Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Qupperneq 22
30
MÁNUDAGUR 15. MARS 1999
®L ■
V " "\
X" jáP t \
\
zitoÍÉ
Nemar á
Netinu
Hönnunarhópurinn
SKODAC hefur komið upp
nýrri og mjög vel heppnaðri
heimasíðu Félags framhalds-
skólanema. Hana er að finna á
slóðinni http://www.is-
landia.is/effeff/
Fótboltagrín
Umsjónarmenn heimasíð-
unnar http://www.the-sc-
um.freeserve.co.uk/ hafa það
að
áhuga-
máli að
gera
grín að
knatt-
spymu-
mönn-
um og J
þá sér-
stak-
lega
þeim
sem leika í Eng-landi. Þar er :
t.d. hægt að skoða brandara um
1. deildar lið Port Vale.
Ódýr plötubúð
Á Netinu er hægt að kaupa
tónlist mjög víða. Ein þeirra ;
verslana sem bjóða töluvert :
ódýra geisladiska er búðin
http://cheap-cds.com/
hægt að finna mikla umfjöllun
um þessa þætti. Slóðin er
> http://www.cnn.com/SPECI-
ALS/cold.war/
Kalda stríðið
Sjónvarpið sýnir um þessar
mundir á mánudagskvöldum
þáttaröð frá CNN um kalda
stríðið. Á vefsíðum CNN er
Rafbarbarar
Á heimasíðunni j
http://www.2600.com/minde
x.html leika rafbarbarar og
tölvuþrjótar lausum hala og
sýna stoltir afrekalista sinn.
Þar má m.a. sjá hvaða heima-
síður þeim hefur tekist að
brjótast inn á og valda þar usla.
Flugbrandarar
Á heimasíðunni
http://www.airtoons.com/ er
komið upp um ýmis dularfull
leyndarmál sem við koma ör-
yggi í farþegaflugi.
Geisladiskalist
Hún Nikki var að sturlast á
öllum ókeypis geisladiskunum
sem flæddu til hennar með
tímaritum og ýmsu öðru. Þang-
að til hún áttaði sig á notagildi
þeirra sem listmuna. Afrakst-
urinn er hægt að sjá á slóðinni
http://www.neosoft.com/nik
ki/
Tölvuþrjótar láta finna fyrir sér:
Pentagon undir stöðug-
um árásum
- tölvukerfið vaktað allan sólarhringinn
Tölvukerfi Pentagon, aðalbæki-
stöðva varnarmálaráðuneytis
Bandaríkjanna, liggur undir stöðug-
um og skipulögðum árásum frá
tölvuþrjótum um þessar mundir.
Ætlun þeirra virðist vera að nálgast
leynilegar upplýsingar.
Að sögn starfsmanna varnar-
málaráðuneytisins hefur þrjótunum
enn ekki tekist að fá aðgang að
tölvunetum sem innihalda leynileg
gögn. John Hamre, sem hefur yfir-
umsjón með öryggismálum ráðu-
neytisins, segir þó að full ástæða sé
til að hafa áhyggjur af þessum mál-
um.
Hamre hitti í síðustu viku starfs-
menn löggjafarvaldsins bandaríska
sem yfirheyrðu hann fyrir luktum
dyrum um ákveðnar árásir tölvu-
þrjóta sem áttu sér stað tvo daga í
röð í janúar.
Þá voru tölvukerfi flugherstöðv-
arinnar í Kelly undir stöðugum
árásum, en þar eru geymdar gríðar-
lega mikilvægar upplýsingar fyrir
flugherinn, sem m.a. skipta miklu
máli fyrir bandaríska hermenn í
írak og Bosníu.
Allt að 100 árásir á dag
Þessar árásir voru „úthugsaðar
og samhæfðar og voru gerðar frá
tölvunetum í Kanada, Noregi og
Taílandi“, að sögn fréttastofu NBC.
