Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1999, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1999, Side 34
LAUGARDAGUR 20. MARS 1999 34« yiðtal Forsætisráðherrann vill ráttláta gagnrýni, ekki væmna jámenn: Forsætisráðherra landsins kemur á slaginu fjögur í Ráðherrabústaðinn ásamt aðstoðarmanni sínum til að tala við DV. Davíð Oddsson virðist á góðu flugi með flokk sinn og þjóðarbúið og hann leikur á als oddi, ný- búinn að fá yfirgnœfandi stuðning flokkssystkina sinna eftir friðsaman lands- fund Sjálfstœðisflokksins, og ekki virðist þjóðarbúið illa haldið. Eftir sársaukafullar myndatökur er sest niður við viróulegt sófaborð í stíl Lúð- víks fjórtánda, dekkað kín- versku hefðarpostulíni. Kaffi- og tedrykkja hefst og við hefjum spjalliö í þessu fal- lega húsi Ellefsens hvalfang- ara sem forðum stóð á Flat- eyri og var flutt til Reykja- víkur eftir að Hannes Haf- stein keypti það á eina krónu. Davíð viðurkennir í spjalli okkar að í sér eigist við tveir kallar, stjórnmálamaðurinn og listamaðurinn. Hann kvartar ekki undan því sam- býli, segist ekki taka sig mjög hátíðlega sem listamað- ur og rithöfundur. Hann reyni hins vegar að vanda sig sem mest við ritstörfin og að árangurinn hafi eflaust verið misgóður eins og geng- ur. Á nýliðnum landsfundi mátti heyra á ýmsum að þeir óttuóust að Davíð hœtti senn í pólitík og sneri sér að rit- lÍStinni. „Ég gæti vel hugsað mér að hætta í pólitík og fara að sinna ritstörfum, en það eru engin plön um slíkt,“ sagði Davíð. „Maður sér að menn eru stundum að hætta of seint,“ seg- ir Davíð, 51 árs. - Þú værir varla byrjaður í Heimdalli ef þú værir í Kína, leggj- um við til. „Þú segir nokkuð. Það er reyndar víða í Evrópu sem menn byrja seint, til dæmis Kohl. Churchill sá ég í lexíkoni frá 1935 þar sem hann var sagður fyrrverandi stjómmálamað- ur.“ - En ef þú mundir hætta þetta ungur, mundirðu kannski vilja taka við hefðbundnu eftirstjórnmálastarfi í lok ferilsins: sendiherra, banka- stjóri eða forseti íslands? „Forsetaembættið er setið og þarf ekki að hafa áhyggjur af því. Ég hugsaði um það starf og komst að þeirri niðurstöðu að ég hentaði ekki í starfið né heldur starfið mér. En sendiherra eða bankastjóri? Nei, ég hugsa ekki um slíkt.“ Heillastjarna Davíðs - Ágætur sjálfstæðismaður orðaði það svo að Davíð Oddsson hlyti að vera fæddur undir heillastjörnu. Svo vel gengi allt sem hann kæmi ná- lægt. Ertu sérstakur lánsmaður, Davíð? „Þegar ég horfi til konunnar minnar flnnst mér að ég sé það. En í pólitíkinni hefur þetta verið upp og ofan. Ég féll með félögum mínum í borgarstjóm 1978 og var ekki bein- línis kátur yfir því. Annað hefur gengið betur.“ - Hvernig tilfmning er það að koma frá landsfundi með það sem kallað er rússnesk kosning? Er það ekki beinlínis hættrdegt að vera svona virtur og dáður? „Já, ég fékk 97,27% atkvæða, svo maður sé nákvæmur," segir Davíð „Ég er kannski nokkuð minnugur en tel mi er sagt að menn eigi ekki að teyga bik£ dreggjarnar kunni að vera varasamar. Ég því.“ C en ég man vel 1982, þá var ég í minni- hlutanum, en skemmti mér þó kon- unglega." - En sérðu þig fyrir þér sem fagráð- herra í ríkisstjóm Jóhönnu Sigurðar- dóttur, fari svo að Framsóknarflokk- urinn fari halloka i kosningunum? „Nei, ég sé það ekki fyrir mér. Sam- starf okkur Jóhönnu hefur reyndar verið ágætt og reyndar var samstarf hennar við mig stundum betra en við aðra einstaklinga i ríkisstjóminni, og þá er hennar gamli flokkur meðtal- inn. Það er mjög gott á milli okkar Jó- hönnu." Fann ekki upp góðærið - Davíð, menn taia mikið um góð- ærið...“ „Ég tala nú ekki mikið um það. Ég nota þetta orð ekki sjálfur, ég hef sagt að okkur gangi betur en fyrr og að við séum á réttri leið. Kannski hef ég not- að orðið einu sinni eða tvisvar í ógáti." - Og þó segja margir að þú hafir fundið upp góðærið sem hafi ekki skilað sér til alira? „Ekki fann ég það upp en varðandi þetta má benda á að allar tölur sýna að sá ábati sem orðið hefur í þjóðfé- laginu hefur skilað sér til allra. Það sem öryrkjar og aldraðir era að segja er að þó þeir hafi á 3-4 árum fengið 15-17 prósenta kaupmáttaraukningu, sem er það mesta sem orðið hefur, þá unni minni. Og hundin- um mínum, honum Tanna, má ekki gleyma," segir Davíð og hlær við. Einhver fann út að Tanni væri besti ráðgjafi húsbónda