Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1999, Blaðsíða 10
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 JD"V
matgæðingur vikunnar
'k -fc
kekkir eru horfnir og smyrjið
svo yfir kökuna.
Eplabaka
- góð og fljótleg, lít-
inn undirbúning þarf
Fyrir fjóra þarf að hafa:
3 epli
100 g rjómaost
4 msk. kanilsykur
4 msk. hnetuspæni
3 msk. brauðrasp
1 kringlótt álform, 30 cm
Afhýðið eplin, kjamhreinsið,
skerið i sneiðar og raðið i álform-
ið. Stráið kanilsykrinum yfir,
hrærið út rjómaostinn og setjið
yfir eplin. Stráið síðan hnetu-
spæninum og raspinu yfir og J
grillið í u.þ.b. 20 mínútur, helst á
efri grind.
Gott er að bera fram vanilluís
með bökunni.
%
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem allt hráefni í
þær fæst.
Appelsínukaka
- kakan er fljótleg og
bragðgóð og helst
mjúk lengi
200 g sykur
2 stk. egg
1 dl mjólk
100 g smjör
200 g hveiti
1/2 msk. lyftiduft
Börkur af einni appelsínu
Hjúpur
300 g suðusúkkulaði
2 msk. appelsínusafi
30 g smjör
Sykur og egg em þeytt mjög
vel saman með þeytaranum, I
mjólk og brætt smjörið, hveiti,
lyftiduft og appelsínubörkurinn
eru sett saman við og þeytt áfram
í ca eina mínútu. Setjið deigið í
26 cm hringform, bakið við 180° í jj
36-40 mín. og kælið botninn. I
Bræðið saman súkkulaði, smjör
og appelsínusafann þar til allir
Nýkaup
Þarsemfersldeikinn býr
Hulunni svipt af heimilisleyndarmálinu:
Vesturbæingur í sparifötunum
Það er Sonja Grant, verslunar-
stýra í Kaffitári, sem er matgæðing-
ur þessarar viku. „Þessir réttir eru
einfaldir en samt pínulítið í spari-
fötunum. Þeir gestir sem komið
hafa til mín i mat hafa grátbeðið um
þessar uppskriftir en ég hef verið
frekar treg til að láta þær af hendi.
Nú er komið að því að hulunni sé
svipt af leyndardómnum.
Spínat-vesturbæingur
(fyrir 4-5 svanga gesti)
500 g spínat (hægt er að fá frosið
spínat, stundum ferskt)
500 g kotasæla
rifinn mozzarellaostur
8-10 ferskir tómatar (eða tvær
dósir af niðursoðnum), saxaðir •
2 stórir laukar, saxaðir 1/2 hvít-
laukur (eða eftir smekk), saxaður
smátt lagbökublöð (lasanjablöð)
frá Pestó, eða heimatilbúin kaffi-
rjómi
nýmalaður svartur pipar, salt,
basilikum, cayenne-pipar
Spínatið er soðið í saltvatni og
kælt niður. Kotasælu, mozzarella-
osti og spínati blandað saman og
kryddað.
Tómatar og laukur sett í pott og
látið malla í smástund, kryddað
hæfilega. Maður þarf að passa sig á
cayenne-piparnum, svona eftir því
hvað matargestir þola.
Best er að nota stærsta eldfasta
mótið sem til er á heimilinu, því ef
það er afgangur er Spínat-vesturbæ-
ingurinn svakalega góður daginn
eftir.
Fyrst er sett lag af spínatblönd-
unni, þá tómatblöndunni og síðan
lagbökublöð. Þetta er síðan endur-
tekið en fallegast þykir mér að hafa
spínatblöndu efst. KafFirjóma helli
ég svo fljóti yfír.
Sett inn í 180°C heitan ofn í 35-40
mínútur.
Forréttur - ein sneið
á mann
Á meðan aðalrétturinn er að bak-
ast er gaman að geta boðið upp á
smá forrétt. Hann er mjög einfaldur
%ikert vesen
Sonja Grant, verslunarstýra í Kaffitári, býður upp á spínat-vesturbæing fyrir
svanga gesti, auk einfalds forréttar og Ijúffengs eftirréttar. Uppistaðan í eft-
irréttinum er - rétt til getið - kaffi frá Kaffitári.
og hægt að undirbúa hann
þónokkru áður.
6-8 ferskir tómatar, saxaðir
4 hvítlauksrif, söxuð
ólífuolía
nýmalaður svartur pipar
4-5 brauðsneiðar af þéttu
dökku brauði
Tómatar, ólífuolía, hvítlaukur og
pipar sett saman í skál.
Brauðið steikt á pönnu, báðum
megin og ein matskeið af tómat-
gumsinu sett á hverja brauðsneið.
Brauðið er svo borið fram, ein sneið
á mann, með glasi af uppáhalds-
rauðvíninu.
Þegar gestir eru búnir með for-
réttinn fer að styttast í aðalréttinn.
Eftirráttur með ítölsku
ívafi
Vanilluís
nýmalað espressókaffi frá Kaffi-
tári (hellt upp á i mokkakönnu á
hellu) muldar súkkulaðihúðaðar
kaffibaunir frá Kaffítári Vanilluís-
inn settur i 4-5 viskíglös.
