Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aöstoöarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTÍ11, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Margir kallaðir en fáir útvaldir Pólitíska moldviðrið út af lokun Sæunnar á Ólafsfirði sýnir, hversu erfitt er að úthluta opinberum stuðningi, svo að öllum líki. Byggðakvóti er verðmæt auðlind, þar sem margir eru kallaðir, en fáir útvaldir. Þeir, sem ekki fá, verða að vonum harla ókátir með niðurstöðuna. Ekki verður séð, að rangt hafi verið staðið að úthlut- un byggðakvótans. Alþingi setti um hann lög, sem Byggðastofnun hefur reynt að fara eftir. Samkvæmt síu laganna er Ólafsfjörður of stór og öflugur bær til að kom- ast gegnum nálarauga skömmtunarkerfisins. Alþingismenn, sem settu lögin sjálfir, eru farnir að heimta, að Byggðastofnun líti fram hjá texta laganna og veiti fyrirtæki á Ólafsfirði sérstaka fyrirgreiðslu, að því er virðist vegna þess, að forstjóri þess hafði sérstaklega hátt, þegar hún skellti hurðum og læsti. Dæmið sýnir í hnotskurn, að úthlutun er aldrei sann- gjörn. Hún er í innsta eðli sínu mismunun. Þar á ofan liggur í hlutarins eðli, að meiri líkur eru á, að hún verð- launi skussa, heldur en þá, sem hafa staðið sig vel og byggt upp blómlegan rekstur á eigin fótum. Við rekum okkur sífellt á þá staðreynd, að mark- aðslögmálin ein eru sanngjörn. Þau mismuna ekki og þau verðlauna ekki skussa. Þau grisja garð atvinnulífs- ins og gefa þeim plöntum svigrúm, sem bezt vaxa. Þannig eflist þjóðarhagur mest og hraðast. Um leið felst grimmd í hlutleysi markaðslögmálanna. Bæjarstjóri Ólafsíjarðar lýsir þeim vítahring, að nú flytj- ist atvinnulausar konur frá Ólafsfirði með böm sín og lögheimili eiginmanna sinna og þar með verði ógætilega skuldsettur bærinn af útsvarstekjum þeirra. Raunar er engin byggðastefna þjóðinni hagkvæm önn- ur en sú, sem tryggir byggð í landinu gagnvart útlönd- um. Ef allir vilja búa í nágrenni Kvosarinnar, á að leyfa þeim það, án þess að leggja fyrir þá sérstakar byggða- gildrur fyrir hönd plássa, sem em á undanhaldi. Vilji þjóðfélagið draga úr þungum straumi þjóðarinn- ar til höfuðborgarsvæðisins, kostar það mikið skattfé, sem nýtist ekki í annað, og þar á ofan misklíð á borð við þá, sem risin er út af því, hvort sanngjarnt sé eða ekki, að Sæunn á Ólafsfirði njóti opinberrar fyrirgreiðslu. Staðreyndin er sú, að fólksflutningar í landinu eru svo stríðir, að velviljað ríkisvald hefur ekki fé til að hamla gegn þeim. Með úthlutun byggðakvóta til fámennra byggða á undanhaldi er hægt að klóra smávegis í bakk- ann, en ekki að snúa við augljósri byggðaþróun. Sú byggðastefna, sem rekin er hér á landi, er smá- byggðastefna, sem getur linað þjáningar hér og þar um tíma, en fær ekki hamlað gegn tímans þunga straumi. Hún er eins konar guðsþakkarverk stjórnmálamanna, sem henda skildingum í útvalda fátæklinga. Vafalaust hafa einhverjir grátið, þegar í eyði lögðust Dritvík og Djúpalón, þar sem sést ekki tangur né tetur af stórveldistíma fyrri alda. Vafalaust hafa aðrir grátið, þegar Hornstrandir lögðust í eyði og breyttust í eftirsótta náttúmvin. En markaðslögmálin fengu að ráða. Þjóðfélag getur kosið sér að sækja fram veginn og halda til jafns við önnur þjóðfélög í umhverfi sínu. Það getur líka valið þá leið að