Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1999, Síða 44
LAUGARDAGUR 20. MARS 1999 JD*1 íT
Það á
ekki af Bar-
bie að
ganga þessa
dagana.
Hún er rétt
byrjuð að
fagna fer-
tugsafmæl-
inu þegar
henni er
gert að rýma húsnæði sitt. Hinu
fræga Barbie-safni í Palo Alto í
Kalifomíu hefur nefnilega verið
úthýst og gert að loka ekki seinna
en um miðjan aprU. Á safninu er
að finna hvorki meira né minna en
21 þúsund eintök af dúkkunni
frægu og eins og vænta má var bú-
ist við miklum fjölda gesta vegna
stórafmælisins. Safnið hefur verið
í miðborg Palo Alto i fimmtán ár
en verður nú að víkja fyrir veit-
ingastað. Hvert og hvort safnið lif-
ir áfram er enn óljóst og Barbie-að-
dáendur verða að vera snarir í
snúningum og sækja safnið áður
en Barbie verður heimilUaus, að
minnsta kosti um stundarsakir,
þann 15. aprU næstkomandi.
Bretar ætla á toppinn
Bretar búast við að ferðamönn-
um muni fjölga um tvær milljónir
á næsta ári vegna hátíðarhaldanna
við upphaf nýs árþúsunds. Síðast-
liðinn föstudag settu stjórnvöld
fram nýja áætlun sem er ætlað að
koma Bretum í fyrsta sæti ferða-
mannaiðnaðarins. Ferðamanna-
iðnaðurinn er einn af stærri at-
vinnuvegum landsins, veitir 175
þúsund manns vinnu og veltir 53
milljörðum punda á ári hverju. Á
síðasta ári heimsóttu rúmar 25
mUljónir ferðamanna Bretland og
það var í fimmta sæti yfir vinsæl-
ustu löndin. Á undan komu Banda-
ríkin, Frakkland, Spánn og Ítalía.
I
1 1
Hjólreiðar árið 2000
Hjólreiðamenn geta hugsað sér
gott tU glóðarinnar því á Jóns-
messu árið 2000 verður opnuð 5000
kUómetra hjólreiðaleið þvert yfir
England. Um er að ræða sérhann-
aðar brautir þannig að hjólreiða-
menn geti ferðast áhyggjulaust.
Þetta mun þó aðeins byrjunin á
gerð nets hjólreiðabrauta á
Englandi. Með þessu vUja Bretar
bjóða ferðamönnum næstu aldar
upp á fullkomna og umhverfis-
væna leið tU að ferðast um landið.
Nánari upplýsingar um hjólreiða-
netið er að finna á slóðinni
sustrans.org.uk á Netinu.
Meiri hætta á hjarta-
áfalli
Ferða-
mönnum
sem
koma tU
New
York er
34% hættara við hjartaáfalli en ef
þeir hefðu farið til annarra borga
Bandaríkjanna. Þetta kemur fram
í nýrri rannsókn sem var unnin
við Kalifomíuháskóla í San Diego.
Heimamenn í New York eru
einnig í hættu, en 55% meiri líkur
eru á að þeir fái hjartaáfaU en fólk
í öðrum borgum. Áhættan minnk-
ar hins vegar um 20% um leið og
New York búinn yfirgefur borgina.
Ekki kemur fram í niðurstöðum
rannsóknarinnar hvað veldur, en
streita er talin liklegasta skýring-
in. í rannsókninni var tekið mið af
öllum hjartaáfóllum sem leiddu tU
dauða í New York á einum áratug.
Alls létust 44 þúsund ferðamenn af
völdum hjartaáfaUs á þeim tíma og
tala borgarbúa var svipuð.
Aspen í Klettafjöllum Coloradoríkis:
Skíðastaður sem slær öllu við
Skfðabrekkurnar í Aspen eru breiðar og skíðað er í skógi.
