Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1999, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999
7
Fréttir
Stórglæsileg sjávarútvegssýning i Smáranum i Kópavogi opnuö i gær:
Finn ekki til samviskubits
- segir kampakátur bæjarstjóri Kópavogs sem „hirti“ sýninguna af Reykvíkingum
„Ég fmn ekki alvarlega til sam-
viskubits," svaraði Sigurður Geirdal
spurningu um það hvort samviskan
plagaði hann ekkert fyrir að hafa tekið
sjávarútvegssýninguna af Reykvíking-
um. Sigurður var mættur á sýningar-
svæðið í Smáranum í Kópavogi við
opnun i gær. Þetta er í fyrsta sinn sem
sjávarútvegssýning af þessu tagi er
haldin í Kópavogi en fram að þessu
hafa þær verið í Laugardalshöllinni í
Reykjavik. DV skoðaði sýningarsvæð-
ið í gær og er óhætt að segja að vel hafi
tekist til. Alls eru um 13 þúsund fer-
metrar lagðir undir sýninguna þar
sem yfir 850 fyrirtæki frá á fjórða tug
þjóðlanda sýna vörur sínar í tæplega
300 sýningarbásum. Ljóst er að þeir
sem ætla að kynna sér allt sem í boði
er á sýningunni þurfa að vera vel bún-
ir tii fótanna, auk þess að hafa nægan
tíma í yfirferðina. SýnOegt er að góð-
æri er í sjávarútveginum og fjöldi
þjónustufyrirtækja sætti lagi að kynna
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, er himinlifandi að
hafa náð til sín sjávarútvegssýningunni. Hann segir Kópa-
vogsbúa hafa sýnt og sannað að þeir séu í stakk búnir til
að halda sýninguna með stæl.
vörur sínar vel höldnum útgerðar-
mönnum, sjómönnum og fiskverkend-
um. Bæjarstjóri
Kópavogs sagðist
vera hæstánægður
með umgjörð sýning-
arinnar og þátttök-
una.
„Þetta er mjög gott
sýningarsvæði. Við
höfúm unnið að upp-
byggingu í mörg ár og gerðum dalinn
faUegan og grænan. Þetta hefur heppn-
ast vel og ég er hæstánægður. Við höf-
um sýnt og sannað að við getum
þetta,“ sagði Sigurður og bætti við að
ekki væri spuming að Smárinn hent-
aði betur undir sýningar en Laugardal-
urinn í Reykjavik.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, mætti á sýningarsvæðið í Smáranum í Kópavogi. Hér er
hann að skoða nýjustu tækni í fiskvinnsluvélum og var stórhrifinn. DV-myndir Þök
„Þetta er miklu betri aðstaða enda
er hér miklu meira af húsum. Þeir sem
standa að sýningunni eru mjög ánægð-
ir. Þá er mikill kostur að hér getum
við sett upp 2000 bUastæði aukalega,"
segir Sigurður.
„Þetta er gríðarlega umfangsmikið
og greinUegt að það eru mjög margir
sem leggja sig fram um að búa tU tæki
sem duga vel í fiskvinnslunni. Það er
enginn skortur á hugmyndum og út-
færslum,“ sagði Ámi Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra þegar DV ræddi við
hann á sjávarútvegssýningunni i
Smáranum í gær.
-rt
Það komu margir í bás Hafró og útgerðarmanna í gær. Hér eru þeir Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ, og Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró, ásamt
hjónunum Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra og Haraldi Sturlaugs-
syni, forstjóra Haraldar Böðvarssonar hf. á Akranesi. DV-mynd ÞÖK
Útgerðarmenn með sýningarbás með Hafró:
Hönd í hönd
með Hafró
- segir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ
„Okkur þykir mjög gaman að vera
með þessum aðUum að kynna okkar
málstað. Við leggjum áherslu á það
ásamt Hafró hve miklum árangri fisk-
veiðistjómunin hafi skUað," segir
Kristján Ragnarson, formaður Lands-
sambands íslenskra útgerðarmanna,
sem stendur að stórglæsUegum sýning-
arbás ásamt Hafrannsóknastofnun og
Viðskiptastofu utanrikisráðuneytisins.
Sýningarbásinn hefúr vakið mikla at-
hygli enda settur upp á óvenjumikilli
smekkvísi þar sem vatn og fiskar spUa
stærsta hlutverkið.
Kristján segir sérlega ánægjulegt að
samstarf þessarra aðUa skuli hafa tek-
ist mn að halda úti kynningu á mál-
staðnum. Hann segir útvegsmerm hafa
látið vinna vandað kynningarefni sem
ætlað sé tU að opnu augu manna fyrir
þvi hve vel fiskveiðistjómunarkerfið
hafi reynst. Kynningin sé ekki síst ætl-
uð útlendingum sem geti lært af
reynslu íslendinga.
„Við emm með íslenska og erlenda
útgáfu af kynningarefni þar sem við
vUjum að menn sjái og sannfærist um
að við séum á réttri leið. Við skerum
okkur nokkuð úr þegar litið er tU
koUega okkar í öðrum löndum sem
ekki styðja sina fiskifræðinga og em
uppfiUlir gagnrýni. Við erum hönd í
hönd með Hafrannsóknastofnun. Með
það fyrir augum að efla samband okk-
ar réðum við á sínum tíma Kristján
Þórarinsson stofnvistfræðing sem er
eins konar brú mUli veiða og vísinda.
Þetta hefur okkur tekist mjög vel,“ seg-
■ ir Kristján.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, var ekki síður
ánægður með samstarfið í sýningar-
básnum.
„Það er fín stemning hjá okkur.
Þessi kynning okkar er í framhaldi
þess að við höfum verið með kynning-
ar um aUt land í tengslum við Dag
hafsins," segir Jóhann.
„Við erum með þessu að ná tU sjó-
manna og útgerðarmanna og ekki síð-
ur aUs almennings. Við erum í fyrsta
sinn að útskýra fiskifræði í sem ein-
foldustu máli,“ segir hann.
Nokkur kurr hefúr verið innan sjó-
mannaforystunnar vegna þess að
Hafró stendur að kynningu sinni með
útgerðarmönnum. Aðspurður um það
hvort ekki hefði verið ástæða tU að
eiga samstarf við fleiri hagsmunaðUa á
sýningunni sagði Jóhann að samstarf-
ið við LÍÚ væri nánast tUvUjun.
„Okkur er mikið kappsmál að eiga
náið samráð við sem flesta í sjávarút-
veginum. Það er okkur lífsspursmál að
sjómennimir leggi okkur tU gögn tU
rannsókna. Þessi stóri bás bauðst okk-
ur einfaldlega en við munum sinna sjó-
mönnum sérstaklega seinna," segir Jó-
hann. -rt
Skrifstofur VÍS eru opnar
frá 9-17 alla virka daga ívetur.
Þú færð svör við spurningum þínum í þjónustuveri VÍS, 560 5000,
frá 8:00 til 19:00 alla virka daga.
. , pai >«iii uyggmgi
Skrifstofur VIS í útibúum Landsbankans á Höfn í Hornarfirði og í Ólafsvík eru opnar frá 9:15 -16:00. snúast um róik
Vetrartíminn er kominn