Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999
9
DV
Utlönd
Albright og Cook:
Hvetja Serba til að
losa sig við Milosevic
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, hvatti í gær Serba til
þess að losa sig við Slobodan Milos-
evic Júgóslavíuforseta. „Milosevic
veit örugglega að það er komið að
leiðarlokum," sagði í yfirlýsingu
Cooks.
Staðhæfði breski utanríkisráð-
herrann að Milosevic væri versti
óvinur serbnesku þjóðcirinnar.
„Efnahagur Júgóslavíu er í rúst.
Vinir Milosevics og fjölskylda hans
hafa stolið eða lagt hald á milljónir
dollara til þess að þjóna eigin hags-
munum.“
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sem hefur
jafnmikinn áhuga og Cook á að bola
Milosevic frá völdum, sagði í gær-
kvöld að aðildarríki NATO væru
sammála um þörfma á að styðja
stjórnarandstöðuna í Serbiu. Al-
bright ítrekaði andstöðu sína við
Madeleine Albright.
Símamynd Reuter
Lítil albönsk stúlka hvílir í fangi afa síns í Stankovic flóttamannabúðunum í
Makedóníu. Skömmu seinna héidu þau ásamt 400 öðrum flóttamönnum af
stað til heimkynna sinna í Kosovo. Símamynd Reuter
Stokkhólmur:
Sprengjuárás
gegn blaðamanni
Blaðamaður og átta ára sonur
hans særðust alvarlega er bila-
sprengja sprakk í Nacka í Stokk-
hólmi í gærmorgun. Blaðamaður-
inn, sem var undir lögregluvernd
vegna hótana, hafði ásamt sambýlis-
konu sinni skrifað um starfsemi
nýnasista. Parið hafði skrifað undir
önnur nöfn en sín eigin, að því er
kemur fram í sænska blaðinu Afton-
bladet.
Sænska lögreglan vildi ekki stað-
festa í gær að blaðamaðurinn og
sambýliskona hans hefðu rannsak-
að starfsemi nýnasista. Lögreglan
vildi heldur ekki greina frá í hvaða
hópum hún leitaði árásarmann-
anna.
Það var um klukkan hálfellefu í
gærmorgun sem feðgarnir gengu að
fjölskyldubílnum sem hafði verið
lagt við hús þeirra. Sprengjan, sem
hafði verið komið fyrir á götunni
undir sæti ökumanns, sprakk þegar
feðgarnir opnuðu bíldyrnar.
Lögreglan og blaðamaðurinn
höfðu komið sér saman um hversu
mikillar verndar hann ætti að njóta.
„Með tilliti til þess sem gerðist
vitum við ekki hvort við höfum
metið ástandið rangt eða hvort við
höfum ekki fengið mikilvægar upp-
lýsingar um hótanirnar," sagði
Bjöm Pihlblad lögreglumaður.
Það eru fyrst og fremst vélhjóla-
gengi og nasistar sem hafa hótað
sænskum blaðamönnum. „Tilgang-
urinn er að hræða blaðamennina tO
þagnar," segir Hákan Carlsson, for-
maður sænska blaðamannafélags-
ins. „Öryggislögreglan hefur gert
allt of lítið af því að fylgjast með og
koma upp um nasista og aðra öfga-
hópa.“
alla efnahagsaðstoð við Serbíu að
frátalinni mannúðaraðstoð.
Albright benti á að biskupar rétt-
trúnaðarkirkjunnar í Serbíu hefðu
gagnrýnt Milosevic harkalega í gær
og hvatt hann til að segja af sér.
Kirkjuleiðtogamir hvöttu jafn-
framt til þess í bréfi til meðal ann-
arra Bills Clintons Bandaríkjafor-
seta og Kofis Annans, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna, að frið-
argæsluliðamir í Kosovo stöðvuðu
árásirnar á Serba í héraðinu. „Það
er nauðsynlegt að leiðtogar Kosovo-
Albana skilji að þeir sem eru sekir
um glæpi gegn Serbum fá sömu
meðferð og þeir sem em ábyrgir fyr-
ir glæpunum sem áttu sér stað áð-
ur,“ skrifa kirkjuleiðtogarnir.
