Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1999, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999
13
og tóftir einar. Litlu gráu húsin
standa auð og fólkið fyrir löngu
flutt suður. En fjöllin eru fógur og
tignarleg í haustlegum purpura-
skrúða og laða að sér þreytta stór-
borgarbúa sem vilja um stundar-
sakir dvelja í óspilltri náttúru.
Þetta hefur skapað þeim vaxandi
atvinnu sem eftir urðu.
Svipuð þróun hefur átt sér stað
í Finnlandi þar sem ég sleit
bamskónum. „Þúsund vatna land-
ið“ var rómað fyrir fegurð sina. Á
keisaratímanum áttu furstar og
annað hirðfólk þarna sumarhallir
og sjálfúr Rússakeisari eyddi frí-
tíma sínum hjá
fossunum í
Imatra og Anjala.
En tímarnir
breyttust, með
hirðinni hvarf
fína fólkið og
tekjumöguleikar
fólksins skertust.
Eftir tímabil
stóriðjutilrauna
eru austurhéruð-
in aftur orðin
fræg, ekki fyrir
náttúrufegurð
sina heldur fyrir draugalegar
verksmiðjubyggingar, sem standa
auðar á vatnsbakkanum og spilla
annars fallegu umhverfí. Eigend-
umir hafa flutt sig um set og bygg-
ingamar, sem reistar vom fyrir
styrktarfé frá ríki og bæ, standa
eftir, ónotaðar.
„Ráðamenn geta ef til vill hægt á
þróuninni, en hún heldur áfram.
Spurningin er bara hvort við viljum
geyma eitthvað afóspilltri náttúru
handa afkomendum okkar þegar
þeir leggjast aftur í leiðangur og
uppgötva að hamingju er víðar að
fínna en í þéttbýlinu.u
Heyrðu, Svana min, ég var að
lesa um hann Jón Ólafsson í DV.
Hann er ekki með nema 79 þúsund
króna tekjur á mánuði og ör-
yrkjamir eru búnir að stofna söfn-
unarreikning nr. 267693 í Lands-
bankanum til þess að leggja inn á
fyrir hann. Heldurðu, elskan, að
við séum nokkuð aflögufær með
þessi 123 þúsund í mánaðarlaun
og 60 þúsund króna leigu á mán-
uði fyrir þessa kjallaraíbúð héma
í henni Reykjavík? - Ekkert út-
sýni nema lapp-
irnar á vegfarend-
um.
Það var munur
þegar við vorum í
húsinu okkar fyr-
ir vestan, sagði
Sveinn gamli, sem
flosnaði upp frá
Þorskafirði vegna
kvótabrasks, og
stundi við. En
þetta er alveg
skelfilegt með
hann Jón og svo á hann líka 3
börn til þess að sjá fyrir og það á
þessum launum.
Sammála Jóni
Ósköp er að heyra þetta, varð
Svönu að orði. Veistu, að hann vill
ekki einu sinni búa á íslandi -
fluttur til Englands. Hann segir að
þjóðfélag okkar telji sig ekki hafa
efni á að fjárfesta í börnunum sín-
um, því miður, og menntastefna á
íslandi sé gjörsamlega í molum.
Ég get nú ekki annað en verið
sammála Jóni í þessum efnum -
kennarar alltaf í verkfalli til þess
að reyna að knýja fram kaup-
hækkun og það vantar á annað
hundrað leikskólakennara.
En það var allt í lagi að hækka
laun cdþingismanna og ráðherra
um 60-120 þúsund á mánuði strax
daginn eftir kosningar. Það kom
Davíð ásamt þingmönnum auðvit-
að algjörlega á óvart,- En þeir
sögðu ekki nei takk.
Og nýlega fengu 19 embættis-
menn í kerfinu dágóða hækkun.
Það er samt ekkert hægt að hækka
kaup þeirra fátæku eða hækka
skattleysismörkin. Davíð gerir
lika lítið úr þeirri könnun sem fór
fram um hagi íslendinga og sýndi
að 3% landans séu fátækir. Það sé
bara innan skekkjumarka. Það
„Það á bara að efna til nýrra
kosninga. Steypa stjórninni og fá
einræðisherra, helst kóng, sem
kann að stjórna. Kenna henni að
lifa á 79 þúsund krónum á mán-
uði öllum sem einum og borga
lágmarksskatta.“
Með og
á móti
Upptaka á sjónvarpsefni gegn
gjaldi fyrir sjómenn
íslenska útvarpsfélagið vann nýlega dóms-
mál þar sem Ausfirðingur sem hafði tekið
upp sjónvarpsefni fyrir sjómenn gegn
greiðslu var dæmdur í 200 þúsund króna
sekt og 11 myndbandstæki hans gerð upp-
tæk til ríkissjóðs. Vandinn er eftir sem áður
sá að sjómenn greiða gjarnan afnotagjöld af
Stöð 2/Sýn og ekki síst RÚV en án þess að
ná megninu af útsendingunum.
