Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Qupperneq 22
26
Fréttir
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999
IiaLur & spuunó
TOFF
MYNDIR
toktu þátt í skemmtilegum leik á www.visir.is
Kíktu á www.visir.is og þu getur unniö
alfatnað fyrir þig eöa maka þinn í
herrafataverslun Kormáks og Skjaldar,
kassa af San Miguel eöa frímiöa a
kvikmvndadaqa Hásk61abiós.
kvikmyndadagar
FRUMSYNINGAR I KVOLD KL
In the Company of Men
/ karlaveldi
Men
Karlmenn
vouHt.
Fylgist meb syningartímum í ougivsingum dagblaöanna
Mikill launamunur
á Akureyri og í
Reykjavík
- atvinnumálanefnd Akureyrar snýr vörn í sókn
DV; Akureyri:
„Þaö kom fram I skýrslu sem unnin
var á vegum Byggðastofrumar og náði
yfir ákveðið tímabil fram til ársins
1996, að launamunur miUi Reykjavík-
ur og Akureyrar var um 15%, höfuð-
borginni í vil. Mín tilfmning fyrir því
hvað síðan hefur gerst er sú að þessi
launamunur hafi ekki minkað, því það
er eftirspumin sem stjómar þessu. Ég
hef reyndar ekkert fyrir mér í þvi ann-
að en tilfmningu, því þenslan er jú
þar,“ segir Valur Knútsson, formaður
atvinnumálanefndar Akureyrarbæjar.
Niðurstöður skýrslunnar „Stefnu-
mótun í atvinnumálum fyrir Akur-
eyri“ hafa verið kynntar, en Valur seg-
ir að 85 manns hafi komið að gerð
skýrslunnar og þeir hafi komið víðs
vegar að úr atvinnulífinu, bæði frá Ak-
ureyri og víðar. Þessi hópur lagði ffam
fjölmargar tillögur sem var forgangs-
raðað og DV spurði Val hverjar væm
helstar.
„Við þurfum að auka eftirspum eft-
ir vinnuafli hér í bænum og að farið
verði að vinna á stærra svæði. Við
leggjum til fjölmörg atriði en ætlum að
byrja á því að koma á fót öflugri end-
urmenntun við Háskólann á Akureyri.
Það er einhver ástæða fyrir þvi að það
er nær ómögulegt að fá menntað fólk
út á land í vinnu og við teljum að vem-
leg ástæða fyrir því sé að fólk hafi
áhyggjur af því að staðna og missa
tengsl við það sem er að gerast nýtt í
hverri grein. Við leggjum til að það
verði komið á fót símenntunarmiðstöð
sem verður um leið miðlari og í fyrir-
tækjum hér verði endurmenntun og sí-
menntun starfsfólks fastur þáttur.
Við leggjum líka til að farið verði af
krafti í orkumálin og við verðum til-
búnir fyrir þær breytingar sem verða
á orkuframleiðslu og orkudreifmgu á
næstu 2-4 árum. Við þurfúm að fara að
vinna heimavinnuna og sjá út hvað
það er sem hentar okkur og hvar það
ætti að vera staðsett. Hvort við eigum
ekki að horfa á stærra svæði en Eyja-
fjörðinn og fara í samvinnu við t.d.
Þingeyinga og Austflrðinga. Við verð-
um að stækka atvinnusvæðið okkar og
ég sé t.d. ef fara á að byggja virkjanir
og verksmiðjur á Austurlandi, að þá er
stór möguleiki fyrir okkar fyrirtæki að
taka þátt í þeirri uppbyggingu og jafli-
vel þjónustu."
Þá nefiidi Valur að lögð verði
áhersla á að koma á auknu samstarfi
milli fyrirtækja, t.d. í matvælaiðnaði,
en ekki hvað síst í sjávarútvegi og þá
helst í tækni- og hugbúnaðarþróun, og
hann nefhdi markaðsmál sérstaklega.
Þá nefiidi hann að mörkuð verði skýr-
ari stefna í ferðamálum og að hlutverk
Akureyrar í ferðamálum verði frekar
skilgreint, t.d. þannig að ferða-
mennska á Norðurlandi verði „gerð
út“ frá Akureyri, s.s. sölu- og markaðs-
mál. „Þetta eru verkefni sem við vilj-
um að verði sett í gang á næstunni, og
þau fyrstu verði komin í gang fyrir
haustið," segir Valur.-gk
Snæfellsbær:
Aflametin bætt daglega
DV, Ólaísvík:
Sannarleg:
hefur Breiða
fjöröurinn verii
gullkista síðusti
vikur eins og ofl
ast. Góður afl
hefur verið
Ólafsvík og Rifi
öll veiðarfæri ei
þó sérstaklega i
línuna. Hver
metið á fætur
öðru er slegið á
nær hverjum
degi og menn hafa verið að fá upp í
400 kg á bala.
Sjómenn segja að allir geti fiskað
meðan svona ástand er og menn,
ókunnir miðum og staðháttum, eru
ekkert síðri en heimamenn og fiska
eins og þeir. Þegar svona aflast er
mikið um að vera á bryggjunni og
Þeir eru vænir, þessir - bæði strákarnir og þeir gulu.
DV-mynd Pétur
einnig er aflinn slægður strax þegar
bátarnir koma að landi hjá Slæging-
arþjónustu Kristjáns. Þar hefur ver-
ið mikil töm og oft unnið alla nótt-
ina og fram á morgun og
skólakrakkar hafa verið fengnir til
vinnu við að ísa aflann. Þá hefur
einnig vantað fólk í beitningu. -PSJ
Grunnkortageröin:
Samið í Was-
hington í aprii
DV, Akranesi:
„Niðurstöðumar á fundum okkar
í siöustu viku vom jákvæðar og var
ákveðið að halda áfram með það að
markmiði að undirrita nýtt sam-
komulag á milli þjóðanna um sam-
vinnu í kortagerð," sagði Magnús
Guðmundsson, forstjóri Landmæl-
inga Islands, í samtali við DV.
„Vinnan á fundunum með NIMA
í síðustu viku snerist að mestu um
texta væntanlegs samnings milli ut-
anríkisráðuneytisinsins og banda-
rísku herkortastofnunarinnar
NIMA, en þar er gert ráð fyrir að
Landmælingar íslands sjái um
framkvæmd samningsins fyrir ís-
lands hönd. Ef samningar nást um
greiðslur Bandaríkjamanna og
tímasetningar í verkefninu er gert
ráð fyrir því að vinna við grunn-
kortagerðina, sem fram til þessa
hefur að miklu leyti verið unnin í
Bandarikjunum, færist í auknum
mæli til Landmælinga fslands og að
framkvæmdin verði nær alfarið á
ábyrgð stofhunarinnar.
Næsti samningafundur verður
haldinn i Washington i lok apríl nk.
og vonandi verður þá hægt að und-
irrita nýtt samkomulag sem tryggir
að hægt verði að ljúka vinnu við
stafræn grunnkort af öllu íslandi í
mælikvarðanum 1:50.000 á næstu 4
árum,“ sagði Magnús -DVÓ