Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Blaðsíða 40
stölur miðvikudaginn 03.02. ’99
Vinni
Fjöldi
Vjnmngarl vinnin$a VinningAupphœð
20.320.950
2.5 aj 6;
3-5 at 6
42.040
4.4 at 6
185
3 aþ 6
464
■
Helldarvtnningsupphœð
43.082.920
Á Islandl
2.441.020
—
Ltm
FRETTASKOTIÐ
BiSIMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum alian
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
Neyðarástandi lýst í dagvistarmálum í sumar:
40 leikskólum
lokað í mánuð
- starfsmannahald erfitt, segir formaður Dagvistar barna
A fundi stjómar Dagvistar bama í
gær var ákveðið að einstakir leikskól-
ar yrðu lokaðir í mánuð, vegna skorts
á faglærðu fólki til aö starfa við leik-
skólana þegar fastráðnir starfsmenn
þeirra halda í sumarleyfi. Guðlaugur
Þór Þórðarson, borgarfulltrúi og
stjómarmaður í Dagvist bama, segir
ástandið i dagvistunarmálum mjög
slæmt. „Ástandið í málaílokknum er
iralls ekki eins og R-listinn og borgar-
stjóri lögðu upp með fyrir kosningar.
Þetta er eins og með margt annað hjá
borgarstjóra, að málflutningurinn fyr-
ir kosningar átti ekki við rök að styðj-
Fókus á morgun:
Kiddi
* og Kári
1 Fókusi sem fylgir DV á morgun
verður skemmtisaga síðustu 20 ára
skoðuð í gegnum Kidda Bigfoot sem
hefur ferðast aUt frá diskói yfir í
tecno-pop. Hannes Lárusson mynd-
listarmaður gengur um málverka-
sýningu þar sem Kári Stefánsson
valdi öU verkin og reynir að sál-
greina Kára í leiðinni. Viðtal er við
Bjartmar bamastjömu sem er sí-
vinnandi dragdrottning og stefnir
hátt. Rætt er við fólk sem hefur ver-
ið á rangri hiUu í lífinu og mann
sem starfar með heróínsjúklingum í
Kaupmannahöfn. Þá er farið yfir
, .aUa helstu atburði helgarinnar og
'^bíóhúsin skoðuð grannt.
Guðlaugur Þór Kristín Blöndal.
Þórðarson.
ast. Það er hins vegar athyglisvert að
formaður Dagvistar bama lýsir yfir
neyðarástandi fáeinum mánuðum eft-
ir kosningar,“ segir Guðlaugur Þór.
Kristín Blöndal, formaöur Dagvistar
bama, lýsti yfir neyðarástandi á fund-
inum í gær vegna erfiðleika í starfs-
mannahaldi. „Það sem þarf að gera í
þessum málaflokki og R-Ustinn og
borgarstjóri neita að horfast í augu
við, er að líta á nýjar leiðir. Dagvist-
unarstefna R-listans er gjaldþrota.
Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram ýms-
ar tiliögur fyrir kosningar og það var
blásið á þær aUar. Sömuleiðis tökum
við fyrir á hverjum einasta fundi hjá
Dagvist bama erindi frá aðUmn, t.d.
einkaaðilum, sem vilja koma með
lausnir sem eru í senn ódýrari fyrir
borgina og oft á tíðum ekki siðri - ef
ekki betri. R-listinn hikstar á því að
koma til móts við þá,“ segir hann.
Hann segir R-listann hafa það að
markmiði að öU böm í borginni séu á
borgarreknum leikskólum. Sjálfstæð-
ismenn hafi aftur á móti bent á aðrar
lausnir og það sé bráðnauðsynlegt að
það sé nægt framboð fyrir bömin.
„Það má svo sannarlega skoða aðrar
leiðir og ýta undir aðra starfsemi en
bara þá borgarreknu, því hún er lang-
dýrasta leiðin og það sést að hún get-
ur engan veginn annað eftirspum."
Kristín Blöndal, formaður stjómar
Dagvistar bama, sagði í samtali við
DV að sumarlokanir leikskóla yrðu
ekki að venju þótt þær yrðu staðreynd
í sumar. „Starfsmannahaldið hefur
verið óvenjuerfitt í vetur og er það
óvenjulegt á þessum árstíma og mikið
hefur verið ráðið af nýju fólki sem
stoppar stutt. Leikskólastjórar sjá
ekki fram á að hægt verði að halda
uppi almennilegu faglegu starfi yfir
sumartímann nema loka leikskólum í
fáeinar vikur," sagði Kristín. Hún seg-
ir aðalvandann vera þann að skortur
væri á leikskólakennurum til starfa í
skólunum. Einnig sagði Kristín að
fyrir fjórum árum hefði verið ákveðið
að hafa opið yfir sumartímann í leik-
skólanum og ástandið eins og það
verði í sumar hafi verið eins á árum
áður. Ekki yrðu þó allir leikskólar
opnir og alls mundu 26 leikskólar
borgarinnar treysta sér til að halda
opnu allt sumarið.
-hb
Guðný tekur áttunda sætið
Guðný Guðbjörnsdóttir alþingis-
maður sat fund með nánum stuðn-
ingskonum sínum í gærkvöldi. í
morgun sagði Guðný að hún hefði tek-
ið ákvörðun og hana mundi hún til-
kynna í kringlu Alþingishússins kl. 11
fyrir hádegi i dag.
„Síminn hélt áfram að hringja hjá
mér í gærkvöldi og ég var hvött til að
halda áfram. Ég sat fund meö nánustu
stuðningskonum mínum til að fá
hjálp til að taka þessa ákvörðun. Ég
lagði dæmið á borðið
og ræddi reynslu síð-
ustu daga,“ sagði
Guðný.
Eftir öllum sólar-
merkjum að dæma
mun Guðný Guð-
björnsdóttir fara
fram með samfylk-
ingunni og taka áttunda sætið sem
hún hlaut í prófkjörinu um síðustu
helgi. -JBP
Efast um að hlaupið vaxi
„Ég fór út í morgun. Staðan var þá
óbreytt frá því í gærkvöld í Skeiðará.
Rennslið er stöðugt og það er óveru-
legt hlaupvatn í Gígju. Ég efast um að
þetta muni vaxa meira," sagði Sverrir
Elefsen, vatnamælingamaður hjá
Orkustofnun, í morgun.
Sverrir sagðist telja að Skeiðarár-
hlaupið sem er hafið verði fremur lít-
ið. Vatnsrennslið var 1300 rúmmetrar
á sekúndu í gærkvöld og í morgun. Til
samanburðar hafa meðalhlaup í
Skeiðará gjarnan verið á bilinu 2-3
þúsund rúmmetrar á sekúndu. Hlaup-
ið sem skemmdi brýr í nóvember 1996
var 45 þúsund rúmmetrar. -Ótt
Sérsveit lögreglunnar var kölluð að fjölbýlishúsi í Áifheimum í Reykjavík á
fjórða tímanum í nótt þar sem grunsemdir voru um að íbúi hefði undir hönd-
um ólögleg skotvopn. Þær grunsemdir reyndust ekki á rökum reistar.
DV-mynd HH
Veðrið á morgun:
Frost 4 til
10 stig
Á morgun verður norðvestan-
gola eða kaldi en stinningskaldi á
annesjum norðaustanlands. Viða
verður bjart veður um landið
sunnan- og vestanvert en él á
Norðurlandi. Frost verður yfir-
leitt á bilinu 4 til 10 stig.
Veðrið í dag er á bls. 37.