Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Page 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999
Afmæli
Sigurður Magnússon
Sigurður Magnússon, fyrrv. verk-
stjóri og fræðimaður, til heimilis að
Dröfn, Austurvegi 34, Seyðisfírði, er
níræður í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Þórarinsstaða-
eyrum í Seyðisfirði. Hann var miss-
erisgamall er hann fór í fóstur til
Sigurðar Jónssonar, útvegsb. og
hreppstjóra á Þórarinsstöðum, og
k.h., Þórunnar Sigurðardóttur hús-
freyju. Foreldrar hans fluttu hins
vegar til Vestmannaeyja árið 1915.
Sigurður stundaði nám við Al-
þýðuskólann á Eiðum 1928-30 og
nám við Lýðháskólann í Askov
1930-31. Þá fór hann á námskeið í
útvarpsvirkjun 1934 og öðlaðist rétt-
indi til útvarpsviðgerða.
Sigurður hélt unglingaskóla í
skólahúsi Seyðisfjarðarhrepps 1932
og á Þórarinsstöðum 1933-34, var
skólastjóri Barnaskóla Seyðisfjarð-
arhrepps 1938-39 og hafði unglinga í
timakennslu í Garði 1943 og í Vest-
mannaeyjum 1950. Þá var Sigurður
ráðsmaður á Þórarinsstöðum
1924-42.
Hann flutti síðan suður í Garð
þar sem hann vann hjá setuliðinu
og víðar við smíðar og múrverk.
Hann flutti til Vestmannaeyja 1944
og var starfsmaður Vestmannaeyja-
bæjar í þrjátíu ár, lengst af verk-
stjóri, en flutti síðan aftur til Seyð-
isfjarðar 1974 þar sem
hann hefur síðan búið.
Sigurður hefur safnað
miklu af þjóðlegum fróð-
leik, einkum síðari árin.
Hann hefur samið fjölda
ritgerða um sögulegt efni
sem einkum hefur birst í
Múlaþingi. í síðasta hefti
ritsins er m.a. að finna
ítarlega grein eftir hann
um Inga T. Lárusson tón-
skáld.
Það var einkum fyrir
ábendingar og athuga-
semdir Sigurðar að hin forna staf-
kirkja að Þórarinsstöðum fannst en
þar hafa nú staðið yfir umfangs-
miklar fomleifarannsóknir.
Sigurður var ritari Verkstjórafé-
lags Vestmannaeyja um árabil.
Hann söng með Karlakór Vest-
mannaeyja, hefur verið virkur
sjálfstæðismaður alla tíð, setið
landsfundi og starfað í ýmsum
nefndum bæjarfélagsins.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 27.11. 1937
Guðrúnu Jóhönnu Magnúsdóttur, f.
1.3. 1917, húsmóður. Hún er dóttir
Magnúsar Arngrímssonar og Helgu
Jóhannesdóttur er lengst af bjuggu í
Másseli í Jökulsárhlíð.
Börn Sigurðar og Jóhönnu em
Þómnn, f. 22.1.1938, hjúkrunarfræð-
ingur í Garðabæ, gift
Finni Jónssyni verkfræð-
ingi og eiga þau íjögur
börn; Magnús Helgi, f.
29.6. 1947, bifvélavirki og
vélsmíðameistari á Borg
í Grímsnesi, var kvæntur
Sigríði Stefánsdóttur,
símritara á Seyðisfirði,
og eiga þau tvö böm; Ás-
dís, f. 27.1. 1950, skrif-
stofumaður í Reykjavík,
gift Sveini Valgeirssyni,
verkstjóra hjá Vífilfelli,
og eiga þau fimm börn;
Ólafur Már, f. 29.11. 1953, deildar-
stjóri hjá Bræðranum Ormsson, bú-
settur á Seltjamamesi, var kvæntur
Maríu Ólafsdóttur og eignuðust þau
þrjú böm og eru tvö þeirra á lífi en
hann er nú kvæntur Sigrúnu Krist-
ínu Ægisdóttur hárgreiðslumeist-
ara og eiga þau saman tvö böm auk
þess sem hún á fyrir tvö böm sem
era fósturbörn Ólafs.
Systkini Sigurðar: Ólafur, f. 3.5.
1903, d. 4.11. 1930, læknanemi og rit-
stjóri í Vestmannaeyjum; Jón, f.
13.8. 1904, d. 17.4. 1961, skrifstofu-
maður í Vestmannaeyjum;
Rebekka, f. 20.7. 1905, d. 29.9. 1980,
hárgreiðslumeistari í Vestmanna-
eyjum og síðan í Reykjavík; Gísli, f.