leggjast í varðveizlu fortíðar og verja til þess fjármunum sínum, svo að það breytist í eins konar byggðasafn fátæktar og fortíðar. Gagnslaust er hins vegar að kasta skildingum í sérvalda smælingja í þeirri von, að almættið taki viljann fyrir verkið og fyrirgefi þjóðinni syndir hennar. Jónas Kristjánsson „A sama tíma og milljónir manna deyja árlega úr sulti er ofát eitt af stærstu heilbrigðisvandamálum ríku þjóð- anna og það fer vaxandi." Mannsins megin ur er þá orðinn á matarfíkn og fíkn í kaffi, tóbak eða áfengi. Röntgenskyn Þeir sem eru of feitir virðast mcirgir hafa alveg sérstakt skyn, eins og sjötta skilningarvitið, fyr- ir því hvar orkurík fæða er. Jafnvel á hressingarstöðum þar sem fólk er kom- ið til þess að lifa heilbrigðu lífi og grennast, rennir sumt fólk augum eins og radargeisl- Kjallarinn Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur „Tugir prósenta íslendinga eru haldnir ofþyngd (10-20% umfram kjörþyngd) eða offitu (yfir 20%); á síðustu árum virðist landinn enn vera að þyngjast. Rannsókn- ir hafa sýnt að of mikil fita og prótín eru í mat landans....“ um eða ís i lítersílátum og háma í sig, mann- skepnan verður ofgnóttinni að bráð. Slungið framboð Iðnaðurinn er í meira lagi slunginn í því að búa til mat sem fólk á erfitt með að standast; margt ruslfæðið leynir á sér og er með 39-40% fitu. „Þú getur ekki hætt þegar þú ert byij- aður“. Sumt morgun- korn er lævíst sælgæti með miklum sykri. Vinsælustu gosdrykkir eru oftar en ekki blanda af frískandi koltvíoxíði, bragðefn- um og miklum sykri; þegar drykkjanna er neytt finnur neytand- inn fyrir þægilegu „orkuskoti" renna um æðar. Atferli manna snýst að miklu leyti um mat og hefur alla tíð gert enda er hann aflgjafi lífsins, heilsu og vellíðanar. En matur tengist ýmsu öðru eins og trúarbrögðum og siðum, hindurvitnum og for- dómum, ímyndunum eða sjálfs- blekkingum. Sumir japanskir karl- menn telja að möluð horn nas- hyrninga auki karlmennsku. Sinn er siður... Aðstæður í hverju landi eru mjög ráðandi um það hvers er neytt. Inúítar á Grænlandi borð- uðu áður fyrr nær eingöngu dýraf- urðir; nú eru víða danskar mat- vörur frá Brugsen á boðstólunum en margar þjóðir neyta nær ein- göngu jurtaafurða. Gyðingar borða ósúrt brauð á páskahátíð- inni, en það er brauð án súrgers og lyftingar, það er því hart og stökkt undir tönn. Þessi venja á rætur að rekja til 3. Mósebókar, en nákvæma upp- talningu er þar að finna hvers má neyta og hvers ekki. Svínið er óhreint, eins úlfaldinn og hérinn; múslímar neyta ekki svínaafurða heldur. í Indlandi eru kýr heilag- ar og ósnertanlegar en Kínverjar virðast neyta alls þess sem matur getur leynst í; jafnvel trjábörkur er lagður í lög og er hann þá kall- aður brauð fátæka mannsins. Þörf eða fíkn? „Maður er það sem hann etur“, stendur einhvers staðar. Hungur er heilbrigð tilfinning þegar lík- aminn þarfnast fæðu; en oft er skynjunin brengluð og fólk finnur til svengdar að nauðsynjalausu. Það er oftast vegna þess að fólk hefur vanið sig á sællífi og kitlað bragðfærin um of. Sumir hafa langtímum saman verið með of mikinn blóðsykur, alveg frá barn- æsku en það getur valdið offitu- vanda alla ævi. Aðeins stigsmun- um yfir hlaðborðin og nemur hvar fitumiklar sósur er að finna en matarílát með þeim tæmast fyrst. Nýlega