Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Page 37
D"V MÁNUDAGUR 15. MARS 1999
Ragnheiður Jónsdóttir sýnir í
Listasafni Árnesinga.
Kolateikningar
Sýning á kolateikningum Ragn-
heiðar Jónsdóttur, sem gerðar eru
á síðustu tveimur árum, var opn-
uð um helgina í Listasafni Ámes-
inga á Selfossi. Ragnheiður hefur
með risavöxnum svartkrítarteikn-
ingum sínum, þær stærstu eru 3
metrar á lengd og 2,40 á hæð,
stöðugt verið að færast inn á svið
hins óhlutbundna og nær kjarnan-
um sem ólgar undir niðri, bæði í
landinu sjálfu og í skapgerð okk-
ar. Dökkir dílar á svörtum fleti
iða yfir myndir hennar og minna
á fingrafór lifsins. Lífræn hreyf-
ing sem getur minnt á hraun eða
foss sem flæðir fram, en hið
óræða felst í því að við skynjum
okkur sjálf sem hluta af þessu
hljómfalli.
Sýningar
Ragnheiður hefur hlotið marg-
vísleg verðlaun og alþjóðlegar við-
urkenningar fyrir verk sín. Það er
ekki tilviljun að Ragnheiður er
fyrsti gestur Listasafns Árnesinga
á þessu starfsári sem vill kynna
landið og listamennina sem það
hefur fóstrað frá ýmsum sjónarhól-
um. Ragnheiður er Sunnlendingur
í húð og hár því foreldrar hennar
voru báðir úr Stokkseyrarhreppi,
en sjálf ólst hún upp í Þykkvabæn-
um. Eins og svo margir myndlist-
armenn er hún komin af Tungu-
fellsætt og rekur ættir sínar til
Guðrúnar Hallvarðsdóttur frá
Tungufelli i Hrunamannahreppi
en frá henni eru komnir margir
þekktir myndlistarmenn.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans:
Eg skal kveða um eina þig...
Þórarinn Hjartarson og Ragnheiður Ólafsdóttir syngja í Listaklúbbnum í
kvöld.
Þórarinn Hjartarson og Ragnheið-
ur Ólafsdóttir flytja gestum Lista-
klúbbsins í kvöld söngdagskrá með
Páil skáldi Ólafssyni. Páll, sem var
bóndi á Héraði á 19. öld, var hag-
mæltur með afbrigðum og fyndinn
og tækifæriskveðskapur hans varð
landsfleygur, ekki hvað sýst
drykkjuvísurnar. Vinsæl urðu
einnig kvæði hans um sumarið og
fuglana en Ingi T. Lárusson hefur
gert nokkur þeirra að þjóðareign
með lögum sínum, enda eru ljóð
Páls óvenju sönghæf.
Skemmtanir
Ragnheiður og Þórarinn syngja
og kveða um ástina, gleðina, ellina
og sorgina í ljóðum skáldsins en
flytja gestum einnig tækifæriskveð-
skap. Mörg ný lög verða flutt, ýmist
með eða án gítarleiks, og eru þau
fléttuð saman við lífssögu skáldsins.
Höfundar laga eru m.a. Ingi T. Lár-
usson, Hróðmar Ingi Sigurbjörns-
son, Ragnheiður Ólafsdóttir og
Hörður Torfason.
Þórarinn Hjartarson er plötu-
smiður og sagnfræðingur á Akur-
eyri en er upprunninn úr Svarfað-
ardalnum. Þórarinn fæst við vísna-
söng, hefur m.a. stundað að syngja
og kveða íslensk þjóðlög og stemm-
ur. Ragnheiður Ólafsdóttir er Borg-
nesingur. Hún er kennari að mennt
og hefur starfað við það hér og þar
um land. Hún hefur samfara
kennslu m.a. stjómað skólakórum á
Akranesi og Akureyri og Sönghópn-
um Sólarmegin á Akranesi. Dag-
skráin hefst kl. 20.30 í Leikhúskjall-
aranum.
Frostlaust á suðaustan-
verðu landinu
Áiram norðlæg átt, gola eða kaldi.
Veðrið í dag
Éljagangur norðanlands en bjartvirði
sunnan og austanlands. Frostlaust á
suðaustanverðu landinu, en annars 0
til 8 stiga frost, kaldast á Vestfjörðum.
Einsöngstónleik-
ar í Salnum
I kvöld kl. 20.30 verða Jóhann
Smári Sævarsson, bassi, og Helga
Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari,
með söngtónleika í Salnum. Jóhann
Smári Sævarsson stundaði fram-
haldsnám við Royal College of
Music í London. Þaðan lauk hann
einsöngvaraprófi og sameiginlegri
óperudeild Royal CoOege og Royal
Academy of Music. Á námsárunum
tók Jóhann þátt í fjölda tónleika og
óperauppfærslna, innan skólans og
utan. Aö námi loknu fór Jóhann á
samning hjá Óperustúdíói Kölnar-
óperunnar og eftir tveggja mánaða
veru þar var honum boðinn fastur
samningur sem einsöngvari við óp-
eruna sjálfa. Þar starfaði Jóhann í
tæp 3 ár og söng 15 hlutverk á tæp-
lega 300 sýningum. Jóhann starfar
nú sem deildarstjóri Söngdeildar
Tónlistarskólans á Akureyri.
Tónleikar
Á tónleikunum í Salnum munu
þau Jóhann Smári og Helga Bryndís
flytja verk eftir J. Brahms, R.
Schumann, Árna Thorsteinsson,
Karl O. Runólfsson, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Atla Heimi Sveins-
son, M. Ravel og M. Mussorgsky.