4.11.1906, d. 8.3.1908; Kristinn, f. 5.5.
1908, d. 5.10. 1984, skipstjóri í Vest-
manneyjum; Ingólfur, f. 31.3.1910, d.
9.1. 1911; Unnur, f. 7.6. 1913, sýslu-
mannsfrú og skrifstofumaður í
Stykkishólmi, síðar í Reykjavík;
Guðbjörg, f. 7.5. 1915, d. 13.11. 1915;
tvíburi við hana, f. 7.5. 1915, d. s.d.;
Sigurbjörg, f. 19.9. 1916, kaupkona í
Vestmannaeyjum og síðan í Reykja-
vík.
Foreldrar Sigurðar voru Magnús
Jónsson, f. 1.9. 1875, d. 6.2. 1946,
kennari, formaður, ritstjóri og skáld
á Sólvangi í Vestmannaeyjum, írá
Geldingaá í Leirársveit, og k.h.,
Hildur Ólafsdóttir, f. 20.7. 1882, d.
18.5. 1917, húsmóðir, frá Landamót-
um í Seyðisfirði.
Ætt
Magnús var sonur Jóns, b. á Ind-
riðastöðum, Jónssonar, b. í Deildar-
tungu, Jónssonar, ættfóður Deildcir-
tunguættar, Þorvaldssonar. Móðir
Jóns á Indriðastöðum var Guðrún
Böðvarsdóttir, b. í Skáney, Sigurðs-
sonar og Þuríðar Bjarnadóttur.
Móðir Magnúsar var Kristín Jón-
asdóttir, b. og söðlasmiðs í Steins-
holti, Benediktssonar, pr. á Melum,
Jónassonar. Móðir Kristínar var
Helga Sveinsdóttir.
Hildur var dóttir Ólafs, útvegsb. í
Landamótum í Seyðisfirði, Péturs-
sonar, og Rebekku Eiríksdóttur frá
Sörlastöðum.
Sigurður
Magnússon.
Tómas Agnar Tómasson
Tómas Agnar Tómasson iðnrek-
andi, Markarflöt 30, Garðabæ, er
sextugur í dag.
Starfsferill
Tómas Agnar er fæddur í Reykja-
vík og ólst þar upp. Hann hóf iðn-
nám í ölgerð en hvarf frá því námi
og var í verslunar- og tungumála-
námi í Bretlandi og Þýskalandi
1955-58.
Tómas hefur unnið hjá Ölgerð-
inni Agli Skallagrimssyni hf. frá
1958 utan stuttra hléa er hann var
fulltrúi kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Gmndfirðinga, 1962-63, og fyrsti
framkvæmdastjóri SÁÁ um sex
mánaða skeið 1978. Hann varð ann-
ar aðaleigandi Ölgerðarinnar Egils
Skallagrímssonar hf. 1974 ásamt
bróður sínum, Jóhannesi, og í
stjórn þess fyrirtækis frá 1975. Hann
var mikill djassáhugamaður á yngri
áram, var í stjóm Jassklúbbs
Reykjavíkur nr. 2 1958-60, þar af for-
maður og framkvæmdastjóri
1959-60 og sá um jassþátt Ríkisút-
varpsins 1959-60 ásamt Guðbjörgu
Jónsdóttur. Tómas var JC-maður,
sat í stjórn JC-Reykjavik 1969. Hann
hefur verið áhugamaður um áfeng-
ismál á seinni árum, var í Freeport-
hópnum, einn af stofnendum
Freeportklúbbsins og var í fyrstu
stjóm hans 1976, formaður 1978-79,
meðstjórnarmaður 1982-83. Tómas
var í aðalstjórn SÁÁ 1982-88, fram-
kvæmdastjórn 1985-88 og varafor-
maður 1986-88 og aftur í stjórn SÁÁ
frá 1996.
Fjölskylda
Tómas kvæntist 5.8. 1966 Þóranni
Ámadóttur, f. 11.6. 1941, ljósmóður.
Foreldrar Þórunnar: Árni Guð-
mundsson, f. 3.12.1899, d. 10.10.1971,
læknir á Akureyri og síðar í Reykja-
vík, og k.h., Ingibjörg Guðmunds-
dóttir, f. 2.4. 1907, húsmóðir í
Reykjavík.
Böm Tómasar og Þórannar eru
Agnes Vala, f. 5.1. 1967, rekstrar-
fræðingur, búsett I Garðabæ og á
hún eina dóttur; Árni Haukur, f.
