Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Side 12
12
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
Spurningin
Tekurðu lýsi/vítamín?
Bent Andersen, 9 ára: Ég gerði
það einu sinni.
Lilja Rut Þórarinsdóttir, 14 ára:
Já, ég tek lýsi.
Ásdís Elva Kristinsdóttir, 14 ára:
Ég tek stundum C-vítamín.
Björn Sigurðsson, vinnur á
Reykjalundi: Ég tek stundum
vítamín.
Garðar H. Garðarsson, vinnur á
Reykjalundi: Ég geri það sjaldan.
Vignir Bjamason nemi: Nei.
Lesendur
Samkeppni í
utanlandsflugi
- lægri fargjöld er krafan
íslendingar eru mun verr settir en íbúar nágrannalandanna að því er flugfargjöld
og sumarleyfisferðir snertir. Krafan er lægri fargjöld, segir m.a. í bréfinu.
Gunnar Kristjánsson skrifar:
Við Islendingar rembumst eins
og rjúpan við staurinn að leita á
þau mið í ferðaþjónustu sem
bjóða lægstu fargjöldin. Einkum
til útlanda þar sem möguleikar á
ódýrari þjónustu bjóðast og úrval-
ið er margfalt á við það sem fólk
á völ á hér. Ég rakst á svör veg-
farenda í DV sl. mánudag þar sem
spurt var: Viltu samkeppni í ut-
anlandsflugi? Fimm af sex að-
spurðum svöruðu játandi. Einum
var sama og svaraði ekki spurn-
ingunni beint. - Yrðu fargjöldin
héðan til útlanda almennt ódýrari
væri hægur vandi fyrir íslenska
ferðamenn að ganga inn í hvaða
ferðir sem er í borgum á megin-
landinu eða í Bretlandi og greiða
jafnframt mun lægri gjöld en hér
bjóðast.
í breskum dagblöðum má lesa
daglega tilboð um ferðir og flug
frá Bretlandi vitt og breitt um
heiminn og í flestum tiivikum
blöskrar manni verðmunurinn á
þeim ferðum og þeim er hér bjóðast.
- Ég tek dæmi um auglýsingu í
bresku blaði í síðustu viku. Þar eru
auglýstar ferðir til Florida með
flugi, bílaleigubíl og gistingu á mis-
munandi hótelum (3, 4 og 5 stjörnu)
í 14 nætur á 279 sterlingspund og
hæst 389 pund. - Auglýsing um flug
og bíl er þar einnig að finna á 189
ensk pund.
Allt er þetta í samræmi við það
sem t.d. Flugleiðir hf. bjóða útlend-
ingum á markaössvæði sínu, bæði í
Bandaríkjunum og Evrópu. Ég hef
haft af því spurnir að t.d. I Lúxem-
borg, þangað sem Flugleiðir hættu
nýlega að fljúga, bjóðist farþegum
að taka KLM flug til Amsterdam og
þaðan til Bandaríkjanna fyrir eitt-
hvað ámóta fargjald og hér er tekið
dæmi um frá Bretlandi. - Og dæm-
in um lág fargjöld milli heimsálfa
(Evrópu og Ameríku) eru óteljandi.
Á meðan sætum við íslendingar
því að þurfa að greiða ofurgjöld til
og frá landinu. Um þetta hefur ver-
ið kvartað, bæði af farþegum sem
hefur verið neitað um sömu fargjöld
(t.d. íslendingar sem búa vestanhafs
eða austan) er þeir ætla að notfæra
sér hið auglýsta verð Flugleiða.
Enginn aðili hér á landi, hvorki
Ferðamálaráð né ráðuneyti (sem
hafa þó eftirlit með flugþjónustu
héðan til útlanda), tekur upp hansk-
ann fyrir landsmenn að þessu leyti.
Ég er hissa á að samgönguráðuneyt-
ið skuli ekki láta þessi mál til sín
taka eða sjálfur samgönguráðherra
sem er áhugamaður um hvers kon-
ar samgöngubætur hér innanlands
og ræður raunar ferðinni í flugsam-
göngum líka.
