Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1999, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1999, Síða 30
38 Giftingaivottorðið, takk! Ferða- j langar í íjarlæg- um lönd- I um geta lent í ýmsu. Dæmi eru um það í Sádi-Arabíu, íran og öðrum ís- iömskum löndum að ógift pör hafi verið krafin um giftingar- vottorð eða önnur haldbær sönn- unargögn þegar þau óska eftir að fá að deila hótelherbergi í fríinu. Ástæðan fyrir þessu er sú að ís- lömsk lög banna ógiftum pörum að deila hótelherbergi. Sagan hermir að lítið þýði fyrir fólk að grátbiðja hótelstarfsmenn um að gera undantekningu ... | Nýr vínskemmti- garður í Bretlandi Bretar settu í vikunni á stofn fyrsta skemmtigarðinn í heimin- um sem helgaður er víni. Hann nefnist Vinopolis en nafnið út- leggst „borg vínsins". Hann kost- aði tæplega 2,7 milljarða króna. Garð- | inum var valinn stað- ur á milli Southwark Cathedral og Heimsleik- húss Shakespe- ares við bakka Thamesárinnar í . London. Eigendur skemmtigarðs- ins búast við 400.000 gestum á ári. Vinopolis var tólf ár í bygg- ingu og eitt af þvi sem vínáhuga- fólk getur gert sér til dundurs í [ garðinum er að fara í skoðunar- ferð um vínekrur heimsins og „fljúga“ í þotu um vinberjalend- ur Ástralíu. Gestimir geta jafh- vel litiö inn i smökkunarherberg- ið í garðinum gegn 10 punda gjaldi. Þetta er þó aðeins byrjun- in því eigendur garðsins hafa í J bígerð að stofna fleiri víngarða og ætla bráðlega að hefjast handa í New York og Tokyo. Bannað að skemma frímerki Völd konungsdæmisins í Bret- landi eru víðfeðm. Samkvæmt breskum lögum er bannað að eyðileggja þarlend frímerki þar sem það er glæpur gegn sjálffi drottningunni. Refsa má fyrir slíkt með sektum. Ef ferðalangar leggjast í enn alvarlegra glapræði - að gera eitthvað á hlut svan- anna sem synda á Thamesánni - getur það haft alvarlegar afleið- ingar þar sem þeir era taldir ein af eignum konungsveldisins. Við því getur jafnvel legið fangelsis- vist. Dmllupollar bannaðir Singapúr er frægt fyrir stranga lög- gjöf. Þar er bannað að henda rusli á almannafæri og flestir ferðalangar passa sig vel á því að fara ekki yfír götuna á rauðu ljósi. Færri vita að ef ferðamenn leigja sumarhús til nokkurs tíma eru þeir ábyrgir fyrir stöönu eða fúlu vatni á landinu sem þeir hafa til leigu. Þessi lög voru sett í Singapore til að koma í veg fyr- ir sjúkdómsfaraldra en uppeldis- stöðvar moskítóflugna, sem eru miklir smitberar, eru t.d. í drullupollum. Sektin getur numið allt að 1000 Bandaríkjadöl- um. -HG LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 Gönguferð í sumarfríinu: Gengið um þrönga fjallstíga Pýreneafjalla Gönguferðir í útlöndum eru að ryðja sér til rúms hérlendis eftir að hafa veriö tiltölulega lítið nýttur ferðakostur. Úrval-Útsýn hefur boð- ið upp á ferðir sem þessar um þriggja ára skeið og er farið til margra ólíkra staða, svo sem Mall- orca, Toscana og Pýreneafjalla. Ferðimar eru yflrleitt vikulangar og henta því fólki sem vill reyna eitthvað nýtt án þess að taka of mikla áhættu.Yfirleitt eru hóparnir ekki stærri en 25-30 manns og æski- legt er að menn séu í góðri þjálfun þó að göngurnar séu yfirleitt ekki erfiðar. Leiðsögumaður ferðanna og frumkvöðull þeirra er göngugarpur- inn Steinunn Harðardóttir. Fjallstígar í Pýreneafjöllum Ferð um Pýreneafjallgarðinn er ævintýri líkust þar sem gengið er um tvo þjóðgarða Spánverja. Lands- lagið kemur sífellt á óvart með fjöl- breytileika sínum og gönguleiðirnar eru margbreytilegar. Til dæmis er gengið í litlum ffamandi þorpum eftir gömlum þjóðleiðum og eftir þröngum steinlögðum götum.Hér er miðað við að ganga 10-18 kílómetra á dag. Á göngu um Mallorca Þessi ferð er sérlega spennandi, ekki síst fyrir þær sakir að gist er í pílagríma- klaustrinu Lluc og í strandbæn- um Puerto Soll- er sem er undir hæsta fjalli eyj- arinnar, Puig Major. Helgasti staður Mallorca er Lluc en flestir íbúar eyjarinn- ar fara í píla- grímsferð þang- að einu sinni