Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1999, Blaðsíða 17
16 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 íþróttir - Alþjóða Ólympíunefndin gegnsósa af spillingu og siðleysi. Hórur, húsakaup og himinháar mútugreiðslur Innan fárra vikna, hugsanlega tveggja, mun maðurinn á myndinni hér að ofan, Juan Antonio Samaranch, forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar, IOC, segja af sér ásamt mörgum fleiri meðlimum nefndarinnar. Þetta er að vísu háð þvi að mennirnir hafl snefil af sómatiifinningu og siðferðisvitund þeirra sé ekki algjörlega brostin. Lykilmenn innan Alþjóða Ólympíu- nefndarinnar, IOC, eru sokknir í for- arpytt spillingar og siðleysis. Á borðinu liggja sannanir um mútugreiðslur frá undirbúningsnefndinni fyrir ÓL í Salt Lake City, mönnum í fremstu röð sem unnu að því að fá vetrarleikana til borg- arinnar bandarísku árið 2002. Daglega koma ný hneyksli fram í dagsljósið. Fyrst voru það forláta byss- ur sem Samaranch voru gefnar. í kjöl- farið himinháar greiðslur til nefndar- manna IOC, mútugjafir í ýmsu formi, útvegun vændiskvenna, greiðsla fyrir dýrt nám ættingja nefndarmanna og margt fleira. Byssurnar Samaranch er með skítugan skjöld í málinu. Hann hefur viðurkennt að hafa þegið forláta byssur að gjöf frá Salt Lake City. Um leið og blaðamenn ytra komust að þessu lýsti Samaranch því yfir að byssumar væri á sérstöku safni IOC í Lausanne.. Þessi auma afsökun Spánverjans dug- ar skammt. í reglum IOC stendur skýr- um stöfum að hvorki nefndarmenn né ættingjar þeirra megi þiggja dýrari gjaf- ir en sem nemur 10 þúsund krónum frá aðilum sem tengjast borg sem sótt hefur um Ólympíuleika. Þessa reglu hefur for- setinn þverbrotið. Himinháar mútugreiðslur - líka til ættingjanna Tveir af æðstu mönnum undirbún- ingsnefndarinnar í Salt Lake City, Frank Joklik og Dave Johnson, hafa þegar sagt af sér. Þeir hafa sagt að ýms- ir meðlimir IOC hafi tekið við stærri gjöfum en þeir höfðu leyfi til. Dæmi eru um mútugreiðslur allt að 5 milljónum króna. Þá viðurkenndi Johnson að ýms- ir ættingjar nefndarmanna í IOC hefðu tekið við mútugreiðslum. Það dugði þeim bandarísku sem sagt ekki að múta IOC-mönnum heldur greiddu þeir ættingjum þeirra einnig stórfé. Nefndarmenn í Salt Lake City hafa viðurkennt opinberlega að samtals hafi 28 milljónum króna verið varið til mútugreiðslna til fjölda meðlima IOC og ættingja þeirra. Vændiskonurnar Eitthvað virðist hafa skort á fuil- nægjandi kynlíf meðlima IOC. Mútu- meistaramir í Salt Lake City greiddu fyrir afnot IOC-manna af vændiskonum og notuðu til þess greiðslukort frá borg- aryfirvöldum sem þeim hafði verið treyst til aö nota til annarra hluta. Þetta með vændiskonumar fullkomn- ar líklega niðurlægingu IOC í mútumál- inu þó af nógu sé að taka. Það er þekkt í íþróttum að mönnum sé mútað með reiðufé en að greiða þurfi fyrir vafasama bólfélaga þeirra líka nálgast einsdæmi. Dýrt nám ættingjanna Eins og áður er sagt hafa ættingjar snillinganna í IOC líka notið örlætis Bandaríkjamannanna. Staðfest hefur verið að dóttir eins meðlima IOC fékk greiddar 700 þúsund krónur fyrir nám dóttur sinnar. Sá hefur líklega greitt Salt Lake City atkvæði í kosningunni um staðarval fyrir ÓL 2002 og örugglega