Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1999, Síða 45
LAUGARDAGUR 20. MARS 1999
litanic-æðinu haldið við
; Fyrir þá sem hafa ekki enn feng-
ið nóg af Titanic-æðinu; kvikmynd-
| inni, bókunum og Leonardo
DiCaprio, eru það sjálfsagt góðar
fréttir að um miðjan apríl verður
opnað heljarmikið safn um Titanic
í Orlando í Flórídaríki. Safnið, sem
! kallast einfaldlega „Titanic -
j draumaskipið" verður við
Intemational Drive sem er einhver
flölsóttasti ferðamannastaður Or-
! landoborgar.
! Á safninu, sem nær yfir 2300 fer-
metra svæði og kostaði sjö milljón
dollara, verður að finna 200 hluti af
skipinu, þar á meðal björgunai'-
j vesti og farþegalista. Þá verða þar
| ýmsir hlutir úr kvikmyndinni, svo
sem einn af búningunum sem
DiCaprio klæddist. Reiknað er með
að ekki færri en ein milljón manna
muni leggja leið sína í safnið á
fyrsta starfsári. Reynt verður að
láta gestum finnast þeir vera raun-
verulegir farþegar í skipinu, gaml-
ar skipsflautur verða þeyttar og að
sjálfsögðu verður stiginn glæsilegi
á sínum stað.
í fótspor frelsarans
ísraelsmenn eru komnir á fulla
ferð að undirbúa komu nýs árþús-
unds. Meðal framkvæmda þar í
landi er bygging palls á Galíleu-
vatni. Tilgangurinn er að bjóða
pílagrímum aö ganga á vatni á
sama stað og Kristur fyrir tvö þús-
und árum. Pallurinn verður fimm
sentímetra undir yfirborðinu
þannig að fólk ætti að fá á tilfmn-
inguna að það geti gengið á vatni.
Pallurinn verður 100 metra lang-
I ur og fjögurra metra breiður. Hann
8 á að geta borið um fimmtíu manns
|jí einu og verða öryggisverðir á
I staðnum ef menn detta útbyrðis.
I Ferðaþjónustuaðilar leggja þó
1 áherslu á þeir séu ekki að þessu til
!" þess að græða heldur miklu frekar
að leyfa fólki að setja sig í spor
Krists.
Búist er við að minnsta kosti
: fjórum milljónum pílagríma til
. landsins helga árið 2000 og allflest-
ir munu væntanlega leggja leið
sína til Galíleuvatns.
Göngusumar
endurtekið
Félag atvinnulífsins í Grundar-
firði hefúr óskað eftir því við sveit-
arstjóm Eyrarsveitar að fá að hafa
umsjón með hátíðarhöldunum Á
góðri stund í Grundarfirði sem fara
eiga fram dagana 23. til 25. júlí næst-
komandi.
Hátíðarhöldin verða með svipuð-
um hætti og í fyrra og verður ýms-
um aðilum falið að sjá um dagskrár-
liði. Miðpunktur hátíðarinnar verð-
ur á laugardeginum, eins og í fyrra,
en gert er ráð fyrir að hátíðin teygi
anga sína frá fostudegi til sunnu-
dags.
Göngusumar á Grundarfirði verð-
ur einnig endurtekið en í fyrrasumar
tók fjöldi manns þátt í skipulögðum
gönguferðum. Fyrsta gönguferðin var
á Klakk á Jónsmessunótt. Nú vinnur
nefnd á vegum Félags atvinnulífsins
aö því að merKja allar helstu göngu-
leiöir í Eyrarsveit. -DVÓ
férðir 57*
Ferðaáætlun Ferðafálags íslands 1999:
Tæplega 300 ferðir í boði •
Ferðaáætlun Ferðafélags íslands
fyrir árið 1999 er komin út. í ár er
boðið upp á tæplega þrjú hundruð
ferðir um ísland.
í áætluninni eiga allir að finna
ferðir við sitt hæfi, en í boði eru
dags- og kvöldferðir og helgar- og
sumarleyfisferðir. Bæði er um að
ræða ferðir fyrir þá sem vilja
stunda útiveru og náttúruskoðun
með auðveldum gönguferðum, til
dæmis fyrir fiölskyldufólk, og ferðir
fyrir þá sem vilja leggja á sig meira
erfiði.
