Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Síða 32
eSFRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fulirar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum alian
sólarhringinn.
m 550 5555
Heimsfrétt frá íslandi á Reuter í morgun:
. Smyrsl sem drepur
eyðniveiruna fundið
- lofar góöu, segir dr. Halldór Þormar prófessor
Dr. Halldór Þormar líffræðiprófess-
or við Háskóla íslands og samstarfs-
menn hans, Þórdís Kristmundsdóttir
og Guðmundur Bergsson hafa búið til
blöndu tiltölulega einfaldra efna sem
drepur bæði bakteríur og veirur sem
berast og smitast miili fólks við kynlíf.
'■^Blandan vinnur á eyðniveirunni,
herpesveirum og lekandabakteríu,
samkvæmt því sem tilraunir vísrnda-
mannanna á rannsóknarstofu sýna.
Tiiraunir eru í undirbúningi á dýrum
og síðar mönnum. Dr. Haraldur Briem
sérfræðingur í smitsjúkdómum sagði i
morgun við DV að uppgötvun Haildórs
Þormars og árangur hans og sam-
starfsmanna hans sé mjög merkilegur.
Hrns vegar eigi eftir að gera tilraunir á
fólki til að leiða í ljós gagnsemina við
raunverulegar aðstæður og þá ernnig
hugsanlegar aukaverkanm.
„Það liggur nú fyrir að gera frekari
dýratilraunir og einnig að prófa hugs-
anlega eitur-
virkni í fólki. Við
erum dálítið
búin að prófa eit-
urvirkni í kanin-
um sem virðist
ekki vera merkj-
anleg. En það
þarf auðvitað að
prófa þetta í tak-
mörkuðum fjölda
sjálfboðaliða.
Verði árangur-
inn eftir vænt-
ingum er auðvit-
að eftir að vekja
áhuga einhvers
lyflafyrirtækis-
ins á því að þróa
þetta áfram og
koma því á
markaðinn,"
sagði Halldór
Halldór Þormar prófessor á heimili sínu í morgun. Hann hefur
gert uppgötvun sem valdið gæti byltingu í baráttu gegn veir-
um og bakteríum sem smitast við samfarir. DV-mynd S
Þormar í samtali við DV í morgun.
Frá uppgötvtm Halldórs og félaga
hans var greint í fréttaskeyti Reuters í
morgun. Þar segir að með því að
blanda tiltölulega algengri fitu sem
m.a. finnst í kókoshnetuolíu I hlaup,
þá hafi blandan þessi áhrif. Haildór bjó
og starfaði í Bandaríkjunum í um 20
ár. Þar rannsakaði hann m.a. virkni
bijóstamjólkur gegn veirum. „Þá kom
þetta í Ijós að það voru fitur í mjólk-
inni sem höfðu þessi áhrif. Þegar þær
brotnuðu niður í minni fítur þá urðu
þær sumar hveijar virkar gegn veir-
um. Síðan fórum við að prófa ýmsar
fitur til að vita hveijar væru virkastar
og seinustu 10 árin höfúm við þrengt
hringinn. Nú virðist okkur vanefht
monocaprin vera virkast gegn bæði
flestum veirum sem við höfum prófað,
en einnig gegn bakteríum," sagði Hall-
dór Þormar í samtali við DV í morgun.
-SÁ
, Kveiktí
rónabæli
Kveikt var í hreysi útigangs-
manna sem hafði verið reist í El-
liðaárdalnum, á móts við Ingvar
Helgason. DV sagði fyrst frá hreys-
inu og í kjölfarið fór Stöð 2 með
myndavélar á svæðið þannig að fólk
hefur átt auðvelt með að finna það.
Lögreglu var tilkynnt um brunann
skömmu eftir klukkan eitt í nótt og
þurfti að kalla slökkvilið út. Hafði
kviknað í trjám sem voru í kringum
skýlið, sem og skýlinu sjálfu. Að
sögn lögreglu sást til bíls sem var að
fara i burtu en starfsmaður öryggis-
■'•'fyrirtækis náði bílnúmerinu og er
það mál i rannsókn. - EIS
Básafell hf. boðar sölu eigna:
Sala frystitogarans
Sléttaness hugsanleg
- Þingeyringum brugðið
Frystitogarinn Sléttanes ÍS, eitt af skipum Básafells.
Stjóm Básafells hf. samþykkti í gær
að selja verulegan hluta eigna sinna til
að grynnka á skuldum félagsins. Svani
Guðmundssyni framkvæmdastjóra og
Ragnari J. Bogasyni stjómarformanni
hefur verið falið að vinna að því á
næstu mánuðum að selja skip, varan-
legar aflaheimOdir og fasteignir fyrir
að minnsta kosti 1,5 milljarða króna.
Svanur Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri sagði í samtali við DV
að ekki væri búið að ákveða hvað yrði
selt. „Við gerum ráð fyrir að selja
kvóta innan svæðisins þannig að kvóti
á svæðinu mun ekki minnka. Við
stefhum enn fremur að þvi að styrkja
okkur verulega í landvinnslu en um
leið að minnka hlut sjóvinnslu i
rekstri félagsins. Hér á svæðinu em
mörg öflug fyrirtæki sem eiga að hafa
bolmagn til að kaupa kvótann," segir
Svanur. Aðspurður um áhrif þessara
aðgerða á atvinnuástand sagði Svanur
að þau yrðu lítil. „Það hefur verið
ákveðið vandamál hjá okkur að við
þurfum að fljúga með sjómenn úr
Reykjavík til að vinna hjá okkur. Okkur
hefur hreinlega vantað sjómenn þannig
að atvinnuástand ætti ekki að versna
við sölu á skipum," sagði Svanur.
Frystitogarinn
Sléttanes ÍS, eitt
af skipum Bása-
fells, hefur að
stórum hluta ver-
ið mannaður frá
Þingeyri. Þing-
eyringar sem DV
ræddi við óttast
mjög að aðgerðir
Básafells verði til
að auka enn á
vanda þeirra.
Svanur sagði að
sala á því skipi kæmi tO greina en
vOdi að svo stöddu ekkert frekar um
málið segja. Hins vegar má ljóst vera
að ef sjómenn frá Þingeyri missa vinn-
una eykst vandi Þingeyringa enn en
eins og kunnugt er hafa atvinnumál
verið i uppnámi þar vegna vandræða
Rauða hersins. -bmg
VORU ÞETTA SEKIR
SKÓÖARMENN?
Veðrið á morgun:
Hiti allt að
20 stig
Á morgun verður norðanátt,
5-8 m/s, skýjað og sums staðar
rigning allra austast en annars
hægviðri og víða léttskýjað. Hit-
inn verður á bilinu 6 tO 20 stig,
hlýjast suðvestanlands síðdegis en
svalast úti við sjóinn norðan tO á
landinu.
Veðrið í dag er á bls. 37.
Rafn og Helgi nota hvert tækifæri til
þess að máia hvalbátana. Hvalbát-
arnir eru líka þau skip í Reykjavíkur-
höfn sem eru hvað mest mynduð og
því ágætt að láta „fyrirsæturnar" líta
vel út. DV-mynd GVA
Krikket
Símar 567 4151 & 567 4280
, Heildverslun með leikfong og gjafavörur