Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
______5>
Fréttir
Geri flaug strax
á toppinn
Ný smáskífa fyrrverandi
Kryddpíunnar Geri Halliwell, Mi
chico latino, flaug strax í efsta
sæti vinsældalistans í Englandi.
Geri er að vonum yfir sig ánægð.
Ímaí síðastliðnum gaf Geri út
fyrstu smáskífu sína eftir
skilnaðinn við Kryddpíurnar. Sú
plata fékk slæmar viðtökur og
komst aldrei efst á sölulista.
Brjálæðingur vill
giftast Juliu
Stundum getur verið erfitt að
greina milli veruleikans og skáld-
skaparins. Aumingja Julia Ro-
berts hélt að það væri bara á
hvíta tjaldinu sem hún væri að
hlaupast á brott frá manni sem
hún vill ekki giftast, það er að
segja í myndinni Strokubrúður-
inni. Annað hefur þó komið á dag-
inn því að einhver brjálæðingur-
inn hefur verið að gera leikkon-
unni fögru lífið leitt að undan-
fomu með kröfúm um að hún
gangi að eiga hann. Vesalings
maðurinn eltir Juliu á röndum
hvert sem hún fer og játar henni
ást stna við hvert tækifæri. Hann
hefur aldrei haft í hótunum við
stúlkuna en hún er engu að síður
óttaslegin.
Camilla kom, sá
og stal senunni
Camilla Parker Bowles, ást-
kona Karls Bretaprins, stal svo
sannarlega senunni um daginn
þegar hún brá sér á leikrit sem
fjaliar um fráskilda konu sem
komin er nokkuð við aldur. Sú
fræga leikkona Greta Scacchi
leikur umrædda konu, þótt ekki
sé hún nú mjög roskin.
í leikritinu segir frá miðaldra
fráskilinni konu sem giftist inn í
hástéttarfjölskyldu og má þola
ýmsa fordóma fyrir tiltækið.
Heimildarmenn segja að
Camilla hafi verið í grænni dragt
og að henni hafi þótt mikið til
frammistöðu Gretu Scacchi koma.
Með Camillu voru vinir hennar
og Karls.
Nýi blossinn í lífi Bruce:
SvikaJkvendi sem
lifir tvöföldu lífi
Nýjasta ástkona kvikmyndaleik-
arans Bruce Willis er gift kona sem
lifir tvöfóldu lífi, að því er breska
æsifréttablaðið Sunday People fuil-
yrðir. Blaðið segir spænsku
senjórítuna Mariu Bravo vera svik-
ara sem skipti um nafn til að kom-
ast undan því að greiða skuldir sín-
ar.
Og þegar Maria er ekki að gamna
sér með Bruce er hún með eigin-
manni sínum í Bandaríkjunum.
Bruce mun hafa fallið fyrir
Mariu, sem er dökk á brún og brá,
við opnum Planet Hollywood-veit-
ingastaðar í Madrid. „Hún er æðis-
leg. Ég er ástfanginn á ný og það er
æðisleg tilfmning. Þessi kona er
gimsteinn sem maður finnur bara
einu sinni á ævinni," sagði Bruce
við vini sína.
Hann kann þó að skipta um skoð-
un þegar hann fréttir af vafasamri
Bruce lét gabba sig.
Símamynd Reuter.
fortíð senjórítunnar sinnar bæði á
Spáni og í Ameríku. Þegar þau hitt-
ust kvaðst hún starfa í kauphöllinni
í Madrid. Rannsókn Sunday People
hefur leitt í Ijós að Maria er alveg
óþekkt í fiármálaheimi Spánar.
Maria, sem er 32 ára, hefur að
mestu dvalið í Bandaríkjunum frá
árinu 1991 ásamt eiginmanni sín-
um, Pierre Gonyou. Þau hafa notað
að minnsta kost þrjú nöfn og jafn-
margar kennitölur.
Þar til nýlega bjuggu Maria og Pi-
erre í lúxusvillu í Beverly Hills. Þau
voru hins vegar hrakin úr henni
þar sem þau gátu ekki greitt leig-
una.
