Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1999, Page 51
afmæli
63
LAUGARDAGUR 6. MARS 1999
Til namingju með afmælið 7. mars
100 ára
Þorsteinn Davlðsson, Austurbyggö 17, Akureyri.
90 ára
Anna Sveinsdóttir, Víðilundi 24, Akureyri.
85 ára
Jón Guðmundsson, Réttcirholti 3, Selfossi.
75 ára
Grímur Björnsson, Hrauntungu 7, Kópavogi.
70 ára
Ari Jósavinsson, bóndi og fyrrv. hreppstjóri að Auðnum II, Öxnadalshreppi. Hann er að heiman. Hreinn Heiðmann Jósavinsson, Auðnum I, Öxnadalshreppi. Hann er að heiman. Valgerður Eiðsdóttir, Þórufelli 14, Reykjavik.
60 ára
Einar Karlsson, Unufelli 44, Reykjavík. Kristinn Arnþórsson, Oddeyrargötu 19, Akureyri. Kristjana Guðmimdsdóttir, Álfaskeiði 127, Hafnarfirði. Sigmundur Magnússon, Suðurvangi 2, Hafnarfirði. Þórxmn Gunnarsdóttir, Bessahrauni 12, Vestmannaeyjum. Þórunn Pálsdóttir, Skólavegi 14, Fáskrúðsfirði.
50 ára
Anna Nilsdóttir, Lindarholti 8, Ólafsvík. Birkir Már Ólafsson, Mávabraut 4 C, Keflavík. Friðjón Alfreðsson, Langagerði 30, Reykjavík. Gyða Hauksdóttir, Suðurgötu 90, Hafnarfirði. Rúnar H. Hoffritz, Miðtúni 5, Selfossi. Sigríður Ása Harðardóttir, Hvannavöllum 2, Akureyri. Sjöfn Eggertsdóttir, Miðfelli 5, Egilsstöðum.
40 ára
Agnes Henningsdóttir,
Krókamýri 34, Garðabæ.
Alda Björgvinsdóttir,
Framnesvegi 65, Reykjavík.
Auðunn Ásberg
Gunnarsson,
Laufengi 174, Reykjavík.
Bjarney Lilja
Bjarnadóttir,
Seljabraut 26, Reykjavík.
Guðrún Sigríður
Steinsdóttir,
Bæjarsíðu 11, Akureyri.
Hólmfríður Traustadóttir,
Birkimel 10 B, Reykjavík.
John Joseph Cramer,
Reykjanesvegi 56, Njarðvík.
Jón Eiríksson,
Hlíðarhjalla 63, Kópavogi.
Jón Steinar Benjamínsson,
Urriðavatni, Fellahreppi.
Margrét Höskuldsdóttir,
SólvöOum 3, Húsavík.
Salvör Guðmundsdóttir,
Sólvöllum I,
Innri-Akraneshreppi.
Sigríður Ólafsdóttir,
Hlíðarhjalla 58, Kópavogi.
Sigríður Valdís
Karlsdóttir,
Hjöllum 18, Patreksfirði.
Björn Ásgeir Guðjónsson,
trompetleikari og hljómsveitar-
stjóri, Grandavegi 47, Reykjavik,
verður sjötugur á morgun.
Starfsferill
Björn fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp á Bráðræðisholtinu. Hann
var fyrst við tónlistarnám hjá Al-
bert Klahn, Karli Runólfssyni og
Wilhelm Lansky Otto. Þá var hann i
Tónlistarskólanum i Reykjavík hjá
Jóni Þórarinssyni 1947-49 og í Det
Kongelige Danske Musik
Konservatorium 1949-53 þar sem að-
alkennari hans var Kurt Pedersen.
Björn var trompetleikari í Sinfón-
íuhljómsveit Islands 1953-60,
trompetleikari við Stora Teatren í
Gautaborg 1960-61 og við Sinfónu-
hljómsveit íslands 1961-67. Hann
var stofnandi Skólahljómsveitar
Kópavogs 1967 og fyrsti stjómandi
hennar 1967-95.