I ferðaáætluninni eru auk ferða
Ferðafélags íslands, kynntar ferðir
nokkurra deilda félagsins, Ferðafé-
lags fiarðamanna Austfiörðum,
Ferðafélags Akureyrcir, Ferðafélags
Fljótsdalshéraðs, Ferðafélags Aust-
ur-Skaftfellinga og Ferðafélags
Svarfdæla.
Ferðir Ferðafélagsins eru öllum
opnar en félagsmenn fá afslátt í
helgarferðir og lengri ferðir sem
gildir einnig fyrir maka og börn.
Dagsferðir í Þórsmörk og Land-
mannalaugar eru þó undantekning;
í þær er frítt fyrir böm og unglinga
15 ára og yngri í fylgd með foreldr-
um. Göngumiðar eru í dagsferðum
þar sem félagar í Ferðafélagi íslands
fá fría ferð ef þeir safna tíu miðum.
Fornar þjóðleiðir,
svæðakynning og
fræðsluferðir
í byrjun ársins er mest áhersla
lögð á stuttar gönguferðir, skíða-
göngur og námskeið,
m.a. í skíðagöngu.
Af nýjungum í dags-
ferðunum má nefna 18
ferða syrpu þar sem
kynntar eru þjóðleiðir á
Suðvesturlandi, og
kynningu á náttúrufari
og sögu landsvæðis í ná-
grenni Hafnarfiarðar,
en þær kynningarferðir
eru í samvinnu við Um-
hverfis- og útivistarfé-
lag Hafnarfiarðar.
Áfram verður sam-
vinna við Skógræktarfé-
lag íslands irni skógar-
göngur og verða þær á
fimmtudagskvöldum í
sumar. Samvinna verð-
Frá Landmannalaugum.
Frá Þórsmörk.
ur við Náttúrufræðifélagið um
fræðsluferðir.
Árlegur göngudagur Ferðafé-*^
lagsins verður 20. júní en einnig
verða þrír göngudagar í samvinnu
við Spron og ber þar að nefna Esju-
dag 6. júní.
í samvinnu við Dalamenn mun
Ferðafélagið byrja á því að beina
sjónum sínum að söguslóðum í
Dölum og víðar í tilefni landa-
fundaafmælis á næsta ári. M.a. •
verða dagsferðir 19. júní og helgar-
ferð 26.-27. júni um söguslóðir í ;
Dölum.
Góðir veitingastaðir, kaffihús og öfl-
ugt tónlistarlíf hefur löngum þótt
einkenni Vínarborgar.
Ferðaskrifstofa Guð-
mundar Jónassonar hf.:
Vorferð til
Vínarborgar
í vor verður farið í skipulagða
ferð á vegum Ferðaskrifstofu Guð-
mundar Jónassonar til hinnar fögru
og glæsilegu Vínarborgar, nánar til-
tekið dagana 12. til 15. maí næst-
komandi. Um beint leiguflug er að
ræða en flogið verður með flugvél-
um Flugleiða.
Vin er höfuðborg Austurríkis og
íbúar borgarinnar eru um 1,5 millj-
ónir. Vín er ein helsta menningar-
borg Evrópu og á sér mikla og
merkilega sögu. Líflegir veitinga-
staðir, góð kaffihús og blómlegt tón-
listarlíf einkennir borgina.
Fararstjóri í ferðinni verður Emil
Örn Kristjánsson og boðið verður
upp á skoðunarferð um borgina.
Saga Vínar nær tvö þúsund ár aftur
í tímann þegar Keltar réðu þar ríkj-
um. Uppgangur borgarinnar hófst á
13. öld þegar hún varð höfuðborg
Habsborgaranna. Á miðöldum risu
hallir, dómkirkja og háskóli í borg-
inni sem áhugavert er að skoða.
Frægar hallir eru til dæmis
Belvedere og Schönbrunn, sem eru
umkringdar glæsilegum lystigörð-
um og þykja einhverjar glæsileg-
ustu bcirokkhallir Evrópu. Þá verð-
ur að sjálfsögðu staldrað við i einu
helsta kennileiti borgarinnar, Stef-
ansdom eða Kirkju heilags Stefáns,
en turn hennar sést víða að í borg-
inni.
Skítt með hana“
- Steingrímur J. Sigfússon í opnuviðtali Dags
Áskríftarsíminn er
Hver hlýtur
Óskarinn?
Merkileg
fjölskyldusaga
Veiðiparið
Fluguveiði, krossgáta,
matargatið, bókahillan, bíó, o.m.fl.