyrgð á dauða allt að tvö
hundruð þúsunda manna.
Hann dvelur nú í góðu yf-
irlæti í Simbabve, í einu af
lúxushúsum þarlendra
stjórnvalda.
Ekki er úr vegi að nefna
til sögunnar Pieter W.
Botha, fyrrum forseta að-
skilnaðarstjómarinnar í
Suður-Afríku. Hann er
frjáls ferða sinna en hefur
verið gert að sæta ábyrgð
á voðaverkum kynþáttaað-
skilnaðarstjórnarinnar.
Af harðstjórum austur í
Asíu sem hafa hrökklast
frá völdum og lifa enn skal
nefna Suharto, fyrrum
Indónesíuforseta. Á þrjá-
tíu ára valdaferli er hann
talinn hafa allt að milljón
mannslíf á samviskunni.
Þá rakaði hann saman
miklum auðævum í skjóli
valdsins. Fyrir dyrum
stendur rannsókn á þeim
þætti valdaferilsins.
Eins og fínir
menn
Fyrrum harðstjórar þurfa
kannski að óttast um sinn hag vogi
þeir sér að yfirgefa griðastaðinn
sem þeir hafa fundið sér. Hið sama
verður vart sagt um núlifandi harð-
stjóra og einræðisherra. Og þeir eru
nokkrir.
Ekki er langt síðan nýja harð-
stjóranum í lýðveldinu Kongó, sem
einu sinni hét Saír, var tekið með
kostum og kynjum þegar hann sat
ráðstefnu frönskumælandi Afríku-
rikja í París. Hefur Laurent Kabila
þó verið sakaður um fjöldamorð,
rétt eins og maðurinn sem hann
velti úr sessi, Mobutu Sese Seko
heitinn.
Eða sér nokkur fyrir sér að Fidel
Castro Kúbuforseti verði handtek-
inn þegsir hann bregður sér í opin-
bera heimsókn til útlanda. Castro,
eins og fleiri leiðtogar kommúnista-
ríkja, sem flestir eru fjarri hlýjum
valdastólum, hefur verið sakaður
um gróf mannréttindabrot á fjöru-
tíu ára valdaferli sínum. Hann er
líka sakaður um að hafa staðið fyr-
ir aftökum andstæðinga sinna eftir
valdatökuna 1959.
Saddam jáHíi#IlMrak er gott
rlen
réttaljós
dæmi um/harðstjora sem rígheldur
enn í völdin. Öfugt við þá Kabila og
Castro er honum þó sennilega holl-
ara að halda sig heima.
Að lokum er ekki úr vegi að geta
tveggja kumpána úr fyrrum
Júgóslavíu. Annar þeirra, Radovan
Karadzic, fyrrum leiðtogi Bosníu-
Serba, fer huldu höfði, ákærður fyr-
ir stríðsglæpi á borð við þjóðemis-
hreinsanir. Hinn er Serbinn Slobod-
an Milosevic sem nú situr í embætti
forseta Júgóslavíu.
Byggt á Jyllands-Posten og Reuter.