En eitt er víst; það verður að
mæta kröfum landsmanna um lægri
fargjöld til og frá landinu og lægri
verðtilboð í svokallaðar pakkaferðir
sem fjölskyldur eru að vinna fyrir
hörðum höndum mánuðum saman
og dreifa kostnaðinum á allt að 36
mánuði eins og dæmi eru um.
Bein hlustendalína í sjónvarpi
Árni Björnsson hringdi:
Ég hef fylgst nokkuð með þýsku
sjónvarpsstöðvunum sem senda út
um gervihnattasamband, sem mað-
ur nær vel hér á landi með loftnets-
diski. Þarna er um að ræða úrvals
dagskrár og m.a. er ein stöðin,
WDR, sem býður upp á beina hlust-
endaþjónustu sem er mikið horft á.
Líkist einna helst þjóðarsálarþætt-
inum á Rás 2, en með öðru sniði að
sjálfsögðu.
Þetta ættu íslensku sjónvarps-
stöðvamar að kanna og bjóða upp á
svona þjónustu. Þýska stöðin er
með þáttinn frá miðnætti til kl. 2 að
nóttunni og held ég að það hentaði
íslenskum áhorfendum vel einnig.
Hér er ekki um að ræða neinn „kjat-
faskaþátt" ef menn hcdda það. Þetta
er eldklár maður sem svarar í
þýsku sendingunni og bíður eftir
hringingu um mál sem varða við-
komandi einstakling, en ekki ætlað
sem kvartana- eða deiluþáttur af
neinu tagi. Menn bera upp spum-
ingar um hvaðeina án þess beinlín-
is aö ætlast til að fá fullt svar. - Þeir
sem þekkja þáttinn ættu að tjá sig
um þetta.
Ljótar eru fréttirnar, lagsi
„Og tíu þingmenn hafa ráðherraembætti sem aukabúgrein, en þingsetan er
þó talin fullt starf,“ segir Haraldur m.a. í bréfinu.
Haraldur Guðnason skrifar:
„Ljótar eru fréttimar, lagsi“, var
haft eftir karli í Landeyjum, sem
kom sunnan frá sjóbæjum og frétti
að Eyjamenn væm famir að tvíróa
undir Sand, en Landeyingar komust
ekki á sjó vegna brims.
Og ljótar þóttu skrifara líka frétt-
imar af bágum kjörum alþingis-
manna okkar. Hafa þeir þó, með
minnstu fríðindum, fjórföld laun
verkamanna. Þóttust „verkalýðsfor-
ingjar" allvel hafa samið. Þá eru
ýmsir þingmenn í störfum utan
þings. - Og tíu þingmenn hafa ráð-
herraembætti sem aukabúgrein, en
þingsetan er þó talin fullt starf.
En launin em hættulega lág að
dómi þingforseta. Samt virðist sem
ekki þurfi að óttast að „hæfileika-
menn“ fáist til þingsetu vegna
hinna bágu kjara. En kannski
mætti „flóran" (eins og sagt er á
finu máli) vera fjölbreyttari. Til að
mynda að fá fleiri „fræðinga", svo
sem tölvufræðinga, genafræðinga,
snyrtifræðinga, bókasafnsfræðinga,
og fleiri og fleiri.
Við þurfum líka sægreifa, land-
greifa, sálgreina, forstjóra, verð-
bréfasala, lifeyrisbjóða og vixlara.
Þrátt fyrir bágu kjörin er mikið fjör
í framboðum og virðist víða mann-
v£d. Þeir sem fara í prófkjör kosta
til æmu fé, hverjir sem svo borga
fyrir láglaunafólkið.
Skyldi vera að samfylkingar-
klúðrið hafi stafað af því að tígul-
kóngamir í spilinu hafi verið of
margir? Vantar rými fyrir þá
mörgu sem vilja vera efstir? - Eitt
er víst: „Ekki komast allir á kirkju-
garðsballið í haust sem langaði til
þess í vor“.