ef hann hefur að auki notið ókeypis fé- lagsskapar hóm ofan í kaupið. Að auki hafa ættingjar herranna í IOC fengið háar greiðslur fyrir ferðalög, húsakaup og heilsugæslu svo eitthvað sé nefnt. Staðfest hefur verið að einn nefndarmanna í undirbúningsnefnd leikanna í Salt Lake City aðstoðaði nefndarmann IOC við að hagnast veru- lega í fasteignaviðskiptum í Utah. Leikarnir fluttir til Calgary? Ekki er ólíklegt að vetrarleikarnir verði teknir af Salt Lake City, enda allur undirbúningur úr lagi genginn, og þeir fari fram í Calgary sem sótt hefur um leikana 2010. Vetrarleikarnir fóru síðast fram í Calgary árið 1988 og þar er allt tO staðar og menn klárir til verka. Einn borgarfulltrúi í borgarstjórn Salt Lake City hefur sagt að taka muni mörg ár fyrir borgina að jafna sig eftir þessi hneykslismál. Að vísu þurfi að bíða úrslita rannsóknar sem sé í gangi en nú þegar hafi margt verið staðfest sem ekki sé í anda íþróttanna. Rannsaka afglöp félaga sinna Sérstök nefnd, skipuð af IOC, rann- sakar nú allt þetta mál. Það þarf varla að koma á óvart að IOC skuli ekki hafa leitað út fyrir sínar raðir að mönnum til að rannsaka spillinguna. Þar með er niðurstaðan liklega tryggð. Niðurstaða þessarar nefndar mun siðan endur- spegla afstöðu helstu herranna í IOC sem koma saman í Lausanne í Sviss þann 24. janúar til að taka afstöðu til niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar. Þar munu forráðamenn IOC einnig yfir- fara svör þeirra fjölmörgu meðlima sinna sem bornir hafa verið þungum sökum og fengið hafa bréf frá IÖC. Spillingin innan IOC er algjör svo ekki sé nú talað um sjúkt hugarfarið í Salt Lake City. Forarpyttur spiilingar og siðleysis hefur dýpkað stöðugt síð- ustu árin og víst að mútumálin tengd Salt Lake City eru einungis toppurinn á ísjakanum. Ljóst er að forseti IOC og þeir fjöl- mörgu nefndarmenn sem þegið hafa mútur og annað þaðan af verra eru komnir á bólakaf í þennan pytt. Allir þessir menn hljóta að segja af sér og yrði það mikil landhreinsun fyrir Ólympíuhreyfinguna. í annan stað þarf að afnema reglur sem heimila gjafir til meðlima IOC og ættingja þeirra og eru ekki til neins annars fallnar en bjóða heim spillingu og viðbjóði eins og dæmin sanna. -SK ENGLAND Oyvind Leonhardsen vill yfirgefa herbúðir Liverpool en þar hefur hann ekki unnið sér fast sæti. Hann telur þann kost vænstan að reyna fyrir sér á öðrrnn slóðum. Liverpool greiddi fyrir hann á sinum tima um 400 millj- ónir króna en talið er að hann kosti helmingi minna í dag. Tony Adams er kominn á stjá eftir að hafa verið frá keppni síðan 25. nóv- ember. Hann meidd- ist í Evrópuleik gegn franska liðinu Lens og er taliö að innan tíðar verði hann kominn á fullt með aöallliði Arsenal. Adams lék meö varaliðinu í fyrra- kvöld gegn Northampton. Andy Goram, fyrrum markvörður skoska landsliösins og Glasgow Rangers, er genginn i raðir Mother- well og mun verja mark félagsins fram á vorið. Goram var á mála hjá Sheffield United fram að þessu en hann á að baki 17 ára feril sem mark- vörður. Viö lœknisskoöun í gcer kom i ljós að lan Wright hjá West Ham þarf að gangast undir uppskurð á hné. Allt lítur þannig út fyrir að hann verði frá keppni þangað til i mars og er það mikið áfall fyrir