Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1999, Side 6
6
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1999
Fréttir
12 landsbyggðarmenn fengu lóðir 1 Reykjavik á 4 árum:
Borgarstjóri hafn-
ar nýjum íbúum
- straumurinn liggur til Kópavogs, segir Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi
„Straumur landsbyggðarfólks ligg-
ur til Kópavogs og annarra þeirra
staða sem bjóða það velkomið," segir
Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, um þá bú-
setuþróun sem orðið hefur á höfúð-
borgarsvæðinu með miklum fólks-
flótta af landsbyggðinni. Borgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram fyr-
irspum í borgarráði þar sem spurt
var hve margir einstaklingar og fyrir-
tæki hafi fengið úthlutað lóðum í
Reykjavík sl. 4. ár. Spumingin var í
þremur liðum þar sem óskað var upp-
lýsinga um það hve margir þeirra
sem fengið hafi lóðir hafi átt lögheim-
ili í Reykjavík. Þá var spurt um hve
margir hafi átt lögheimili í öðrum
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu
og loks hve margir utan höfúðborgar-
svæðisins. í svari skrifstofustjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
borgarverk- á höfuðborgarsvæðinu og 12 lóðir til
fræðings fólks utan höfuðborgarsvæðisins.
kemur fram Guðlaugur Þór segir að svar þetta
að alls hafi sýni að rangt sé hjá borgarstjóra að
verið úthlut- landsbyggðarfólk sem flytur á höfuð-
að 494 lóðum borgarsvæðið íþyngi borginni. Hann
til einstak- visar í ræðu borgarstjórans við fram-
linga og fyrir- lagningu fiumvarps um fjárhagsáætl-
tækja. Af un þar sem segir orðrétt: ...........Nýjum
þeim 400 lóð- íbúum fylgja vissulega tekjur, bæði
um sem ein- beinar og óbeinar, en ég er næsta
staklingar sannfærð um að ef dæmið væri gert
fengu voru upp þá kæmi í ljós að að þær vega
362 til Reyk- ekki upp á móti þeim tilkostnaði sem
víkinga, 26 sveitarfélög hafa af útþenslu sinni...“
lóðir til ein- Guðlaugur segir að eftir að hafa
staklinga hlýtt á ræðu borgarstjórans þar sem
annars staðar hún hafi lagt áherslu á að hægja þyrfti
Loðáutiiiutun i Reykjavik
Reykjavík
Annars staðar á höfuðbsv
Utan höfuðbsv
61
26 „
1/ 1» 3
Einstaklingar Lögaðilar ÉXSlíJ
Dale Carnegie®
Þjálfun
FÓLK - ÁRANGUR - HAGNAÐUR
„Námskeiðið gaf mér aukinn
eldmóð, frumkvæði,
jákvæðara og aukið
sjálfsöryggi sem auðveldar öll
mannleg samskipti og bætir
árangur".
„Frá fyrsta tíma varð ég var
við breytingar, og þegar á leið
fór árangurinn að skila sér í
daglegu lífi og starfi. Vandamál
urðu að verkefnuji og óþarfa
áhyggjur hurfu. Þegar upp var
staðið hafði ég hrésst upp á
hæfileika mína tii þess lifa og
starfa og aukið sjálfsöryggið
og eldmóðinn".
Nína Margrét
Pálmadóttir
Kristinn V.
Ólafsson
„Dale Camegie® námskeiðið
gaf mér mikið. Ég fór að taka
á mínum málum af meiri styrk
og á jákvæðari hátt en áður.
Sjálfsöryggið hefur aukist og
með námskeiðinu hef ég öðlast
meira jafnvægi. Ég hvet alla til
að auka styrk sinn og þroska á
svona jákvæðan máta“.
Eftir að ég tók þátt í Dale
Camegie® námskeiðinu
öðlaðist ég meira
sjálfstraust og þor. Ég Iærði
að beisla streitu og óþarfa
áhyggjur, betri framkomu
og að tjá mig í fjölmenni.
Það mikilvægasta er að ég
stjóma betur mínu lífi.
Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn
12. janúar kl. 20.30 að Sogavegi 69,108 Reykjavík
Sí! *
FJÁRFESTING ÍMENNTUN
SKILAR ÞÉR ARÐIÆVILANGT!
STJ ORNUN ARSKOLINN
Konráð Adolphsson - Einkaumboð á íslandi
á hinum miklu búferlaflutningum hafl
svarið komið sér mjög á óvart.
„Hún reyndi að sannfæra borgar-
fúlltrúa og íbúa borgarinnar um að
kostnaður vegna fjölgunar fólks í
borginni væri gríðarlegur. Það kemur
því mjög á óvart að ekki skuli fleiri en
12 af landsbyggðinni hafa fengið lóðir
í borginni á umræddum 4 árum,“ seg-
ir hann.
Hann segir að ekki þýði að kenna
um fólksfjölgun hversu mikil skulda-
aukning hafi orðið hjá Reykjavíkur-
borg. Staðreynd sé að landsbyggðar-
fólkið hafi frekar valið þann kost að
setjast að í nágrannasveitarfélögun-
um þar sem jákvæðara viðmót ríki í
garð þess og áhersla sé lögð á að laða
fólk á svæðið.