21.9.1968, ölgerðarmaður, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Paola Mangoni
Tómasson húsmóður og eiga þau
tvö böm; Helga Brynja, f. 10.7. 1972,
skólastarfsmaður, búsett í Garðabæ
en maður hennar Vilhjálmur Karl
Gissurarson flugmaður; Herdís
Rún, f. 20.8. 1979, menntaskólanemi
í foreldrahúsum; Óskar Bergmann,
f. 6.7. 1982, menntaskólanemi í for-
eldrahúsum.
Sonur Tómasar er Tómas Heimir,
f. 29.1. 1961, bifreiðarstjóri í Kaup-
mannahöfn, kvæntur Asta Tómas-
son, húsmóður og tónlistarkennara.
Dóttir Þórunnar er Ingihjörg
Erna, f. 16.7. 1962, húsmóðir í
Reykjavík, gift Helga Ólafi Ólafs-
syni lífefnafræðingi og eiga þau
þrjú böm.
Hálfsystkini Tómasar, samfeðra,
vora Valgerður, f. 22.1. 1913, d. 11.3.
1936, húsmóðir í Reykja-
vík, var gift Bjama Bene-
diktssyni forsætisráð-
herra; Margrét, f. 4.9.
1915, d. 30.12. 1915;
Tómas, f. 22.1. 1917, d. 31.
5. 1930
Alsystkini Tómasar:
Guðrún Vala, f. 23.6. 1937,
d. 30.6. 1937: Jóhannes
Heimir, f. 24.9. 1945, for-
stjóri, búsettur í Kópa-
vogi, kvæntur Rósu
Sveinsdóttur og eiga þau
tvö böm.
Foreldrar Tómasar vora Tómas
Tómasson, f. 10.10.1888, d. 9.11.1978,
ölgerðarmaður í Reykjavík, og k.h.,
Agnes Bryndal, f. 20.9. 1907, d. 21.3.
1989, húsmóðir.
Ætt
Tómas var sonur Tómasar, b. i
Miðhúsum í Hvolhreppi í Rangár-
vallasýslu, bróður Jóns, langafa
Harðar Sigurgestssonar, forstjóra
Eimskips. Tómas var sonur Jóns, b.
á Ormsvelli, bróður Þorvarðar, afa
Jóns, afa Jóns Gíslasonar fræði-
manns og langafa Kristins Frið-
finnssonar dómkirkjuprests og Jóns
Vals Jenssonar ættfræðings. Jón
var sonur Erlends, b. í Þúfu, Jóns-
sonar, b. i Klofa, Oddssonar, b. í
Ketilshúsahaga, Guðmundssonar, b.
í Vatnsdal, Jónssonar, b. á Þorleifs-
stöðum, Oddssonar, b. í Næfurholti,
Jónssonar, pr. í Fellsmúla, Jónsson-
ar. Móðir Erlends var
Halldóra Halldórsdóttir,
b. á Rauðnefsstöðum,
bróður Brands, langafa
Margrétar, langafa
Guðríðar, ömmu
Guðlaugs Tryggva
Karlssonar. Halldór var
sonur Bjarna, ættföður
Víkingslækjarættar, Hall-
dórssonar. Móðir Tómas-
ar Tómassonar var Sigur-
laug Sigurðardóttir, b. í
Móakoti í Garði, Jónsson-
ar og Guðrúnar Jónsdótt-
ur, b. í Syðri-Gróf í Flóa, Magnús-
sonar, föður Árna, langafa Sigurðar
Einarssonar, pr. og skálds í Holti
undir Eyjafjöllum.
Agnes var dóttir Jóns, verslunar-
manns á ísafirði, Hafliðasonar
hreppstjóra á Hópi í Grindavík,
Jónssonar, b. á Hópi, Hafliðasonar,
b. í Kirkjuvogi í Höfnum, Sigurðs-
sonar, b. í Bjálmholti í Holtum,
Þórðarsonar, foður Þórðar, langafa
Magnúsar Dalhoffs gullsmiðs. Móð-
ir Agnesar var Guðrún Bryndal Jó-
hannesdóttir, kaupmanns og fiskút-
flytjanda, síðast á ísafirði, Péturs-
sonar, lóðs í Reykjavík, Þórðarson-
ar af Borgarabæjarætt í Reykjavík.
Tómas og Þórunn munu fagna
þessum tímamótum með vinum sín-
um á Randisson-SAS, Hótel Sögu,
Sunnusal, milli kl. 17.00 og 19.30 á
afmælisdaginn.
Tómas Agnar
Tómasson.
