Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1999, Blaðsíða 22
22 kamál LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 UV Vicky Fletcher hjúkrunarkona var að skemmta sér með nýja kærastanum sínum og nokkrum góðvinum í Castlefield-kránni í samnefndum bæ á Mið-Englandi þegar hún kom skyndilega auga á fyrrverandi sambýlismann sinn, Thomas Shanks. Hann stóð fyrir utan og horfði inn um gluggann. „Æ, er Tommy kominn aftur,“ sagði hún þreytulega. Hún hafði hætt að búa með honum þremur vikum áður en hann hafði elt hana og áreitt allt síðan. Og það bætti ekki úr skák að bæði unnu þau á Pontefract-sjúkrahúsinu þar sem hann var svæfmgalæknir. Hrædd en ákveðin Vicky, sem var tuttugu og eins árs, óttaöist Thomas Shanks, sem var fjörutíu og sjö ára og því rúm- lega tvöfalt eldri en hún. Hún reidd- ist því nú að hann skyldi koma og reyna aö spilla fyrir sér kvöldstund hennar og vina hennar. Loks stóð hún á fætur og gekk út fyrir til að biðja hann að fara. Þegar hún kom út stóð Shanks við Peugeot-bíl sinn á bílastæði við krána. Hún gekk til hans og sagði honum umbúðalaust að hún væri orðin þreytt á að sjá hann elta hana. „Þú átt að koma aftur til mín,“ sagði hann, þessi hávaxni, þrekni og stuttklippti maður sem fæstum þótti árennilegur. En Vicky var ákveðin í að láta ekki hræöa sig. „Ég kem aldrei aftur til þín,“ sagði hún. Svo snerist hún á hæli og gekk aftur að kránni. Skothríð Augnabliki síðar opnaði Thomas Shanks bíldymar og greip AK 47 herriffil. Vinir Vicky sáu út um gluggann hvað var í aðsigi og reyndu að gera henni aðvart en hún heyrði ekki hróp- in í þeim. Og skyndilega heyrðust nokkrir skot- hvellir. Vicky datt. Hún hafði fengiö kúlu í bakið og aðra í annað lærið. Henni tókst samt að staulast á fæt- ur og komast inn í krána en Shanks hélt á eftir henni og skaut nokkmm skotum. Hann hitti hana eft- ir að hún var komin inn fyrir og þegar hún lá deyjandi á gólfinu hallaði hann sér yfir hana og hrópaði: „Fjandans merin þín!“ Svo gekk hann út um dymar, settist upp í bílinn og ók burt á miklum hraða. Vinafólk Vicky reyndi að halda í henni lífinu en hún lést áður en komið var með hana á sjúkrahús- ið sem hún og Shanks höfðu unnið á. Hvarf út í nóttina Lögreglan fór fljótlega að leita aö Shanks en hann var hvergi að finna. Morðið var framið þann 8. mai í fyrra og fréttin af því kom eins og reiöarslag yfir marga. Thomas Shanks var ekki bara for- smáður elskhugi. Hann var ein mesta núlifand: stríðshetja Breta og ef til vill besti hermaður landsins. Hann var höfuðsmaður i sérdeild- unum SAS og í andhryðjuverka- sveit sem talin er með þeim albestu í heimi. Thomas Shanks fæddist í Glas- gow í Skotlandi og ólst upp hjá grimmíyndum frænda sínum. Faðir hans lést þegar hann var enn ungur að áram og móðirin, sem átti sex böm, gat ekki séð fytir þeim öllum. Strax á unglingsámnum var Thom- as miklu sterkari og í betri líkams- þjálfún en flestir jafnaldrar hans og árið 1968 var hann tekin í SAS-sveit- irnar, þá sautján ára, og haföi eng- inn yngri að ámm nokkru sinni verið tekinn í þær. Eftir sex ára erf- iða þjálfun var hann sendur í átök sem stóðu þá yfir í Óman. Þar var barist um landamæri. Þetta stríð fékk litla umfjöllun en stóð yfir í sjö ár og í þrjú af þeim var Thomas Shanks í fremstu víg- línu. Hetjudáðir Arið 1976 var sveit SAS-manna send til að hefta framsókn skæm- liða sem höfðu í huga aö eyðileggja mikilvæga olíuleiðslu. Skæruliðam- ir voru fjölmennari og sterkari and- stæðingar en talið hafði verið og SAS-mennimir lentu í hremming- um. • Þrátt fyrir mikla áhættu og beina lífshættu bar Shanks sex særða fé laga sína, einn á eftir öðrum, á stað þar sem hægt var að koma þeim um borð i þyrlu. Fyrir þessa hetjudáð var hann sæmdur herorðunni, æðsta heiðurs- merki sem veitt er innan bresku herjanna. Og skömmu síðar var hann kvaddur heim til að taka þátt í starfsemi andhryðjuverkasveit- anna. Á þeim þremur árum sem Shanks hafði verið í fremstu víglínu hafði Thomas Shanks hann séð marga af félögum sínum deyja eða særast og hljóta varanlega fótlun af því þeir fengu ekki rétta læknishjálp í tæka tíð. Árið 1978 gekk hann úr SAS-sveitunum og fór aö læra læknisfræði við háskólann í Birmingham en fyrsta áfanga náms- ins hafði hann lokið meðan hann var í herþjónustunni. Herlæknir og síðan svæfingalæknir Að loknu námi gerðist Shanks her- læknir í SAS-sveitunum og tók bæði þátt í stríðinu á Falklandseyjum og Persaflóastríðinu við góðan orðstír. Jafnvel í SAS-sveitunum