Einnig kom fram hjá sjónvarps-
stöðinni að á tölvukerfi Pentagon
hefur á síðustu mánuðum verið ráð-
ist allt að 100 sinnum á dag frá 15
mismunandi stöðum í heiminum.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
rannsakar árásir tölvuþrjótanna
um þessar mundir. í ljós hefur kom-
ið að margar þeirra virðast eiga
upptök sín í Rússlandi, en líklegt er
þó talið að tölvuþrjótarnir séu ekki
þaðan, heldur beini árásum sínum í
gegnum rússnesk tölvunet.
Við yfirheyrsluna sagði Hamre að
menn hefðu af því nokkrar áhyggj-
ur að mögulega hefðu tölvuþrjótarn-
ir fengið aðstoð frá starfsmanni
veimarmálaráðuneytisins sem hefði
aðgang að tölvukerfi þess.
Bandarísk stjórnvöld hafa lengi
verið áhyggjufull yfir árásum tölvu-
þrjóta á opinber tölvukerfi. Bill
Clinton hefur í ljósi þessa lagt til að
1,4 milljörðum dollara (um 100 millj-
örðum króna) verði varið til barátt-
unnar gegn tölvuglæpum af þessu
tagi á næsta ári.
Vandræðalegar uppá-
komur
Eðlilegt er að miklir íjármunir
fari í gæslu opinberra tölvukerfa í
Bandaríkjunum. Vegna gífurlegs
umfangs þeirra er að mörgu að gæta
og sérstaklega þarf að vakta mikil-
vægustu tölvukerfin, eins og það
sem notað er í varnarmálaráðuneyt-
inu. Þar stendur nú fjöldi manns
vaktir allan sólarhringinn við það
eitt að fylgjast með því aö allt sé
með felldu í öryggiskerfi tölvunets-
ins.
Þó svo yfirmenn Pentagon vilji
aðallega forðast það að óvinir
bandarísku þjóðarinnar komist yfir
hernaðarleyndarmál er þeim einnig
í mun að forðast vandræðaleg mál
varðandi öryggi tölvunets ráðuneyt-
isins. Nokkur slík hafa komið upp í
gegnum tíðina og þá oft af völdum
táninga með mikla tölvukunnáttu.
Vel þekkt er t.d. mál hins tvítuga
ísraelska tölvuþrjóts sem á síðasta
ári viðurkenndi að hafa brotist inn
í tölvukerfi Pentagons vegna „hat-
urs á stofnunum“. Hann var ákærð-
ur í Jerúsalem í síðasta mánuði fyr-
ir samsæri og skemmdarverk á
tölvukerfum.
Sá heitir Ehud Tenebaum og var
þekktur undir dulnefninu „Analyz-
er“, eða „greinandinn“. Tenebaum
Stjörnustríð:
Ný kynningarmynd á Netinu
Síðastliðinn föstudag var frum-
sýnd á Intemetinu ný kynningar-
mynd fyrir hina nýju Stjömustríðs-
mynd sem væntanleg er í kvik-
myndahús nú í vor. Frumsýningin
var samvinnuverkefni kvikmynda-
framleiðandans Lucasfilms og
tölvurisans Apple.
Steve Jobs, stjómarformaður
Apple, sagði í siðustu viku að búast
ipiiooi i
mætti við að á heimasíðu Apple
yrði sett yfir helgina met í því hve
oft skrá væri sótt á eina heimasíðu.
Sagði hann að Apple-menn byggjust
við allt að 10 milljónum heimsókna
frá aðdáendum Stjörnustríðsmynd-
anna og hefðu því aukiö getu heima-
síðu fyrirtækisins til að geta tekið
við öllum þessum gestafjölda.
Núverandi met yfir sóttar skrár á
sjálfur Bill Clinton, en vitnisburður
hans í Lewinsky-málinu var sóttur
20 til 30 milljón sinnum. Það var þó
gert á fjölmörgum heimasíðum víðs-
vegar um heiminn og því þurfa
Apple menn ekki að ná þeirri tölu
til að setja met.
Hin nýja kynningarmynd er tvær
og hálf mínúta að lengd og verður
bráðlega sýnd í kvikmyndahúsum,
en ekki verða sýndar fleiri slíkar
áður en sýning sjálfrar myndarinn-
ar hefst.
