Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Qupperneq 33
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
33
Myndasögur
"W
Rauöauga kennir mér um allt sem fer^
lirskeiðis.
Ef honum llöur illa kennir
hann mér um þaö.
Ef hann brýtur ör kénnir
hann mér um þaöl
Fréttir
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík:
Sóttist eftir
öðru sæti
- niöurstaðan er sigur, segir Ásta R. Jóhannesdóttir
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
alþingismaður segir að í tilefni
frétta af prófkjöri Samfyfkingarinn-
ar í Reykjavík vilji hún undirstrika
að það hafi ávallt verið skýrt af
sinni hálfu að hún sóttist eftir öðru
sætinu á lista Samfylkingarinnar.
Þetta hafi komið fram í öllum mál-
flutningi sínum og öllum auglýsing-
um í gegnum alla kosningabarátt-
una.
„Ég stefndi skýrt og greinilega á
annað sætið enda sýna atkvæðatöl-
ur það að ég fékk langmest fylgi í
annað sætið, afgerandi flest atkvæði
allra sem þátt tóku í prófkjörinu.
Össur fékk hins vegar atkvæði í
fyrsta sætið sem nýttust honum til
þess að ná öðru sætinu,“ sagði Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir í sam-
tali við DV. Hún segist ánægð með
niðurstöðuna fyrir sitt leyti.
_SÁ Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
Bridgesamband Austurlands:
Úrtökumót fyrir íslandsmót
Úrtökumót fyrir íslandsmót í
sveitcikeppni í bridge fór fram á
Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík helg-
ina 30.-31. janúar. Þar mættu níu
sveitir víðs vegar að af svæðinu.
Fjórar efstu sveitimar unnu sér
rétt til þátttöku í undankeppni ís-
landsmótsins sem fer fram í mars-
mánuði í Reykjavík. Þær eru:
1. Sveit Herðis, 190 stig.
2. Sveit Aðalsteins Jónssonar, 165
stig.
3. Sveit Lífeyrissjóðs Austur-
lands, undir stjórn bræðranna
Skúla og Bjama Sveinssona frá
Borgarfirði, 157 stig.
4. Síldarvinnslan, 139 stig.
Sveit Herðis var skipuð bræðran-
um Guttormi, Pálma og Stefáni
Kristmannssonum og Bjama Ein-
arssyni.
Neyðarlín-
an og Hnit
Vegna fréttar DV í gær um
nýstofnað fyrirtæki í eigu
Landssímans og Opinna kerfa
skal vakin athygli á því að
hugbúnaður Neyðarlínunnar
er unnið af Verkfræðistofunni
Hnit.
| Nýr umboðsmaður|
Hellissandur og Rif
Sigurlaug Guðmundsdóttir
Munaðarhóli S
Sími 436 - 6752
Nýr umboðsmaður
Skagaströnd
Kristín Leifsdóttir,
Skagavegi 16,
sími 452 - 2703.
Nýr umboðsmaður
Nesjar
Arnbjörg M. Sveinsdóttir,
Hæðargarði 4,
sími 478 - 2113.