á ári. í þessari göngu er meðal annars fetað í fótspor smygl- ara sem smygl- uðu vamingi frá Frakklandi til Soller og þorp- Stórskorið en gróðursælt landslagið heillar íslensku ferðalangana. Áð í fallegri fjallshlíð í Pýreneafjöllum. anna þar í kring. Fagurt fjall- lendi Toscana Eitt best varð- veitta leyndar- mál ttalíu er af mörgum talið Norðvestur- Toscana en þar blasir hvarvetna við stórbrotin fjallasýn. í göngu um Toscanafjallend- ið er gengið um þrjá þjóðgaröa og dvalist er Puntatodalnum, „Alpadalnum" Ferðalög eru ekki öll skipulögð með kjarnafjölskylduna í huga. Sumir ferðast einir og getur það einnig gilt um böm. Slíkar ferðir valda foreldrum oft miklum áhyggj- um af öryggi bamanna og við því hafa fyrirtæki í ferðaþjónustu bmgðist. Víða um heim er nú í boði fylgdarþjónusta fyrir böm á aldrin- um 5-12 ára sem fara t.d. að heim- sækja frænku eða frænda í útlönd- um í sumarfríinu. Edda Guðmundsdóttir, sölufull- trúi hjá Flugleiðum, segir að Flug- leiðir bjóði foreldrum bama sem þurfa að ferðast ein fylgdarþjónustu og er verðið 2000 kr„ hvort sem komið er með eitt eða fleiri böm. „Þegar foreldrar eða forráðamenn bamsins koma með það upp á flug- völl geta þeir fylgt því alveg upp að hliðinu þar sem gengið er inn í flug- vélina. Þar taka flugfreyjur á móti baminu og hafa auga með því á meðan á fluginu stendur. Barnið fær sæti nálægt afdrepi flugfreyj- anna þannig að þær geta aðstoðað það betur en ella. Þegar á leiðar- enda kemur er barnið sett í hendur þess sem tekur á móti því en flug- freyjurnar hafa meðferðis greinar- góðar upplýsingar um viðkomandi og heimilisfang hans. Barnið er aldrei yfirgefið án þess að sá sem tekur á móti því framvísi skilríkj- um sem staðfesta hver hann er. Flugfreyjan er honum til halds og trausts, enda er strákur áhyggjuleysið uppmálað á leið sinni til útlanda. Þessi þjónusta á að vera alveg pott- þétt,“ segir Edda. En hvað er gert til að hafa ofan af fyrir börn- unum? „Það er svo sem engin skemmti- dagskrá í gangi en þegar fleiri en eitt barn er í vélinni eru þau gjaman höfð hlið við hlið svo þau geti haft félags- skap hvort af öðru. Flugfreyj- urnar fylgj- ast líka vel með þeim.“ Edda segir að þónokk- uð sé um að foreldrar notfæri sér þessa þjón- ustu. „Svo er líka hægt að panta sér- stakan fylgd- armann með barninu en þá verður að panta fyrir hann sæti i vélinni eins og fyrir aðra farþega.“ -HG Einsömul böm á flakki um heiminn — fylgdarþjónusta er ódýr og Apennínatjallgarðinum. Punta- todalurinn er umlukinn háum fjöll- um og þar rikir ffiðsældin ein en í Apennínafjallgarðinum ríktu forð- um stigamenn sem stjórnuðu því hverjir fóru um héraðið og þar er gist á afskekktu bóndabýli. Skipulagðar göngur í útlöndum em tvímælalaust kostur fyrir þá sem vilja eitthvað öðmvísi en sækja samt sem áður í sumarsólina. Það er tilvalin leið til þess að kynnast landi og menningu að ganga um sveitir þess og fjöll og göngurnar eru því í senn lærdómsríkar og spennandi. -þor Langjökull heillar Langjökull ehf. verður með dagsferðir frá Reykjavík á Lang- jökul frá júlímánuði til ágústloka í sumar en verð á mann er 9900 kr. Ferðimar eru famar daglega og fyrst stoppað á Þingvöllum. Gengið er um Almannagjá og saga svæðisins sögð. Þaðan verð- ur haldið áfram á Kaldadal en stórkostlegt útsýni er á leiðinni. Kaldidalur er á milli tveggja jökla þannig að ferðalangar geta virt fyrir sér hálendið. Næst er áð í skálanum Jaka á Langjökli. Þar aðstoðar starfsfólk Langjök- uls ehf. ferðalanga við undirbún- ing á hápunkti ferðarinnar en hann er klukkutímaferð um jökulinn á vélsleðum. Þá liggur leiðin til Húsafells þar sem há- degisverðar er neytt. Klukkan þrjú síðdegis er haldið áleiðis að Hraunfossum í Hvítá og eftir án- ingu þar er ekið að Deildartungu- hver en hann er vatnsmesti hver í Evrópu. Þá er haldið til baka til Reykjavíkur um Borgarfjörð og Hvalfjörð. Alls tekur ferðin 8-10 tíma. -HG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.