Þegar kaffið er tilbúið er sykur
settur út í mokkakönnuna og hellt
yfir ísinn. Skreytt með súkkulaði-
húðuðum kaffibaunum.
Um leið og ég segi verði ykkur að
góðu vil ég skora á vinkonu mína
Ingu Völu Birgisdóttur Akureyrar-
mær, úrræðabesta kokk sem ég
þekki, að vera næsti matgæðingur
vikunnar."
Ostakryddbrauð með hvítlauk:
Gott að næturlagi
Ef ykkur þykir hvítlauksbrauð
gott, þá er þetta brauð lostæti. Ekki
bara hvítlauksbrauð, heldur um
leið kryddbrauð og ostabrauð.
Brauðið góöa er fullkomið fyrir
tvo að kvöldi yfír sjónvarpinu, eða
að næturlagi þegar allir eru svangir
en enginn nennir að leggja neitt á
sig til þess að elda. Einnig er brauð-
ið fullboðlegt í partíið með öðrum
smáréttum.
1 lítil bagetta, eða annað hentugt
brauð.
75 g mjúkt smjör.
2 hvítlauksrif, marin.
1 tsk. blandað ferskt krydd, eða 1
1/2 tsk. þurrkað.
75 g mozzarella-ostur, rifinn.
Hitið ofninn í 190°C. Skerið átta
til níu djúpa skurði í brauðið (gætið
þess þó að skera ekki alveg í gegn).
Hrærið saman hráefnið og smyrjið
þykkt í skurðina. Vefið síðan ál-
pappír vel um brauðið og bakið í 20
mínútur, eða þar til brauðið er orð-
ið stökkt og heitt og osturinn fylli-
lega bráðinn.
Þetta brauð er gott beint úr ofnin-
um og frábært að drekka með því
flösku af góðu
rauðvíni. Einnig
er gott að hafa
brauðið með mat
- þegar þannig
stendur á - og þá
hentar það nán-
ast með hvaða
rétti sem er, best
er þó ef réttur-
inn er ekki mjög
bragðsterkur.
Brauðið góða er
fullkomið fyrir
tvo að kvöldi yfir
sjónvarpinu, eða
að næturlagi
þegar allir eru
svangir en eng-
inn nennir að
leggja neitt á sig
til þess að elda.
Nykaup
Þar semferskleikinn býr
Nauta Caipaccio
Imeð balsamediki og radísum
Fyrir 4
200-300 g ungnautalundir, fitu- og
sinahreinsaðar
Meðlæti
3 stk. skalottlaukur
6 stk. hvítlauksrif
6-8 stk. radísur
16 stk. frise-salatlauf, örlitil
3 msk. hjartahnetur
(cashew-hnetur)
3 msk. graskersfræ
50-60 g parmesanostur
Edikssósa (vinaigrette)
2 dl balsamedik
1 dl ólífuolía
1 msk. sítrónusafi
salt og pipar úr kvöm
Skerið kjötið hrátt í örþunnar
sneiðar, fletjið út með hnif og setjið
á diska.
Meðlæti
Skerið laukinn í strimla, hvítlauk
og radísur i þunnar sneiðar, riflð
salatið fint og brúnið hnetur og fræ
! á þurri heitri pönnu. Öllu stráð yfir
kjötsneiðamar, jafnt á alla diska,
rifinn parmesanost yfir.
Edikssósa (Vinaigrette)
Blandið öllu saman með pískara,
setjið yfir réttinn með skeið.
Ostabaka
með ólífum, beikoni og pepperoni
IIFyrir 6
Botn
180 g hveiti
80 g heilhveiti
60 g smjör eða smjörlíki
1 dl vatn
1 stk. egg
1 tsk. salt, sléttfúll
Fylling
1 stk. rauðlaukur
1 stk. paprika, græn
2 stk. tómatar
100 g pepperonisneiðar
20 stk. ólífur, grænar og svartar
2 dl mjólk
4 stk. egg
1 tsk. óreganó
4 msk. nýr graslaukur, saxaður
1 tsk. timian
100 g mozzarellaostur, rifinn
1 stk. paprikuostur
salt og pipar úr kvöm
Botninn: Öllu hráefni blandað vel
saman með hnoðaranum í hrærivél-
arskál, ljúkið viö að hnoða í höndun-
um. Setjið deigið i plastfilmu og
hvílið í kæli í 3-4 klst. Fletjið síðan út
á borði og leggið i smurt, eldfast mót
(24-26 cm í þvermál). Þrýstið vel út í
hliðarnar. Afgangsdeig skorið af eftir
að fyllingin er komin í.
Fyllingin: Skerið niður lauk og
papriku og léttbrúnið í ólífuolíu á
pönnu. Bætið graslauknum saman
við og kælið. Skerið annað grænmeti
í sneiðar. Pískið saman mjólk, egg og
krydd og hrærið saman við sneitt
pepperoni, grænmeti og krydd og
setjið á deigið í forminu. Mozzarella-
ostinum stráð yfir ásamt paprikuosti
í bitum. Bakið við 190°C í 40-45 mín.
Berið fram heitt eða kait._______
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
S ■?: . ... . . ■ . ...