sást í sjónvarpi þegar maður einn í Bandaríkjunum var sóttur til að fara á sjúkrahús; hann var um hálft tonn að þyngd og þurfti að rífa húsgafl til að unnt væri að ná manninum út með gaff- allyftara. Hann sagðist ekkert skilja hvers vegna hann væri svona; margir hafa brosað en læknir kvað við að það væri ekki hlæjandi að þessu. Mjög margir í því landi er haldnir offitu; algengt er að sjá þannig fólk við verslunar- miðstöðvar haldandi á stórum pokum fullum af frönskum kartöfl- Böl og blessun Á sama tíma og milljónir manna deyja árlega úr sulti er ofát eitt af stærstu heil- brigðisvandamálum ríku þjóðanna og það fer vaxandi. Offita getur valdið m.a. sykursýki, gigtar- vandamálum, hjarta- og æðasjúk- dómum auk mikilla óþæginda og slæmrar sjálfsímyndar. Tugir prósenta íslendinga eru haldnir ofþyngd (10-20% umfram kjörþyngd) eða offitu (yfir 20%); á síðustu árum virðist landinn enn vera að þyngjast. Rannsóknir hafa sýnt að of mikil fita og prótín eru í mat landans og að kolvetni (ekki sykur) eru af skornum skammti, en þeim fylgja yfirleitt trefjar sem eru nauðsynlegar fyrir heilbrigða meltingu. Sykurát er allt of mikið. Jónas' Bjamason Skoðanir annarra Einkavæðing og eignaraðild „íslenzkt viðskiptalíf hefur gjörbreytzt á undan- förnurn árum. Forystumenn í viðskiptalífi eru nú til- búnir til að standa að viðskiptum sem nema mjög háum fjárhæðum. Þar er um að ræða upphæðir sem hingað til hafa ekki þekkzt í viðskiptum á íslandi. Ein af ástæðunum fyrir því, að þetta er hægt er sú, að verðbréfafyrirtækin og fyrirtæki á borð við FBA hafa opnað nýjar leiöir í viðskiptalífinu... Þau viö- skipti sem skýrt var frá i gær, eru hins vegar ann- ars eðlis... Það skal ekki lastað út Eif fyrir sig. Hins vegar sýna þessi viðskipti vel, að við einkavæðingu bankanna á íslandi geta óvæntir atburðir gerzt. Þeg- ar á þetta er litið er ljóst, að ríkisstjórninni er veru- legur vandi á höndum.“ Úr forystugrein Mbl. 4. ágúst Bankarnir og þenslan „Bankakerfið á svo sannarlega hlut að máli í þenslunni, sennilega meira ómeðvitað frekar en meðvitað og sést það á hinu aúkna lánsframboði. Það hefði mátt ganga hægar um gleðinnar dyr í þess- um málum... Þannig er bankakerfið látið bregðast við með aðgerðum Seðlabankans og öðrum peninga- legum aðgerðum. Bankarnir eru auðvitað bara að reyna að græða hver í sínu horni og reyna að lána sem mest.“ Tryggi Þór Herbertsson svarar blaðamanni Dags um þensluábyrgð bankanna - í Degi 4. ágúst Fjárhagsafkoma aldraðra „Þið hafið eflaust bæði heyrt og séð niðurstöðu skoðanakönnunar um fjárhagslega afkomu eftir- launaþega og annarra láglaunahópa, m.ö.o., þið haf- ið það gott og getið lagt niður skottið og verið ekki með neitt nöldur. Það era aðeins fá prósent sem eru að dragast upp vegna fátæktar... Það er glæsilegt að tróna á toppnum með góð lífskjör miðað við ná- granna okkar en einhvers staöar stendur: „Maður líttu þér nær.“ Væri það ekki nærtækara að bera okkur saman við lífskjör innan eigin þjóðar?... Ég endurtek, í sambcmdi við launavísitöluna svo og skattamálin, að það er staðreynd að um þrír fjórðu hlutar lífeyrissjóðsteknanna eru fjármagnstekjur en eigi að síður verður að greiða yfir 38% af þeim.“ Úr pistli Guðmundar Jóhannssonar í Mbl. 4. ágúst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.