Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1999, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
9
Utlönd
Kosningasjóöur Afríska þjóöarráðisins:
Hundruð milljóna frá
Gaddafi Líbýuleiðtoga
Stjórnarflokkurinn í Suður-Afr-
íku, Afríska þjóðarráðið, hefur þeg-
ið hundruð milljóna króna í kosn-
ingasjóð frá Gaddafi Líbýuleiðtoga,
að því er kemur fram í netútgáfu
sænska blaðsins Dagens Nyheter.
Samkvæmt upplýsingum frá stofn-
uninni South African Institute for
International Affairs hefur Afríska
þjóðarráðið fengið um 15 milljarða
íslenskra króna frá leiðtogum í
ólýðræðislegum ríkjum og þar sem
alvarleg mannréttindabrot hafa ver-
ið framin.
Leiðtogi Lýðræðisflokksins í Suð-
ur-Afríku, Tony Leon, segir Afríska
þjóðarráðið misnota aðstöðu sína.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Lí-
býa gefur Afríska þjóðarráðinu fé.
Þegar Winnie Mandela, fyrrverandi
eiginkona Nelsons Mandela forseta,
var ákærð fyrir aðild að morðinu á
Stompie, 14 ára pilti sem fannst
myrtur árið 1989 eftir að hafa verið
heittur ofbeldi á heimili Winnie,
greiddu Líbýa og Svíþjóð máls-
kostnaðinn.
Litið er á stuðning Gaddafis við
Afríska þjóðarráðið sem lið í aukn-
um áhuga hans á að komast til
áhrifa í Afríku. Gaddafi er sagður
orðinn þreyttur á að vera ekki tek-
inn alvarlega í samfélagi araba.
Nelson Mandela segist ekki yflr-
gefa þá sem studdu Afríska þjóðar-
ráðið í baráttunni gegn stjórn kyn-
Nelson Mandela, forseti S-Afríku, biðlaði til hvítra kjósenda í gær. Fyrrverandi
eiginkona Mandela, Winnie, lýsir því yfir í sjónvarpsviðtaii að hjónaband
þeirra hafi verið blekking. Símamynd Reuter
þáttaaðskilnaðarstefnunnar.
í kosningaræðu í gær hvatti
Mandela hvíta íbúa Suöur-Afríku til
að einangra sig ekki með því að
kjósa smáflokka. Litlu flokkarnir
gagnrýna Afríska þjóðarráðið fyrir
að hafa ekki tekist að bæla niður of-
beldi og bæta efnahaginn. Mandela
skoraði einnig á alla félaga í Afríska
þjóðarráðinu að styðja Mbeki vara-
forseta sem taka á við forsetaemb-
ættinu eftir kosningamar á morg-
un.
Samtímis því sem kosningabar-
áttan stóð sem hæst í gær láku út
fréttir af viðtali ABC-sjónvarps-
stöðvarinnar við Winnie Mandela
sem birt verður í Bandaríkjunum í
kvöld. íviðtalinu segir Winnie að
hjónaband hennar og Nelsons
Mandela hafi verið blekking og fæð-
ing dætra þeirra tveggja tilviljun.
Winnie sakar einnig fyrrverandi
eiginmann sinn um að hafa yfirgef-
ið dætur þeirra tvær þegar hann
skildi við hana árið 1996. Mandela
sagði fyrir skilnaðardómstólnum að
eftir að hann var látinn laus 1990
eftir 27 ára fangelsisvist hefði
Winnie aldrei komið inn í svefnher-
bergi þeirra á meðan hann var vak-
andi. Mandela kvæntist Graca
Machel, fyrrverandi forsetafrú
Mósambik, á áttræðisafmæli sínu í
fyrra.
Skýrslunni um
færeyskt sjálf-
stæöi seinkar
Nefnd sem skipuð var til að
fara ofan í kjölinn á sambandi
Færeyja og Danmerkur með
aukna sjálf-
stjórn eyjanna
að markmiði
verður ekki
tilbúin með
hvítbók sína,
eða skýrslu,
þann 10. júní,
eins og áform-
að var.
