Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1999, Page 31
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999
39
Flugvöllurinn gengur vel
í þetta skipti voru engin neyð-
arleg atvik þegar flugvallarstjór-
inn I Hong Kong leiddi gesti mn
nýjasta flugvöll borgarinnar í
síðustu viku. Flugvöllurinn hef-
ur nú verið starfræktur í sex
mánuði og allt virðist ganga að
óskum. Rannsókn á röð óhappa
sem urðu þegar völlurinn var
opnaður þann 6. júli stendur
enn. En vandræði vallarins eru
þó ekki fyrir bí þvi flugfélög
þrýsta nú harf á að lendingar-
gjöld verði lækkuð en þau eru
20% hærri en á vellinum sem
var áður notaður. Flugfélagið
SAS tilkynnti til dæmis nýlega
að það myndi ekki nota völlinn
vegna hárra gjalda. Aðalkeppi-
nauturinn, Changi flugvöllur í
Singapore, lækkaði lendingar-
gjöld um 10% nýlega. Sú stað-
reynd fer ekki í vel í forráða-
menn Hong Kong flugvallar því
þeir hafa þegar lækkað húsaleig-
una til muna og er hún mun
lægri en upphaflega var áætlað.
Aldamótatiltekt í París
Það
stendur
mikið til
í París
þessa
dagana
og ráun-
ar það
sem eftir
lifu’ árs-
ins.
Vegna
ársins
2000,
sem
nálgast
óðfluga,
hyggjast borgaryfirvöld bæta
ásýnd borgarinnar til muna.
Meðal framkvæmda má nefna
nýjar og fallegar göngubrýr yfir
ána Signu auk þess sem öll
minnismerki í borginni verða
tekin í gegn. Einn af hápunktum
þessara aðgerða verður vafa-
laust þegar segldúknum, sem
hefur þakið hluta Vorrar frúar
kirkju frá árinu 1993, verður
svipt af og við borgarbúum mun
blasa kirkjan í öllum sínum
mikiifengleika. Þá verða án efa
margir kátir þegar Pompi-
dousafnið, sem var lokað allt
síðasta ár, verður opnað að
loknum endurbótum í desember
á þessu ári.
Snjódýpt í Evrópu
- uppgefin í cm
Austurríki
Fjöll Lyftur opnar
30 110 85%
60 150 98%
20 80 100%
75 150 100%
60 80 100%
30 300 74%
Kltzbúehl
Lech
Frakkland
Nægur snjór í Evrópu
Það virðist vera nægur snjór á flest-
um skíðastöðum Evrópu um þessar
mundir. Margir skíðastaðir í Austur-
ríki og Frakklandi opnuðu fyrir jól og
þótti óvenjusnemmt sums staðar.
Þeir sem hyggja á skíðaferðir til út-
landa og vilja fylgjast með veður-
spánni geta kannað snjódýptina víða
á vefnum. Á slóðinni interactivemag-
azines.com/snow er að finna ágæta
veðurspá fyrir Frakkland, Austurríki
og ítaliu. Þar má lesa spá fram í tím-
ann auk annarra frétta úr skíðaheim-
inum. Þá er skiaustria.com ágæt síða
fyrir þá sem ætla til Austurríkis en á
síðunni er að firma tengingar inn á
fjölmarga skíðastaði. Ferðaskrifstofur
bjóða einnig ferðir til Aspen í Banda-
rikjunum og á vefnum skinet.com er
hægt meðal annars að fræðast um
veður óg snjóalög.
Hægt að boka ferðir a Netinu
Ferðaskrifstofa stúdenta býður nú
viðskiptavinum að bóka sjálfir flug og
aðra þjónustu í gegnum heimasíðu
hennar. Þessi þjónusta hefur ekki áður
verið í boði en bókanir fara í gegnum
Amadeus-farbókunarkerfið.
