Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Qupperneq 50
■S
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998
Víkingar í Þórshöfn
Víkingahátíö verður haldin
í Þórshöfn í Færum dagana
f 12.-18. júlí næstkomandi sum-
4 ^ar. Til stendur að slá upp vík-
ingatjöldum á lóð Þjóðminja-
safnsins og þar geta gestir há-
tíðarinnar kynnst lífsháttum
víkinganna. Eldamennska,
handverk og listmunagerð
verður meðal þess sem verður
kynnt sérstaklega.
Siglingar á víkingaskipum
verða kenndar ef veður leyflr
og einnig getur fólk æft skot-
fimi undir stjórn þjálfaðra
manna. Hestamennska verður
einnig á dagskrá. Áhugasamir
geta sent ferðamálaráði Fær-
eyja tölvupóst, torsin-
fo@post.olivant.fo og óskað
frekari upplýsinga.
Tapað, funtíið og selt
Margir þekkja þá raun þegar
farangurinn kemur ekki á
^færibandinu að lokinni flug-
ferð. Stundum er hann að ei-
lífu týndur. Bandarískar tölur
segja að rúmlega 90% af týnd-
um farangri skili sér innan
fimm daga. Alltaf verður þó
eitthvað eftir og nú er slíkur
farangur í Bandaríkjunum
sendur til Scottsboro í Ala-
bama þar sem hann er seldur í
umboðsverslun á vegum flug-
félaga. í versluninni kennir
ýmissa grasa, allt frá finustu
skartgripum og niður í ódýra
'**náttkjóla. Fyrir þá sem ekki
komast alla leið til Alabama er
alltaf möguleiki að skoða inni-
hald búðarinnar á Netinu.
Slóðin er www.unclaimed-
baggage.com.
Límósínubátur
Nú geta farþegar sem ferðast
| á fyrsta farrými með flugfélag-
inu Virgin Atlantic stokkið
beint um borð í „límósínubát"
þegar þeir koma til London.
Nýi báturinn, sem reyndar
tekur aðeins sex farþega í
hverri ferð, siglir á Thames-
ánni frá Heathrowflugvelli og
til miðborgar London. í bátn-
um er að finna öll helstu þæg-
indi og heitir flugfélagið því að
fólk sé komið á land í miðborg-
inni klukkustund eftir að það
gengur frá borði flugvélarinn-
■:*ar.
Sofið á flugvöllum
Á Netinu er að finna fróð-
lega slóð þar sem fólk getur
lesið sig til um hvemig sé best
að sofa á flugvöllum heimsins.
Byggt er á reynslusögum fjöl-
margra farþega sem margir
hverjir gefa góð ráð um hvar á
ákveðnum flugvöllum helst sé
að finna ró og svo framvegis.
Okkar ágæta flugstöð, Leifs-
stöð, fær til dæmis ágæta ein-
' 'kunn, þykir hafa rólegt og fal-
legt yfirbragð. Því er þó fundið
til foráttu að flugstöðin er lok-
uð yfir blánóttina. Slóðin
erwww3.sympat-
ico.ca/donna.mcsherry.
Umfangsmikil lesendakönnun á vegum Condá Nast ferðablaðsins:
San Francisco skemmti-
legasta borgin
borgin þetta árið, að mati lesenda Condé Nast ferðablaðsins. Þá þykja veitinga-
Á hverju ári efnir alþjóðlega
ferðatímaritið Condé Nast til les-
endakönnunar þar sem spurt er um
hvaðeina sem viðkemur ferðalögum
og ferðaþjónustu. Meðal annars eru
lesendur beðnir að meta hvaða
borgir eru áhugaverðari og
skemmtilegri en aðrar. Bestu hótel-
in eru valin og flugfélögum og bíla-
leigum gefin einkunn, svo að eitt-
hvað sé nefnt.
Þátttaka í könnuninni þótti með
eindæmum góð þetta árið en blað-
inu bárust svör 37 þúsund lesenda.
Það eru því litlar ýkjur að halda því
fram að ferðakönnunin sé ein sú
umfangsmesta í heiminum enda
blaðið eitt útbreiddasta ferðatímarit
sem gefið er út. Hér að neðan getur
að líta niðurstöður úr fjórum könn-
unum blaðsins. í hverjum flokki eru
gefnar einkunnir og er 100 hæst.
Sydney næstskemmti-
legust
Þegar lesendur Condé Nast voru
beðnir að leggja mat á borgir heims-
ins lögðu þeir til grundvallar þætti
á borð við veitingastaði, umhverfi,
menningu, viðmót borgarbúa og al-
mennt hvort borgin væri skemmti-
leg að sækja heim.
Undanfarin ár hafa tvær borgir,
hver í sinni heimsálfunni, bitist um
fyrsta sætið. Þetta eru San
Francisco á vesturströnd Bandaríkj-
anna og Sydney í Ástralíu. San
Francisco náði toppnum þetta árið
með 83,8 stig en Sydney fylgir fast á
eftir með 82,8 stig þannig að munur-
inn er ekki mikill. Veitinga-
húsaflóra San Francisco fær hæstu
einkunn eða 91,6 stig. Dublin kemst
ekki á listann en fær þrátt fyrir það
hæstu einkunn Evrópuborga fyrir
vinalegt viðmót borgarbúa.
Þegar kemur að menningu standa
Evrópuborgirnar Flórens, París og
Róm upp úr en þær sitja líka á topp
tíu listanum. Fyrir utan þær er að-
eins ein önnur Evrópuborg á listan-
um en það er Feneyjar.
Eins og fyrri ár situr Atlantic
City á botninum og fær slökustu
meðaleinkunn, 4,8 af 100 möguleg-
um stigum.
