Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Blaðsíða 21
Dalvík:
Togari smíðaður í skúr
Ársfundur 1999
Eróbikkjur frá Breiðdalsvík, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði í líkamsræktinni
hjá Fjóiu Þorsteinsdóttur.
DV-mynd Garðar
Líkamsrækt á
Stöðvarfirði
DV, Fáskrúðsfirði:
í nokkur ár hefur Fjóla Þorsteins-
dóttir á Stöövarfirði rekið líkams-
ræktarklúbb við bágbomar aðstæð-
ur í Samkomuhúsinu á Stöðvarflrði
en þar hefur öll íþróttaiðkun innan-
húss farið fram siðustu ár.
Þar hafa um þrjátíu konur á öll-
um aldri frá Breiðdalsvík, Fá-
skrúðsflrði og Stöðvarfirði komið
saman þrisvar til fjórum sinnum í
viku hverri og stundað pallaleik-
fimi, lyft lóðum og gert ýmislegt
fleira saman í tengslum við Leið til
betra lífs sem DV og fleiri hafa stað-
ið fyrir.
Fjóla segir að áhugi hafi vaxið að
undanfömu og aldrei verið meiri en
eftir áramót. Hlakkar hún til þess,
eins og aðrir, að fá nýtt íþróttahús
um næstu áramót og segir það muni
verða gjörbylting fyrir alla þá er
stunda íþróttir á staðnum. -GH
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
verður haldinn mánudaginn 12. apríl 1999
kl. 17 í Gullteigi á Grand Hótel.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuieg ársfundarstörf.
2. Onnur mál.
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt
til setu á ársfundinum.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík 14. mars 1999
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
UFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA
Sími: 580 4000, Myndsendir: 580 4099
Netfang: skrifstofa@lifver.is
DV, Dalvík:
í bílskúr á Dalvík er nýlokið
smíði á fjarstýrðu skipslíkani af
Björgútfi EA 312. Þetta mun vera
eitt stærsta skipslíkan sem smíðað
hefur verið, 230 cm langt og 44 cm
breitt. í líkaninu er vél og í fyllingu
tímans mun það verða sjósett, svo
fólki geflst kostur á að berja herleg-
heitin augum. Maðurinn á bak við
smíðina er Elvar Þór Antonsson,
fyrrum sjómaður á Björgúlfl en nú-
verandi starfsmaður hjá Fiskeldi
Eyjafjarðar. DV leit við í bílskúrn-
um hjá Elvari til að skoða djásnið
og forvitnast aðeins um tilurð þess.
Upphafið
Elvar segir að áður en hann hafl
ráðist í þetta verk hafi hann fengist
við flugvélagmódelsmíði - og bendir
því til sönnunar á tvær flugvélar
sem hanga í lofti bílskúrsins. Hann
hafi alltaf langað til að smíða eitt-
hvað eftir eigin brjósti og einhvern
tima þegar hann var að glugga í
Skipaskrána, þá kviknaði þessi hug-
mynd með togarann.
„Ég hef sjálfur verið á sjó á Björg-
úlfi, að vísu þeim nýjasta, en lagið á
þessum heillaði mig meira. Það er
til líkan af gamla Björgvin, en það
getur vel verið að ég smíði Björgvin
svo í framhaldinu, en Björgúlfur
varð að ganga fyrir, af trúarástæð-
um.
í mars 1998 varð Elvar sér úti um
teikningar af Björgúlfi - tappatogar-
anum. Það var 249 brúttólesta stál-
skip, smíðað í Austur-Þýskalandi
árið 1959, og er forveri þess Björgúlfs
sem nú er gerður út frá Dalvík.
Teikningamar voru siðan stækkaðar
upp hjá Samskiptum hf. í Reykjavík,
úr kvarðanum 1:30 í 1:15, svo auð-
veldara væri að vinna eftir þeim.
Sjálf smíðin hófst síðan í september
sama ár og segir Elvar að hann hafi
nánast notað hverja fristund eftir
það í smíðina, sem lauk svo í síðustu
viku. Þegar er búið að kanna sjó-
hæfni skipsins og segist Elvar þurfa
að fínpússa ákveðin atriði áður en
skipið verður „sýningarhæft", en það
taki ekki langan tíma.
Efniviðurinn
Efniviðurinn í líkaninu er að
mestu viður, en radar og ýmsir
rTil lclgu SomkomutjölcT'
Folleg og sterk.
LIFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA
Elvar Þór Antonsson með líkanið af togaranum Björgúlfi.
smærri hlutir em smíðaðir úr stáli.
Böndin í skipsskrokknum eru ná-
kvæm eftirlíking fyrirmyndarinnar
og eru þau 73 talsins. Vél er í líkan-
inu og er það 12 volta mótor, ætlað-
ur í bíla, knúinn af skellinöðruraf-
hlöðu. Milli mótors og rafhlöðu er'
hraðabreytir sem virkar bæði aft-
urábak og áfram. Öxull var renndur
á líkanið á Bíiaverkstæði Dalvíkur
og er hann i sama kvarðanum og
skipið. Skipsskrúfan er úr stáli og
stýrið á líkaninu er knúð af sér-
stakri stýrisvél. Svo er öllum her-
legheitunum stjórnað með íjarstýr-
ingu fyrir flugvélamódel, og er
„skipstjórinn" staðsettur í landi.
Nákvæm eftirlíking
Öll smáatriði ofanþilja eru unnin
sem nákvæm eftirlíking af því sem
var. Segir Elvar að dekkið og það
sem því tilheyrir sé að mestu unnið
eftir gömlum slides myndum frá
Ottó Gunnarssyni, sem var skip-
verji á Björgúlfi. Og málningin sem
notuð er á möstur og rekkverk er sú
hin sama og notuð var á þá hluti á
Björgúlfi, því Haukur Haraldsson
Tjaldaleigon
Skcmmtilcqt
Dolbrehku £2, sími 544 -*5990 J
fann í gömlu
dóti frá Út-
gerðarfélagi
Dalvíkinga
málning-
arafganga
og færði El-
vari þegar
hann frétti
af smíðinni.
Elvar segir
að margir
fleiri hafi
lagt hönd á
plóginn við
að láta þetta
verða að
veruleika. Nefnir í því sambandi að
Óskar Pálmason hjá Tréverki hafi
látið sig hafa ýmsa viðarbúta fyrir
lítið, svo segja megi að beinn útlagð-
ur kostnaður við smiði líkansins
hafið verið í lágmarki.
En hvað um framhaldið, á að ráð-
ast í smíði fleiri skipa? Elvar segir
Flugvélamódelin í loftinu.
DV-myndir HJÁ
að svo geti vel farið. Hann hafi mjög
gaman af þessari vinnu og gæti vel
hugsað sér að smíða fleiri. Hann
segist jafnframt meira en tilbúinn
til að smíða slík líkön eftir pöntun-
um, ef útgerðaraðilar hefðu áhuga á
slíku.
-HJÁ
HARTOPPAR
Frf| BERGMANN?
og HERKULES
Margir
verðllokkar
Rakarastofan
Klapparstíg
MANUDAGUR 15. MARS 1999
Fréttir
BIFREIÐASTILLINGAR