Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Síða 36
44
MANUDAGUR 15. MARS 1999
&
nn
Ummæli
Davíð vill af-
tengja sjávarút-
vegsumræðuna
„Davíð er ekki að ljá máls á
, veiðileyfagjaldi,
^ heldur einungis að
reyna eftir megni
að aftengja sjávar-
, útvegsumræðuna
fyrir kosningar.“
Ágúst Einarsson al-
þingismaöur, um
ummæli Davíðs Odds-
sonar á landsfundi Sjálfstæðis-
manna, í DV.
Lífið er dásamlegt
„Ég hef bara svo ofboðslega
gaman af lífinu, hef aldrei verið
feimin og elska athygli. Ef mað-
ur er ekki tilbúinn að stinga sér
alveg út í laugina þá er ekkert
gaman.“
Bryndís Ásmundsdóttir söng-
kona, i Fókusi.
Jólin og lands-
fundurinn
„Ætla mætti að jólin væru að
ganga í garð. Svo er
þó ekki heldur er
það landsfundur
Sjálfstæðisflokks-
ins.“
Guðmundur Árni
Stefánsson alþingis-
maður, í DV.
Óréttlát refsing
„Mér finnst það bara óréttlátt ;
að mér skuli refsað fyrir það í 1
fyrsta lagi að hafa leyft mér að
eyða ekki öllum bótunum mín-
um og í öðru lagi fyrir aö hafa
farið eftir skattlögunum."
Garðar Sölvi Helgason örorku-
lífeyrisþegi, um reglugerð um
sparifjáreign, í Morgunblaðinu.
Látinn borgar skatt
„Nýlega kom til mín maður
og sýndi mér inn-
heimtuseðil fyrir
rúmlega 90.000
krönum sem skjól-
stæðingur hans
var sagður skulda
skattayfirvöldum
fyrir árið 1998.
Ekkert heföi verið
skrýtið ef umræddur maður
hefði ekki látist 1997.“
Guðrún Helgadóttir alþingis-
maður, í DV.
Alþingi fjármagns-
eiganda
„Á Alþingi er engin stefna
gegn launamisrétti, þar er
hverju frumvarpinu af öðru
rennt í gegn á færibandi fjár-
magnseigenda til þess að þeir
geti aflað meiri telrna til kaupa
á einhverju ríkisbatteríinu (sem
borgar sig sjálft) án þess að al-
menningur njóti þess í nokkru."
Guðmundur Rúnar Guðbjarnar-
son, verkamaður í Kópavogi, í
Morgunblaðinu.
Sædís Helga Guðmundsdóttir, nýr eigandi vikublaðsins Þeys í Grundarfirði:
Ef vel gengur þá gef
ég blaðið út í níu ár
DV, Vesturlandi:
„Mér fannst þetta jákvæður og
spennandi vettvangur og einnig var
þetta hugsað til þess að skapa sér
atvinnu," segir Sædís Helga Guð-
mundsdóttir sem um mánaðamótin
tók við rekstri Vikublaðsins ÞEYS
á Grundarfirði af Ingibjörgu Torf-
hildi Pálsdóttur, fréttaritara DV í
Grundarfirði. Ingibjörg gaf út
fyrsta tölublað ÞEYS þann 7. nóv-
ember 1991 hef- ------------------
ur gefið það út
til dagsins í dag
með dyggri að-
firðingar. Þeir sem flytja héðan
vilja halda tryggð við sína heima-
byggð og finnst gaman að fá að vita
hvað er að gerast hér þó að langt sé
síðan þeir bjuggu hér.
Ég ætla ekki að breyta
neinu í blaðinu til að
byrja með. Ég ætla
fyrst að reyna að
koma blaðinu út
eins og það hef-
ur verið og
Maður dagsins
stoð eiginmanns síns, Eiðs Arnar
Eiðssonar. Þau hjón ætla alfarið að
snúa sér að rekstri Hótel Framness
í Grundarfirði sem nýtur mikilla
vinsælda.
„Ég var ekki búin að hugsa lengi
um þetta þegar ég tók ákvörðun um
kaupin, ég kynnti mér reksturinn
og þegar það var búið var ég fljót að
taka ákvörðun. Þetta er vissulega
ögrandi og spennandi verkefni. Ég
hef ekki neina reynslu í blaða-
mennsku, en það kemur með tíman-
um. Hins vegar gaf ég út skólablað
þegar ég var lítil með vinkonum
mínum, segir Sædís Helga.
„Vikublaðið Þeyr er prentað í 460
eintökum og því er dreift í öll hús í
Grundarfirði og nágrenni og svo
eru 80-90 áskrifendur úti um allt
land, aðallega brottfluttir Grund-
DV-mynd Ingibjörg Torfhildur
með tímanum
kemur þetta
til með að þró-
ast, ég er búin
að fá fullt af
nýjum hug-
myndum sem ég
ætla að láta
verða af þegar ég
er orðin klárari í
þessu. Það getur
alveg eins komið
til að blaðið
komi á
ver-
aldarvefinn, það verður bara að
bíða síns tíma, þetta verður allt að
þróast.“
Sædís segist ekki lofa því að hún
gefi blaðið út jafnlengi og Ingibjörg:
„En hins vegar, ef vel
gengur og meðan ég
hef gaman af þessu,
þá getur alveg
eins farið svo að
ég gefi það út í
níu ár, því
verður bara
tíminn að
skera úr.“
Þessa stundina
er aðaláhuga-
mál Sædísar út-
gáfa á Þey. Eig-
inmaður Sædís-
ar er Ólafur
Magnússon trésmið-
ur. Þau eiga eitt barn,
Sigurbjörgu Söndru Pét-
ursdóttur, sem er á fimmta
aldursári. -IP
Hvað er félagssaga?
