Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1999, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 19 Leonardo gefin rándýr snekkja Hjartaknusarinn Leonardo DiCaprio getur nú látið langþráð- an draum um rómantískar nætur á lystisnekkju rætast. Hollywood- stjörnunni hefur verið gefin rán- dýr snekkja. Leo mun búa í skip- inu á meðan hann er við kvik- myndatökur á Taílandi. Að tök- unum loknum verður fleyinu siglt alla leið til vesturstrandar Ameríku þar sem leikarinn fær að nota það að eigin .vild. Þessi höfðinglega gjöf (snekkjan kostar jú 150 milljónir) er til að tryggja stjörnunni næði og þægindi. Stórgræðir á gröf Díönu Spencer jarl, bróðir Díönu prinsessu, hefur halað inn sem svarar rúmum 300 milljónum ís- lenskra króna síðan hann leyfði almenningi aðgang að grafreit systur sinnar. Aðeins rúmar þrjátíu milljónir runnu þó til góðgerðarmála þegar búið var að greiða starfsfólki laun og standa straum af kostnaði við að breyta hesthúsum í safn í minningu prinsessunnar. Jarlinn segist þó ekki hafa fengið grænan túskild- ing í eigin vasa. Landareign Spencers verður opnuð að nýju 1. júlí næstkomandi. Geri hafði tíma fyrir aðalatriðin Kryddpían fyrrverandi, Geri Halliwell, segir að raunverulega ástæðan fyrir því að hún hætti í stúlknasveitinni vinsælu hafi verið sú aö hún hafði ekki tíma til að tala um brjóstakrabba vegna anna hljómsveitarinnar. Sá sjúkdómur stendur henni mjög nærri. „Ég varð að spyija mig hver aðalatriðin væru,“ sagði Geri í útvarpsviðtali. Sjálf þurfti hún að láta fjarlægja ber úr öðru brjóstinu. ____________________________Sviðsljós Rachel elskar enn ákaft Rod sinn Rachel Hunter, eiginkona Rods Stewart, hefur nú loks látið í sér heyra vegna skilnaðar þeirra að borði og sæng. Hún kveðst enn elska Rod og vilja laga hjónabandið. Rachel hringdi í umboðsmann sinn og náinn vin, Andy Haden á Nýja Sjálandi, til að segja honum frá því að þau Rod væru að reyna að bjarga hjónabandinu. Hún sagði jafnframt að þau þyrftu að vera aðskilin svolítinn tima til að endurskoða ýmislegt. Á sunnudaginn sagði Rod í blaðaviðtali að hann vonaðist til að Rachel sneri aftur heim og gæfi hjónabandi þeirra annað tækifæri. „Ég elska hana enn ákaflega mikið og vona af öllu hjarta að hún komi aftur til mín. Ég hef aðstoðað hana Rachel Hunter og Rod Stewart síðastliðið haust. Símamynd Reuter. við að finna sér húsnæði alveg í grenndinni svo að við getum haldið áfram að hittast og verið saman með bömunum okkar á hverjum degi. Á föstudagskvöld voru Rod og ' Rachel reyndar saman á heimili sínu I Beverly Hills. Þau komu í rauða Rollsinum hans Rods og voru þjökuð á svip, að sögn sjónarvotts. Rachel sat við stýrið og virtist örþreytt og Rod starði beint fram fyrir sig. Orðrómur var á kreiki um að Rachel, sem er 29 ára, hefði yfirgefið Rod, sem er 54 ára, þar sem hún væri orðin leið á honum og hjónabandinu. Þau hafa verið lítið saman að undanfómu og Rachel hefur sjaldan verið á tónleikum eiginmannsins. Bandaríska söng- og leikkonan Cher tók lagið á uppskeruhátíð tónlistarmanna vestanhafs á mánudagskvöld. Greini- legt er að henni var skemmt og ekki útilokað að viðstaddir hafi haft nokkurt gaman af líka. Annar kvikmyndaleikari, sá geðþekki Will Smith, sem nú má sjá í Óvini ríkisins í reykvískum kvikmyndahúsum, var annars ótvíræður sigur- vegari kvöldsins. Will er rappari góður og vann til þrennra verðlauna. Meðal annarra sem fengu verðlaun fyrir vel- gengni og vel unnin störf voru sveitarokkarinn Garth Brooks og kanadíski söngfuglinn Céline Dion. Handtekin fyrir að sofa í rúmi Brads Pitts Athena Marie Rolando, sem er 19 ára, var í síðustu viku hand- tekin eftir að hafa fundist sof- andi á heimili Brads Pitts í Hollywoodhæð- um. Athena var klædd í föt af leikaranum, græna peysu, bláar buxur og hún var með blá- an hatt og í tennisskóm, að sögn lögreglunnar. Hjartaknúsarinn sjálfúr, Brad Pitt, var ekki heima þegar þetta gerðist. Fyrsta myndin af barni Jaggers Brasilíska fyrirsætan Luciana Morad, sem kveðst eiga von á barni meö Mick Jagger, sást á dögunum koma út af mæðraskoðun í London með fyrstu myndirnar af ófæddu barni sínu. Luciana er nú komin fjóra mánuði á leið og það er farið að sjást á henni. Jerry Hall, eiginkona Jaggers, er nú búin að taka af sér giftingarhringinn. Hún var enn með hringinn þegar hún fór frá London fyrir tveimur vikum í frí til Hawaii. Við komuna til London sást enginn giftingarhringur á fingri hennar. SKEIFUNN117 • 108 REYKJAVÍK SirVll 581 -4515 • FflX 581-4510

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.