Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1999, Blaðsíða 47
Leikstjórinn knái Emir Kusturica og Dr. Nelle verða í sviðsljósinu í Laugardalshöllinni í kvöld. DV-mynd Pjetur
Kjarnorkusprengjan Kusturíca
Einn fremsti leikstjóri Evrópu, Emir
Kusturica, er heióursgestur Kvikmyndahá-
tíðar DV í Reykjavík. Hann á farsœlan feril
að baki, einar átta myndir, og hefur vœgast
sagt raðaó inn verðlaunum fyrir þær út um
allan heim. Nýjasta myndin hans, Svartur
köttur, hvítur köttur, er opnunarmynd
Kvikmyndahátíðarinnar. Hún fjallar um
sígaunafjöiskyldur í Júgóslavíu. Myndin er
á allt öðrum nótum en síðasta mynd Kust-
urica, Neðanjarðar. Flestir ættu að kannast
við Neðanjarðar, en hún var sýnd í Há-
skólabíói fyrir rúmum tveimur árum. Með
Kusturica í fór er hljómsveit sem hann spil-
ar á ritmagítar í, No Smaking Band. Þeir
gerðu tónlistina við Svartur köttur, hvítur
köttur. Forsprakki No Smoking Band, og
aðalhöfundur tónlistarinnar í myndinni, er
einn besti vinur Kusturica, Dr. Nelle. Marg-
ir muna kannski eftir honum þar sem hann
var á harðahlaupum í byrjunaratriðinu í
Neðanjarðar að reyna aó snapa peningfyr-
ir aó spila á gítar.
Svínið og Trabantinn
Svartur köttur, hvítur köttur átti uppruna-
lega að vera heimildamynd um sígaunahljóm-
sveit. Af hverju ákvaóstu aö gera leikna mynd í
staóinn?
„Hún átti vissulega fyrst að vera heimilda-
mynd en síðan áttaði ég mig á því að það var
óþarft að gera heimildamynd um sígaunatón-
list. Málið er að tónlistin þeirra er í rauninni
eins uppbyggð og aðferðir mínar við kvik-
myndagerð, andinn ræður oft ferðinni. Því
ákvað ég að fara alla leið með þessa hug-
mynd.“
í myndinni má oft sjá bregða fyrir
kattapari, hvítum ketti og svörtum ketti. Þeir
fylgjast með atburðarásinni úr fjarlægð en
hlutverk þeirra er óljóst.
Hvíti og svarti kötturinn í myndinni, hvaó
tákna þeir?
„Þetta er gamalt bragð sem ég nota stund-
um. Ég vil alitaf hafa tvö eða þrjú mismunandi
samsíða lög í uppbyggingu atburðarásarinnar.
Margir hlutir gerast á sama tíma. Þannig get
ég skapað andstæður í sömu atburðarás. Kett-
imir þjóna hlutverki mállausu vitnanna sem
horfa upp á ósköpin."
í myndinni má einnig sjá svíni bregða fyrir
sem dundar sér við það að japla á gömlum
Trabant. Þegar líður á myndina verður minna
og minna eftir af Trabantinum.
Hvaó um svíniö?
„Það er brandari. Oft gerist það í kvikmynd-
um að hinar ýmsu persónur segja hinar og
þessar setningar sem skipta ekki neinu máli
eða einhver labbar fram hjá myndavélinni og
kemur\ síðan sögunni ekkert við. Ég stillti
svíninU og Trabantinum upp þar sem oft er
farið fram hjá. Þannig staðsetti ég þennan stað
í einskismannslandi og persónugerði bak-
grunninri."
Sumir 'halda þvífram að þetta eigi aó tákna
kapitalisniann veraaó háma kommúnismann í
sig.\ ] , '
„Nei, nei. Ég er ekki svo róttækur. Þar að
auki myndi kommúnisminn örugglega éta á
móti.“
Hamingjan brýstfram
Sagt er aö myndin nái aö framkalla 100%
lífshamingju. Ertu sammála því?
„Myndin tekur á því hvemig menn geta
verið misjafhir. Tekur á hverfulleika hvata
mannanna. Samt held ég að ekki einu sinni
sígaunar séu jafn glaðir og fólkið í myndinni.
Ég veit ekki hvort það er til jafh mikil lífsham-
ingja og þar.“
En þú, er lífshamingjan 100% hjá þér?
„Varla, ég er mjög jarðbundinn, nema þeg-
ar ég stíg á svið með hljómsveitinni. Þá brýst
hamingjan fram.“
Tengist Svartur köttur, hvítur köttur
Tíma slgaunanna, sem þú gerðir fyrir 11
árum, á einhvem hátt?
„Á vissan hátt. Sígaunar era mjög sér-
stakir, svipaðir fyrirsætum hjá málara,
sem reynir að ná lifandi ímynd á strigann.
Málarinn snýr alltaf aftur til fyrirsætn-
anna. Ég er líka að snúa aftur, eftir erfitt
tímabil í lífi mínu, til einhvers sem ég var
að vinna að áður. Ég ólst einnig upp i
kringum sigauna. Það er mér mjög
mikilvægt. Nú átta ég mig á því
hversu miklu máli umhverfið
skiptir á þroskaskeiðinu.
Það var alltaf líf og fjör í
kringum þetta fólk.“
Skylda að horfa
Þegar Dr. Nelle er
spurður hvort hann hafi séð
allar myndir Kusturica skella
þeir báðir upp úr.
