Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Blaðsíða 24
32
MÁNUDAGUR 15. MARS 1999
* Vandamál í
hjónabandinu
og hjónarúminu
Erfiðleikar í hjónabandinu
valda konum oftar vandræðum
í kynlífinu en körlum, að sögn
vísindamanna við breska
Keele-háskólann sem hafa skrif-
að um það grein í heilbrigðis-
tímarit.
_> Vísindamennirnir ræddu við
1800 karla og konur í tengslum
við rannsókn sína. Þriðjungur
karlanna og fjörutíu prósent
kvennanna viðurkenndu að erf-
iðleikar í hjónabandinu endur-
spegluðust í vandræðagangi i
hjónarúminu.
Hjónabandsvandræðin voru
höfuðástæða kynlífsvandans
hjá konunum en sömu sögu var
ekki að segja af körlunum. Þeir
nefndu sjúkdóma í blöðruháls-
kirtli og of háan blóðþrýsting
sem helsta sökudólginn.
Skallalækning
íheilanum
Það skyldi þó ekki vera svo
að lækninguna gegn skalla
væri að finna í heilanum sjálf-
um. Tímaritið New Scientist
greinir frá því að vísindamenn
við Humboldt-háskóla í Berlin
hafi komist að því að prótín
sem fær heilafrumur til að
vaxa geti leitt til nýrra lyfja
gegn skalla eða óæskilegum
hárvexti.
Tilraunir Þjóðverjanna á
hárlausum músum leiddu í ljós
að vaxtarþættir í heilanum
hleyptu af stað myndun hár-
sekkja.
„Þetta er fyrsta vísbendingin
um að vaxtarþættir sem áður
var talið að væru mikilvægir
fyrir þroska heilafrumna séu
einnig mikilvægir fyrir þroska
hársekkja," segir Ralf Paus í
samtali við tímaritið. Paus seg-
ir of snemmt að segja til um
hvort niðurstöður þeirra eigi
einnig við um hárvöxt mann-
fólksins.
Bæta þarf
snjóflóðavita
Tf
Gríðarleg snjóflóð í Ölpunum
á síðustu vikum hafa sýnt fram
á þörfma fyrir rafeindavita til
að auðvelda björgunarmönnum
leitina að skíðamönnum gröfn-
um í fönn. Sérfræðingar segja
þó að betrumbætur á núver-
andi vitum séu nauðsynlegar.
Skíðamenn sem vilja fremur
renna sér i ótroðnum snjó eru
oft með rafeindavita á sér,
enda flestir þeirra sem lenda í
snjóflóðum menn sem renna
sér utan brauta. Rannsóknir í
Kólóradó sýna hins vegar að
um helmingur þeirra sem
lenda undir snjóflóði deyr á
þeim átján mínútum sem það
tekur atvinnubjörgunarmenn
að finna þá. Nýir rafeindavitar
sem hafa verið settir á markað-
inn á þessu ári þykja skref í
rétta átt, en þeir sýna úr hvaða
átt merkiö berst og hversu
langt að það er komið.
Glansheimurinn ekki alltaf góð fyrirmynd:
Þvengmjóar tískufyrirsætur
skaðlegar ungum stúlkum
Ljósmyndir í tískublöðum hafa
mikil áhrif á ungar stúlkur og ekki
er loku fyrir það skotið að myndir
af grindhoruðum tískusýningar-
stúlkum geti valdið sálrænum
skaða.
„Það kann að hafa skaðlegar sál-
rænar afleiðingar að vilja líta út
eins og fyrirsætur sem eru allt of
grannar," segir í rannsókn sem
bandaríska bamalækningaakademí-
an birti fyrir stuttu.
Niðurstöður rannsóknarinnar
þykja vera til marks um það aö
tímarit og blöð fyrir ungar stúlkur
gætu gegnt mikilvægu hlutverki í
að viöhalda góðri heilsu lesenda
sinna með því að birta ekki myndir
af fyrirsætum sem em eins og gang-
andi beinagrindur. Að ekki sé nú
talað um ef tímaritin birtu jafn-
óhörðnuðum stúlkum.
Þvengmjóar fyrirsætur þykja ekki góð fyrirmynd ungum
Barn síns tíma:
Kepler í stjörnuspekinni
Jóhannes Kepler, sá frægi þýski
stjarnvísindamaður, gerði meira en
að uppgötva lögmálin sem ráða
hreyfingum reikistjarna. Hann
gruflaði lika í þeim óvísindalegu
fræðum stjörnuspekinni.
Bandaríski stjarnvísindamaður-
inn Anthony Misch hefur fundið
fjögur hundrað ára gamalt stjörnu-
spákort sem Kepler gerði fyrir aust-
urrískan aðalsmann, Hans Hanni-
bal Hutter von Hutterhofen. Kortið
fannst ofan í skúffu í skjalasafni
Kaliforníuháskóla í Santa Cruz í
desember síðastliðnum, innan um
aðra gamla pappíra. Fundurinn
kom Misch í opna skjöldu.