Fróðlegar utanferðir
Kjósum Jón kóng
Utanlandsferðir eru
oftast til skemmtunar
en geta einnig verið
fróðlegar á margan
hátt. í spegli annarra
þjóða skýrast oft lín-
urnar heima fyrir og
maður getur dregið
lærdóm af því sem
aðrir gera.
Nú vill svo til að
eftir margra ára bú-
setu hér á landi hafa
æskustöðvar mínar
orðið mér útlönd. Þau
fáu skipti sem maður
fær tækifæri til að
heimsækja þær sér
maður þær með aug-
um útlendings. Fjar-
lægðin gerir mann hlutlausari og
breytingar síðustu ára sjást skýr-
ar, því að „glöggt er gests augað".
Unga fólkið vill í fjölmennið
Fyrir um aldarfjórðungi var
enn líf í skosku
Hálöndunum, en þar
vann ég sem ung
kona. Litlu kofarnir
voru fullir af ung-
viði, en samt var ein-
hver órói kominn í
mannskapinn. Unga
fólkið brann i skinn-
inu, það langaði til
að ferðast, skoða
heiminn og verða
ríkt. Fjallafegurðin
nægði því ekki leng-
ur. „Unga fólkið vill
vera þar sem eitt-
hvað er að gerast,"
sagði gamla konan
sem ein var orðin eft-
ir. „Það vill skemmt-
anir og fjölbreyttari tækifæri. Það
vill vera þar sem fjölmenni er.“
Nú blasir víða dapurleg sjón
við. Þorpskráin sem var sam-
komustaður okkar félaganna á
laugardagskvöldum er löngu fallin
Kjallarinn
Marjatta Isberg
fil. mag. og kennari
„Óneitanlega leitar á mann hugsun um framtíð íslands, en byggðir hafa risið og lagst í eyði eins lengi og menn
rnuna." - Frá Djúpuvík á Ströndum.
Hvernig verður framtíð
íslands?
Óneitanlega leitar á mann hugs-
un um framtíð íslands, en byggðir
hafa risið og lagst í eyði eins lengi
og menn muna. Á fyrri öldum gátu
konungar og ríkisstjómir ákveðið
stað byggðar. Með skipunarbréf-
um sínum stofnuðu þeir borgir og
lögðu þær niður. Menn hlýddu,
því að þeir gátu ekki annað. Menn
þekktu heldur ekki mikið annað
en nánasta umhverfi sitt.
En svo kom sjónvarpið og
breytti öllu. Menn uppgötvuðu að
það var líf handan fjallanna. Hin-
um megin hlytu menn að vera
bæði ríkari og hamingjusamari.
Þangað vildi fólkið eins og kot-
ungssonurinn forðum í hirðina.
Ekkert skipunarbréf gat hindrað
það. Ráðamenn geta ef til vill hægt
á þróuninni, en hún heldur áfram.
Spumingin er bara hvort við vilj-
um geyma eitthvað af óspilltri
náttúru handa afkomendum okkar
þegar þeir leggjast aftur í leiðang-
ur og uppgötva að hamingju er
víðar að finna en í þéttbýlinu.
Marjatta ísberg
þýöir víst að það séu
engir fátæklingar til á
íslandi jafnvel þótt
blessuð kirkjan, félags-
málastofnun og aðrir
góðhjartaðir víki að
þeim smámatarbita við
og við. 3% af þjóðinni
er nú dálítið mikið.
Fleiri en þessir út-
lendu togarasjómenn
sem innlyksa eru í
Reykjavíkurhöfn í 9
mánuði og fá ekki
kaupið sitt.
8100 fátæklingar á
íslandi
Þú segir nokkuð,
Svana mín. Það væri
kannski ráð fyrir fá-
tæklingana hér að
standa með spjöld. Látum okkur
sjá - 3% af 270 þúsund manns gera
8100. Það eru fleiri en allir Vest-
flrðingar samanlagt. Það væri
ekki svo vitlaust að biðja hann
Jón í Skífunni að útbúa kröfu-
spjöld. Hann er harður „bisness"-
maður. Það er samt svolítið skrýt-
ið þótt maðurinn sé svona illa sett-
ur að hann geti bókstaflega ekki
lifað. Þá er hann nýbúinn að
kaupa í banka, lóð í Amarnes-
landi, sem ekkert liggur á að selja
aftur, og á von á lóð í Laugardaln-
um. Hann var líka, að ég held, í
Sviss á skíðum sl. vetur. Þar kom
Kjallarinn
mikill snjór og Jón
varð innlyksa þar
ásamt furstum og
öðrum fyrirmönn-
um. Þessir fyrir-
menn létu sig hafa
það að bíða þar til
búið var að ryðja
vegi og fært var orð-
ið, en það gat Jón
ekki. Hann þurfti að
sinna sínum „bis-
ness“ og fékk bara
þyrlu til að sækja
sig og sína fjöl-
skyldu. Það hlýtur
að hafa kostað sitt.
En einhvem hefur
vantað Jón strax.
Kannski til að
kaupa banka.