Lundúnaliðið. Trevor Sinclair hjá sama félagi fékk að punga út tæpum 500 pundum í gær. Á jólagleði West Ham fór kapp- inn yfir strikið, missti stjórn á skapi sínu og lét það bitna á bifreið í ná- munda við jólagleðina. Dómstóll ákvað sektina sem nemur um 60 þús- und krónum. Einn leikur fór fram í ensku bikar- keppninni í gærkvöld. Cardiff, sem leikur í D-deildinni, vann nauman útisigur á Yeovil sem leikur utan deilda, 1-2, eftir framlengdan leik. Leikjum Notts County og Sheffield United og Barnsley og Swindon var frestað vegna veðurs. , Clr 1. deild kvenna í handbolta: Haukar-Fram ...............20.00 Valur-Stjaman .............20.00 2. deild karla 1 handbolta: Breiðablik-Fylkir .........20.00 Bikarkeppni karla í blaki: ÍS-KA b....................19.30 ■ Beðið - eftir yfirlýsingu Jordans í dag Körfuknattleikssnillingurinn Michael Jordan mun í dag svara þeirri spumingu hvort hann sé endanlega hættur að leika körfuknattleik. Jordan heldur blaðamannafund í dag þar sem hann tilkynnir ákvörðun sina. Flestir era á þeirri skoðun að Jordan muni hætta en hinir eru til sem telja að hann muni leika eitt tímabil enn með Chicago Bulls. Þeirra á meðal er Larry Bird, þjálfari Indiana Pacers og fyrrverandi stjarna með Boston Celtics. Michael Jordan er besti körfuknattleiksmaður sem uppi hefur verið. Hann hefúr unnið sex meist- aratitla með Bulls, leikið 10 stjörnuleiki og tvívegis staðið á efsta þrepi verðlaunapalls á Ólympíuleik- um. Hvar sem á körfuknattleikinn er litið hefur Jor- dan vinninginn yfir aðra leikmenn. Hann á því ekki eftir að sanna eitt né neitt fyrir sér eða öðrum. . í einum bandarískum fiölmiðli í gær var því haldið fram að öruggt væri að Jordan myndi hætta. Ástæða númer eitt væri að hann væri orðinn þreyttur á því steypi- baði fiölmiðla sem yfir hann hefur m/m dunið undanfarin 15 ár og hann vildi loks fá frið. Ástæða númer tvö væri sú, að hann hefði viljað sjá hvort Chicago myndi mæta launakröf- um Scottie Pippen eða ekki. Það hefði Bulls ekki gert, Pippen væri farinn. Það væri í raun og veru ástæðan fyrir því að Jor- dan hefði beðið með að til- kynna ákvörðun sína þar til í dag, nokkrum dögum eftir að verkfalli leikmanna lauk. Enginn leikmaður hefur líklega haft önnur eins áhrif og Jordan. Þegar hann hóf að leika með Chicago var meðalaðsókn á heimaleiki liðsins 6.365 áhorfendur. Þeg- ar Jordan var að hefia sitt þriðja tímabil með BuÚs var höllin orðin full, rúmlega 20 þúsund áhorfendur á leik, og uppselt var á heimaleiki Bulls í 542 leiki í röð upp frá því. NBA-deildin hefur átt i vök að verjast undanfarna mánuði í kjölfar launadeilu leikmanna og eigenda liðanna. Tilkynni Jordan að hann sé hættur, er deildin í sárum sem seint eða aldrei munu gróa. Aldrei að segja aldrei en annar Jordan er ekki í augsýn og mun varla líta dagsins ljós í framtíðinni. -SK Kristinn fékk veglegan styrk Kristinn G. Bjarnason, sem er á leið tii Bandaríkjanna til að reyna fyrir sér sem at- vinnumaður í golfi, eins og fram kom í DV í gær, fékk í gær veglegan styrk til fararinnar. Hann skrifaði þá undir samning við Toyota sem styrkir Kristin um hálfa milljón króna. Kristinn sagði við DV að þessi styrkur gerði útslagið um að hann gæti ein- beitt sér að golfinu