Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1999, Blaðsíða 8
LAUGARDAGUR 20. MARS 1999 PlV
sælkerinn
Karl B. Örvarsson kjötlistamaður:
Krækiberjalæri með hunangsgljáð-
um kartöflum og ávaxtasalati
Karl B. Örvarsson, framkvæmda-
stjóri Gallerý Kjöts, er sælkeri
þennan laugardaginn. „Þar sem
styttist í páska langar mig aö gefa
ykkur uppskrift að kræki-
berjalambalæri sem er ein af mín-
um uppáhaldssteikum," segir Karl.
„Þessi réttur er einfaldur í eldun og
síðast en ekki síst meiri háttar góð-
ur og sómir sér vel á hvaða veislu-
borði sem er.“
Lærið
Krækiberjalambalæri (fæst í Gall-
erý kjöti)
lambakryddblanda Jónasar Þórs
bláberjasulta
Lærið er smurt meö sultunni og
krydda. Þið byrjið á því að brúna
lærið í ofni við ca. 200’ í 10-12 mín-
útur.
Lækkið hitann i ofninum í 100-
110" og steikið í ca. 60 mínútur (not-
ið endilega kjöthitamæli og farið
með kjamhita í 70°.
Sósan
lambasoð (lambakraftur soðinn
upp í vatni)
rjómi
rifsberjahlaup
gráðaostur
sósujafnari til þykkingar
Nykaup
l’tir st’in fcrsklcikiim hyr
Romm- og
rúsínuísteita
- dálítinn tíma tekur
að gera ístertuna sem
er einstaklega góð
Botn
1 stk. eggjahvíta
1 msk. sykur
35 g möndlur
35 g sykur
1 tsk. kakó
ís
2 stk. egg
70 g sykur
2 1/2 dl rjómi
2 msk. romm
50 g rúsínur
Hjúpur
200 g suðusúkkulaði
2 msk. matarolía
3 msk. möndluspænir
Eggjahvítur og sykur eru
þeytt vel saman, möndlurnar
eru hakkaðar vel og blandað út í
ásamt sykri og kakói. Smyrjið út
eftir stærð hringformsins og
bakið við 180'C í 10-12 mín.
ís
Egg og sykur er þeytt vel sam-
an. Blandið svo þeyttum rjóman-
um saman við. Gott væri ef rús-
ínumar væru búnar að liggja í
romminu yfir nótt. Þeim er svo
blandað saman viö rjómann.
Frystið í forminu yfir nótt.
Bræðið súkkulaðið og olíuna
saman og blandið spónunum
saman við. Losið hringinn af
ísnum og hjúpiö strax og látiö
storkna. Berið svo fram. Ekki er
nauðsynlegt að bera fram sósu
með tertunni._______________
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem allt hráefni í
þær fæst.
Bætið hlaupinu og ostinum út í
soðið og látið sjóða við vægan hita í
ca 5 mínútur. Bætið rjómanum og
út í og látið suðuna koma aftur upp
og þykkið með sósujafnaranum.
Ávaxtasalat
Karl er mikill sælkeri og birtist það eðli hans á sannfærandi hátt í uppskrift-
unum sem hann gefur okkur. DV-mynd E.ÓI.
matgæðingur vikunnar
1/4 1 þeyttur rjómi
2 msk. sýrður rjómi
2 msk. appelsínuþykkni
3 epli
15 steinlaus vínber, skorin í
tvennt
sellerí
valhnetur
Þeytið rjómann (ekki stífþeyta).
Blandið sýrða rjómanum saman við
og bætiö í appelsínuþykkni. Setjiö
eplin, vinberin og selleríiö út í
rjómann og stráið vanhnetukjörn-
unum yfir.
Hunangsgljáðar
kartöflur
forsoðnar parísarkartöflur
sykur
hunang
smjör
Bræðið sykur á pönnu og bætið
smjörinu út í. Setjið kartöflumar á
pönnuna og í lokin hunangið. Brún-
ið í 5-10 mínútur á miðlungs hita.
Guðný Kristjánsdóttir hristir þríráttaða máltíð fram úr erminni:
Guðný Kristjáns-
dóttir, ræstingastjóri á
Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur, er matgæðingur
vikunnar að þessu
sinni og uppskriftim-
ar eru kræsilegar; þrí-
réttuð máltíð.
Kjúklingapasta
Forréttur
Sveppasúpa
250 g ferskir sveppir
I lítill laukur
50 g smjör eða smjörlíki til steikingar
3 msk. hveiti
II kjötsoð (vatn + teningar)
1 tsk. salt
1/2 tsk. pipar
2 dl ijómi
smávegis koníak eða sérrí
2 eggjarauður
150 g rækjur
kryddsalt (Season All)
steinselja til skrauts
Sveppir og laukur saxað smátt og
steikt í potti
Setjið hveitið út í og síðan kjötsoðið
smám saman og hrært vel í á meðan
kryddið með saltinu og pipamum látið
sjóða létt í 3-4 min.