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti
smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar
ncesta dag
Ath. /
o\\t mil/i hirm^
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þarf þó að berast
okkur fyrir kl. 17
á föstudag
Smáauglýsingar
550 5000
Tilkynningar
Tapað fundið
Artemis, kisan mín, er týnd! Fjög-
urra mánaða grábröndóttur kett-
lingur hvarf frá Kúrlandi 6. apríl sl.
Ef einhver hefur séð til hennar er
hann vinsamlegast beðinn um að
hringja í síma 553-9484 eða GSM 862-
4713. Hennar er sárt saknað.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Handavinna í umsjón Kristínar
Hjaltadóttur, perlusaumur og fl., kl.
9. Kaffistofa, dagbl., spjall. Matur kl.
10-13, allir velkomnir. Skák kl. 13,
allir velkomnir. Ferð á Snæfellsnes
kl. 14 16. maí, upplýsingar á skrif-
stofu.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Þorraseli
Opið í Þorraseli, Þorragötu 3, í
dag. Leikfimi kl. 12.20. Handavinna,
perlusaumur o.fl. kl. 13.30. Spilað al-
kort kl. 13.30. Kaffi og pönnukökur
með rjóma kl. 15-16. Allir velkomn-
ir.
Ferðafélag íslands
Miðvikudagur 14. apríl kl. 20.30.
Myndakvöld Ferðafélagsins er í F.Í.-
salnum að Mörkinni 6. Staðfestið
bókanir í sumarleyfisferðir sem
fyrst, margar ferðir eru að fyllast.
Færeyjaferð F.í. og Vestjarðaleiðar
er 26/5-3/6. Sunnudagsferðir 18.
apríl kl. 10.30: Kalmanstjöm - Stað-
arhverfi, gömul þjóðleið, kl. 13:
gengið í Fornasel.
Tll hamingju
með afmælið
13. apríl
90 ára
Sigurbjörg Kristín
Elíasdóttir,
Norðurbrún 1, Reykjavík.
85 ára
Fjóla Sigurðardóttir,
Kleppsvegi 64, Reykjavík.
Matthildur Þórðardóttir,
Sólheimum 25, Reykjavík.
Fjóla Elíasdóttir,
Syðra-Seli I,
Hrunamannahreppi.
70 ára
Þorkell Grímsson,
Hátúni 12, Reykjavík.
Margrét Þórðardóttir,
Austurbergi 2, Reykjavik.
Hörður Jóhannsson,
Víðimýri 6, Akureyri.
60 ára
Einar Guðnason,
Hávallagötu 25, Reykjavík.
Jón H. Bjömsson,
Sævargörðum 1,
Seltjarnamesi.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Nesbala 108, Seltjamarnesi.
Sigurður Antonsson,
Þemunesi 1, Garðabæ.
Hans Pauli Djurhuus,
Miðtúni 4, Tálknafirði.
Hólmfríður Júlía
Pálmadóttir,
Tjamarlundi 18 I, Akureyri.
Egill Ingvi Ragnarsson,
Sólgarði, Amameshreppi.
50 ára
Rúnar
Sigurbjömsson
húsasmiður,
Kjarrhólma 18,
Kópavogi.
Eiginkona hans
er Pálína Þorvaldsdóttir.
Þau hjónin era stödd á Gran
Canaria á afmælisdaginn.
Lena M. Hreinsdóttir,
Grófarseli 5, Reykjavík.
Sigurvln Ármannsson,
Fannafold 150, Reykjavík.
Jón Aðalsteinn Jóhannsson,
Trönuhjalla 5, Kópavogi.
Jón Ellert Jónsson,
Hjallabraut 37, Hafnarfirði.
Torfi Kristinn Kristinsson,
Hólabraut 2, Hafnarfirði.
40 ára
Einar Rúnar Axelsson,
Barmahlið 30, Reykjavík.
Kristján Ingi Bragason,
Dalseli 17, Reykjavík.
Þórann Björg
Guðmundsdóttir,
Bollatanga 20, Mosfellsbæ.
Hjördis Fríða Jónsdóttir,
Sæbóli 27, Grundarfirði.
Hafþór Hafsteinsson,
Sjávarslóð, Flatey.
Álfhildur R. Halldórsdóttir,
Hvanneyrarbraut 65,
Siglufirði.
Páll Birgir Óskarsson,
Skuggabjörgum, Hofsósi.
Hermann Jón Tómasson,
Helgamagrastræti 20,
Akureyri.
Sighvatur Friðriksson,
Kotárgerði 19, Akureyri.
Árni Konráð Bjarnason,
Laugartúni 11, Akureyri.
Gunnar Sigurþórsson,
Birkiflöt,
Biskupstungnahreppi.
•v-T.n ítiiivT íTrgKitítiOT'Ll?