DV-myndir GVA
Neðstu lyfturnar á Snowmass-skíðasvæðinu. Stólarnir taka fjóra farþega og
sjaldan myndast biðraðir. Upp með fjallinu má greina hvernig brekkurnar
kvíslast í allar áttir. Lyfturnar í Aspen eru á móti sólu þannig að fólk sólar sig
á leiðinni upp.
í byrjun mánaðarins tók u.þ.b. 30
manna hópur íslendinga sig upp og
hélt tU Aspen í Coloradoríki í Banda-
ríkjum. Ferðin var á vegum ferða-
skrifstofunnar Úrvals-Útsýnar sem
hefur undanfarin tvö ár skipulagt
hópferðir til skíðasvæðanna í Áspen.
Flogið var til Minneapolis en þaðan
er síðan tveggja og hálfs tíma flug til
Aspenflugvallar sem er i aðeins tíu
mínútna flarlægð frá hótelinu.
Tilhlökkunin var mikil hjá hópn-
um enda Aspen eitt frægasta skíða-
svæði heims, auk þess að vera með-
al þeirra stærstu.
Það er heillandi andrúmsloft i
þessum gamla silfurnámubæ sem
mætir ferðamönnunum strax við
komuna. Um sex þúsund manns búa
í bænum og hafa atvinnu sína af
ferðamennsku. Það er reyndar ekki
há tala miðað við fjölda gesta en þús-
undir skíðamanna dvelja jafnan í
bænum.
íslendingarnir dreifðust á nokkur
hótel en undirritaöm- bjó á St. Morr-
is Lodge sem býður einfalda gistingu
og var vel staðsett. Hótelin standa
við jaðra skíðasvæðisins og fólk get-
ur valið um að ganga að morgni dags
í neðstu lyftur Aspen Mountains eða
taka strætisvagn yfir á önnur svæði.
Skíðapassinn gildir í allar lyftur og
að auki í strætistvagnana. Margt
fleira er innifalið í skíðapassanum,
s.s. vatn og drykkir, sólarvörn og
ýmislegt sem er á vatnsbörunum
víðsvegar í fiöllunum.
Kennsla í lausamjöll
Eitt af því sem greinir Aspen frá
öðrum skíðasvæðum er hversu hátt
staðurinn er yfir sjávarmáli. Bærinn
sjálfur er í 2400 metra hæð yfir sjáv-
armáli og hæsta lyftan fer í 3607
metra hæð. Háloftaveiki gerir stund-
um vart við sig hjá nýkomnum
skíðamönnum en bæjarbúar hafa
ýmis ráð við því. Þegar skíðamenn
koma á toppa fiallanna eru þeim til
að mynda alltaf boðnir drykkir:
cider, kakó eða vatn ásamt kexi. Það
er mikilvægt að drekka allt að tvo
lítra á dag til að sporna við hálofta-
veikinni. Djúsbarirnir eru einkenn-
andi fyrir þá miklu þjónustu sem
veitt er hvarvetna á svæðinu. Þjón-
ustan er hreint einstök á öllu svæð-
inu og alls staðar starfsmenn reiðu-
búnir að aðstoða fólk við hvaðeina.
Gott dæmi um góða þjónustulund
var til dæmis einn morguninn þegar
hópurinn var kominn á toppinn og
ljóst að mikil lausamjöll var í fiall-
inu. Þá kom rauðklæddur starfsmað-
ur svæðisins og bauð okkur ókeypis
kennslu í skíðamennsku í lausa-
mjöll. Við sem fáum sjaldan tæki-
færi á íslandi til að skíða í slíku færi
höfðum mikið gagn af kennslunni og
lærðum nýja og skemmtilega hluti.
Biðraðir fátíðar
Framan af degi í Aspen er dag-
skráin ekkert ósvipuð því sem ger-
ist á skíðasvæðum Evrópu. Menn
leggja venjulega í hann um hálfníu-
leytið og koma aftur í hús um fiög-
urleytið.