Þá var hann kennari við Tónlistar-
skólann í Reykjavík 1957-59, félagi í
lúðrasveitinni Svani 1941-43, félagi í
Lúðrasveit Reykjavíkur 1943-71, for-
maður Lúðrasveitar Reykjavíkur
1963-66, varaformaður Félags ís-
lenskra hljóðfæraleikara 1960, stjórn-
andi Lúðrasveitar verkalýðsins 1964
og stjórnandi Hornaflokks Kópavogs
frá stofnun hans 1977.
Björn er félagi í Det
Danske Trompeter Laug.
Hann er heiðursfélagi
Lúðrasveitar Vestmanna-
eyja og Havnarhornor-
kestur i Færeyjum. Þá
var hann kjörinn heiðurs-
listamaður Kópavogs
1988.
Fjölskylda
Björn kvæntist 28.8.
1957 Ingibjörgu Jónas-
dóttur, f. 2.5. 1932, fyrrv.
framkvæmdastjóra. Hún
er dóttir Jónasar Guð-
mundssonar, f. 11.6. 1898,
d. 4.7.1973, ráðuneytisstjóra, alþm.,
formanns Sambands íslenskra sveit-
arfélaga og stofnanda AA-samtak-
anna, og k.h., Sigríðar Lúðvíksdótt-
ur, f. 7.11. 1903, d. 1.5. 1991, húsmóð-
ur.
Börn Björns og Ingibjargar eru
Jónas Bjömsson, f. 29.1.1958, d. 28.9.
1987, tónlistarkennari, var kvæntur
Svövu Hjaltadóttur, f. 1.2. 1952 og
eru börn þeirra Ingibjörg, f. 6.10.
1982, Birna Dröfn, f. 20.1. 1985, Atli,
f. 12.3. 1988, og stjúpdóttir hans,
Kristín Björg Kristjánsdóttir, f. 17.5.
1972; Anna Þóra Bjömsdóttir, f. 13.9.
1962, kaupmaður, var gift Brynjari
Konráðssyni og eiga þau soninn
Björn Leó, f. 13.8.1985,
en Anna Þóra er nú
gift Gylfa Bjömssyni
gleraugnafræðingi og
eru synir þeirra Ge-
org, f. 13.5. 1994, og
Hinrik, f. 22.3. 1996.
Dóttir Ingibjargar
og stjúpdóttir Björns
er Sigríður Ólafsdótt-
ir, f. 15.12. 1953, hjúkr-
unarfræðingur, gift
Árna Rafnssyni, f.
26.9. 1952, og eru böm
hennar Ingibjörg Mar-
ía Guðbrandsdóttir, f.
30.5. 1970, Rafn Áma-
son, f. 13.5. 1977, El-
mar Árnason, f. 14.5.1982, Árni Val-
ur Árnason, f. 24.2. 1988, og Páll Frí-
mann, f. 12.10.1991.
Systkini Bjöms eru Þóra Guð-
jónsdóttir, f. 4.10. 1925, fyrrv. full-
trúi á Félagsmálaskrifstofu Reykja-
víkurborgar, en hennar maður var
Jóhannes Ó. Guðmundsson við-
skiptafræðingur og forstjóri Magn-
úsar Th. S. Blöndahl í Reykjavík,
sem nú er látinn, og eignuðust þau
fjögur börn; Guðmundur Guðjóns-
son, f. 16.8. 1935, múrari í Reykja-
vik, og á hann fjögur böm.
Foreldrar Björns voru Guðjón
Þórðarson, f. 12.10. 1901, d. 2.9. 1952,
skósmiður í Reykjavík og formaður
Björn Ásgeir
Guðjónsson.
Lúðrasveitar Reykjavíkur, og k.h.,
Anna Jónsdóttir, f. 15.9.1895, d. 16.3.
1984, húsmóðir.
Ætt
Guðjón var sonur Þórðar, b. á
Bakka í Melasveit, Stefánssonar, b,
á Stórakroppi og Varmalæk, Þor-
valdssonar, b. og forsöngvara á Vil-
mundarstöðum og Stórakroppi,
Jónssonar, hreppstjóra og dbrm. I
Deildartungu og ættföður Deildar-
tunguættarinnar, Þorvaldssonar.