Samfylkingin
dauð samtök
Guðjón Einarsson skrifar:
Mér sýnist listi Samfylkingarinn-
ar, sem nú er sem mest fjaðrafokið
um, vera til afar litilla afreka. Með
því að líta á nöfn þeirra sem hlutu
efstu sætin em ekki mikil líkindi til
að þessi listi hljóti atkvæði að neinu
marki í komandi kosningum. Svo-
kallaður uppgangur í þessu prófkjöri
er í mesta lagi tii að sanna og sýna að
A-flokkamir, Alþýðuflokkur og Al-
þýðubandalag, eru liðnir undir lok að
fúllu og öllu. Kvennalistann talar
enginn um. Leifar hans eru Samfylk-
ingunni fremur til trafala en hitt. Ég
myndi ekki veðja á nöfn Samfylking-
arinnar sem ráðherraefni. Guð hjálpi
þjóðinni ef það gerðist. - Það var allt
ljótur leikur, það sannast brátt.
Borghildur í
Þjóðarsálinni
Njáll hringdi:
Ég hlustaði á Þjóðarsálina á rás 2
sl. mánudag. Þar hringdi inn m.a.
kona að nafni Borghildur og gagn-
rýndi Sjónvarpið harölega fyrir að
halda Spaugstofunni inni sem
skemmtiatriði fyrir landsmenn. Hún
fordæmdi réttilega klámið og ofbeldið
í síðasta þætti. Vildi að Spaugstofan
yrði sett í ævilangt frí og reyndar
Sjónvarpið líka. Undir þetta skal tek-
ið hér. Sjónvarpið virðist stjórnlaust
og geta dembt hverju sem er yfir
þjóðina. Sjónvarpsstjóri, útvarps-
stjóri og útvarpsráð virðast enga
ábyrgð taka.
Ferðaþjónusta
eða stóriðja
Hulda skrifar:
í sjónvarpsfréttum rétt nýlega var
borið saman hagræði af ferðaþjón-
ustu annars vegar og orkufrekum
iönaði, svo sem stóriðju, hins vegar.
Þar var því haldið fram að laun i
ferðaþjónstunni væru ekki siður
vænleg en í stóriðjunni. Þessu mót-
mæli ég harðlega. Spyrjið starfsfólkið
á hótelum og veitingahúsunum um
launin. Þau eru þau lægstu sem um
getur í landinu. Kannski hafa „stjór-
amir“ og þeir í skipulagningunni og
markaðssetningunni það dágott. Það
á ekki við um almenna starfsmenn
sem eru uppistaðan i þjónustunni
sjálfri. Síður en svo. í orkufreka iðn-
aðinum (t.d. í Álverinu í Straumsvík
og á Grundartanga) eru sómasamleg
laun og þar eru allir ánægðir. Það á
ekki við um ferðabransann.
Úr hásæti
hrokans
Elín Jónsdóttir skrifar:
Ég vil lýsa óánægju minni með
hrakfarir Kvennalistans. Mér hefur
fundist undanfarið, gagnstætt því
sem var í upphafi, að hrokinn hafi
verið yfirþyrmandi í öllum viðtölum
við þessa forsvarsmenn Kvennalist-
ans á síðustu mánuðum. Ekki síst hjá
Guðnýju Guðbjömsdóttur sem datt
niður i 8. sætið í prófkjörshólfunum,
sem þær sjálfar kröfðust. Hefðu þessi
hólf ekki verið til staðar, þá hefði
Kvennalistinn líklega komið betur
út. En nú hefur Kvennalistinn dottið
úr hásæti hrokans og við því er ekk-
ert að gera. Hann er liðinn undir lok
sem stjórnmálaafl, ásamt fleiri flokk-
um. Kannski best fyrir alla.
Slagur í Sjálf-
stæðisflokki?
Eiríkur hringdi:
Ekki ætlar Sjálfstæðisflokkurinn
að sleppa viö innanmeinin frekar en
hinir flokkarnir. Nú er það varafor-
mannsembættið sem steytir á. Ef
flokkurinn ætlar að losa um foryst-
una með því að þurrka út stöðu vara-
formanns, þá er stutt í upplausnina.
Eitthvert ráð eða framkvæmdastjórn
nær aldrei að koma fram í forfóÚum
formanns eða taka við í millibilsá-
standi. Varaformannsstaða í Sjálf-
stæðisflokknum er sterk pólitísk
staða og án hennar veikist flokkur-
inn vemlega. Er það kannski orðin
samræmd stefna allra íslensku
stjórnmálaflokkanna?