Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1999, Blaðsíða 28
SamHwia, mákas ag FM 95.7 kymá stórskmmtifw itflm íísfeaskntiiámningii:
ámsusmmi
Hf f VíSíi^y^"
Fyrsta ovissusyningin verður haldin n«stkomandi fostudag t Kringlubioi
kl. 00:00. Smelltu þér inn á Vísi.is eda og þu gætir unnið miia.
ATH! Auðvitað verðo miðor einnig seldir ó altor óvissusýningar.
www.visir.is
Díortískuhúsið í París sýndi þennan rúbínlitaða kvöldkjól breska hönnuðarins Johns Gailianos nú í vikunni.
Hatturinn og hanskarnir kóróna þennan glæsilega kvöldklæðnað. Símamynd Reuter
FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999
Sviðsljós
Eiginmaður Lynn Redgrave:
Réttir fram sátta-
Leonardo lélegur
í bólinu
Breska barpían Linnea
Dietrichson, sem starfar á
Hanover Grand í London, segir að
hjartaknúsarinn Leonardo
DiCaprio sé lélegur elskhugi.
Poppstjaman Robbie Williams er
aftur á móti fullkominn, að því er
Linnea segir I viðtali við breska
slúðurblaðið Sunday People.
Linnea segir aö Leonardo kyssi
eins og vaxbrúða og húðin á hon-
um sé of slöpp. Auk þess þótti
henni eins og stjarnan úr Titanic
væri að lesa upp rulluna sína þeg-
ar hann tjáði henni að hún væri
falleg. Verstu einkunn fékk hann
fyrir frammistöðuna í bólin.
Hann hugsi bara um sjálfan sig og
sé sofnaður eftir 20 mínútur.
Noah Wyle
trúlofaður
Noah Wyle, sem leikur unga að-
stoðarlækninn, John Carter, i
sjónvarpsmyndaflokknum Bráða-
flokknum er á leiðinni í það
heilaga. Noah og unnusta hans,
Tracy Warbin, greindu frá trúlof-
uninni nú í vikunni. Wyle hitti
Tracy, sem er förðunardama, við
tökur á kvikmyndinni The Myth
of Fingerprints. Þau hafa veriö
saman síðan sumarið 1996.
Tom Hanks á
sjúkrahús
Tom Hanks þurfti að fara á
sjúkrahús í vikunni vegna
sýkingar í blöðru á hné. Blöðnma
fékk hann við tökur á myndinni
Cast Away á Fidjieyjum. Þar
þurfti kappinn aö vera í vatni og
því var erfitt að komast hjá því að
sýking kæmist í blöðruna.
Læknar hafa fyrirskipað Hanks
að taka sér viku hvíld.
ís.
i
Leikstjórinn John Clark bað í
sjónvarpsþætti eiginkonu sína,
Lynn Redgrave, um að sættast við
hann. John játaði fyrir Lynn í
nóvember síðastliðnum að hann
ætti 8 ára gamlan son utan
hjónabands. Lynn sótti um skilnað
1. mars síðastliðinn.
„Sjáðu nú til. Ég er 66 ára. Þú
varðst 56 ára í gær og mér finnst við
vera of gömul fyrir alla þessa
vitleysu," sagði John í
sjónvarpsþættinum Access
Hollywood. „Gerðu það. Ég elska,“
sagði John einnig.
John Clark sagði að Lynn hefði
látið meina honum aðgang að
verðlaunaafhendingu
tilkvikmyndaleikara síðastliðinn
sunnudag. Nú vill John að þau sitji
hliö við hlið við óskars-
verðlaunaafhendinguna með dóttur-
ina Annabel á milli sín.
Málið snýst ekki bara um að John
hafl eignast barn utan hjónabands
með fyrrverandi starfsstúlku sinni,
Lynn Redgrave með ástralska leikaranum Geoffrey Rush í myndinni Shine.
Símamynd Reuter.
Nicolette, heldur giftist stúlkan syni
Johns, Ben Clark. Ben vissi ekkert
að sonur Nicolette væri hálfbróðir
hans og Lynn vissi ekki að
barnabam hennar væri barn
eiginmanns hennar. John hafði
beðið Nicolette um að segja engum
frá hver væri faðir barnsins því það
myndi ríða Lynn að fullu.
Reyndar hefur John bent á að
bæði hann og Lynn hafi átt í
ástarsamböndum utan hjónabands.
Um það híifi verið samkomulag.
Nicolette og Ben skildu fyrir
tveimur árum, áðm en
leyndarmálið leit dagsins ljós.
Nicolette kveðst segist vera
niðurbrotin vegna alls sársauka
sem málið hefur valdið.
Samkvæmt breskum slúður-
blöðum hefur Lynn látið loka
krítarkortareikningum og banka-
reikningum þeirra hjóna fyrir John.
Leikstjórinn er eyðilagður þar sem
hann hefur lítið reiðufé handa á
milli.
by BALTEA
Bleksprautuhylki
• Apple, Canon,
• Epson
• Hewlet-Packard
• Olivetti-Lexicon
Tölvuskjásíur
• 15”, 17” og 20"
• Viðurkennd gæði
• ISO-9002 gæðavottun
á framleiðslu.
Mjög hagstætt verð.
'Wit) J. ASTVfilDSSON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavik, sími 533 3535
hönd í sjónvarpinu