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri úrkoma í grennd -2
Bergsstaðir úrkoma í grennd -4
Bolungarvík snjókoma -5
Egilsstaöir -1
Kirkjubœjarkl. hálfskýjað 4
Keflavíkurflv. skýjaö -1
Raufarhöfn úrkoma í grennd 0
Reykjavík skýjaó 0
Stórhöföi snjóél á síö. kls. 2
Bergen sýld á síð. kls. 5
Helsinki léttskýjaö 1
Kaupmhöfn alskýjaö 1
Ósló snjókoma -1
Stokkhólmur 0
Þórshöfn skýjað 6
Þrándheimur skýjaö 3
Algarve hálfskýjaö 17
Amsterdam þokumóöa 11
Barcelona mistur 15
Berlín rign. á síö. kls. 3
Chicago léttskýjaó -2
Dublin skýjaö 10
Hálifax alskýjaö 0
Frankfurt rign. á síö. kls. 15
Glasgow skýjaö 10
Hamborg mistur 5
Jan Mayen þoka 0
London skýjaö 11
Lúxemborg mistur 15
Mallorca hálfskýjaó 18
Montreal léttskýjaö -8
Narssarssuaq skýjaö -5
New York alskýjaö 1
Orlando alskýjaö 19
París léttskýjaö 14
Jóhann Smári Sævarsson syngur í
Salnum í kvöld.
Alexander Dawit
Litli drengurinn á
myndinni, sem fengið hef-
ur nafnið Alexander
Dawit Danielsson, fædd-
ist á fæðingardeild Land-
Barn dagsins
spitalans 3. mars síðast-
liðinn. Foreldrar hans
eru Daniel Dawit Déguefu
og Helga Rún Geirsdóttir.
Alexander litli á einn
bróður, Julian Dawit
Danielsson, sem er að
verða tveggja ára.
A * +
dag9(^p|
Kevin Kline leikur heimilisföður
sem er veikur á svellinu.
fsregn
Bíóborgin sýnir úrvalsmyndina
The Ice Storm. Myndin er fj(5f>/
skyldudrama og gerist árið 1973 í
kringum New Canaan í Connect-
icut. Mikill stormur og snjókoma
gerir það að verkum járnbrautar-
lest er föst á teinunum. Einn far-
þeganna er hinn ungi Paul Hood
(Tobey Maguire) sem fer að hugsa
um fjölskyldu sína. Faðir hans
Ben (Kevin Kline) á í ástarsam-
bandi við nágrannakonu sína
Janay (Sigourney Weaver) en
móðir hans Elena (Joan
Allen) á einnig við
við vandamál að /////////
Kvikmvndir 'MM
stríða, meðal annars *
gerist hún sek um búðahnupl.
Paul á eina systur, Wendy (Christ-
ina Ricci), sem er farin að huga að
strákunum í nágrenninu og er
með Watergate-hneykslið á heil-
anum. Við sögu koma einnig tveir
synir Janey, Mikey (Elijah Wood)
og Sandy (Adam Hann-Byrd) sem
báðir eiga við vandamál að stríða.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsum:
Bíóhöllin: Patch Adams
Saga-Bíó: Pöddulíf
Bíóborgin: The lce Storm
Háskólabíó: Hilary and Jackie
Háskólabíó: Psycho
Kringlubíó: Basketball
Laugarásbíó: Very Bad Things
Regnboginn: Life Is Beautiful
Stjörnubíó: Divorcing Jack
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
8 9
10 11 12
13 14 15
16 17 18
19 f
20 21
Lárétt: 1 leyfi, 8 sveifla, 9 skeljar, 10
illmenni, 12 gelti, 13 barefli, 14 leir,
16 reyna, 19 slappleiki, 20 rödd, 21
kvabb.
Lóðrétt: 1 karlmannsnafn, 2 ólyfj-
an, 3 innyfli, 4 kófið, 5 hreyfing, 6
skrökvuðu, 7 togaði, 11 veski, 15
makaði, 17 gufu, 18 þvottur, 19 ullar-
hnoðrar.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 fásinna, 7 ónáð, 8 ást, 10
lit, 11 krók, 13 kátur, 16 lá, 17 brun,
18 agi, 19 ál, 20 rómi, 22 auðinn.
Lóðrétt: 1 fólk, 2 áni, 3 sáttur, 4 iðk-
un, 5 nár, 6 at, 9 sólgin, 12 Káinn^Lf
árla, 15 rami, 17 bás, 21 óð.
Gengið
Almennt gengi Ll 12. 03. 1999 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenni
Dollar 71,510 71,870 69,930
Pund 116,990 117,590 115,370
Kan. dollar 46,880 47,170 46,010
Dönsk kr. 10,5190 10,5770 10,7660
Norsk kr 9,1510 9,2020 9,3690
Sænsk kr. 8,8190 8,8670 9,0120
Fi. mark 13,1410 13,2200 13,4680
Fra. franki 11,9110 11,9830 12,2080
Belg. franki 1,9369 1,9485 1,9850
Sviss. franki 48,8600 49,1300 49,6400.
Holl. gyllini 35,4600 35,6700 36,3403'-
Þýskt mark 39,9500 40,1900 40,9500
ít. líra 0,040350 0,04060 0,041360
Aust. sch. 5,6780 5,7120 5,8190
Port. escudo 0,3897 0,3921 0,3994
Spá. peseti 0,4696 0,4724 0,4813
Jap. yen 0,595200 0,59880 0,605200
írskt pund 99,210 99,810 101,670
SDR 97,570000 98,16000 97,480000
ECU 78,1300 78,6000 80,0800
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270