Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Side 38
46 LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 mik Einhvern tíma heyrði ég frá manni sem ég tek mark á að kveðskapur Súkkats vœri svokallaður „nonsense“-kveðskapur. Nonsense er samkvœmt mínum orðabókum, það sem ekkert vit er í. Skyldu Hafþór og Gunnar kann- ast við að semja texta sem ekkert vit er í? „Ætli þaö sé ekki rétt að þannig sé okkar kveðskapur í þland," segir Hafþór. „Það er líka betra að semja texta sem er yfirlýst nonsense t vegna þess að það er til svo mikið af textum sem eru nonsense, en sigla undir fólsku flaggi. Það er ágætt aö vera ekki með neinar væntingar." Eftir ströndinni ganga þeir Stefán og ég stefiia ekkert nema sinn veg vindur er áttlaus og aldan er treg angan í lofti mjög ógreinileg Textarnir eru rímaðir þrátt fyr- ir allt? „Já við leitumst við að reyna að ríma og ástæðan fyrir því er sú að við syngjum textann. Rímaður texti er betur fallinn til söngs.“ En þið haflð ekki ort ljóð sem ekki eru ætluð til söngs, gefið út ljóðabók? „Ljóðabók hefur ekki komið út en í fyrstu voru textamir ljóð sem ég vissi ekki hvað ég átti að gera við,“ segir Hafþór. „Það var algjör tilviljun sem réði því að við byrj- uðum að spila saman. Við byrjuð- um á því að leika okkur saman, sennilega fyrir um tíu árum. Við kynntumst þegar við vorum mat- reiðslunemar en siðar vorum við að vinna saman á Búðum. í fyrstu spiluðum við bara fyrir okkur sjálfa því okkur grunaði ekki að nokkur gæti haft gaman af þessu. Siðan tróðum við nokkrum sinn- um upp á Búðum og að var gerður góður rómur.“Aðspurðir um hvort þeir hafi einhvern tima reynt að skipta um hlutverk segja drengirn- ir að það gæti aldrei gengið og metast síðan um það dágóða stund hvor þeirra sé lélegri; Hafþór á gít- ar eða Gunnar sem söngmaður. Þeir komast ekki að niðurstöðu. Þið hafið tekið það sem var nær- tækt úr ykkar veruleik sem mat- reiðslumanna þegar þið ákváðuð nafn á bandið. Súkkat? „Nafnið er ekki eins nærtækt og það virðist í fyrstu. Við kölluðum okkur Súkkat þegar við fórum að koma fram opinberlega, en það er hennar gengju eftir þá gæfl hún honum köku. Sigga fékk prestinn, en sveik aumingjann um kökuna og var því eftir það kölluö Sigga kaka. Þetta var auðvitað neyðar- legt og gert henni til ævarandi háð- ungar. Mórallinn er að það borgar sig ekki að fara illa með aumingja. En það merkilega við þessa frá- sögn i dulrænu bókinni var að hún var sú eina sem ekkert dulrænt var við. Ég þurfti að bæta smá draugagangi inn í textann.“ Ef við stiklum á stóru um text- ana og tilefni þeirra þá þykir mér ástæða til þess að spyrja hvers vegna talað er um kvaðratrót og pí í einum textanum. „Einar Bogason á þennan texta, en hann gaf út fyrir margt löngu kver sem í eru stærðfræðiformúlur ætlaðar til söngs, með það fyrir augum að létta unga fólkinu stærð- fræðinámið. Við gerum okkar besta til þess líka og vonum að fólk geti sungið lagið í samkvæmum og reiknað síðan út rúmmál bumbtunnu:,, Þriðjung summu þessarar skalt kvaðrera þaó sinnum pí ég þetta víst þér rœð er það rúmmál sem um er hér að gera allt þetta pródúkt sinnum tunnu hœð Þið viljið greinilega vera góðir. Takið upp hanskann fyrir þroska- hefta, kennið bömum að reikna og flytjið tregasöng rafmagnstækj- anna. Um hvað fjallar það lag sem mest hefur verið spilað í útvarpi af lögunum ykkar og þið vomð sérstaklega fengnir til þess að flytja á baráttufundi um hálendis- málin? „Við erum að reyna að snúa við þeirri öfugþróun að það er komið óorð á öll þægilegu rafmagnstæk- in sem við eigum. Þeirra eina hlutverk er að láta ljós sitt skína, en þau fá ekki að gera það. Þau eru notuð til gjafa og oft látin ryk- falla inni í geymslum. Þeim hlýtur að leiðast skelfllega," segir Hafþór og vill ekki tjá sig frekar um það. Sódawathnesystur kom’á kvöldin í veióikofann sinn og tak’upp meik þœr þurfa ekki neitt að hugs’um aflann sem allur er farinn i reyk en í bitið laxmenn allir laxamœður og börn þió megið vera smeyk. „Þetta lag er um konur sem hafa gaman af því að veiða lax,“ segir Hafþór og neitar að viðurkenna að um nokkra stífa þjóðfélagsádeilu sé að ræða. Neitar raunar að segja nokkuð meira um textana. Gunnar Örn og Hafþór. Saman skipa þeir dúettinn Súkkat, sem varla er lengur dúett þar sem fjöldi listamanna kem- ur nálægt bandinu þegar mikið stendur til. Nú hafa þeir nýlega gefið út geislaplötuna Ull. „Það er vefnaður utan á plötunni og nafnið er þjóðlegt og hlýtt. Við vitum ekki hvort kom á undan, vefnaðurinn eða nafnið," segja strákarn- ir aðspurðir. DV-mynd Brynjar. notað á Akureyri af börnum, ef einhver er of lítill til þess að leika með sér eldri krökkum þá er hann súkkat. En upphaflega hugmyndin var auðvitað hýðið sykraða sem notað er í jólakökurnar, sem allir þekkja þó aö mjög lítið sé vitað um þennan ■ ávöxt og hann gjaman plokkaður úr kökum þegar þær eru étnar.