Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1999, Blaðsíða 25
MIÐVTKUDAGUR 13. JANÚAR 1999
25
(0
N
CÖ
E-*
Myndasögur
tj)
Ö)
•fH
co
I
3L
Góðan daginn.
Eg er frá borgar
yfirvöldum. -
Ætlunin er aö I
framtíöinni eigi
að setja allt rusl
og afganga
viö aöaldyrnarl
rNei, ég blaes ^
sápukúlbr með
henni. . . ■
V. viitusáá?' y
Heyröir þú þetta, ástin
mín? - Hvornig geta
þeir ætlast til að
veikbyggöar konur
V=T\ dröslist meö T,
rusliö gegnum
—allt húsiö?!
r Fólkmeðþlna
uppbyggingu af heila
barf ekki annað en aö
dragaaðsérandann. /
“v—
Veiðivon
Karl Bretaprins ásamt sonum sínum Vilhjálmi og Henry.
Ellefu ár síðan Karl kom síðast:
Kemur hann
í sumar
- til laxveiða á íslandi?
I sumar eru ellefu ár síðan Karl
Bretaprins koma slðast til veiða á ís-
landi en þá renndi hann fyrir lax í
Kjarrá í Borgarfiröi. Síðan hefur
margt drifiö á daga prinsins eins og
menn vita. En með Karli í þessari
veiðiferð í Kjarrá var ekki Díana
heldur Camilla Parker Bowles. Hún
veiddi ágætlega í þessari veiðiferð.
Karl veiddi sjálfur 11 laxa í þessum
veiðitúr en hollið veiddi 52 laxa og
stærsti laxinn var 18 pund.
Lítið hefur þessi ferð Karls í Kjarrá
verið rædd en það gerir Gunnar
Sveinbjörnsson i bók Eiriks St. Ei-
ríkssonar, Áin mín. Þar segir Gunnar
meðal annars:
„Fyrsta sólarhringin komumst við
lítið í návígi við prinsinn. Lífvörður-
inn var allur á nálum og gætti hans
mjög vel. Síðan slaknaði á spennunni,
enda var engin mannaferð í dalinn. ís-
lenskir lögggæslumenn gættu þess að
enginn færi upp að Kjarrá nema þeir
sem þangað áttu erindi og Karl og
gestir hans áttu því mjög góða daga
við veiðarnar. Reyndar benti Andrés
lífverðinum strax á það að kindumar
í hlíðunum upp af ánni væru bestu
verðimir sem völ væri á. Ef það kæmi
styggð að þeim þá væri það vegna
þess að refur eða menn væm þar á
ferð.“
Við höfum heimildir fyrir því að
Karl hefur lýst óvenjulega miklum
áhuga að koma til laxveiða á íslandi i
sumar. Líklega tekur hann syni sína
Vilhjálm og Henry með sér til veið-
anna og jafnvel Camillu líka en hún
er góður veiðimaður og fiskin.
Það eru helst Laxá í Aðaldal og Selá
í Vopnaflrði sem koma til greina
núna. Selá í Vopnafirði hentar líklega
betur fyrir prinsinn og syni hans en
Laxá í Aðaldal. Auðveldara er að fela
Umsjón
Gunnar Bender
þau þar. Reyndar myndi Nessvæðið í
Laxá í Aðaldal henta vel fyrir þau.
Hofsá í Vopnafiröi er sterklega inni í
myndinni líka, þar veiddi hann í
nokkur ár og veiddi oft vel. Enda
þekkir hann Hofsá best af íslenskum
veiðiám. Karl Bretaprins hefur viðrað
þessa hugmynd við Orra Vigfússon
nokkrum sinnum og i sumar hefur
hann ákveðið að koma-til veiða hérna.
Enda hefur Karl oft sinnum lýst gæð-
um landsins og góðum veiðiám fyrir
Orra. DV reyndi að fá fréttina stað-
festa í vikunni en allir þegja sem gröf-
in. Orðrómurinn hefur verið óvenju-
lega hávær í allan vetur. Enda verða
svona heimsóknir að fara hljóðlega og
helst má enginn vita af þeim.
UTSALAN
hófst í morgun
50% afsláttur
Laugavegi 40
Sími 551 3577