Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1998, Síða 56
64 Langur laugardagur Opið til kl 18.00 15% afsláttur aföllum vörum. Kaupiðjólagjafirnar snemma og nýtiðykkur afsláttinn. Skartgripir í miklu úrvali og áfrábœru vertí. Opiðá morgun, sunnudag.frá 13.00 -18.00. fjull (Sftgtlin Laugavegi 49 S. 551 7742 óskar eftir blaðberum í eftirtaldar götur: Garðabær: Espilundur Hofslundur Grenilundur Víðilundur Reykjavík: Borgartún 1-7 Skúlatún Rauðarár- stígur Upplýsingar í síma 550 5777 Upplagður g ngutúr fyrir heimavinnandi. óskar eftir blaðberum í eftirtaldar götur: Garðabær: Espilundur Grenilundur Hofslundur Víðilundur Reykjavík: Borgartún 1-7 Skúlatún Rauðarárstígur Upplýsingar í síma 550 5777 Upplagður göngutúr fyrir heimavinnandi. menning LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 fastar á fjöl Sverrir Guðjónsson hefur á und- anfomum árum vakið mikla athygli fyrir flutning á miðaldatónlist og ekki hefur raddsvið hans, kontra- tenór, vakið minnsta athygli. Sverr- ir er kominn í víking og allur heim- urinn er undir. Epitaph heitir geisladiskur Sverris og verður hann gefinn út af einu virtasta hljóm- plötufyrirtæki heims, Opus 111 í Frakklandi. Ekki kúrekaútfærsia Sverrir fór að huga aö þessu verkefni fyrir nokkrum árum. Flutningur íslenskra þjóðlaga hef- ur oft verið rómantískur og sumir hafa farið út í kúrekaútfáerslur. Sverrir segir það góðra gjalda vert en hann hafi viljaö fara aðrar leið- ir. Aðdragandinn að útgáfunni er nokkuð langur. Fyrir þremur árum stóð til að gefa út en það frestaðist. „Sem betur fer,“ segir Sverrir sem gat þá velt þessu lengur fyrir sér. Þegar lúta, gamba, blokkflauta og slagverk höfðu verið skrifuð inn í verkið var það tekið upp í Skál- holtskirkju. „Þegar því var lokið langaði mig til að láta reyna á hvort þessi út- gáfa ætti möguleika hjá stærri fyr- irtækjum sem hafa getið sér gott orð fyrir gæðaútgáfu en útgáfumar vilja oft verða misjafnar." Opus 111 er margverðlaunað fyr- irtæki og því ekki ónýtt að komast inn þar. Forráðamenn fyrirtækis- ins sáu mynd sem Sverrir og Þið- rik Emilsson höfðu gert samhliða tónlistarverkefninu en þar voru sjö íslensk þjóðlög fléttuð inn í ís- lenskt landslag sem öll vom sungin án undirleiks, meðal annars í Surtshelli. Sverrir gekk frá verkinu þannig að allar tengingar mifli laga væra á þann hátt að verkið gengi upp sem heild og hefði verið hljóðblandaö út frá þeim hljóðheimi sem hann sótt- ist eftir. Eftir það gekk ferlið hratt fyrir sig og Opus mun gefa diskinn út í 50-60 löndum í febrúar en hann kemur fyrst út á íslandi tun þessa helgi. I röð þjóðlegra verka Sverrir segir aö heimsútbreiðsla sé auðvitað spennandi. Hér á landi séu líklega um 100 titlar gefnir út fyrir hver jól og markaðurinn beri það engan veginn. „Þetta er nánast fáránlegt. En krafturinn er svo mikill og áhuginn að þeir sem era að gefa út láta ekki stöðva sig. Markaðurinn verður því næstum að aukaatriði. Ég gat alveg hugsað mér að fara þá leið en fannst það áhugavert að reyna að komast inn á heimsmarkaðinn og þá hjá fyrirtæki sem fylgir verkum sínum vel eftir. Ég held að erlent fyrirtæki hafi ekki áður tekið islenska tónlistar- arfleifð og gefið út. Mér skflst að þessi diskur verði sá fyrsti sem Opus 111 gefúr út í röð þjóðlegra verka. Það er vel að þessu staðið og eins og ég hafi hitt á rétta tímann. Ég vonast til að þetta hafi eitthvað að segja fyrir íslenska tónlist, gamla og nýja.“ -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.