“ Sigga kaka Kona ein á plötunni hefur skemmtilegt viðumefni; Sigga kaka. Er hún byggð á raunveru- legri persónu? „Já, ég las um hana í bók sem í vom dulrænar frásagnir," segir Hafþór. Þetta var nokkurs konar 19. aldar X-files og höfundurinn hét einhverju mjög vestflrsku nafni, en það er of langt síðan ég las sögu Siggu til þess að ég muni nafn höfundarins eða bókarinnar. Siggu þessa fysti að eiga prest sveitarinnar og hét þess vegna á aumingjann á bænum, ef áform Undir áhrifum Þið hafið löngum verið taldir vera undir sterkum áhrifum frá Megasi og nú hefur sá orðrómur / fengið byr undir báða, þar sem þið starflð mikið með honum um þess- ar mundir. Emð þið kannski að reyna að herma eftir honum? „Við höfum miklar mætur á Megasi, en við emm ekki að herma eftir honum þar sem það er ljótt að herma. Viö höfum hins vegar reynt að læra af honum en treyst- um okkur ekki til þess að dæma um hvort það hefur tekist. Það er rétt að það hefur loðað við okkur að við séum að stæla Megas en meiri parturinn er á misskilningi byggður." En haflð þið aldrei prófað að semja texta í sameiningu þar sem þið haflð unnið svo mikið saman? „Það hefur verið reynt, en hann er svo fljótur að semja að við höf- um ekki roð við honum. Við ætluð- um að semja textann Það er vont bara fyrst, í sameiningu, sem er til- brigði við sama stef og við unnum með á fyrri plötunni okkar; Það er vont en það venst. Við vorum rétt að setja okkur í stellingar til þess að fara að semja, orðnir mjög spenntir, en Megas skrapp þá út í búð og kom með lagið og textann tilbúið til baka.“ Gamli Pres- leyslagarinn Suspicion er einnig á plötunni. Hefur Presley verið áhrifavaldur? „Við erum yngri en svo að við höfum fengið hann beint i æð í uppvexti okkar, en auðvitað hafa allir, með einum eða öðrum hætti orðið fyrir áhrifum af hans tónlist, og því sem hann mótaði. Við syngj- um lagið aðallega vegna þess að við kunnum það og það hefur ver- ið í uppáhaldi hjá okkur í mörg ár. Útgáfan sem við kunnum best að meta var, merkilegt nokk, ekki með Presley, heldur gamalli hippa- grúppu sem hét Bonzo band.“ Rædd eru i kjölfarið síðustu ár Kóngsins, sem hann lifði við ein- kennilegar aðstæður ef marka má bók Alberts Goldmans, þar sem umfjöllunin er að vísu mjög nei- kvæð. Strákamir em þá spurðir hvort þeir ætli virkilega að leggja á þessa víðsjálu braut frægðarinn- ar sem orðið hefur svo mörgum góðum drengnum að falli, en þeir svara með þvi að segja að Roy Rogers hafl komist heill í gegn í góðu jafnvægi. Og þess vegna hljóti þeir að geta það líka. Þriðjungur þorpsins mætti ' Er bransinn erfiður? „Það verður að viðurkennast að útkoman er oft ansi döpur. Met var sett í Grindavík í fyrra þar sem fjór- ir sátu og tveir þeirra höfðu fylgt okkur að sunnan. Það era þó ekki leiðinlegustu tónleikar sem við höf- um þurft að afplána. Tónleikar sem við héldum á Skagaströnd fyrr á þessu ári hafa vinninginn í leiðind- um. Við vorum læstir inni á skrif- stofu fyrir tónleikana þegar brjálað- ar konur, ofsalega fullar, fóm að berja á hurðina og æpa hvenær ball- ið ætti að byrja. Við emm ekki ball- hljómsveit og það var mikið áfall að fá þá spumingu. Við sváfum í kenn- arabústað þar sem ekkert var, utan dýnur á gólfum og svefhpokar. Þama var ekki einu sinni glas, og því gat þessi aðstaða ekki flokkast undir það að vera neyðarskýli. En svo þurftum við aö borga fyrir gist- inguna. Þetta var verulega skelflleg lífsreynsla. En auðvitað gengur stundum vel, eins og um daginn þegar við spiluöum á Tálknaflrði. Þá mættu rúmlega hundrað manns, sem er tæpur þriðjungur þorpsins. Það var nú almennilegt.“ En hverju halda drengirnir að þeir fái áorkað með spilamennsk- unni? „Ætli við fáum nokkru áorkað nema því að skemmta okkur og öðr- um,“ segir Hafþór. „Svo eru náttúr- lega rosalegir peningar í þessu," segir Gunnar með svip sem gefur til kynna að hann hafi ekki meint það sem hann sagði. -þhs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.