Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1999, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 20. MARS 1999
&éttír
Móöir Hjartar Snæs ánægö meö stóru krabbameinsaðgerðina í Lundi:
Einstök aðgerð
- hlakka til aö koma aftur heim, segir Hjörtur Snær í viötali viö DV
„Ég er alveg í skýjunum. Best er
að vita til þess að nú er þetta von-
andi allt búið. Ég vona bara að Hjört-
ur Snær þurfi aldrei að ganga aftur í
gegnum það sem hann hefur þegar
gert - þetta krabbameinsferli," sagði
Guðlaug Magnúsdóttir, móðir Hjart-
ar Snæs Friðrikssonar, 9 ára nem-
anda í Fellaskóla í Breiðholti, sem
gekkst undir óvenju mikla og tækni-
lega krabbameinsaðgerð á þriðjudag
í Lundi í Svíþjóð.
„Ég hlakka dálítið til að koma
heim,“ sagði Hjörtur litli þegar
blaðamaður DV ræddi við hann í
gær. „Hann var mjög eftir sig á mið-
vikudag og fimmtudag,“ sagði móðir-
in. Eins og fram kom í DV á fimmtu-
dag var nær allur lærleggur og hné á
vinstra fæti tekið í aðgerðinni.
Þannig var 20 cm æxli fjarlægt. Fót-
leggurinn var síðan græddur saman
við beinendann uppi við nárann, og
honum snúið við þannig að hællinn
snýr nú fram - þannig verður hæll-
inn sem hné og nýtist það drengnum
mjög þegar hann fær gervifót.
í hjólastól í gær
„Hann situr hérna við hliðina á
mér og er kominn í hjólastól," sagði
Guðlaug, sem er 29 ára og á eitt ann-
að barn, Benitu Dögg, 3ja ára, sem er
hér heima hjá ömmu. Hjörtur Snær
sagði blaðamanni að honum fyndist
sænsku læknarnir og hjúkrunarfólk-
ið eiginlega alveg jafn gott og fólkið
á Landspítalanum. „Ég skil ágætlega
það sem fólkið segir," sagði sá stutti
og var heldur brattur miðað við að
hafa gengist undir risaaðgerð á
þriðjudag. Drengurinn er aðdáandi
Manchester United og var búinn að
frétta að liðið vann Inter Milano á
miðvikudagskvöldið og dróst í gær á
móti Juventus í næstu umferð.
Guðlaug sagði að sænsku lækn-
arnir væru mjög jákvæðir. „Þeir
segja að framfarir og viðbrögð
drengsins eftir aðgerðina loíl mjög
góðu. Hann hefur eiginlega sýnt
ótrúlegar framfarir. Þeir eru mjög
ánægðir með hann og ekki kvartar
Hjörtur yfir verkjum," sagði Guð-
laug.
Handbolti:
ísland í 5.
sætinu
;í DV, UddevaUa:
íslendingar höfnuðu í 5. sæti
á heimsbikarmótinu í hand-
bolta í Svíþjóð eftir sigur á Eg-
yptum, 27-25, í Uddevalla í gær.
Egyptar höfðu eins marks
forystu í hálfleik, 12-11, en í
upphafi síðari hálfleiks náðu ís-
lendingar yfirhöndinni og létu
forystuna aldrei af hendi. ís-
| lenska liðið lék í heild mjög vel
og náði að fylgja eftir góðum
sigri á Ungverjum á miðviku-
S dag.
IMörk íslands: Gústaf Bjama-
son 8, Valdimar Grimsson 8/5,
ÍDagur Sigurðsson 3, Róbert
Duranona 2, Aron Kristjánsson
12, Bjaki Sigurðsson 2, Sigurður
Bjamason 1, Sverrir Björnsson
Sverrir lék þama sinn fyrsta
landsleik. Hann kom inná þeg-
ar 4 mínútur vom eftir og stóð
sig mjög vel. Hann skoraði eitt
mark og flskaði vítakast og
þarna er svo sannarlega fram-
tíðarlandsliðsmaður á ferð.
Upphaflega átti ekki að spila
um nema fjögur efstu sætin á
mótinu en mótshaldarar skiptu
um skoðun og létu spila um 5.
sætið i gær. -JKS
Á þessari mynd sést hvað gert hefur verið við vinstri fótlegg (til hægri) Hjartar Snæs. Lærleggurinn, þar sem æxlið var, var
nær allur fjarlægður. Fótleggurinn, þ.e. nær allt fyrir neðan hné, var síðan græddur við beinendann við nárann og leggn-
um snúið við. Þannig snýr hællinn nú fram og mun nýtast drengnum vel þegar hann notast við væntanlegan gervifót. Þetta
er ótrúleg aðgerð sem ekki hefði verið hægt að framkvæma fyrir nokkrum árum. DV-myndir Björn Larsson
Kannski heim í næstu viku
„Það var verið að segja mér að við
fáum kannski að fara heim á fóstudag
eða laugardag í næstu viku,“ sagði
Guðlaug, sem er ytra hjá drengnum
með Geirfríði systur sinni á Háskóla-
sjúkrahúsinu í Lundi. Þegar Hjörtur
Snær kemur heim fer hann beint á
Landspítalann aftur, þar sem hann
hefur dvalið meira og minna í krabba-
meinsmeðferð frá því í september.
„Hann mun gangast undir eftir-
meðferð vegna krabbameinsins, lyfja-
meðferð sem á að drepa niður eftir-
stöðvar meinsins ef eitthvert er,“
sagði móöirin. „Síðan er bara að taka
stefnuna fram á við. Það verður erfltt
fyrir drenginn að takast á við endur-
hæfmgu til að ganga með gervifót. En
ég er bjartsýn á framtíðina," sagði
Guðlaug Magnúsdóttir.