Hagur Apple í þessari netfrum-
sýningu felst aðallega i að kynna
netspilarann QuickTime III fyrir
netnotendum.
Hægt er að nálgast kynningar-
myndina á slóðunum
http://www.apple.com og
http://www.starwars.com.
ísraelski táningurinn Ehud Tenebaum var handtekinn í fyrra fyrir að brjótast
inn í tölvukerfi varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Yfirmenn þar á bæ vilja
fyrir alla muni koma í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig.
vann með bandarískum táningi að tölvukerfi varnarmálaráðuneytisins
tölvuglæpum sínum og að sögn áður en þeir voru teknir höndum.
hans höfðu þeir brotist inn í um 400 -KJA
Tölvusala mun aukast
Markaösrannsóknafyrirtækiö
International Data Corp. tilkynnti f
vikunni aö þaö byggist viö áframhald-
andi aukningu á sölu heimilistölva á
árinu, sérstaklega f Ijósi mikillar sölu
í Bandaríkjunum og Evrópu. Jafnframt
telur fyrirtækiö að verö á tölvum muni
áfram lækka á
næstu mánuðum.
Einnig kom fram
hjá fyrirtækinu aö
tölvuframleiöand-
inn Compaq
Computer Corp.
seldi flestar tölv-
ur í heiminum á
sföasta fjóröungi
síöasta árs. Fyrir-
tækiö var þá meö
um 15,3% mark-
aöshlutdeild. Næst kom IBM meö
9,7% markaöshlutdeild á heimsvísu.
Ný beta af Windows 2000
Næsta betaútgáfa af Windows 2000
stýrikerfinu mun sýna keppinautum
Microsoft hver ræöur, aö mati Yusef
Mehdi, hátt setts starfsmanns fyrir-
tækisins. Þetta er þriöja betaútgáf-
an af stýrikerfinu sem áöur var þekkt
undir nafninu NT 5.0. Betan mun
veröa tilbúin í apríl en Microsoft von-
ast til að stýrikerfið veröi síöan full-
búiö fyrir árslok 1999. Mehdi segir
þó aö slíkar dagsetningar skipti f
raun ekki öllu máli, stýrikerfið komi
einfaldlega á markaöinn þegar þaö
er oröiö nógu gott. Windows 2000
er stýrikerfi sem hannaö er til að
keyra tölvur á lyrirtækjamarkaöinum.
Útgáfa stýrikerfisins fyrir almenna
notendur er einnig f buröarliönum en
ekki er Ijóst hvenær hún kemur á
markaöinn.
Flensuvaktin
Þó svo það lækni ekki flensu aö vita
hvar hana sé aö finna getur þaö hjálp-
aö til viö aö minnka útbreiðslu henn-
ar. Þetta er a.m.k.
skoðun þeirra
bandarísku lækna
sem halda úti
„Flensuvaktinni"
á heimasfðunni
http://www.
fluwatch.com/.
Þar geta ferða-
menn séð hvaða
staöir þaö eru
sem skynsamleg-
ast er aö halda
sig frá og læknar geta jafnframt átt-
að sig á þvf hvort flensan sé á næsta
leiti.
Fjárfest í Linux
Enn gengur allt í haginn hjá Red Hat
Software sem er stærsti dreifingar-
aöili Linux-stýrikerfisins í Bandaríkj-
unum. Fyrir helgi keyptu fjögur af
stærstu fyrirtækjunum á tölvumark-
aönum hlut f fyrirtækinu. Ekki var
gefiö nákvæmlega upp hve mikil viö-
skiptin voru, en fyrirtækin sem í hlut
áttu voru IBM, Compaq, Novell og
Oracle. Áöur höföu Netscape og In-
tel keypt hlut í fyrirtækinu. Þar sem
grunnkóöi Linux er ókeypis þá ganga
fýrirtæki á borö við Red Hat út á að
veita Linux-notendum þjónustu af
ýmsu tagi gegn greiöslu.
rsrm