Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1999, Síða 51
59
JJ'V LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
igkógrækt
Aðalsteinn var húsgagnasmiður í fjölmörg ár en stundar nú skógrækt:
Endurgreiðir landinu
Aðalsteinn Helgason, húsgagna-
smiður á eftirlaunum, segir að
hvers konar ræktun hafl verið
áhugamál hjá sér alla tíð. Nú hef-
ur hann um tíu ára skeið hlúð að
tveimur svæðum, í Huppahlíð og
Ásdísarlundi, hvort tveggja í Mið-
firði 1 Vestur-Húnavatnssýslu.
Svæðin verða nýtt sem útivistar-
svæði, til þess að fólk geti komið
þar og dvalið að deginum, sér til
yndis. Aðalsteinn býr í Reykjavík
en stundar uppbygginguna fyrir
norðan á sumrin.
timbrið
og sá skógur hefur vaxið og dafn-
að.“
En á ísland ekki bara að vera
eins og það er; hrjóstrugt og trjá-
laust?
„Jú, alveg örugglega," segir Að-
alsteinn. „Þó að nokkrir hektarar
séu lagðir undir skóglendi þá veit-
ir það bara fólki, sem ekki vill
standa út i kuldanum, skjól og af-
þreyingu. Mér finnst staðir fyrir
almenning, sem eru skógi vaxnir,
mjög nauðsynlegir. Það breytir
ekki ásýnd íslands svo nokkru
nemi - ekki nema til bóta - og hef-
víkja fyrir þeim er ég ekki dóm-
bær á.“
Finnst þér nóg að gert í um-
hverfismálum hér?
„Umhverfismálin hefjast strax
utan við dyr manna og hver mað-
ur ætti að byrja á að líta niður fyr-
ir tærnar á sjálfum sér. Góð um-
gengni um landið er það fyrsta
sem fólk þarf að tileinka sér en því
miður er því ábótavant. Við búum
líka í svo erfiðu landi og við verð-
um að gæta þess að misnota það
ekki. íslenskur jarðvegur er ákaf-
lega snauður vegna þess að hann
Ekki í kvenfélaginu
Kvenfélagið fðja á landið í Mið-
firðinum en Aðalsteinn þvertekur
fyrir að vera meðlimur þess félags.
„Konurnar hafa hvorki tíma né að-
stöðu til þess að sinna þessum
verkum og fengu mig til þess að
annast þau um tíma. Svo er það
þannig að þegar maður hættir fost-
um störfum tekur maður til við
áhugamálin sem hafa blundað með
manni. Ræktun hefur verið mitt
áhugamál frá fyrstu tíð. Ég hef
verið húsgagnasmiður og með-
höndlað timbur alla ævi og því er
ekkert óeðlilegt við að ég vilji
rækta timbur í staðinn fyrir það
sem ég hef smíðað úr,“ segir Aðal-
steinn, sposkur.
„Frændi minn, Hafþór Þorbergs-
son, hefur verið í þessu með mér
allan tímann og þar fyrir utan fæ
ég bændur af næstu bæjum með
dráttarvélar sínar og tæki þegar
það á við. Það er mjög ánægjulegt
að geta borgað þeim pínulítið fyrir
þar sem fjárhagurinn er ekki of
beysinn hjá sauðfjárbændum. Þar
hefur Pokasjóður Landverndar
komið okkur til aðstoðar og Um-
hverfissjóður sem sérstaklega hafa
styrkt verkefnið."
Þegar þú varst að alast upp fyr-
ir norðan var þá einhver áhersla
lögð á skógrækt?
„Það voru undantekningartil-
felli. Það fyrsta sem ég vissi um
skógrækt þegar ég var barn var að
Benedikt nokkur á Barkarstöðum
ræktaði tré fyrir framán býlið sitt.
Efri ár sín notaði hann svo til þess
að planta allverulega stórt svæði
Aðalsteinn Helgason húsgagna-
smiður vill borga náttúrunni aftur
það timbur sem hann hefur smíðað
úr um ævidagana og ræktar því tré.
„Þó að nokkrir hektarar séu lagðir
undir skóglendi þá veitir það bara
fólki, sem ekki vill standa út í kuld-
anum, skjól og afþreyingu. Það
breytir ekki ásýnd íslands svo
nokkru nemi - ekki nema til bóta og
hefur auk þess mjög góð áhrif á sál-
ina,“ segir hann.
DV-mynd Hilmar Þór
ur auk þess mjög góð áhrif á sál-
ina.“
Skondnir skotveiðimenn
Nú eru umhverfisverndarmálin
mikið í eldlínunni og má þar
nefna málefni Eyjabakka. Hvaða
skoðun hefur þú?
„Það er erfitt að mynda sér
skoðun þar sem fólk hefur til-
hneigingu til þess að skiptast í
andstæðar fylkingar um svona
mál, annaðhvort með eða á móti.
Það er til dæmis skondið að skot-
veiðimenn vilja vernda Eyjabakk-
ana sérstaklega vegna gæsarinnar
- til þess að þeir geti síðan skotið
hana!
Það er eins með húsbyggingar
hér í Reykjavík, það er aldrei
byggt hús hér nema rísi einhver
ógurleg mótmælaalda. Ég nenni
bara ekki að taka þátt í þessu. Ég
hef aldrei komið þarna á Eyja-
bakkasvæðið en ég veit að öræfin
eru tignarleg og fögur. Hvort nauð-
synlegar framkvæmdir eiga að
fær aldrei tækifæri til þess að
byggja sig upp og við ræktun þarf
mikla þolinmæði. Það misferst
ýmislegt til að byrja með og manni
þykja nú trén vaxa heldur hægt.
En þó er það svo að á tíu árum eru
trén orðin þrír metrar. Og gróður-
inn plumar sig ef hann fær að vera
í friði.“
Hvað með framtíðina?
„Verkefni okkar í Ásdísarlundi
er rétt að byrja og ákaflega gaman
að Pokasjóður Landverndar skuli
gera okkur kleift að halda þvi
áfram. Og það ætla ég að gera svo
lengi sem mér endist aldur til,“
segir Aðalsteinn, fullur af eldmóði.
-þhs
aukaafslátt af
smáauglýsingum
Smáauglýsingar
550 5000
Utsala Utsala Utsala
Allt að 40%
aFsláttur aF
kassagíturum
Trommusett Frá 45.000
RaFgítarar Frá 9.000
RaFbassar Frá 15.000
Pokar Frá 990
Gítarirm
Laugavegi 45 - sími 552 2125
GSM 895 9376
INNANHÚSS- 11»
ARKITEKTÚR
f frítíma yðar með bréfaskríftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátt-
töku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýs-
ingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíli, blóm,
skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir, veggklæðningar,
vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, húsgagnaefni og glugga-
tjöld ásamt hagsýni o.fl.
Ég óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn.................................
Heimilisfang........................
Akademisk Brevskole A/S
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark
m
1
■
■.
::
m
og teiknun
Photoshop 5 og Coreldraw 9
AdobePhotoshop-5.0
Tilvalið námskeið fyrir þá
sem viljahanna
skemmtilegt kynningarefni
og auglýsingar.
Boðið er upp á kvöldnámskeið
frá 7. sept. til 2. okt.
Námskeiðið er 48 kist.
eða 72 kennsluslundir.
Uppíýsingar og innntun í sínuim
544 4500 oíj 555 4980 ---------
ntv
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hliðasmára 9-200 Kópavogi - Simi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasíða: www.ntv.is