Einræðisherra - helst kóng
Þú segir nokkuð, Sveinn minn. -
En nú veit ég upp á hár hvernig á
að fara að þvi að lagfæra kjör elli-
lífeyrisþega og öryrkja. Tala nú
ekki um að útrýma fátækt á Is-
landi. Það á bara að efna til nýrra
kosninga. Steypa stjórninni og fá
einræðisherra, helst kóng, sem
kann að stjórna. Kenna henni að
lifa á 79 þúsund krónum á mánuði,
öllum sem einum, og borga lág-
marksskatta. Við kjósum auðvitað
aðeins um eitt. Það er - við kjósum
Jón Ólafsson sem kóng á íslandi.
Erna V. Ingólfsdóttir
Erna V.
Ingóifsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Umbúðalaus rétt-
ur að fá efnið
„Mér finnst eðlilegt að sjómenn fái
þessa þjónustu. Hins vegar er augljóst að
atvinnurekstur af því tagi sem gerðist
þama fyrir austan er ólöglegur. Vanda-
málið er hins vegar að sjónvarpsstöövar
nást mjög illa út á
mið nema á einstaka
stöðum. Skipin eru
með afruglara og
eiga því rétt á þessu
efni umbúðalaust.
Það eru víða til þjón-
ustuaðilar fyrir sjó-
menn en taki þeir
upp efni gegn gjaldi
verður slíkt að vera
í samráði við rétt-
hafa efnisins. Ég
þekki reyndar mýmörg dæmi um að eig-
inkonur kannski tveggja til þriggja i
áhöfn hvers skips skiptist á og séu sköff-
uð tæki til að taka upp og þær fá svo ein-
hverja þúsundkaila fyrir að fórna í þetta
tíma. Þetta hefur gerst alveg frá því ég
var á sjó og aldrei verið gerðar við þetta
athugasemdir. Afnotagjöldin eru borguð
á öllum þessum heimilum hvort sem er.
Ef einhver vill fara út í atvinnurekstur af
þessu tagi verður auövitað að fara í við-
ræður við þá sem eiga höfundar- og sýn-
ingarrétt efnisins. Ég útiloka ekki að
hægt yrði aö semja við sjónvarpsstöðv-
amar um að koma svona þjónustu á.“
Sævar Gunnarsson,
formaður Sjó-
mannasambands
Eigiii upptökur
í lagi - gegn
gjaldi ólöglegt
Sfgur&ur G. Guó-
jónsson, lögmaður
Islenska útvarpsfó-
lagsins.
„Samkvæmt 33. gr. útvarpslaga nr.
68/1995 er útvarpsnotanda óheimilt að
hagnýta sér útvarpsefni til fjárgróða
(eins og segir í lagatextanum), t.d. með
upptöku þess, útgáfu eða með því að selja
aðgang að viðtækj-
um sínum. Á grand-
velli þessa ákvæðis
óskuðu íslenska út-
varpsfélagið hf. og
Sýn hf. eftir opin-
berri rannsókn á
starfsemi Þ.H.-
mynda á Eskifirði
sem seldu áhöfnum
skipa upptökur af
dagskrám Stöðvar 2,
Sýnar og RÚV fyrir
kr. 10.500 á mánuði, ef flmmtán menn eða
færri voru í áhöfn, að viðbættum kr. 480
fyrir hvetja myndbandsspólu. Efni sjón-
varpsstöðva er, eins og efni blaða og
tímarita, þ.m.t. fréttir og Ijósmyndir, háð
höfundarrétti, m.a. blaðamanna og ljós-
myndara. Fréttamenn og ljósmyndarar
hér á landi fá t.d. sérstaklega greitt fyrir
ef frétt eöa mynd birtist í öðrum fjölmiðli
en þeim sem þeir vinna hjá. í samning-
um sjónvarpsstöðva við eigendur sjón-
varpsefnis er sú skylda lögð á sjónvarps-
stöðvarnar að koma í veg fyrir ólögmæt
afnot efnis, Þegar íslenska útvarpsfélag-
inu hf. og Sýn hf. bárust gögn um ský-
laus brot á útvarpslögum, sem jafnframt
fól i sér ólögmæta fjölfóldun á efni,
bundnu höfundarrétti, áttu félögin engra
annarra kosta völ en að óska eftir því við
lögregluyfirvöld að brotastarfsemi Þ.H.-
mynda yrði upprætt. íslenska útvarpsfé-
lagið hf. og Sýn hf. vildu að sjómenn við
ísland fengju notið alis dagskrárefnis
stöðvanna og vonandi verður það hægt
meö nýrri stafrænni tækni um gervi-
tungl. Meðan svo er ekki geta réttlausir
aðilar ekki gert sér sjómannastéttina að
féþúfu. í þessu máli gildir hið sama og
varðandi alla aðra atvinnustarfsemi að
fara verður að lögum. Sjómönnum og
fjölskyldum þeirra er frjálst eins og öll-
um öðrum að taka upp efni sjónvarp-
stöðva til eigin afnota og horfa á það þeg-
ar þeim hentar, hvort heldur einum eða
í hópi með öðrum.“ -Ótt