„Borgarstjórinn hafnar nýjum
íbúum og Reykjavík er einfaldlega að
missa af lestinni á þessu sviði eins og
mörgum öðrurn," segir Guðlaugur
Þór. -rt
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Gamaldags
röksemda-
færsla
- segir borgarstjóri
„Mér finnst þetta vera gamaldags
röksemdafærsla hjá þessum unga
manni,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri vegna ummæla Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar, borgarfúlltrúa
Sjálfstæðisflokks, um að borgarstjórinn
hafni landsbyggðarfólki.
Borgarstjóri sagði að fólk veldi sér
búsetu þar sem því hentaði, það fengi
íbúðir við hæfi og vfldi setjast að.
„Það hefúr aldrei verið sagt að fólk
sem flytji utan af landsbyggðinni
íþyngi borginni. Við höfúm hins vegar
sagt að skoða þurfi báða enda byggða-
stefnunnar, þ.e. annars vegar þann tfl-
kostnað sem sveitarfélög verða fyrir
sem missa fólkið og tapa þar með út-
svarsgreiðendum og hins vegar hinn
endann hér á höfúðborgarsvæðinu,
þ.e.a.s. hver er tilkostnaður þeirra
sveitarfélaga sem eru að vaxa mjög ört.
í öðru lagi segir talan um 12 lóðaúthlut-
anir nákvæmlega ekkert um flutning
fólks utan af landi tfl Reykjavíkur. Ef
við erum að úthluta 3400 lóðum á
hveiju ári í Reykjavík fyrir fjölbýlis-
hús, einbýlishús og raðhús þá vitum
við ekkert hverjir kaupa þau fjölbýlis-
hús og raðhús sem byggð eru af bygg-
ingameisturum. Við vitum ekkert
hverjir kaupa af þeim Reykvikingum
sem byggja sér raðhús eða einbýlishús
á nýbyggingarsvæðunum. Það er ekki
hægt að draga ályktanir af þessari tölu
í neina veru.“
Ingibjörg Sólrún kvaðst telja að hluti
skuldasöfnunar Reykjavíkurborgar
væri til kominn vegna útþenslu henn-
ar. Þar mætti skoða kostnað borgarinn-
ar af landakaupum, lóðagerð og upp-
byggingu, t.d. í Grafarvogi. -JSS
ilÉlli
orn
Sameining en...
Hinn rótgróni fréttastjóri Sjón-
varpsins, Bogi Ágústsson, hefur
nú snúið aftur til sinna fyrri
starfa á fréttastofunni. Hann mun
vera fullur eld-
móðs og þegar tek-
inn til við að
breyta ýmsu á
sínum gamla
vinnustað.
Stærsta verketni
hans er þó vænt-
anlega að sam-
stilla fréttastof-
ur Sjónvarps og
Útvarps í hagræðingarskyni.
Bogi fer fyrir nefnd sem þar gerir
tillögur og,.athyglisvert er að i
samtali við Dag lýsir hann því að
sameina eigi hitt og þetta og jafn-
vel verði sameiginleg yfirstjórn
eins og DV greindi frá i fyrra. En
þó að sameina eigi flesta þætti
fréttastofanna tveggja er eitt á
hreinu hjá Boga: Það á ekki að
sameina fréttastofurnar...
Konur til Græningja
Framboð hins græna flokks,
Steingríms J. Sigfússonar og
Ögmundar Jónassonar, hefur
tekið á sig skýra mynd í nokkrum
kjördæmum. Þó
heyrist hvorki
hósti né stuna úr
nokkrum
kjördæmum. Nú
hefur Kristín
Halldórsdóttir
alþingismaður
Kvennálista
fært sig yfir til
Steingríms J. og
telst vænlegur kandídat í
Reykjanesi. Sandkom hefur
óstaðfestar heimildir fyrir því að
Anna Ólafsdóttir Björnsson
kvennalistakona sé einnig líkleg í
framboð þar...
Snjóplógurinn
Skíðakappinn Kristinn
Björnsson frá Ólafsfirði hefur átt
fremur döpm gengi að fagna í
heimsbikarkeppninni í svigi.
Kristinn hefur dott-
ið í tíma og ótíma
á skíðunum og í
síðustu flögur
skiptin datt hann
út. Illar tungur
kalla hann nú
Snjóplóginn frá
Ólafsfirði og
segja að verið
sé að leita að af-
brigði af Viagra sem geti fengið
hann til að standa. Hvað sem því
líður má benda á að ítalski skíða-
kappinn Alberto Tomba átti í
hinum mestu erflðleikum með að
standa fyrstu ár ferilsins. Síðan
náði hann jafnvæginu og flestir
þekkja framhaldið. Það er því eng-
an veginn útséð um feril Kristins...
Njarðvíkur-Gráni
í atinu á Alþingi fyrir jól gekk
mikið á þegar verið var að sam-
þykkja hin ýmsu lög í snarhasti.
Meðal annars var samþykkt aö
veita fé til að
freista þess að
minnka ofbeit.
Markmiðið var
að fargað yrði
1600 hrossum og
nokkrar millj-
ónir lagðar í
það mál að
hvetja hrossa-
eigendur til að sláfra. Af þessu
tilefni orti séra Hjálmar Jónsson
og beindi orðum sínum sérstak-
lega til flokksbróður síns, Krist-
jáns Pálssonar, alþingismanns
og fýrrum bæjarstjóra í Njarðvík.
í hálfa stöng hengi ég fána,
hesta sé fyrir mér dána.
Skjóni er dauður,
skorinn er Rauður
og næðir um Njarðvíkur-
Grána.
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is