Hellið rjómanum saman við og bragð-
bætið með koníakinu eða sérríinu.
Hrærið eggjarauðumar með dálitlu af
heitri súpunni og hellið varlega saman
við. Súpan má ekki sjóða eftir að rauð-
umar em komnar saman við. Bragðbæt-
ið með kryddsalti og setjið rækjumar út
í.
Smátt skorinni steinselju sáldrað yfir
til skrauts.
Aðalréttur
Kjúklinga-pasta
6 kjúklingabringur, skomar í strimla
200 g niðurskomir sveppir
eitt hvítlauksrif, smátt skorið
1 dl ijómi
100 g rjómaostur
steinselja eftir smekk
salt / pipar
11/2 ausa kjötsoð
parmeasanostur rifinn
tagliatelle, ca 500 g
Kjúklingabringumar steiktar á pönnu,
sveppum bætt í og síðan hvítlauk og
steinseljunni. Kjötsoðinu og ijómanun
bætt saman við og suðan látin koma ró-
lega upp og soðið í nokkrar mínútur.
Rjómaostinum bætt út í smám saman og
kryddinu. Borið fram með parmeasa-
nosti og snittubrauði
Eftirréttur
Ferskt ávaxtasalat í kryddlegi
Kryddlögur
börkur af hálfr i sítrónu
1 dl vatn
3 msk. sykur
1 kanelstöng
2 heilar kardimommur
2 dl hvítvín eða eplasafi
Setjið vatnið í pott, bætið rifhum
sitrónuberkinum, sykri, kanelstöng-
inni og afhýddum heilum kar-
dimommunum út í. Hitið að suðu.
Sigtið kryddlöginn og bætið eða
eplasafanum út í. Kælið.
Ávextir
2 dl vínber
2 perur
jarðarber, mandarínur eða |
aðrir ferskir ávextir að eigin
ósk.
Skerið vínberin í tvennt og
fjarlægið steinana. Skerið perur,
jarðarber og mandarinur í fremur
grófa bita. Setjið allt í skál.
Hellið kaldri kryddblönduninni yfir
brytjaða ávextina og kælið vel.
Krem
2 eggjarauður
1 msk. sykur
11/2 msk ijómi
2 tsk. vanillusykur
Þeytið eggjarauðumar með sykrinum
þar til það er ljóst og létt. Þeytið ijómann
og biandið varlega saman við ásamt
vaniilusykri.
Guðný skorar á Nínu Ei-
ríksdóttur, verkstjóra
JÉ. hjá ræstingadeild
Sjúkrahúss Reykja-
víkur. Guðný segir
að Nínu sé margt
% til lista lagt og að
hún sé snögg að
framreiöa veislu-
kost.
Guðný gefur okkur meðal annars
uppskrift að fersku ávaxtasalati f
kryddlegi. DV-mynd E.ÓI.
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni i þær fæst.
bmmmrnmmmmmmiMmmmmmmmmmmm
hvitlauk, flysjið
kartöflur og skerið í sneiðar.
Léttsteikið lauk og hvítlauk í
olíu, brúniö ekki. Bætið
kjúklingasoði og kartöflum á
pönnuna og sjóðið 130 mínútur.
Sett í matvinnsluvél og mauk-
að. Borið fram með heilum eða
söxuðum kóríanderlaufum.
250 g kartöflur
4 stk. hvítlauksrif
200 g laukur
4 msk. ólífuolía
1 1/2 1 kjúklingasoð (vatn og
3 Knorr-teningai-)
6-8 msk. kóríanderlauf
Saxið lauk og
Lambastrimlar í
sætri sojasósu
Fyrir 4
meti
bætt á pönnuna og steikt áfram
í tíu mínútur. Bætið síðan
sojasósu og kjúklingasoði á
pönnuna ásamt heilum sér-
rítómötum og kórianderlauf-
um. Látið suðuna koma upp og
berið fram strax.
Meðlæti
Berið fram með soðnum hrís-
grjónum. Sjóðið skv. leiðbein-
ingum á pakka.
Kartöflu- og
kóríandersúpa
Fyrir 4
600-800 g beinlaust lambakjöt
3 msk. matarolía
salt og pipar
grænmetisblanda í
sojasósu
200 g ferskt spínat
1/2 blaðlaukur
200 g spergilkál, ferskt eða
fryst
100 g sérrítómatar
3 dl kjúklingasoð (vatn og 1/2
Knorr-teningur)
1 dl sojasósa, sæt
1 msk. kóríanderlauf, söxuð
Meðlæti
200-250 g hrísgrjón
Skerið kjötið í strimla.
Snöggsteikið í heitri olíu,
bragðbætið með salti og pipar.
Eftir eina mínútu er söxuðu og
gróft skornu græn-
Nykaup
Þarsem ferskleikinn býr