síns. Davíð segir Tanna við góða heilsu - en kom- inn á eftirlaun. - Er ekki hættulegt fyrir forsætisráðherra að hafa eintóma já- menn í kringum sig? „Hann hefur það nú ekki. Ég get nú nefnt einn góðan mann sem farinn er, vin minn Magnús Óskarsson. Sá lét mig nú aldeilis heyra það ef honum lík- aði ekki það sem ég var að gera. En hann varði mig út í frá. Magnús var mikill Ráðhússand- stæðingur í hjarta sínu þegar við vorum að byggja húsið. Hann mátti samt ekki heyra orðinu hallað á þá framkvæmd, þá rauk hann í andstæðinginn. En mig barði hann auð- vitað eins og harðfisk fyrir alla þessa vitleysu sem hann kallaði. En það er misskilningur að í kringum mig séu ein- tómir jámenn. Ég á það til að rífast við vini mína af hörku en ég hlusta líka á þá og tek mark á þeim. Ég þoli gagnrýni alveg þokka- lega vel, vona ég, en leiðist illkvittni, líka það að lesa um mig sög- ur og frásagnir, til góðs og ills, sem ég kannast ekki við. Eins finnst mér óþægilegt að vera hampað um of, ekkert síður en þegar á mig er hallað á ósanngjarnan hátt. Ég hef ekki alltaf sömu skoðun og aðrir á eigin ágæti.“ fyrir manni þá. Þetta hefur ef- laust lagast." - Störf borgar- stjóra og forsætis- ráðherra eru auð- vitað gjörólík: „Alveg gjöró- lik. Bæði Gunnar Thoroddsen og Geir Hallgríms- son sögðu hvor í sínu lagi að ég skyldi vera borg- arstjóri eins lengi og ég gæti, það yrði skemmtileg- asti tíminn sam- kvæmt þeirra reynslu. En mér hefm- líkað vel við bæði störfm." með sinn kankvísa svip. „Ég held að ég hafi verið látinn njóta þess að fólk var ánægt með fundinn, ekki endi- iega að ég sé svo virtur eða dáður. Á síðasta landsfundi var ég með 90% fylgi og fannst það gott, þar áður með 78 og þar áður 52. Það hefur ver- ið stígandi í þessu og ég kemst varla hærra. En ég vil ekki segja að þetta séu rússnesk kosningaúrslit því Rússar voru að kjósa undir byssu- stingjum." - En þarna voru náttúrlega 2,73% landsfundargesta ekki að kjósa þig-v? „Ég hafði nú ekki hugleitt það...,“ segir Davíð og hlær dátt. - Það er sagt að þú sért góður vin- ur vina þinna en óvinur óvina þinna. Ertu langrækinn? „Ég vona að það fyrra sé rétt en ekki það síðara. Ég er kannski nokk- uð minnugur en tel mig ekki lang- rækinn. Það er sagt að menn eigi ekki að teyga bikar hefndarinnar i botn, dreggjarnar kunni að vera varasamar. Ég vona að ég gæti mín á því.“ Jámenn og ráðgjafar - Ýmsir eru nefndir til sögu sem helstu ráð- gjafar þínir? Hverjir eru þetta? „Þegar vel gengur vil ég nefna sem flesta en ef illa gengur sakast ég bara við sjálfan mig. En það er fjöldi manna sem ég tala við, misjafnt eftir því hvað um er að vera. Ég hef mitt fólk í ráðuneytinu og félaga mína í flokknum og hóp þar að auki sem ég ræði við, og ekki má gleyma kon- „Ég þoli gagnrýni alveg þokkalega vel, vona ég, en leiðist illkvittni, líka það að iesa um mig sög- ur og frásagnir, til góðs og ills, sem ég kannast ekki við. Eins finnst mér óþægilegt að vera hampað um of, ekkert síður en þegar á mig er hallað á ósanngjarnan hátt.“ Ekki í eina sæng með Jóhönnu, takk! Talið berst að hugsanlegum niður- stöðum kosninganna i vor. „Ég get séð það fyrir mér að ef hér yrði vinstristjóm með Samíylkingu og Framsóknarflokknum, við einir í stjómarandstöðu, þá væri þetta í lagi. Taktu eftir að engin vinstri sfjóm hef- ur setið heilt kjörtímabil. Ég sækist ekki eftir að vera í stjórnarandstöðu Leiklist aagnast stjórnmálamanni Davíð var um tveggja vetra skeið leiklistarnemi hjá Ævari Kvaran. „Þetta nám hefur gagnast mér mjög mikið sem stjórnmálamanni og hefði gagnast mér hvar sem væri, til dæm- is við lögfræðistörf. Mér hættir til að tala afar hratt en vegna leiklistar- námsins kann ég að laga það en verð að beita mig aga til þess. Mér líður ekki illa á sviði, allir eru reyndar með sviðsskrekk og ég flnn fýrir honum, það era bara bjánar sem hafa hann alls ekki. En þetta nám og að kynnast starfinu í Leikfélagi Reykjavíkur hefur allt hjálpað mér, enginn vafi á því.“ - Þú hefur eignast landsföðurlegan tón, er það afleiðing af leiklistarnám- inu? „Ef það er rétt þá gerist þetta með árunum, menn spekjast og eru ekki lengur uppnæmir fyrir smámunum. Það var gauragangur í mér er ég var ungur borgarstjóri, 34 ára gamall, það fór talsvert

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.