Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1999, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1999, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999 Kvikmyndir Börn himinsins Leitin aö týnda skóparinu ★★★ Ég verð að viðurkenna að ég hafði þó nokkrar efaseradir um þessa mynd áður en ég fór á hana. Mín eina reynsla af íranskri kvikmyndagerð var leiðinleg og viðvaningslega gerð mynd eftir Jafar Panah sem sýnd var á ein- hverri kvikmyndahátíðinni fyrir nokkrum árum. Böm himinsins sýndi mér hins vegar rækilega fram á flónsku þess að dæma kvikmyndaiðnað heillar þjóðar af einni mynd. Myndin býður upp á skemmtilega, heilsteypta og vel byggða sögu, góðan leik og á köflum ansi fyndna og sérstæða íroníu. Myndin segir frá hinum 9 ára Ali sem lendir í þeirri ógæfu að týna eina skópari yngri systur sinnar. For- eldrar þeirra eru mjög fá- tækir og hafa ekki efhi á að kaupa nýja skó fyrr en heimilisfaðirinn fær út- borgaö um mánaðamótin. Systkinin ákveða því að segja ekki foreldrum sínum frá heldur reyna að bjarga málunum sjálf. Þau nota bæði útjaskaða strigaskó Ali - hún fer í þeim í skólann á morgn- ana og skiptir síðan við Ali áður en hann fer í skólann um eftirmiðdaginn. Þegar þau síðan kom- ast að því hver tók skóna flækjast málin enn frek- ar því þau telja sig ekki geta krafist þeirra aftur. Þau verða því einhvem veginn að útvega sér nýtt par og fá tækifæri til að gera það á afar sérstakan hátt. Þær bamamyndir sem rata hingað era yfirleitt bandarískar og jafiian drekkhlaðnar af væmni, einfeldningslegum boðskap og ódýrum sögubrell- um. Þessi íranska bamamynd er ekki alveg laus við þessa galla en þeir em alls ekki áberandi og bera ekki söguna ofurliði. Bjánalegur boðskapur er ekki tuggður stanslaust ofan í krakkana eins og þeir séu algjörlega lausir við sjáifstæða hugsun. Hér er borin virðing fyrir bömunum og myndin kemur boðskap sínum á framfæri á tiltölulega hógværan hátt, jafnvel með vott af kaldhæðni á köflum, sérstaklega í frábærum endi myndarinn- ar, sem er í senn ljúfsár og íronískur og ákaflega viðeigandi sögulok. Sagan er sem sagt ansi hug- myndarík og vel skrifuð. Hún ber passlega mikil þjóðareinkenni, er nógu írönsk tO að vera sérstök og áhugaverð en ekki svo mik- ið að hún verði illskiljanleg vestrænum áhorfendum. Það er ansi gaman að því hversu mikið mál verður úr jafii lítilfjörlegum hlut og okkur allsnægtafólkinu hlýtur að finnast týnt skóp- ar vera og maður brosir í kampinn við að sjá hversu himinlifandi systirin verður þegar hún fær kúlupenna að gjöf. Þessi menn- ingarheimur er afar frábragðinn okkar samfélagi en sagan er fram- reidd á þann hátt að hún yfirvinn- ur auðveldlega hugarfarsleg landa- mæri. Hún þarf ekki að fela sig á bak við ólíka menningarheima því hún stendur fyllilega fyrir sínu sem vel skrifuð, vel gerð og skemmtileg bamamynd. Sýnd í Regnboganum. Leikstjorn og handrit: Majid Majidi. Kvikmyndataka: Parviz Malek. Tónlist: Key- van Jahanshahi. Klipping: Hassan Hassandoost. Leikarar: Amir Naji, Amir Farrokh Hashemian, Ba- hare Sediqui og Nafise Jafar-Mohammadi. jrönsk, 