Bréf þeirra var sent til Bills Clint-
ons, Kofis Annans, Javiers Solana,
framkvæmdastjóra NATO, og til ut-
anríkisráðherra Frakklands, Þýska-
lands, Italíu, Bretlands og til yfir-
manns friðargæsluliðanna í Kosovo,
Michaels Jacksons.
Undanfarna daga hafa Albanir
rænt og ruplað í yfirgefnum húsum
Serba og síðan kveikt í húsunum.
Hafa jaínvel heilu þorpin logað.
Andúð á Eng-
lendingum land-
lægt vandamál
Samkvæmt nýrri skoðanakönn-
un skoska dagblaðsins Daily
Record er Skotum ekkert sérlega
hlýtt til Englendinga. Um 75% aö-
spurðra viðurkenndu andúð á Eng-
lendingum og töldu hana landlægt
vandamál.
Hingað til hafa Skotar haldiö því
að fram að þeir séu umburðarlynd-
ari en Englendingar; t.d. sé minna
um glæpi tengda kynþáttahatri á
Skotlandi. Fulltrúar minnihluta-
hópa á Skotlandi sögðu niðurstöð-
urnar benda til Englendingahaturs
en það væm þó önnur þjóðarbrot
sem yrðu fyrir kynþáttahatri.
Ný gögn um
kjarnavopn
Bandaríska ríkisskjalaasafnið í
Washington hefur gert opinber
skjöl þar sem kemur fram að bann
við kjamorkuvopnum náði ekki til
Grænlands fyrr en árið 1968. í
skjölunum er greint frá því að H.
C. Hansen, utanríkisráðherra Dan-
merkur, hafi árið 1957 heimilað
Bandaríkjamönnum að geyma
kjarnorkuvopn í herstöðinni á
Thule. Ellefu árum síðar hrapaði
B-52 ormstuþota Bandaríkjahers
yfir Thule og í kjölfarið var ákveð-
ið að bann við kjarnorkuvopnum
næði einnig til Grænlands.
Mitre Prima
fótboltaskór fyrir krakka
í fjórum litum
stærðir 33-40
kr. 2.990
Jói útherji
ÁRMÚLA 36 • REYKJAVÍK ■ SÍMl S88 1560
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingar
á deiliskipulagi í Reykjavík.
í samræmi viö 18. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr 73/1997 er hér
með auglýst til kynningar breyting á aöalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 og
deiliskipulagi eftirtalinna staða í Reykjavík:
Nethylur 3
Breyting á deiliskipulagi Ártúnsholts frá 03.12.1982. Lóð og byggingarreitur
að Nethyl 3 er stækkuð og sett upp auglýsingaskilti á lóðinni.
Skógarhlfð 12
Deiliskipulagstillaga að lóðinni við Skógarhlíð 12. Tillagan gerir ráð fyrir að
reist verði 4 til 6 hæða verslunar- þjónustu og skrifstofuhús.
Sundlaugavegur 34, farfuglaheimiii
Breyting á skipulagi lóðar farfuglaheimilis við Sundlaugaveg 34 frá 13. des.
1977. Lóð og byggingarreitur stækkar og innkeyrslum er breytt. Jafnframt er
fyrirhugað að breyta aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 á þann veg að
landnotkun lóðarinnar breytist úr útivistarsvæði til sérstakra nota í
athafnasvæði með sérskilmálum.
Gylfaflöt 18, nýbygging
Breyting á skilmálum deiliskipulags Gylfaflatar frá 9. apríl 1991. Þakform og
-halli breytist
Ofangreindar tillögur eru til kynningar í sal Borgarskipulags og
Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10:00 til 16:00 frá 30.
júní til 28. júlí 1999. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 11. ágúst 1999.
Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja
tillöguna.