í hádeginu á morgun kl.
■ 12.5 flytur Helga Kress pró-
fessor fyrir-
lestur í Þjóð-
arbókhlöð-
unni í boði
Sagnfræð-
ingafélags ís-
lands sem
hún nefnir:
Ég aumur
kennimann. Um skriftaboð
Ólafar ríku Loftsdóttur.
Fundurinn er hluti af fyrir-
lestraröð Sagnfræðingafé-
lagins sem nefnd hefur ver-
í ið: Hvað er félagssaga?
Helga Kress.
Aðalfundur og
Ungverjalandsferð
Félagið Ísland-Ungverja-
land gengst fyrir ferð til
Ungverjalands dagana
22.-29. maí nk. fyrir félags-
V
menn og gesti þeirra. Ferð-
in verður kynnt á fundi í
kvöld kl. 20.30 á veitinga-
húsinu Við Tjörnina,
Templarasundi 3, uppi á
lofti. Fundurinn er jafn-
framt aðalfundur félagsins.
Samkomur
Líf án streitu?
Náttúrulækningafélag
Reykjavíkur efnir til mál-
þings í Þingsal 1, Hótel Loft-
leiðum, annað kvöld kl. 20
undir yfirskriftinni Líf án
streitu. Frummælendur eru
Þórkatla Aðalsteinsdóttir
sálfræðingur, Konráð
Adolphsson skólastjóri,
Katrín Fjeldsted heimilis-
læknir og Hildur Hákonars-
dóttir, forstöðukona Lista-
safns Ámesinga.
Myndgátan
Menn heilsast með handabandi Myndgátan hér aö ofan lýsir orðasambandi.
Þórey Sigþórsdóttir og Hinrik Ólafs-
son í hlutverkum sínum.
Hótel Hekla á
íslandsdögum
Leikfélagið Fljúgandi fiskar
frumsýndi nýlega ljóðleikinn Hótel
Heklu við mjög góðar undirtektir í
KafTileikhúsinu í Hlaðvarpanum.
Hótel Hekla segir frá flugfreyju
sem Þórey Sigþórsdóttir leikur.
Hún þarf að kljást við óþægilegan
farþega á leið til útlanda en hann
er leikinn af Hinriki Ólafssyni.
Hótel Hekla er nokkurs konar ljóð-
leikur enda er ljóðum fléttað inn í
textann á hugvitsamlegan hátt. í
mars gefst fleiri en íslendingum
færi á að sjá sýninguna því þá
munu Fljúgandi fiskar leggja í vík-
ing til Skandinavíu.
Leikhús
Hótel Hekla er styrkt af Nor-
ræna menningarsjóðnum og er
leikferðin í samvinnu við Svenska
Teater í Turku/Ábo og Teater Pero
í Stokkhólmi, og styrkt af Teater og
dans i Norden. Sýningar verða í
Ábo 23. og 24. mars í tengslum við
íslandsdaga en þeir standa yfir í
Turku/Ábo dagana 22. til 30. mars.
Meðal annarra viðburða á íslands-
dögum má nefna fyrirlestra og
kvikmyndasýningar.
Sýningar Hótel Heklu í Pero’s
Teater í Stokkhólmi verða 27. og 28.
mars. Einnig heldur leikstjórinn,
Hlín Agnarsdóttir, fyrirlestur um
íslenskt leikhús í tengslum við sýn-
inguna. Næsta sýning í Kaffileik-
húsinu verður á miðvikudag og er
sú sýning á sænsku.
Bridge
Þetta spil kom fyrir á HM í sveita-
keppni fyrir fjórum áratugum í leik
ítala og Argentínumanna. í opnum
sal voru sagnir og spilamennska í
rólegri kantinum. Vestur var gjafari
og allir utan hættu. Eftir þrjú pöss
opnaði suður á einum tígli, félagi
hans í norður sagði 1 spaða og suð-
ur eitt grand sem varð lokasamn-
ingurinn. Sagnir tóku villtari stefnu
í lokuðum sal:
4 K973
*84
♦ Á104
♦ D873
* 1083
* KG73
* D52
4 G62
4 ÁG5
V 1062
♦ KG86
4 Á105
Vestur Norður Austur Suöur
pass pass 14 dobl
pass 14 pass pass
1 grand p/'h
Sögn vesturs er ekki níjög greind-
arleg eftir þriðju handar opnun fé-
laga og vömin gaf ekki mörg tæki-
færi. Útspil norðurs (Chiaradia) var
spaðaþristur og D’Alelio, sem sat í
suður, átti slaginn
á gosann. Hann
skipti yfir í tígul og
Chiaradia átti slag-
inn á tíuna. Nú
tóku ítalirnir 8
slagi á spaða og
tígul og sagnhafi
tók áhættu í afköst-
unum. Hann hélt eftir 4 hjörtum
heima og laufgosanum blönkum en
3 hjörtum í blindum og kóngnum
öðrum í laufi. Chiaradia var inni og
spilaði laufdrottningu sem tryggði 4
slagi til viðbótar á þann lit. Vörnin
fékk því 12 slagi í einu grandi
dobluðu. Samkvæmt reikningsregl-
um þess tíma var spilið 1100 niður
(en væri 1400 með reikningsaðferð-
um nútímans). ítalir náðu HM-titl-
inum þriðja skiptið í röð í þessari
keppni. ísak Öm Sigurðsson