næstu mánuði en hann ætl- ar að freista þess að ná það langt ytra að hann fái fjársterka bandaríska aðila til að veðja á sig sem framtíðarkylfing. Á myndinni handsala Kristinn (til hægri) og Bogi Pálsson, forstjóri Toyota, samninginn. -VS/DV- Michael Jordan hefur leikið sér í golfi og baðað sig á sólarströndum að undanförnu og það telja menn ákveðnar vísbendingar um að hann sé endanlega hættur í körfuboitanum. MIÐVIKUDAGUR 13. JANUAR 1999 17 íþróttir Birgir hættur - Rob Wilson tekur við þjálfun Snæfells í körfunni Birgir Mikaelsson þjálfa Snæfell. hættur að Birgir Mikaelsson er hættur að þjálfa úrvalsdeildarlið Snæfells í Stykkishólmi. Birgir og stjórn körfuknattleiks- deildar Snæfells komust að sam- komulagi í gærkvöld um að Birgir léti af störfum sem þjálfari „í fullri vinsemd og góðri trú“, eins og Sigurður Skúli Bárðarson, formaður körfuknattleiksdeildar orðaði það í samtali við DV. Allar líkur eru á að Birgir leiki áfram með liðinu en frá því hefur ekki verið gengið endanlega. Kanadamaðurinn Rob Wilson, sem leikið hefur með Snæfelli í vetur, tekur við af Birgi sem þjálfari liðs- ins. -SK Heimsbikarinn á skíðum: Raich fór á taugum - Hermann Maier sigraði með glæsibrag Nýjasta stórstirnið í skíðaheimin- um, Austurríkismaðurinn Benja- min Raich, náði ekki að vinna sitt þriðja heimsbikarmót í röð í gær en þá fór fram stórsvig í svissneska bænum Adelboden. Eftir fyrri umferðinni að dæma stefndi allt í sigur Austurríkis- mannsins en hann var þá í fyrsta sæti. Það má enginn afskrifa múrarann Hermann Maier en hann skíðaði síðari umferðina af geysilegu öryggi og kom í mark með langbesta tím- ann. Maier fékk samanlagðan tíma 2:12,66 mínútur. Norðmaðurinn Kjetil Andre Aamodt varð í öðru sæti á 2:12,94 mínútum og Benjamin Raich kom í þriðja sætinu á 2:13,48 mínútum. Þetta var sjötti sigur Maiers í heimsbikamum í vetur og ábyggi- lega ekki sá síðasti. Maier varð þriðji á móti um síðustu helgi og lof- aði því þá að hann myndi koma sterkur til leiks í Adelboden. Við þau orð stóð kappinn. -JKS Hermann Maier kemur í mark í Adelboden í gær, sárþjáður af bakverk sem hrjáði hann í keppninni. Reuter - segir Colin Todd um sölubeiðni Arnars Gunnlaugssonar Colin Todd, framkvæmdastjóri enska knattspymufélagsins Bolton, er óhress með beiðni Arnars Gunn- laugssonar um að vera seldur frá fé- laginu og segir að Amar og umboðs- maður hans láti stjómast af græðgi. „Ástæðan fyrir þessu er sú að samningaviðræður við Amar fóru út um þúfur. Við buðum honum girnilegan samning, sem síðan hefði verið endurskoðaður ef við færum upp um deild. Ég veit ekki hvort það er Amar eða umboðsmaðurinn, en einhver er með ákveðnar tölur i kollinum og þær eru mun hærri en við getum ráðið við. Við vitum að Amar hefúr frábæra hæfileika, en ef þetta félag er ekki nógu gott fyrir hann, þá er það hans mál, því ég veit að við stefn- um í rétta átt í okkar uppbyggingu. Þetta er fyrsta beiðnin um sölu sem ég fæ síðan ég tók við stjóminni héma og það eru mikil von- brigði þegar leikmenn láta stjórnast af græðgi," sagði Todd í samtali á heimasíðu Bolton í gær. Todd er líka afar óhress með að málið skyldi hafa far- ið í fiölmiðla um leið og Arnar lagði inn beiðnina. „Eg fékk þessa beiðni aðeins í