þótti hann sýna mikinn dug og vera harður af sér. Reyndar einn allra- bestur þeirra sem þar höfðu þjónað. Shanks hafði ákveðið að vera í SAS-sveitunum uns hann yrði fertugur og árið 1991 hætti hann herþjónustu fyrir fullt og allt og gerðist svæfingalæknir á sjúkrahúsi. Þá hafði hann kvænst og eignast dótt- ur. En hermaðurinn fyrrverandi átti erfitt með að semja sig að hversdags- legum háttum. Hann hélt sínu her- mannlega útliti og átti erfitt með að slaka á. Eftir þrjú ár hafði frúin feng- ið nóg af hjónabandinu og yfirgaf hann ásamt dótturinni. Töfrandi á sinn hátt Vicky Fletcher var nítján ára þegar hún kynntist Thomas Shanks. Hún féll fyrir hermannlegu útlitinu og fannst hann töfrandi. Þau hófu sambúð og í fyrstu var ekki að sjá að hinn mikli aldursmunur væri þeim til vandræða. Hún kunni að meta karlmannlega menn, jafnvel karl- rembur, og á sinn hátt var Shanks ímynd þeirra. En Vicky kimni líka að meta dansleiki og kráarlíf en það höfð- aði lítið til Shanks. I raun varð hann æ meira innhverfur og sér- hygginn og fólk fór að hafa orð á því að líklega væri hann kominn með Persaflóa-heilkennið, óskýrð sjúkdómseinkenni margra sem barist höfðu í striðinu syðra. Þau Vicky rifust æ oftar og í apríl í fyrra fékk hún nóg. Hún yfirgaf Shanks og fann sér fljótlega nýjan kærasta meðal yngri lækna á spít- alanum. Leitin heldur áfram Eftir morðið og hvarf Shanks höfðu margir af fyrrverandi félög- um hans í SAS-sveitunum samband við lögregluna og vöruðu hana við. Skoðun þessara manna var sú, vegna náinna kynna af Shanks, að hann myndi leita út i einhvern skóganna á Bretlandseyjum og búa þar um sig með mikið af vopnum. Yrði sótt að honum við slíkar að- stæður yrði hann afar hættulegur andstæðingur. Honum mætti helst af öllu líkja við kvikmyndahetjuna Rambó og margir lögreglumenn gætu týnt lífinu ef þeir reyndu að ná honum. Lögreglan óttaðist mest að Castlefield-krá Shanks myndi halda til Birming- ham og reyna að myrða fyrrverandi konu sína og dóttur. Því var staðinn vörður við heimili þeirra og þeim fylgt hvert sem þær fóru. Gaf skýringu í síma En daginn eftir morðið hringdi Shanks í bróður sinn, Colin, og sagði honum að hann hefði drepið Vicky af því hann hefði ekki getað lifað án hennar. Nú væri hann á leið til Skotlands þar sem hann ætl- aði að fela sig í skógi. Ef til vill kynni hann að ráða sig af dögum þar. Bíll Shanks var hlaðinn vopnum og skotfærum og magnið var slíkt að vitað var að umsátur gæti staðið lengi. Miklu skipti því aö reyna að koma höndum yfir hann áður en hann kæmist alla leið til Skotlands. Það tókst þó ekki og tveimur dögum síðar hringdi Shanks á ný til bróður síns úr almenningssíma i Glasgow. Lögreglan hleraði síma bróðurins og gat rakið símtalið til símaklef- ans. Svo heppilega vildi til að tveir lögreglubCar voru á ferð í næsta ná- grenni og áður en Shanks tókst að komast aftur inn í hinn vopnum hlaðna bíl sinn var hann gripinn. Réttarhöldin Stríðshetjan var færð í varðhald. Yfirheyrslur fóm fram yfir honum en þar mun fátt hafa komið fram sem gat aukið við það sem þegar var vitað um morðið. Er lögreglu- skýrslur höfðu verið sendar sak- sóknaraembættinu var gefin út á hendur honum ákæra. Þann 4. september í fyrra kom Thomas Shanks fyrir rétt í Leeds. Réttarhöldin stóðu nokkuð lengi, ekki þó vegna þess að vafi þætti leika á sekt hans heldur af því að verjandi hans hélt því fram að hann væri ekki heill heilsu. Eins og margir aðrir sem barist hefðu í Persaflóastríðinu væri hann með heilkennið sem við það er kennt. Verjandinn var þó í erfiðri stöðu því þótt ljóst sé að margir hermenn bandalagsþjóðanna sem sendu lið þangað hafi veikst eftir heimkom- una og sumir dáið hefur gengið illa að fá yfirvöld til að viðurkenna að dvölinni á vígstöðvunum sé um að kenna. Þeir sem halda fast við að heilkennið sé staðreynd vísa eink- um til tvenns, annars vegar mögu- leika á aö eiturgas eða sýklavopn úr vopnabúram Iraka séu orsökin en hins vegar að kenna megi um fjöl- bólusetningu hermanna, það er að þeir hafi í skyndi verið bólusettir gegn mörgum sjúkdómum og ónæm- iskerfið hafi ekki geta tekið slíku álagi. Shanks mótmælti því sjálfur að hann væri sjúkur þó sumir teldu sig hafa greint ýmislegt í fari hans sem staðfest gæti Persciflóa-heílkennið. Ekki bætti sú yfirlýsing stöðu verj- anda og réttarhöldunum lauk með lífstíðardómi yfir Shanks. Það þýðir þó ekki að hann geti ekki fengið lausn síðar á ævinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.