„Ég verð að sjá allar mynd-
imar hans, annaö er ekki
hægt. Ef ekki, bankar lögregl-
w
Oskar, nei, takk
an upp á hjá mér og handtekur mig. Þegar lög-
reglan stoppar mann á 180 km/klst spyr hún
hvort maður hafl séð nýjustu myndina hans
eða hvort maður vilji fara í steininn. Annars
finnst mér Svartur köttur, hvítur köttur vera
sú besta sem hann hefur gert en þar spilar
kannski inn í að ég vann að henni."
Er Kusturica er inntur eftir því hver mynda
hans sé í uppáhaldi er hann ekki viss.
„Það er erfitt að segja. Það er erfitt að gera
upp á milli myndanna. Neðanjarðar var án efa
sú erfiðasta, sú sem skildi mest eftir. Það
mætti líkja þessu við málverk, ein myndin er
flennistór með fjölda manns, sneisafull af smá-
atriðum, meðan önnur er lítil en listamaður-
inn hellti sálinni af sama krafti yfir hana. Neð-
anjarðar segir frá svo miklu, sársaukanum,
gleðinni, sögunni, pólitíkinni og stríðinu í
landinu okkar. Þetta var mjög átakanlegur
tími i lífi mínu og eftir að myndin varð til var
þungu fargi létt af mér. Ég er sannfærður um
að myndin á eftir að verða enn sterkari með
tímanum. í lokaatriði Neðanjarðar flaut hópur
af fólki burt á eyju. Það er það sem gerðist
raunverulega í landinu. Þetta atriði var tekið
einum kílómetra frá tökustað Svartur köttur,
hvítur köttur. Þannig er komið nýtt tímabil,
en fortíðin er ekki gleymd."
„Það var svipað hjá mér,“ segir Dr. Nelle.
„Eftir stríðið gerði ég erfiða piötu sem heitir I
am not from here þar sem ég reyndi að
losa mig við alls kyns tilfinningar í sam-
bandi við stríðið og fleira. Með Svartur
köttur, hvitur köttur erum við báðir að
hefja nýtt tímabil í lífi okkar, aðeins að
slaka á taumunum."
Kusturica er með farsælli leikstjórum
okkar tíma og sést það best á þeim
fjölda verðlauna sem hefur verið
ausið yfir hann. Hann er m.a.
eini maðurinn sem hefur
tvisvar hlotið gull-pálmann í
f Cannes. Hins vegar vantar
eina styttu í safriið, sjálfan
óskar þeirra vestanhafs-
manna.
Langar þig í óskar?
„Alls ekki. Svona hlutum
*J » hef ég nákvæmlega engan
111 áhuga á. Fyrir mér hafa verð-
I jí laun misst allan ljóma, nú til
| I\ dags snýst allt um markaðs-
' ' setningu og miðasölu. Þú
verður að vera meö Kevin
Costner, sem er bara vitleysa."
„Ég hefði ekkert á móti því að fá óskar,“
skýtur Dr. Nelle inn í.
„Það var miklu meira vit í leikstjórum í
Evrópu í gamla daga,“ heldur Kusturica
áfram. „Þeir voru ekki endalaust að stuðla að
algleymi kvikmyndanna. Þeir voru óhræddir
við að fara nýjar leiðir, sama þótt þær væru
tormeltar. Það endaði með því að sjónvarpið
varð þarfaþing á hveiju heimili. Nú til dags
eru menn hins vegar alltaf að rembast eins og
ijúpan við staurinn við að gera myndimar
sínar aðgengilegar og taka sem mest inn í
miðasölu. Þetta höfðar ekki til mín.“ -*
Kvikmyndagerðarmenn
óhamingjusamir
Kusturica leikur með hljómsveit Dr. Nelle,
No Smoking Band. Hann spilar á ritmagítar og
til gamans má geta að sonur hans, Stribor,
spilar á trommur. Emir byrjaði að spila með
hljómsveitinni árið 1986, en hann og Dr. Nelle
höfðu þá þekkst í nokkur ár. Þeir kynntust
þegar Dr. Nelle tók viðtal við Kusturica í stutt-
um gamanútvarpsþætti sem hann sá um árið
1983.
Ríflst þiö aldrei?
„Við rífumst daglega, þess vegna erum við
svona góðir vinir. Við erum yin og yang, höf-
um rifist í fimmtán ár,“ segir Dr. Nelle.
Er skemmtilegra að rokka með hljómsveit-
inni heldur en aö leikstýra?
„Það er mikið ffelsi sem fylgir því að spila
með hljómsveitinni, lítið sem hvílir á bakinu,“
segir Kusturica. „Það reynir einnig mjög á
mann að koma fram og spila af viti. Það er
mjög gefandi. Þetta eru tveir ólíkir hlutir. Ég
leik tónlist félagslega, ekki til að tjá mig á list-
rænan hátt. Tek tónlistarferil minn ekki alvar-
lega. Ég vil frekar hafa gaman af þessu."
Drekka tónlistarmenn meira heldur en kvik-
myndageröarmenn?
„Tónlistarmenn drekka vegna þess að það
er þeim eðlislægt. Kvikmyndagerðarmenn
drekka hins vegar vegna þess að þeir eru
óhamingjusamir. Ég drekk hins vegar ekki
mikið."
„Hann drakk nóg fyrir alla sina ævi fyrstu
tuttugu árin,“ segir Dr. Nelle hlæjandi. No
Smoking Band heldur tónleika ásamt Sigur
Rós í Laugardalshöll þann 28.8. og eru allir
hvattir til að fara á þessa einstöku tónleika,
sem og mynd Kusturica, Svartur köttur, hvít- _
ur köttur. -hvs i