gær, og hef ekki haft tíma til að setjast niður með stjórnarformanni fé- lagsins og ræða mál- in. Ég tel að leikmenn eða unboðsmenn eigi ekki að fara beint í fiölmiðla með mál sem verið er að ræða í trúnaði innan fé- lagsins. Ég veit ekki hvað við geram í þessu máli fyrr en ég hef talað við stjórnarfor- manninn, en til þessa höfum við far- ið rétt að í einu og öllu hvað Arnar varðar. Eg ætla ekkert að segja um hver okkar niðurstaða verður, en við munum gera það sem við teljum að sé rétt fyrir Bolton. Hvenær það verður, veit ég ekki. Ég hef ekki leitt hugann að því kaupverði sem við setjum á Arn£u,! en það gerir ör- ugglega einhver fljótlega. Kannski umboðsmaðurinn hans,“ sagði Col- in Todd. Á heimasíðunni er enn fremur sagt að reiknað sé með þvi að kaup- verð Amars verði í kringum 340 milljónir króna. Hann hefur m.a. verið orðaður við Leicester, og Nott- ingham Forest. Ekki náðist i Amar til að bera ummæli Todds undir hann. -VS Gerryts kemur Elmarie Gerryts frá Suður Afriku hefur þegið boð ÍR-inga og keppir í stangarstökki kvenna á Stórmóti ÍR í fijálsum íþróttum í Laugardalshöll 24. janúar. Gerryts mun keppa viö Völu Flosadóttur og Þóreyju Eddu Elísdóttur og er ljóst orðið að stangar- stökkskeppni kvenna verður í svipuðum gæðaflokki og undanfarin tvö ár. Besti árangur Gerryts, sem er 26 ára gömul, er 4.30 metrar. Hún er meistari í heimalandi sínu und- anfarin tvö ár og árangur hennar er met í Suður-Afríku. Þá varð Gerryts í öðra sæti á síðustu Samveldisleikum. Marie Rassmussen frá Danmörku mætir einnig til keppni en besti árangur hennar er 4,03 metrar. Öraggt er að ein mjög öflug stangarstökks- kona kemur á mótið til viðbótar en viðræður standa yfir. -SK Selfoss fær liðsauka Selfyssingar hafa fengið góðan liðstyrk fyrir 2. deildar keppnina í knattspymu í sumar því þeir hafa fengið til sín þrjá leikmenn sem léku í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Tveir þeirra era Selfyssingar. Það eru Guðjón Þor- varðarson, sem hefur spilað með fR undanfarin ár og verið einn helsti markaskorari Breiðhyltinga, og Halldór Bjömsson, sem var varamarkvörður Framara á síðasta ári og lék einn leik í deildinni. Enn fremur er sóknar- maðurinn Steindór Elíson, sem lék með Fram seinni hluta síðasta sumars, kominn í raðir Selfyssinga. -VS Keflavík gegn Njarðvík í úrslitum bikarsins? Miklar likur era á því að grannamir í Keflavik og Njarðvík mætist í bikarúrslitum karla í körfuknattleik. Bæði lið fengu heimaleik þegar dregið var til undanúr- slitanna í gær. Keflavík fær Hauka í heimsókn og Njarð- vik fær Tindastól. KR virðist eiga vísan úrslitaleik í kvennaflokki en lið- ið dróst gegn ÍR á heimavelli. Keflavík mætir IS og þar verður eflaust um hörkuleik að ræða. Allir bikarleikirn- ir fara fram 24. janúar. -VS Genk áfram Genk er komið í 8-liða úrslit belgísku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir 4-3 sigur á Moeskroen. Þórður Guðjónsson lagði upp fyrsta mark Genk og Bjami bróðir hans kom inn á sem varamaður í leiknum. -VS Blcmd i poka Italska knattspyrnufélagiö Juvent- us stendur núna frammi fyrir þvi að velja á milli á þeirra Hakan Suker hjá Galatasaray í Tyrklandi og Árgentinumannsins Juan Esnaider sem leikur með Espanyol á Spáni. Liðið