Allmargir hafa lagt hinni einstæðu
móður með krabbameinssjúka dreng-
inn lið, með því að leggja framlög á
reikning Sparisjóðsins í Mjódd.
Bankanúmerið er 1152, höfuðbók 05
og númerið er 403075. -Ótt
Hjörtur Snær gekkst undir risaaðgerð á þriðjudag en var samt í gær orðinn það
hress að hann var búinn að frétta að liðið hans, Manchester United, hefði sigrað
Inter Milan á miðvikudagskvöld og dróst í gær á móti Juventus í næstu umferð.
Móðirin, Guðlaug Magnúsdóttir, tekur utan um litla drenginn sinn í gær eftir hina erfiðu aðgerð. Hún er ekki síst
ánægð nú í Ijósi þess að vonast er til að krabbameinið sé horfið.
stuttar fréttir
Viðvörun trillukarla
Landssamband smábátaeigenda
I sendi grásleppuveiðimönnum við-
j vörun í gær, degi áður en grásleppu-
( veiðar hófust. Þar segir að markaðs-
horfur fyrir söltuð grásleppuhrogn
I séu afleitar fýrir komandi vertíð og
í brýnt er fyrir grásleppuveiðimönn-
' um að hefja ekki undir nokkrum
j kringumstæðum veiðar nema trygg
: sala sé fyrir hendi á réttu verði.
Nýr sýsiumaður
Utanríkisráð-
herra skipaði í gær
i Jóhann R. Bene-
diktsson sýslu-
mann á Keflavíkur-
j flugvelli, frá 1. apr-
íl 1999 að telja. Jó-
hann lauk embætt-
f isprófi í lögfræði frá lagadeild Há-
: skóla íslands árið 1987.
Hagnaður Ármannsfells
Hagnaður af rekstri Ármanns-
; fells hf. fyrir árið 1998 var tæpar 68
milljónir. Rekstrartekjur voru alls
; kr. 1.301milljón og rekstrargjöld án
j fjármagnskostnaðar voru 1.214
milljónir. Þegar tekið er tillit til ijár-
magnskostnaðar og óreglulegra liða
; er niðurstaðan sú sem að ofan er
j greint. Viðskiptavefúr VB á Vísir. is
sagði frá.
Góður hagnaður Baugs
Á árinu 1998 varð 510 milljóna kr.
hagnaður af starfsemi Baugs hf. fyr-
j ir skatta. Velta Hagkaups var 18,7
* mUljarðar.
Tölvufyrirtækí hækka
Tölvufyrirtæki hækkuðu talsvert
j í verði á Verðbréfaþingi Islands í
j gær. Skýrr hækkaði um 4,5% og var
j gengi bréfa Skýrr 8,5 og hefúr aldrei
j veriö hærra. Sama á við um gengi
! Nýherja sem var 13,5 og hækkaði
j því um 3,6% í gær. Viðskiptavefúr
* VB á Vísir. is greindi frá.
Hagnaður Járnblendis
Hagnaður af starfsemi íslenska
I jámblendifelagsins hf nam 285
j milljónum króna á sl. ári en var 394
milljónir 1997. Rekstrartekjur fé-
lagsins í fyrra námu 3.229 milljón-
j um króna miðað við 3.537 milljónir
Íárið áður. Lækkun rekstrartekna
milli ára er 308 milljónir kr. og
stafar hún af verðlækkun á kísil-
, jámi og framleiðslutapi vegna orku-
j skerðingar.
Nýr í Flugleiðastjórn
Á aðalfundi Flug-
leiða í gær kom
; fram kom í ræðum
Harðar Sigurgests-
sonar stjórnarfor-
manns og Sigurðar
í Helgasonar fbr-
j stjóra að rekstrar-
j árið 1998 heföi einkennst af miklum
;; sviptingum en jafnframt að seinni
j helmingur rekstrarársins 1998 hefði
j verið einn sá besti í sögu felagsins.
j Gunnar Jóhannsson framkvæmda-
stjóri var kjörinn nýr i stjóm Flug-
j leiða í stjóm Þorgeirs Eyjólfssonar
sem gaf ekki kost á sér tft endur-
j kjörs. Viðskiptavefúr VB á Vísir. is
j sagði frá.
Eggjaverð
Undanfarið hefur verið offram-
leiðsla á eggjum í landinu. Eggja-
framleiðendur hafa lækkað verð til
stónnarkaðanna og hafa óskað eftir
þvi að neytendur fái að njóta verð-
j lækkunarinnar. Stórmarkaðimir
j hafa ekki sinnt þessari ósk eggja-
! framleiðenda. Nesbúið á Vatns-
leysustömd hefur gefist upp á að fá
j stórmarkaðina til að lækka útsölu-
I verð til neytenda.
Öryrkjar vonsviknir
j Örykjabandalag
j íslands lýsir yfir
vonbrigðum vegna
j þeirrar myndar
sem forsætisráð-
herra hefur kosið
að draga upp af
i: kjörum öryrkja og
j að kjör þeirra séu almennt betri hér
en á hinum Norðurlöndunum. Stað-
j hæfingar þessar séu ekki aðeins
j ijarri öllum sanni heldur nægir að
vísa í sömu skýrslu til að sjá hver
1 fráleitur málflutningur hér er á ferð
; segir í ályktun ÖBÍ. -ÍBK
MMMnMMMMMMMNNMMSUMMMMMMMI