Góð hótel í Hong Kong
Það er mat lesenda að besta hótel
heims sé Amandari á Balí. Hótelið
hefur ekki áður verið á listanum en
það var nýlega endurbyggt. The
Regent í Hong Kong hefur margoft
verið i fyrsta sæti en fellur nú í það
þriðja. Annars kemur Hong Kong
vel út þvi þrjú hótel borgarinnar
eru á listanum.
Windsor Court í New Orleans í
Bandaríkjunum er í öðru sæti og
fær yfir 90 stig í öllum flokkum.
Spurt var um gæði þjónustu, her-
bergi, veitingastaði og staðsetningu.
Slök útkoma í Evrópu
Enn og aftur trónir Singapore
Airlines á toppnum og telst vera
besta flugfélag heims. Flugfélagið
hefur verið í fyrsta sæti allt frá ár-
inu 1989 og ekkert annað félag virð-
ist ná að ógna þvi. Nema ef vera
skyldi Swissair sem hefur verið í
öðru sæti á sama tíma. Japan Air-
lines skríður upp í þriðja sætið en
var i því áttunda í fyrra. Virgin Atl-
antic og Qantas skipta um sæti frá
því í fyrra en þau eru i fjórða og
fimmta sæti. Aðeins tvö evrópsk
flugfélög rata inn á listann, Swissa-
ir eins og áður greinir og svo SAS
sem lendir í níunda sæti. í þessari
San Francisco þykir áhugaverðasta
hús borgarinnar skara fram úr.
iow
áhugaverðustu
" borgirnar
1. San Francisco 83,3
2. Sydney 82,8
3. Róm 80,8
4. París 78,2
5. Feneyjar 77,7
6. Victoria B.C. 76,3
7. London 75,0
8. Vancouver 74,9
9. Höfðaborg 74,8
10. New Orleans 73,8
Esza
bestu hótelin
1. Amandari,
Balí 91.4
2. Windsor Court Hotel,
New Orleans 93.3
3. Regent,
Hong Kong 91.3
4. Peninsula,
Hong Kong 91.0
5. The Oriental,
Bangkok 90.3
6. Hotel Plaza Athénée,
París 90.2
7. Four Seasons,
New York 89.6
8. Island Shangri-La,
Hong Kong 89.7
9. -10. Hotel Bel-Air,
Los Angeles 89.5
9.-10. Hotel Le Bristol,
París 89.5
ILUk^l
könnun var tekið mið af þjónustu,
sætarými, mat, meðferð farangurs,
tímaáætlunum og almennri skipu-
lagningu.
Sex ár á toppnum
Besta bUaleigan að mati lesenda
Condé Nast er Hertz og hafa lesend-
ur nú verið á þeirri skoðun i sex ár.
Hertz þykir hafa öruggan og góðan
bUaflota og fær einnig hæstu ein-
kunn fyrir þjónustulund. Lesendur
voru beðnir að gefa þjónustu, við-
bestu bflaleigumar
1. Hertz 64.1
2. Avis 59.9
3. National 59.5
4. Europcar 58.5
5. Enterprise 58.2
6. Budget 53.6
7. Carey Limousine 52.9
8. Thrifty 52.8
9. Dollar 51.2
10. Alamo 49.8 iDgSil
móti starfsfólks, bifreiðunum og
flýti afgreiðslunnar einkunn.
Avis er í öðru sæti og þykir hafa
jafngóðan flota og Hertz og fylgir
Europcar fast á eftir í þessum
bestu flugfélögin
í. Singapore Airlines 82.5
2. Swissair 74.2
3. Japan Airlines 72.1
4. Virgin Atlantic 71.5
5. Qantas 70.7
6. Air New Zealand 70.0
7. Cathay Pacific 69.8
8. SAS 67.0
9. Thai Airways 66.4
10. South African Airways 66.1
________________ I5E3
flokki. Það er aðeins í einum flokki
sem útkoma Hertz er miður góð en
það er þegar gjaldskráin er metin.
-Condé Nast Traveler
írskir dagar fyrirhugaðir á Akranesi:
Bæjarbúar stoltir
af írsku landnámi
DV. Akranesí:
Nú er stefnt að því að halda
írska daga á Akranesi í mars á
næsta ári. „Þetta er gömul hug-
mynd sem bæjarstjóri fól mér að
skoöa betur síðastliðið sumar.
Akranes er eitt af þeim landsvæð-
um þar sem írar námu land og eru
bæjarbúar stoltir af því,“ segir
Björn S. Lárusson, markaðs- og at-
vinnumálafulltrúi Akraneskaup-
staðar.
Ýmis örnefni á Skaganum bera
írsku landnámi vitni. Minnis-
merki um landnámið var valinn
staður í bænum árið 1974.
„Ef af verður munu írsku dag-
amir verða haldnir seinni hluta
vetrar, væntanlega á degi heilags
Patreks eða 17. mars. Dagskráin
mun tengjast írskum siðum og
menningu og við höfum þegar sett
okkur í samband viö nokkra inn-
flytjendur á írskum vörum, m.a.
Allied Domecq og Ölgerð Egils. Þá
hafa Samvinnuferðir-Landsýn sýnt
málinu áhuga enda flytja þeir þús-
undir íslendinga til Irlands og íra
hingað. Með milligöngu þeirra höf-
um viö komist í samband við írska
ferðamálaráðið. Almennt hefur
hugmyndinni verið vel tekið og
það er einstakt, ekki síst í ljósi
þess að umræddir dagar eru utan
háannatíma í ferðamennsku og
stutt á Skagann frá höfuðborg-
inni,“ segir Björn S. Lámsson.
-DVÓ