Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1999, Page 7
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999
7
DV
Fréttir
Umhverfismat vegna svinaeldisstöðvar i Melasveit:
Matsúrskurður byggð-
ur á ráðherraheimild
Stefán Thors, skipulagsstjóri rík-
isins, segir í samtali við DV að
stöðvun framkvæmda við nýja
svínaeldisstöð að Melum i Melasveit
þar til umhverfismat hefur farið
fram á hinni fyrirhuguðu starfsemi
sé byggð á lögum um mat á um-
hverfisáhrifum frá 1993. í 5. grein
laganna eru taldar upp þær greinar
sem alltaf eru háðar umhverfismati,
svo sem virkjanir, vegir o.fl. í grein-
inni er hvergi minnst á neins konar
landbúnaðarstarfsemi. í 6. grein lag-
anna segir hins vegar að umhverfis-
ráðherra sé heimilt, að fengnu áliti
skipulagsstjóra, að heimila að
ákveðnar framkvæmdir sem kunni
- bein lagafyrirmæli ekki til
að hafa umtalsverð áhrif á náttúru-
auðlindir og samfélag, en ekki er
getið í 5. grein, verði háðar um-
hverfismati samkvæmt lögunum.
Eins og greint var frá i forsíðu-
frétt blaðsins í gær hefur Skipulag
ríkisins lagt til að umhverfismat
fari fram á áhrifum fyrirhugaðrar
svínaeldisstöðvar að Melum þótt
bein lagafyrirmæli um slikt mat séu
ekki fyrir hendi vegna starfseminn-
ar. Skipulagsstjóri vísar í því sam-
bandi til viðauka með reglugerð um
mat á umhverfisáhrifum þar sem
búfjár- og dýrahald er tilgreint sem
rekstur sem kunni að hafa í för með
sér umtalsverð umhverfisáhrif. Þar
við bætist að sam-
kvæmt 17. tölulið i
viðauka nr. 1 í til-
skipun Evrópusam-
bandsins frá 1997 séu
stöðvar þar sem fram
fer þauleldi fleiri en
3000 eldissvína háðar
umhverfismati. Sú
tilskipun hefur hins
vegar ekki verið stað-
fest af Alþingi.
Aðspurður um það
sagði Stefán:
„Það bar að lög-
festa tilskipunina á
íslandi fyrir 14. mars
Stefán Thors, skipulags-
stjóri ríkisins.
1999. Það lá fyrir
frumvarp til laga um
mat á umhverfisáhrif-
um sem náði ekki
fram þannig að það er
ekki búið að lögfesta
hana. Það breytir þó
ekki því að þarna er
ekki verið að tala um
skyldulista eins og er
í tilskipuninni heldur
er verið að beita 6.
grein gildandi laga
þar sem ráðherra er
gefin heimild til að
ákveða að fram-
kvæmdir sem ekki
eru á skyldulista fari í mat. Við telj-
um það vera ákveðin rök, þótt ekki
sé búið að lögfesta tilskipunina hér,
að þauleldi með fleiri en 3000 eldis-
svínum sé viðmiðun í tilskipuninni.
Þegar um er að ræða 20 þúsund eld-
issvín þá er ekki vafi í okkar huga
með hliðsjón af því sem er að gerast
annars staðar í Evrópu,“ sagði
skipulagsstjóri.
Stefán Thors sagði enn fremur að
ef ala ætti færri en 3000 svín á jörð-
inni þá þurfi ekki að fara fram um-
hverfismat. „Ég efast um að þá
myndum við leggja til við ráðherra
að umhverfismat færi fram,“ sagði
hann. -SÁ
Hrólfur Jónsson, siökkviliðsstjóri í Reykjavík, telur að til greina komi að slökkviliðið í Reykjavík fái leið út á Bústaða
veginn frá stöð sinni við Skógarhlíð.
Slökkvistööin við Skógarhlíð:
Fái leið út á Bústaðaveg
- segir slökkviliðsstjóri - telur stöðina vel staðsetta
Hagnaður 76 milljónir
Rekstrarhagnaður Samvinnusjóð
íslands hf. fyrstu sex mánuði árins
1999 var 99 milljónir króna fyrir
skatta en 76 milljónir króna eftir
skatta. Vöxtur hagnaðar eftir skatta
nemur 38% frá sama tímabili í fyrra.
Hreinar vaxtatekjur hækkuðu um
33% og vaxtamunur sem hlutfall af
útlánum lækkar lítilega, var 3,6% á
tímabilinu.