ætlar að styrkja sig á næstunni og ekki mun af veita. Miinchenarlióiö 1860 hefur mikinn áhuga á því að fá Thomas Hassler i sinar raðir fyrir næsta tímabil Hássler leikur með Dortmund og er óánægður með veruna þar og vill fara. Miklar likur eru á því að Hássler fari til liðsins næsta sumar. Delio Rossi, þjálfari Salernitana á Ítalíu, var rekinn úr starfi í gær en liðið er að leika á sínu fyrsta ári i A- deildinni í langan tima. Liöið er í næstneðsta sætinu og það þykir for- svarsmönnum liðsins ekki gott. Francesco Oddo, sem áður þjálfaði Reggiana, var ráðinn i staö Rossi. Stuöningsmenn Salernitana voru ekki ánægður með brottrekstur Rossi og ruddust i gær inn í herbergi þar sem blaðamannafundur var í þann veginn að hefjast. Þar átti að tilkynna þjálfaraskiptin. Nýi þjálfarinn komst aldrei inn í húsið þar sem fundurinn var á dagskrá. Stuðningsmennirnir sáu til þess. Ekkert varð af fundinum. ítalska liöiö Vicenza er á höttunum á eftir Marc Aurelio hjá Sporting i Lissabon. Kappinn er samningsbund- inn Sporting til 2001 en Vicenza gerir sér góðar vonir um að krækja í leik- manninn. Austurríksmaöurinn Mikhail Bot- wino sigraði i 30 km skíðagöngu i heimsbikarkeppninni í Tékklandi í gær. Annar i göngimni varð Norð- maðurinn Björn Dœhlie sem er í efsta sæti I stigakeppninni. Kristiana Smigun frá Eistlandi sigr- aði 15 km skíðagöngu kvenna í Tékk- landi í gær og var þetta fyrsti sigur hennar í keppninni. Önnur var hin heimskunna Stefania Belmondo frá Ítalíu. Svissneska liöió Servette krækti í einn efnilegasta knattspymumann Búlgara nú um stundir. Sá heitir Martin Petrov, 19 ára frá CSKA i Sofíu. Yosu Ortuondo var í gær ráðinn þjálfari spænska knattspyrnuliðsins Salamanca sem er í mikilli fallhættu. Forveri hans Miguel Angel Russo var látinn taka pokann sinn 4. janúar sl. Ortuondo á ekki mikla reynslu að baki sem þjálfari en sem leikmaður lék hann lengi með Bilbao. Jean Tigana sagði starfi sínu lausu sem þjálfari franska knattspyrnuliðs- ins Monaco i gær. Tigana kom til fé- lagsins i júli 1995 og undir hans stjórn hefur liðinu vegnað vel lengstum en i vetur hefur hallað und- an fæti. Monaco er sjöunda sæti i deildinni, 19 stigum á eftir Marseille, sem er i efsta sæti. Liöið var slegiö út úr UEFA-keppninni í desember sl. og ekki horfir vel fyrir þátttöku í Evr- ópumótum næsta haust. Bjarne Riis, einn frægasti íþrótta- maður Dana sem vann Tour de France hjólreiöakeppnina árið 1996, var sakaður um lyfjaneyslu i sjón- varpsþætti í Danmarks Radio i fyrra- kvöld. Þar bentu sérfræðingar i lyfja- málum á ákveðin einkenni hjá Riis sem væru dæmigerð fyrir neyslu örvandi efna. Riis hefur þegar krafist þess að fá að sjá öll gögn sem lögð voru til grundvallar i þættinum og hefur í hyggju að kæra sjónvarpsstöð- ina. Jóhann Rósa Ágústsdóttir, Gerplu, er íþróttakona ársins 1998 í Kópavogi. Sömu viðurkenningu á meðal karla hlaut Geir Sverrisson, Breiðabliki. Þetta var tilkynnt á íþróttahátíð Kópavogs 10. janúar sl. -JKS/-VS/-SK Knattspyrnufélag í Noregi óskar eftir leikmönnum fyrir næstkomandi keppnistímabil: Reyndum vamarmanni og markheppnum sóknarmanni. Uppl. gefur Páll Höskuldsson í síma 00 47 918 45305

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.