Um árabil hefur FS boðið nýjungar i
þjónustu og varð hún fyrst ferðaskrif-
stofa, sem selja ferðir frá íslandi tU að
setja upp heimasíðu. Með nýja bókun-
arkerfinu gefst viðskiptavinum m.a.
tækifæri tU að skoða flug og aðra
tengda þjónustu og skrá bókun sem
síðan er unnið úr hjá ferðaskrifstof-
unni. Þeir sem bóka sig á heimasíð-
unni fara sjáifkrafa í FS-klúbbinn en
meðlimir hans fá sendar ýmsar upplýs-
mgar, njóta sértUboða og komast í pott
sem úr eru dregnar nokkrar ferðir
tvisvar á ári.
Það er von Ferðaskrifstofu stúdenta
að nýjungin á heimasíðunni,
www.studtravel.is, auki gæði þjónust-
unnar og létti á símasölu og biðröðum
á skrifstofunni.
Miðstöð um lífríki og auð hafsins
DV, Akranesi:_______________________
Fyrir nokkrum árum hóf áhugahóp-
ur á Akranesi að skoða hugmyndir um
Sjávargarð sem hefði það hlutverk að
vera kynningarmiðstöð um lífríki og
auðlindir hafsins. Að sögn Bjöms S.
Lárussonar, markaðs- og atvinnumála-
fuUtrúa Akraneskaupstaðar, vann hóp-
urinn gott starf. „Ég efast um að hug-
mynd að starfsemi sem þessari hafi
áður verið jafhvel undirbúin. Það varð
þó ljóst að garðurinn getur ekki staðið
undir ijármögnun en reksturinn sjálf-
ur ætti að standa undir sér,“ segir
Bjöm.
Á haustdögum 1997 vora fúUtrúum
Akranesbæjar færðar niðurstöður
vinnunnar i þeirri von að hrinda
mætti hugmyndinni í framkvæmd.
Skipuð var nefnd tU að vinna áfram að
málinu og starfar hún enn. „Það er
okkar mat að það sé beinlínis nauðsyn-
legt að kynnmgarmiðstöð sem þessari
verði komið á fót. Markmið miðstöðv-
arinnar yrði fyrst og fremst að kynna
fyrir umheiminum að Islandsmið era
ekki bara risavaxið fiskabúr heldur
nýtum við auðlindina og gerum það af
skynsemi. Hugmyndin er og verður
okkar en því miður er þetta ofvaxið
einum kaupstað þótt sjálf fjárfestingin
sé lítU, eða í kringum 100 mUljónir
króna,“ sagði Bjöm S. Lárusson. -DVÓ
TILBOÐ
/ Taktu með ...
16“ 990 kr
með 2 áleggstegundum
ug 2 I kók
Fáðu sent ...
16“ 1.290 kr
með 2 áleggstegundum
ug 2 I kúk
Fáðu sent ...
4 hamborgarar,
Opið virka daga kl. 11 - 24
Helgar 11 - 05
IVúpalínd 1
Sími 564 5777
■ ■■■
JIU JITSU
Nú getur þú stundað alvöru
SJÁLFSVÖRN
Ícs'i'/S.
!
m
I
m
!
í
»
'm
!
!
■■
l
m
m
I
Þú þarft ekki líkamlegan styrk til þess
að æfa Jiu Jitsu því við
byggjum á 100% tækni.
Grunnur margra sjálfsvarnariþrótta
Kennslustaðir
I" S. 562-7295 ö.DOD-ööyö ð. 400-öoyy
11 mm 11 i ■■■ i ■■■ i ■■■ i ■■■■ híi 1 mm 11 ■■ 11 i ■■ 11 ■■■ r
S. 565-8898
UMFBISK
S. 486-8699
Útsala - Útsala á öllum vörum
Gólf- og veggflísar frá
kr. 990 m2
Smiðjuvegí 4a - græn
Hreinlætistæki —
.; 6/ ■
Blöndunartæki —
Sturtuklefar —
♦**** ***♦
,* Opið laugardag *•
Í0-Í6 ^y
gata - sími 587-1885