Skíðabrekkurnar eru víðáttu-
miklar og oftast umkringdar skógi.
Skíðasvaeðin einkennast af mikilli
leiðsögn sem sést til dæmis vel á
Merkingar og vegpóstar eru afar
fullkomnir í Aspen. Hægt er að lesa
sér til um hvaðeina sem lýtur að því
að eiga vel heppnaðan dag t skíða-
brekkunum.
fiölda merkinga og vegpósta víðs
vegar í fiöllunum. Hægt er að lesa
sér vel til áður en lagt er af stað nið-
ur, auk þess sem menn geta nálgast
leiðakort á ýmsum stöðum. Biðrað-
ir í lyftur eru fátíðar nema kannski
fyrst á morgnana. Fjölbreytnin er
gríðarleg en á skíðasvæðunum fiór-
um sem umkringja Aspen eru 270
kílómetrar af merktum skíðaleiðum
og 45 lyftur sem geta flutt 20 þúsund
manns á klukkustund. Sérútbúin
svæði eru fyrir
snjóbrettafólkið,
þar sem hægt er að
leika listir sínar á
hólum og hæðum.
Á einu svæðinu
eru brettin alveg
bönnuð en annars
staðar eru þau í
bland. Þá er víða
að finna góða veit-
ingastaði í fiöllrm-
um þar sem hægt
er að fá ágætan há-
degisverð fyrir 10
til 20 dollara.
Þingað í heita pottinum
Heitir pottar eru við hvert hótel í
Aspen og afar gott að svamla í heitu
vatninu eftir langan skíðadag. ís-
lendingarnir voru duglegir að nýta
sér pottana og daglega þinguðu
menn í pottinum og sögðu skíðasög-
ur.
Yfirbragð Aspen er nokkuð frá-
brugðið því sem menn þekkja á evr-
ópskum skíðastöðum þar sem Týr-
ólastemningin er allsráðandi á
kvöldin. Næturlífið er rólegra og
óþekkt til dæmis að menn stormi á
næsta pöbb í skíðaklossunum,
drekki bjór og stígi dans. Kvöld-
skemmtanir eru þó af ýmsum toga:
kvikmyndahús, tónleikar, veitinga-
barir að ógleymdum fiölda listgaller-
ía sem mörg eru opin fram eftir
kvöldi.
í Aspen er að finna yfir hundrað
veitingastaði og bari sem flestir eru
mjög góðir. Matur er ekki eins dýr
og ætla mætti og duga í kringum 70
dollarar fyrir hjón á dag. Þá er léttur
hádegisverður og kvöldverður inni-
falinn. Dýrtíð er miklu frekar að
finna i fiölmörgum verslunum bæj-
arins.
Bíka og fræga fólkið
Skíðaferð til Aspen er ógleyman-
leg og aðbúnaðurinn slær öflu við.
Skíðapassamir eru 20-30% dýrari en
i skíðabænum Vail sem er í nágrenn-
inu, enda vilja ferðaþjónustumenn í
Aspen laða að ríka og fræga fólkið.
Skíðabrekkurnar eru án vafa með
þeim aOra flottustu í heimi, þjónust-
an einstök og öU umgjörð eins og
best verður á kosið. Aspen hefur
löngum verið köfluð mekka skíða-
mannsins og eftir níu daga dvöl á
svæðinu er ekki annað hægt en að
taka heilshugar undir þau orð.
Hópurinn leggur af stað að morgni dags og stormar á næstu strætisvagna-
stöð. Nauðsynlegt er að muna eftir sólvörninni, skíðapassanum og pening-
um fyrir hádegisverði sem snæddur er á einhverjum fjallaveitingastaðanna.
-GVA
íslendingarnir nutu þess að liggja í heita pottinum
við St. Morris Lodge og segja skíðasögur að loknum
skemmtilegum degi í fjöllunum.