Högni Hoydal, varalögmaður
Færeyja og ráðherra sjálfstæðis-
mála, segir að þess í stað sé gert
ráð fyrir að nefhdin ljúki störf-
um 1. september í haust. Hann
undirstrikar þó að það þýði ekki
að samsvarandi frestun verði á
áformum stjómarinnar um full-
veldi.
Seinkunina má að hluta til
rekja til langvinnra verkfalla í
Færeyjum í mars siðastliðnum.
Þá hefur nefnd sem kanna átti
þýðingu beins fiárstuðnings
Danmerkur við Færeyjar fyrir
færeyskt efnahagslíf beðið um
lengri frest til að skila af sér.
Hvítbókin verður tekin til
umræðu í færeyska lögþinginu í
september. Að því búnu ætlar
landstjómin að hefia samninga-
viðræður við stjórnvöld í Kaup-
mannahöfn, í samræmi við sam-
þykktir þingsins.
Alls starfa sextíu manns í
þremur nefndum við að skýra
samband ríkjanna tveggja. Ein
nefndin skoðar fiárhagsstuðn-
ing Dana og þýðingu hans, önn-
ur fiallar um stjórnunarleg
tengsl landanna og þriðja nefnd-
in skrifar hvítbókina sjálfa.
Grand Cherokee Laredo '95, ek. 62
þús. km.Ásett verð 2.590.000.
Tilboðsverð 2.390.000.
Volvo 460 GLE '94, ek. 80 þús. km.
Ásett verð 990.000.
Tilboðsverð 890.000.
Grand Cherokee Llmited '93, ek. 160
þús. km.Verð 2.200.000
Tilboðsverð 1.850.000
Opel Astra GL '97, ek. 47 þús. km.
Ásett verð 1.090.000.
Tilboðsverð 990.000.
Cherokee Limited '91, ek. 150 þús.
km. Ásett verð 1.290.000.
Tilboðsverð 1.100.000.
Peugeot 306.'98, bílaleigubíll, 5 d., ek.
30 þús. km. Ásett verð 1.190.000.
Tilboðsverð 1.090.000.
Plymouth Voyager 4x4 '93, ek. 95 þús.
km. Ásett verð 1.790.000.
Tilboðsverð 1.590.000.
Peugeot 306. '98, bílaleigubíll, 4 d., ek.
30 þús. km. Ásett verð 1.190.000.
Tilboðsverð 1.080.000.
MMC Space Wagon 4x4 '93, ek. 120
þús. km. Ásett verð 1.230.000.
Tilboðsverð 1.090.000.
Mazda 626 '92, ek. 83 þús. km.
Ásettverð 1.090.000.
Tilboðsverð 830.000.
Chrysler Saratoga '91, ek. 83 þús.
km. Ásett verð 690.000.
Tilboðsverð 590.000.
Mazda 323 '89, ssk.
Ásett verð 360.000.
Tilboðsverð 290.000.
BMW 518 i '90, ek. 93 þús. km.
Ásett verð 990.000.
Tilboðsverð 850.000.
Peugeot 309 '92, ek. 93 þús. km.
Ásett verð 490.000.
Tilboðsverð 390.000.
Peugeot Boxer sendill, turbo, dísil, '97,
ek. 45 þús. km. Ásett verð 1.850.000.
Tilboðsverð 1.750.000.
Ford Transit pallbíll '95, dísil, ek. 60 þús.
km. Ásett verð 1.490.000.
Tilboðsverð 1.290.000.
Bjóðum
hagstæð lán
til allt að
60 mán.
IVEXTIR FRÁ 5%|
Þú getur líka
fengið Visa-
eða Euro-
raðgreiðslur.
Opið
virka daga frá
kl. 9-18,
laugardaga
frá kl. 13-17.
sunnudaga
frá 13-16.
F U
NYBYLAVEGUR 2 • SIMI 554 2600 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18