1997. Pétur Jónasson K v i k m Lucky People Center International Athyglisverð til- raunastarfsemi GAGNRYNI ★★ Þessi sænska heimildar- mynd er afrakstur tveggja ára ferðálags aðstandenda hennar vítt og breitt um heiminn. Hún bræðir saman tónlist og heimspeki ólíkra menningarheima í tilraun til að öðlast einhvers konar sýn á stöðu mannkynsins undir lok ár- þúsundsins. Af einhverjum ástæð- um virðist ríkja almennt sam- komulag um að mannkynið standi á merkum tímamótum vegna þess að árið 2000/2001 er við það að ganga í garð. Það verður að virða Lucky People Center það til tekna að hún gerir að minnsta kosti til- raun til að grennslast fyrir um stöðu mannsins á þeim „tímamót- um“, meðan íslenskir grúskarar rífast um hvort að árið 2000 eða 2001 sé hið raunveru- lega tímamótaár! En þótt myndin sé nú öllu merkilegri en þessi helsta ritdeila íslendinga á síðustu árum gengur hún engan veginn upp. Fulltrúar ólíkra samfélaga láta í ljós skoðanir sínar á lífinu og tilverunni. Þótt slíkar heim- spekilegar vangaveltur séu áhugaverðar á kvikmyndaform- ið erfitt með að gera þeim skil og verða þær flestar á endanum æði klisjukenndar. Enn- fremur býr myndin yfir æði gamaldags og ein- feldningslegum boðskap, þótt hún gefi sig út fyrir að miðla ólíkum skoðunum. Hér á ég við þá tilhneigingu að upphefja „frumstætt" líf úti í náttúrunni meðan lif Vesturlandabúa birtist sem andlegur dauði í gráum ferningslaga há- hýsagröfum. Enda er það svo að eina framlag n d a #• hvítra Vesturlandabúa (að undanskildum ' þeim sem hafa hafnað siðmenningunni og leit- að uppruna síns, jafnvel allt aftur til apanna) til vitsmunalegrar umræðu myndarinnar er sænsk klámdrotting sem ætlar aö frelsa heim- inn með fullnægingarstunu! Listrænir tilburðir myndarinnar eru oft við það að vera tilgerðarlegir og næsta hjákátleg- ir og tónlistin reyndar einnig lítið heillandi. Engu að síður er myndin athyglisverð tilraun og ánægjulegt að sjá kvikmyndagerðarmenn reyna eitthvað nýtt. Áhugasömum er því ráð- lagt að skoða þessa mynd því þótt hún sé ekki góð er hún öðruvísi og kvikmyndaforminu veitir ekki af tilbreytingu endrum og eins. Leikstjórn og klipping: Erik Pauser og Johan Söderberg. Kvikmyndataka: Jan Röed. Sænsk, 1998. Björn Æ. Norðfjörð Dagskrá fimmtudaginn 2. sept HÁSKÓLABÍ s SAMWt SNORRABRAUT 16:45 The Winslow Boy 16:40 Full Metal Jacket 17:00 Do You Remember Dolly Bell 17:00 Barry Lyndon Night Shapes Sex-Annabel Chong 19:00 Non Stop 18:50 Full Metal Jacket Black Cat White Cat 19:00 Sex-Annabel Chong Little Tony 21:00 The Shining 21:00 My mom is a Gangster Sex-Annabe! Chong 21:15 Black Cat White Cat Full Meta! Jacket 23:00 Time of the Gypsies 23:00 Sex-Annabel Chong Non Stop 23:15 Full Meta! Jacket 23:30 A Clockwork Orange iiCíi* *t4á**AA er klúbbur hóiíðarinnar vefsíða hálíðarinnar vísir.is IhubL Bilaleiga FLUGFÉLAG ÍSLANDS Air lceland á DCCMDACIMM 16:00 17:00 18:30 19:00 21:00 23:00 23:30 TVGZIMSEN Happiness Children of Heaven Trick Happiness Three Seasons Last Days Happiness Half a Change Trick Happiness lltTOI ANTt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.