Sagt er að Maria hafi beitt
gömlu ráði til þess að krækja i
Bruce. Hún hafi sýnt honum lítinn
áhuga þegar þau voru kynnt.
Áhugaleysi hennar hafi kveikt í
honum.
Oliver Stone
í samningum
Lögmaður kvikmyndaleikstjór-
ans Olivers Stones stendur í
samningaviðræðum við dómara í
Beverly Hills vegna ákæru á
hendur leikstjóranum um neyslu
fikniefna. Ætlunin er að koma í
veg fyrir að Oliver þurfi að sitja
inni fyrir brotið.
Vandræðin hófúst 9. júní þegar
löggan handtók Stone fyrir að
keyra i rykkjum og skrykkjum
eftir hinum bugðótta Benedickt
Canyon-vegi. í bílnum hans,
svörtum Ford Mustang, fundust
síðan alls konar fíkniefni.
Skemmtir
sér með
fyrrverandi
eiginkonu
Sögusagnir um Michael Douglas
og Catherine Zeta Jones gangi inn-
an tíðar í hjónaband eru orðum
auknar. Þetta hafa erlend slúður-
blöð eftir Allen Burry, talsmanni
kvikmyndaleikarans. „Michael og
Catherine eru
enn mjög ást-
fangin og það
verður mikið
urn dýrðir í
Hollywood þeg-
ar þau halda
upp á afmælis-
daginn sinn
saman sem er
25. september.
En ég veit ekki
til þess að trúlofun standi fyrir dyr-
um,“ segir talsmaðurinn.
En þrátt fyrir heita ást á
Catherine eyddi Michael hluta af
fríi sínu á Mallorca með fyrrver-
andi eiginkonu sinni, Diöndru. Þau
fóru meðal annars á kappakstur
saman. Michael og Diandra skildu
fyrir tveimur árum eftir 19 ára
hjónaband. Diandra er þó ekki ein
því hún á kærasta sem heitir Sasha
Newly. Sasha er sonur
kvikmyndaleikkonunnar Joan
Collins.
Downey fær til-
boð í steininum
Robert Downey, Hollywood-
leikari og alvanur tugthúslimur,
segir frá því í viðtali að hann hafi
fengið furðulegustu tilboð þegar
hann sat inni í Kalifomíu fyrir
einhverju sinni.
Einhverju sinni var hann i ein-
angnmarvist eftir slagsmál viö
annan fanga. Þangað komu þá dag
nokkurn tveir lögregluþjónar í
heimsókn og spurði annar hvort
hann væri nokkuð að fara yfir
strikiö með því að biðja hann um
að lesa fyrir sig kvikmyndahand-
rit. Þá segir Downey að samfang-
ar hans hafi alltaf verið aö gauka
að honum alls lags hugmyndum.
Blaðberar óskast
í eftirtaldar götur:
Breska ofurfyrirsætan Naomi Campbell tók þátt í mikilli baðfastasýningu í
gleðiborginni Rio de Janeiro í Brasilíu um helgina. Naomi tók sig vel út f bað-
fötunum sem ætluð eru fyrir sumarið mikla árið 2000.
Fergie á strönd með
ítalska greifanum
Þó svo að fullyrt hafi verið að
sambandi Fergie og ítalska
greifans Gaddo della Gherardesca
hafi lokið fyrir nokkrum mánuðum
þykir augljóst að enn sé hlýtt á
milli þeirra.
Parið sást nefnilega nýlega sam-
an á strönd í Toscana og fór ekki á
milli mála hversu heitar ástríðurn-
ar eru. Sást greifinn meðal annars
strjúka Fergie sinni.
Hún kom til heimilis greifans í
Toscana með dætrum sínum eftir
að hafa verið í fríi á Sardiníu.
Fergie og greifinn njóta einnig frí-
daga saman núna í lok þessa mán-
aðar í Frakklandi á heimili vinar
hertogaynjunnar, Paddy McNally.
Brúnaveg Selvogsgrunn Máshóla
Dalbraut Sporðagrunn Orrahóla
Ugluhóla
Valshóla
Auðbrekku
Löngubrekku Bankastræti
Laufbrekku Laugaveg
Upplýslngar veitir afgreiðsla
DV í síma 550 5000