Móðir Þorvalds var Helga Hákonar-
dóttir frá Hurðarbaki. Móðir Stef-
áns var Guðrún Finnsdóttir, hrepp-
stjóra í Miðvogi við Akranes, Narfa-
sonar, og Guðríðar Kaprasíusdótt-
ur. Móðir Þórðar var Hróðný Þórð-
ardóttir, b. og meðhjálpara í Staf-
holtsey. Móðir Guðjóns var Sigríður
Jónsdóttir, b. á Ferjubakka, Tómas-
sonar, og Halldóru Jónsdóttur.
Anna var dóttir Jóns, b. í Valda-
koti I Flóa, Þorsteinssonar, smiðs í
Gerðakoti, Sveinbjörnssonar, pr. í
Holti undir Eyjaijöllum, Guðmunds-
sonar, hreppstjóra í Bæ í Borgar- j...
firði, Torfasonar.
Björn verður ekki heima á afmæl-
isdaginn.
Engar pillur f Nýr valkostur
ÚÐI ER FRAMTÍÐIN
ÚÐAVÍTAMÍN
Beint í blóðrásina á 30 sek. Stórkostlegur árangur.
Psoriasis og unglingabólur hurfu m/blágrænum þörungum.
Aukakílóin hurfu m/megrunarúðanum.
Kvíðinn og þreytan hurfu m/PMS-gleðiúðanum.
Bráðvantar söluaðila.
Af hverju ekki að prófa eitthvað nýtt og spennandi?
Sími 891 -6888 og 587-6310. Fjóla
Vítamín sem virka
Munnúði • 90% frásog beint í blóðrásina • Engin aukaefni • 100% lífrænt*
Megrunarúði;
PMS:---------
_ Slær á hungurtilfinningu, eykur fitubrennslu, inniheldur
L-Camitine, Cromium picolinate og önnur vítamín.
— Við fyrirtíðarspennu, inniheldur öll B-vítamín,
steinefni, andoxunarefni, kvöldvorrósarolíu o.fl.
Blágrænir þörungar: Gott við síþreytu, húðvandamálum ofl.
Pro Bio Mist; Sterkasta andoxunarefni náttúrunnar.
Multi vítamín; ________Aihiiða vítamín og steinefni.
Íþróttavitamín: _ L-Camitine eykur fitubrennslu,
súrefnisupptöku, þol og
dregur úr vöðvaverkjum.
Upplýsingar 1 slma: 5542021« www.box.is/vitamin • habby@simnet.is'
*Einu vítamínin sem eru í Amerísku laeknabiblíunni, PDR. Par er staðfest 90% frásog.
100% Iffrænt: Gæðastimpill frá Pharmacopia association sem er gæðaeftirlit I Bandaríkjunum.
Viðurkennt af National Nutrltlonal Institute I Bandaríkjunum.
inXfrRl r
aUp*
TRYGGING HF.
óskar eftir tilboðum í neðanskráðar bifreiðar sem hafa
skemmst í umferðaróhöppum. Bifreiðamar verða seldar
í því ástandi sem þær em í og kaupendur skulu kynna sér
á staðnum.
SsangYong Musso 1998
Nissan Micra 1995
Toyota Corolla 1995
Nissan Micra 1995
Hyundai Elantra 1994
Cadillac DeVille 1993
Skoda Forman 1993
MMC Galant GTLi 1991
Honda Accord 1990
Citroín AX14 1989
Daihatsu Charade 1988
Mazda 323 1987
Ford Escort 1986
Mazda 323 1986
MMC Lancer 1987
Fiat UNO 1991
Honda Accord 1986
Ski Doo Mach 1 vélsleði 1997
Bifreiðamar verða til sýnis mánudaginn 8. mars
1999 í Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 9-15. Tilboðum
óskast skilað fyrir kl. 16 sama dag til Tryggingar hf.,
Laugavegi 178, 105 Reykjavík, sími 540 6000.
á vic3 bædi um menn og dýr.
UMFERÐAR
RÁÐ
V