Aðrar rekstrartekjur hækka um 38
milljónir króna en skýringin á þess-
ari hækkun liggur aðallega í aukn-
ingu á þóknunartekjum, um 9 millj-
ónum króna, og söluhagnaði á
deCODE um 20 milljónir. Önnur
rekstrargjöld hækka um 28% frá
sama tímabili 1998. Þrátt fyrir að
önnur rekstrargjöld hækki þá lækkar
kostnaðarhlutfallið, þ.e hlutfall ann-
arra rekstrargjalda og hreinna vaxta-
tekna um 13%, voru 26,5% fyrstu sex
mánuði ársins. Kostnaðarhlutfall
Samvinnusjóðsins er mun lægra en
hjá viðskiptabönkum og öðrum fjár-
festingarbönkum á Islandi.
Heildarútlán Samvinnusjóðsins
30.6. námu 8,5 milljörðum króna,
höfðu aukist um 8% frá áramótum.
Heildareignir hækkuðu um rúmar
600 milljónir, námu 10,2 milljörðum í
lok júní. Eigið fé var 1.479 milljónir
króna 30. júní . Arðsemi eigin fjár
var 11% á tímabilinu. -bmg
með öllu, ek. 15 þús. km, dekurbíll, sem nýr.
Hrólfur Jónsson, slökkviliðs-
stjóri í Reykjavík, telur að til
greina komi að slökkviliðið í
Reykjavík fái sér leið út á Bústaða-
veginn frá stöð 'sinni við Skógar-
hlíð. Byggingarframkvæmdir eru
fyrirhugaðar á lóðinni við Skógar-
hlíð 12 og er talið að umferð muni
þyngjast allverulega í næsta ná-
grenni við slökkvistöðina.
„Það þyrfti að tryggja slíka sér
leið með hliðum og ljósum og út-
keyrslan yrði aldrei notuð nema í
neyðartilfellum," segir Hrólfur.
Hann telur að auðveldast væri ef
slík leið lægi út af lóð slökkviliðs-
ins en með henni myndi umferð
um Bústaðaveg stöðvast 7-10 sinn-
um á dag vegna neyðarútkalla
slökkviliðsins og sjúkrabíla.
„Það kemur auðvitað einnig til
greina að útbúa sérstaka auka-
akrein á Flugvallarveginum eins
og er fyrir strætisvagna i Banka-
stræti. Það er ljóst áð ef 4-5 bílar
eru á hvorri akrein verða slökkvi-
lið og sjúkrabílar í verulegum
vandræðum með að komast út,“
segir hann.
Hrólfur segir Slökkvistöðina það
vel staðsetta að ekki komi til
greina að færa hana annað.
„Staðsetningin er að mínu viti
prýðileg. Við erum mjög miðsvæð-
iðs en aðeins út úr þannig að ég er
alveg á því að hún er vel staðsett.
Við höfum aðra slökkvistöð uppi í
Tunguhálsi og erum fljótir að kom-
ast út á helstu stofnbrautir. Ef við
skoðum svo okkar stöð í tengslum
við slökkvistöðina í Hafnarfirði þá
sjáum við að hún er vel staðsett,“
segir Hrólfur. -hb
Upplýsingar í síma 566 7363
og á kvöldin í síma 566 7196.
Bíldshöfða 12
Sími: 567-3131 fax 587-0889
VWGolf 1,6 GL,árg. 1998,
5 g., vökvast., álfelgur, spoilerkit,
rafr. o.fl., ek. 55 þús. km.
Verð 1.390.000.
Ath. skipti á ódýrari.
Chevrolet Bel Air, árg. 1954,
2 d., uppgerður, fallegur bíll.
Verð 2.250.000.
Ath. öll skipti.
Dodge Caravan SE 3000, árg.
1993, ek. 219 þús. km, framdrifinn,
rafdr. rúður o.fl.
Verð 1.290 þús.
Ath. skipti.
Nissan Micra, árg. 1998,
5 d., 5 g., vökvast.,
ek. 44 þús. km.
Verð 940.000.
NissanAlmera LX1400, árg.
1999, ek. 8 þús. km, 3 d., cd.,
álfelgur, litað gler.
Verð 1.350.000.
Ath. skipti á ódýrari.
BMW 320i, árg. 1995, ek. 76 þús.
km, 5 g., 17“ álfelgur, rafdr. o.fl.
Verð 2.290 þús.
Daihatsu Charade SG sedan, árg.
1993, ek. 98 þús. km, ssk., vökvast.
Gott eintak. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 540.000.
VWGolf GL1400, árg. 1996,
5 d., 5 g., ek. 55 þús. km.
Verð 990.000.
VW Polo 1400Í, árg. 1998,
5 d., ek. 22 þús. km, 5 g., vökvast.
Verð 1.030 þús.
VW Transporter 4x4 dísil, árg.
1997, ek. 19 þús. km, langur,
hliðarhurðir báðum megin.
Verð 1.620.000.