„Þarna lá það bara, í ómerkileg-
um litlum ramma. Það vakti strax
athygli mína, enda greinilega miklu
eldra en annað sem er i skjalasafn-
inu,“ segir Misch. „Þetta var mjög,
mjög spennandi."
Kepler var uppi á árunum 1571 til
1630 og er almennt talinn í hópi
merkustu stjarnfræðinga sögunnar,
á svipuðum stalli og menn á borð
við Kópemikus og Galíleó.
Misch segir að eitt af hlutverkum
Keplers sem hirðstærðfræðings
Rúdolfs annars Rómarkeisara hafi
verið að búa til stjörnuspákort eins
og það sem fannst í Santa Cruz.
Kort austurriska aðalsmannsins
er skrifað með skrautlegri rithönd
og á því em einnig alls kyns tákn úr
dýrahringnum. Rithandarsérfræð-
ingar í Berlín hafa staðfest að kort-
ið sé eftir Kepler. Misch segist þó
ekki enn vera búinn að klóra sig
fram úr því sem á því stendur,
hverju Kepler hafi spáð fyrir aðals-
manninn.
„Kepler er einn þeirra sem áttu
þátt í að móta hina vísindalegu að-
ferð en á sama tíma var hann með
annan fótinn í heimsmynd miðalda.
Hann var ákaflega framlegur hugs-
uður sem viðurkenndi ekki hefð-
bundna stjörnuspeki. Hann hafði
dulspekilegri sýn,“ segir Anthony
Misch.
Talið er að skólinn í Santa Cruz
hafi komist yfir kort Keplers ein-
hvem tíma seint á 19. öld.
framt greinar um ágæti líkamsrækt-
ar af ýmsu tagi.
Rannsóknin náði til 550 stúlkna á
aldrinum 10 til 18 ára. Sextíu og níu
prósent þeirra sögðu að ljósmyndir
í tímaritum hefðu áhrif á hugmynd-
ir þeirra um hvernig hinn full-
komni líkami ætti að líta út og 47
prósent þeirra sögðust vilja grenna
sig vegna einmitt slíkra mynda.
Ekki þó vegna þess að svona stór
hluti stúlknanna væri allt of feitur.
Hreint ekki. Aðeins 29 prósent
stúlknanna sem tóku þátt í rann-
sókninni reyndust of þungar. Vís-
indamennirnir sem stóðu að rann-
sókninni segja hana þá fyrstu þar
sem mat er lagt á tengslin milli
prentmiðla og hugmynda stúlkna
um líkamsþyngd og lögun.
Samhengi reyndist vera milli
þess hversu mikið stúlkurnar lásu
tískutímarit og þess hversu mikið
þær hefðu reynt að grenna sig efth-
ýmsum leiðum. Vísindamennimir
segjast þó ekki vera að halda þvi
fram að ungar og of feitar stúlkur
ættu að sætta sig við óbreytt ástand
og að ekki ætti að hvetja þær til að
grenna sig.
Frekari rannsókna er þörf, segja
vísindamennimir, um hvort grein-
ar í tískublöðum um heilsuspillandi
áhrif strangrar megrunar, lotu-
græðgi og lítinn líkamsþunga hefðu
einhver áhrif til góðs.
Falið misgengi
undir Los Ange es
Vísindamenn hafa fundið hul-
ið jarðlagamisgengi undir Los
Angeles í Kaliforníu. Líklegt er
að það hafi valdið jarðskjálftum
og geti valdið enn stærri skjálft-
um í framtíðinni.
Misgengi þetta þekur alls 840
ferkílómetra, að þvi er fram
kemur í grein þeirra Johns
Shaws við Harvardháskóla og
Peters Shearers við Kaliforníu-
háskóla í tímaritinu Science.
„Hluti þessa misgengis olli
Whittier Narrows-jarðskjálftan-
um árið 1987. Kortlagning ann-
arra hluta misgengisins benda
til að það geti valdið miklu öfl-
ugri og skaðlegri skjálftum,"
segja vísindamennirnir.
Whittier Narrows-skjálftinn
mældist 6 stig á Richter. Átta
týndu lífi í honum og tvö
hundrað slösuðust.
Sjáanleg misgegi, eins og San
Andreas-misgengið,' fá miklu
meiri athygli og hafa verið
rannsökuð af mikilli nákvæmni.
Shaw og Shearer segja aftur á
móti að nýja misgengið sjáist
ekki jafnvel og ekki sé jafnauð-
velt að kortleggja það.
Faíið misgengi olli svokölluð-
um Northridge-skjálfta árið
1994. Hann mældist 6,7 stig á
Richter, varð 57 manns að bana
og olli skemmdum sem metnar
eru á tæpa þrjú þúsund millj-
arða íslenskra króna.
Vísindamenn í Kaliforníu
sunnanverðri hafa mikið gert til
að reyna að finna misgengi
þessi en ekki gengið sérstaklega
vel. Shearer og Shaw notuðust
við gögn frá olíuvinnslufyrir-
tækjum við að kortleggja nýja
misgengið sem er í þremur
greinilegum hlutum. Þrír kíló-
metrar eru niður á misgengið
þar sem grynnst er en sautján
kílómetrar þar sem dýpst er.
*